Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 19
19 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 DV Tilvera •Leikhús BMeð fulla vasa af griéti I kvöld sýnir Þjóðleikhúsið verkið Meö fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones. Leikendur eru Stefán Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guönason en leikritið er nýtt (rskt verðlauna- leikrit sem nú fer sigurför um leikhúsheiminn. Verkið fjallar um tvo trska náunga sem taka að sér að leika í alþjóðlegri stórmynd. Fjölskrúð- ugar persónur verksins eru allar leiknar af tveimur leikurum; kvikmyndaleikstjórinn, Hollywoodstjarnan, þorpsbúarnir og allir aðrir. Sýningin hefst kl. 20 á stóra sviðinu. •Fyrirlestrar MÁhrif atvinnumissis Ki.13.30 verður haldinn fræðslu- og umræðufundur í Hallgrímskirkju um atvinnumissi, áhrif hans á líðan fólks og hvernig skynsamlegt sé að bregðast við. Á undanförnum mánuðum hefur fjöldi fólks orðið fyrir því að missa atvinnuna og dæmi um að fyrirtæki hafi sagt fólki upp hópum saman. Á fundinum mun Pétur Tyrfingsson sálfræðingur halda fyririestur með yfirskriftinni „ég þoli, ég get, ég skal" í erindinu mun hann ræða líðan fólks þegar það verður fyrir mótlæti eins og atvinnumissi og hvernig er hægt að bregðast skynsamlega við. í framhaldi af fyrirlestrinum verður þátttakendum gefinn kostur á umræðum sem skipulagðar verða í samræmi við fjölda fundargesta. Fundarstjóri er Bryndís Valbjarnardóttir guðfræðingur. Allir velkomnir, boðið verður upp á kaffi og kleinur. BFvrirlestrar í Háskólanum Það er ýmislegt að gerast í Háskóla íslands í dag. Má þar helst nefna fyrirlestur Kristínar Björnsdóttur, M.A í uppeldis- og menntunarfræðum, sem flytur erindi T fyrirlestraröð um fötlunarrannsóknir. Erindi hennar nefnist: Þroskaheftir framhaldsskólanemendur. Einnig verður haldin málstofa á vegum viðskipta- og hagfræðideildar H.í. Þar mun Sigurður Jóhannesson sérfræðingur flytja erindið: Arðsemi virkjana fyrir stóriðju. • B í ó ■ Þvsk bíósvning Kl. 20.30 verður sýnd í Goethe-Zentrum á Laugavegi 18 þýska myndin „Der schönste Tag im Leben" frá 1995. Myndin er 88 mín. löng og með enskum texta. Þetta er rómantísk gamanmynd um hjónabandið sem hlaut bæversku sjónvarpsverðlaunin 1996. • T ónleikar BFærevskt. iá takk Það verða tónleikar í gamla Austurbæjarbíói (Bíóborginni) kl. 21 í kvöld en þá verður húsið vígt sem Tónlistarhús nr. 1 í Reykjavík. Eins og glöggir Reykvíkingar hafa tekið eftir hefur húsið staðið autt um tíma. Eingöngu færeyskir tónlistarmenn koma fram þetta kvöld en þeir eru: Hanus G. Jóhansen, Eivör Pálsdóttir, Kári Sverrisson og hljómsveitirnar Clickhaze og Krít. Forsala er í Hljómalind á Laugavegi og kostar miðinn 1500 kr. Lárétt: 1 spjall, 4 heilög, 7 söngli, 8 hvöss, 10 ger- legt, 12 elskar, 13 þvöl, 14 þrábeiðni 15 bleyta, 16 uppstökk, 18 smáger, 21 prófastur,22 menn, 23 starf. Lóðrétt: 1 rangl, 2 augn- hár, 3 morðingi, 4 sérrétt- indi, 5 stök, 6 hrygning, 9 upphaf, 11 bátaskýli, 16 málmur,17 spira, 19 svar- daga, 20 spil. Lausn neðst á síðunni. Skak Umsjón: Sævar Bjarnason Svartur á leik! Það eru fleiri en við venjulegir skák- áhugamenn sem leikum af okkur á óskiljanlegan hátt. Smá huggun harmi gegn! Ég brá mér austur á Selfoss í 7. umferð og varð vitni af furöulegri tvö- faldri yfirsjón. Hér lék Hracek 29. h3 sallarólegur og Oral hugsaði sig lengi um og lék 29. -Hb8. Hvorugur sá að drottningin var í uppnámi!! Ég var ekki sá eini sem sá þetta og hristi höfuðið, þeir Nikolic, McShane og Pedersen einnig auk fjölda annarra áhorfenda. Furðulegt! Tomas Oral var að sjálf- sögðu með gjörunnið en sagöi eftir skákina að þetta væri í samræmi viö taflmennsku sína á mótinu. Sennilega einn af furðulegustu afleikjum skáksög- unar. Hvítt: Zbynek Hracek (2607) Svart: Tomas Oral (2546) Sikileyjarvöm. Alþjóðlegt skákmót Selfossi (7), 14.10.2002 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. c4 Rf6 6. Rc3 Bb4 7. Bd3 Rc6 8. Bc2 Re5 9. 0-0 Rxc4 10. De2 Re5 11. Khl d6 12. f4 Rg6 13.f 5 Re5 14. Ba4+ Ke7 15. fxe6 fxe6 16. Hxf6 gxf6 17. Rf5+ Kf7 18. Dh5+ Rg6 19. Rh6+ Ke7 20. Bg5 Bxc3 21. bxc3 b5 22. Bxf6+ Kxf6 23. Hfl+ Ke7 24. e5 Hf8 25. Rg8+ Ke8 26. Rf6+ Hxf6.27. exf6 bxa4 28. Dxh7 Rf8 Stöðumyndin. 29. h3?? Hb8?? 30. Dh5+ Kd7 31. Hf3 Hbl+ 32. Iíh2 Bb7 33. Df7+ Kc8 34. Hg3 Hb2 35. De7 Hxg2+ 36. Hxg2 Bxg2 37. Kxg2 Rd7 38. Dxe6 Dxf6 39. Dc4+ Rc5 40. h4 Kc7 41. Kg3 0-1 Lausn á krossgátu •EIl 03 ‘Qia 61 ‘BI? il ‘Á19 91 ‘isneu n ‘jnjaej 6 ‘loS 9 ‘uia s ‘iputuunpi p ‘jnQeuieueq g ‘ejq z I :HWQ91 ■BfQi 83 ‘JElk 33 ‘ipunq iz ‘uau 81 ‘QBjq 9i ‘iSe si ‘Qneu n ‘uiojs 81 ‘uue 31 þuun oi ‘uejj 8 ‘ipiEJ 1 ‘Sjaq \ ‘qqBJ \ uiajp'i Dagfari Að tapa og græöa samtímis Skotar eru besta fólk og alls ekki nískir. Þegar ég var krakki voru Skotaskrýtlur afar vinsæl- ar. Þær snerust allar um að Skotar væru öllum öðrum þjóð- um nískari. Þetta skipulega þjóðarníð í skrýtluformi gekk hér á landi í mörg ár og þótti góð latína en mín kynslóð trúði því statt og stöðugt að allir Skotar hlytu að vera nirflar. Nú kemur hins vegar á daginn að Skotar eru bara alls ekkert nískir. Hingað komu 2500 Skot- ar fyrir sfðustu helgi í slagtogi við skoska landsliðið í knatt- spyrnu. Þessir aðdáendur skoska landsliðsins settu óneitanlega skemmtilegan svip á miðbæ Reykjavíkur. Þeir voru hinir hressustu, sungu, hlógu, döns- uðu og drukku mikinn bjór, í sínum litskrúðugu skotapilsum. Sem sagt, hinir hressustu piltar. Að vísu gerðu þeir góða ferð, unnu íslenska landsliðið, 2-0, og voru vel að því komnir. Þeir fengu einnig ágætishaustveður, milt og hlýtt, sem var nú kannski eins gott fyrir alla þá sem voru berrassaðir innan und- ir skotapilsunum. En nú þegar Skotarnir hafa komið, séð og sigrað og eru á bak og burt kemur í ljós að þeir hafa eytt a.m.k. 180 milljónum í gistingu, mat, leigubíla og bjór. Það munar um minna fyrir ís- lenska ferðaþjónustu. Það sem þó stendur upp úr eftir helgina er prúðmannleg framkoma Skotanna, þrátt fyrir allan þennan fjölda og þrátt fyr- ir allan gleðskapinn. Ekki hafa borist fréttir af neinum róstum eða ryskingum af þeirra hálfu. Þeir voru hér þvert á móti til að skemmta sér og öðrum og voru þjóð sinni til sóma. Hætt er við að frændur þeirra, Englending- ar, hefðu orðið til vandræða. Að ekki sé talað um 2500 íslendinga í knattspyrnubjórferð til Glas- gow. Myndasögur s? 03 bú átt að vera að skrifa skáldeögu... Rop ...ekki sjálfsævisögu! Ég held að I það sé af því ) að mesti neistinn er farinn úr sam- bandi okkarl! Sjáðu til Jenný, þar hefurðu vandamálið Eg kemst ekkert áfram með skáldsöguna mína Jafét

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.