Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002
Sport
Leeds leikur
í Rórens
Knattspymusamband Evrópu
hefur ákveöið að leikur Hapoel
Tel Aviv og Leeds í Evrópu-
keppninni í knattspymu verði
leikinn á heimavelli Florentia
Viola í Flórens á ítalíu. Vegna
ástands þjóðmála í ísrael hefur
UEFA ákveðið að ekki verði leik-
ið þar í landi i keppnum á veg-
um UEFA. Þess má geta Flor-
entia Viola hét áður Fiorentina
en varð gjaldþrota í vor. -PS
Pirez skorar
Robert Pirez, leikmaður
Arsenai og franska landsliðsins,
lék í fyrsta sinn í 90. minútur eft-
ir aö hann náði sér eftir erfið
meiðsli sem hafa haldið honum
frá knattspymuvellinum í sex
mánuöi. Hann skoraði eitt
marka Arsenal í 5-1 sigri á QPR.
Vegna meiðsla sinna gat
Robert Pirez ekki leikið með
franska landsliöinu á HM í
Suður-Kóreu og Japan. Það er
ljóst að Arsenal verður ekki
árennilegra við endurkomu
Roberts Pirez. -PS
íslenskir dómarar:
Gylfi og Kristinn
dæma erlendis
Gylfi Þór Orrason og Kristinn
Jakobsson dæma báðir á erlendri
grundu á næstunni. Gylfi Þór
Orrason dæmir í kvöld leik Ung-
veijalands og San Marino í und-
ankeppni Evrópukeppninnar í
knattspyrnu og fer leikurinn
fram í Búdapest. Með honum sem
aðstoðardómarar eru þeir Einar
Guðmvmdsson og Sigurður Þór
Þórsson. Fjóröi dómari er Krist-
inn Jakobsson.
Hálfum mánuði síöar verður
Kristinn aftur á ferðinni, en
hann dæmir fyrri leik Austria
Vín og Porto í Evrópukeppni fé-
lagsliða og fer leikurinn fram í
Vin 31. október. Með honum sem
aðstoðardómarar verða þeir Pjet-
ur Sigurðsson og Eyjólfur Finns-
son, en fjórði dómari verður
Garðar Öm Hinriksson. -JKS
Körfuknattleiksliö KR-inga verður fyrir blóötöku:
Ferill Herberts í hættu
Körfuknattleikslið KR hefur
orðið fyrir gríðarlegri blóðtöku en
fyrirliði liðsins og íslenska
landsliösins, Herbert Amarson,
mun ekki leika með liðinu á
næstunni.
Herbert hefur verið meiddur á
hné undanfarnar vikur og fór í
speglun í gær. Þar kom í ljós að
brotnað hafði úr brjóskinu undir
hnéskelinni og komin hola í
brjóskið.
Ekki er vitað hversu lengi
Herbert verður frá körfuknatt-
leiksiðkun og ekki er útilokað að
ferillinn sé á enda hjá kappanum.
„Ég fór í speglun í gær og þá kom
Herbert Arnarson.
þetta í ljós þegar verið var að losa
vökva sem var í hnénu.
Læknirinn vildi ekkert segja um
hvenær ég get snúið aftur eða
hvort þetta séu lokin á ferlinum.
Maður verður að vera bjartsýnn
en mig grunaði ekki að þetta væri
svona alvarlegt. Það þýðir ekki að
hengja haus yfir þessu og maður
verður bara að vona það besta. Ég
hef fulla trú á að strákamir í KR
fari létt með að fylla mitt skarð og
hjá svona góðu liði kemur bara
maður í manns stað. Ég fer aftur
til sérfræðings á fostudag og þá
skýrist þetta betur,“ sagði Herbert
við DV-Sport í gær.
DV
Stoke í gíslingu
Haft er eftir Gunnari Gíslasyni
stjórnarformanni Stoke City að
það verði ekki ráðið í stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá liðinu fyrr en
samningar um bætur frá Sunder-
land, vegna ráðningar Steve Cott-
erill sem aðstoðarframkvæmda-
stjóra liðsins, en hann sagði upp
störfum hjá Stoke ‘til að taka við
stöðunni.
Fulltrúar Sunderland segja að
þeir geti ekki haldið viðræðum
áfram fyrr en í lok vikunnar sem
Gunnar segir bagalegt og að þar
með sé félaginu haldið í gíslingu,
þar sem Stoke vilji hafa á hreinu
hversu bæturnar verði háar áður
en nýr stjóri er ráðinn. Mikið ber
á milli hvað kröfur Stoke varðar
og það hvað Sunderland er tilbúið
að greiða. -PS
Roy Keane, leikmaður Man. Utd:
Fimm leikja bann
og 20 milljóna sekt
Roy Keane, fyrirliði knattspymu-
liðs Manchester United i Englandi,
var í gær fundinn sekur vegna um-
mæla í bók sinni þar sem hann lýsti
því að hann hefði viljandi reynt að
slasa Alf Inge Haaland. Þá var hann
einnig ákærður vegna sjáifs brots-
ins, sem hann fékk reyndar rautt
spjald fyrir. Keane var dæmur í
flmm leikja bann og 20 milljóna
króna sekt.
Roy Keane er reyndar meiddur
um þessar mundir, en bannið tekur
gildi 4. nóvember næstkomandi og
hefur hann nú 14 daga til að áfrýja
úrskurðinum. -PS
Roy Keane yfirgefur höfuðstöðvar enska knattspyrnusambandsins eftir aö
dómur haföi veriö kveöinn upp í gær.
Danski landsliösmaöurinn Stig Tofting í vandræöum:
„Sláttuvélin" dæmd í
fjögurra mánaða fangelsi
Danski landsliðsmaðurinn og leik-
maður Bolton, Stig Tofting, hefur
verið dæmdur í fjögurra mánaða
fangelsi vegna slagsmála sem hann
tók þátt í á veitingastað í Kaup-
mannahöfn sex dögum eftir landsleik
Dana og Englendinga á heimsmeist-
arakeppninni í júní síðastliðnum.
Atvikið átti sér stað eftir veislu
fyrir danska landsliðið í tilefni af
heimkomu þess frá HM. Stig Tofting
var fundinn sekur um að hafa ráðist
á framkvæmdastjóra veitingastaðar-
ins Cafe Ketchup auk þess sem fleiri
urðu fyrir barðinu á kappanum.
Sækjendur í málinu ákváðu aö halda
málinu til streitu þrátt fyrir að tvö af
fórnarlömbunum ákvæðu að taka af-
sökunarbeiðni Tofting góða og gilda.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Tefting situr í fanglesi fyrir afrek sín
utan vallar, því árið 1999 sat hann í
fangelsi í 20 daga fyrir árás á veit-
ingahúsaeiganda í Árósum í Dan-
mörku. Töfting, sem hlotið hefur
viðurnefnið „Sláttuvélin" vegna
kraftalegs útlits og skrautlegra tæk-
linga á stundum, íhugar nú að áfrýja
dómnum til æðri réttarstigs í Dan-
mörku. Þar sem hann íhugar nú að
áfrýja byrjar Töfting ekki strax að af-
plána dóminn, heldur flýgur til baka
til Englands til liðs við Bolton sem
leikur í ensku deildinni um helgina.
-PS
Formúla 1:
Keppt í Kína
Á næstu dögum verða undirrit-
aðir samningar á milli stjórnenda
Formúlu 1 sirkussins og fyrir-
tækis í Kína um að ein keppni á
ári verði haldin í Shanghai, auð-
ugustu borg í Kína.
Um er að ræða sjö ára samn-
ing eða frá árinu 2004 til ársins
2010 og munu framkvæmdir við
brautina hefjast þegar samning-
ar verða undirritaðir. Gert er
ráð fyrir að kostnaðurinn við
brautina verði um 240 milljónir
dollara þar sem komast um 200
þúsund áhorfendur til að fylgjast
með. -PS
Rjúpnaveiðin byrjaði í gærmorgun:
Margir á veið-
um en fáir
fuglar fengust
Erfitt er að henda reiður á hvað
margir skotveiðimenn hafa farið til
rjúpna á fyrsta degi í gær, en þeir
skipta hundruðum víða um landið.
Og miðað við fjöldann var veiðin
ekki mikil enda ekki mikið af fugli.
Við heyrðum í veiðimönnum sem
fóru til rjúpna í gær.
„Þetta hefur verið rosalegt labb
hjá okkur en við löbbuðum meðal
annars í kringum Baulu og þar
voru margir veiðimenn að skjóta,
menn voru samt ekki að fá mik-
ið,“ sögðu þeir Jóhannes Þór Æv-
arsson og Hannes Jón Marteins-
son í samtali við DV-Sport er við
hittum þá á Bröttubrekkunni og
þar fyrir ofan skartaði Baula sínu
fegursta.
„Við fengum þrjá fugla hvor og
þetta var fínt; þó við þyrftum að
labba mikiö var þetta skemmti-
legt,“ sögðu þeir félagarnir og
gengu frá veiðinni.
Þeir sögðust mest vera í rjúpna-
veiðinni af veiðiskapnum. „Við
erum ekki búnir að veiða mikiö,
eiginlega mjög lítið, nokkra
fugla,“ sögðu þrír veiðimenn sem
við hittum við verslunina á
Skriðulandi í Dölum, þar sem
margir veiðimenn komu við í gær-
dag. „Það eru engar stórar tölur
héðan af svæðinu kringum
Blönduós, fáir fuglar fengust en
veiðimenn fóru eitthvað," sagði
skotveiðimaður í samtali við DV
og annar sem var á Holtavöröu-
heiði sagði að margir veiðimenn
hefðu verið þar en lítið af fugli.
—
Jóhannes Þór Ævarsson og Hannes Jón Marteinsson voru á Bröttubrekkunni í gær og voru komnir meö sex fugla
þegar DV-Sport hitti þá eftir sjö tíma göngutúr. DV-mynd G.Bender
Fimm fengu 60 fugla
„Veiðiskapurinn gengur frekar
rólega hérna í Öxarfirðinum en við
erum komnir með 60 fugla fimm
saman og við höfum oft fengið
meira," sagði Árni Halldórsson en
hann var á Öxarfjarðarheiðinni á
fyrsta degi veiðitímans.
„Það eru margir hérna á veiðum
en mest hefur einn maður verið
með 15 fugla, maður hefur heyrt í
mörgum og það er sama sagan alls
staðar, lítil veiði,“ sagði Ámi enn
fremur.
G.Bender