Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2002, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 Menning_________________________________________________________________________________________________________________________PV Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is „Þetta er ekki lokaöur heimur heldur menningar- stofnun, “ segir Ragnheiður Skúladóttir, deildarforseti leiklistardeildar Listahá- skóla íslands, þegar hún kynnir starfsemi og heim- kynni deildarinnar blaöa- manni og Ijósmyndara DV. Nýmœli í vetur eru opinberir leiklestrar og var sá fyrsti 1. október. Þar var lesið verkið Sonur skóarans og dóttir bakarans eftir Jökul Jakobs- son og komu margir að hlusta. 29. október verður lesið eitt af verk- um Nínu Bjarkar Ámadóttur og nóv- emberlesturinn verður leikrit eftir Guðmund Steinsson. í vetur lesa nem- endur 2. bekkjar og fá til liðs við sig tvo til fimm atvinnuleikara hverju sinni. „Hugmyndin er sú að nemendur okkar fái tækifæri til að hitta sjóað fólk úr faginu og það fólk fái að kynnast nem- endunum," segir Ragnheiður og hvetur alla sem áhuga hafa á leiklist að koma á þessa leiklestra. „Þetta er góð aðferð til að halda verkum lifandi, það þarf ekki endilega að kosta miklu til.“ Spánn - ísland Fyrsta verkefnið í nemendaleikhúsi þessa árs verður frumsýnt á sunnudag- inn kemur, 20. október. Leikritið heitir DV-MYNDIR ÞÓK Ragnheiður Skúladóttir deildarstjóri Þetta er ekki lokaöur heimur heldur menningarstofnun. og tali saman. Þetta myndi hjálpa til við að eyða fordómum milli listgreina sem eru vissulega til.“ - Þó eru listgreinarnar ekki eins aðskildar og maður skyldi halda - eða er leiklistin ekki líka myndlist og tónlistin leiklist og allt þarf að hanna nú til dags ... „Einmitt - og það mætti samnýta kennarana heilmikið. Til dæmis er ég að fara að kenna námskeið um fram- setningu við hönnunardeOd - því hönnuðir þurfa að geta kynnt hug- myndir sínar þegar komið er út í líf- ið. Það eru fjórir tónlistarnemar sem sjá um tónlistina í Skýfalli niðri í Nemendaleikhúsi. Þau fá að sjálf- sögðu einingar fyrir verkefnið, enda borðleggjandi að tónsmíðanemar semji tónlist við nemendasýningar og læri um leið að semja fyrir leikhús. Svo fá annars árs nemar í leiklist og tónlist vikunámskeið á næstunni í undirstöðuatriðum í að leika jóla- sveina. Þriðja árs leiklistarnemar hafa leikið jólasveina undanfarin ár í fjáröflunarskyni og námskeiðið á að sjá um að þeir kimni eitthvað annað en sprella!" Fræðanám í bígerð Eins og er stunda 24 nemar nám við leiklistardeild LHÍ en ef að líkum lætur mun fjöldinn aukast talsvert á næstu árum. Bæði er ætlunin að taka nemendur inn árlega í staö þess að sleppa úr fjórða hverju ári, og svo er þróunarnefnd leiklistardeildarinnar Hugsun og sköpun örvast - viö sambúð listgreinanna, aö mati Ragnheiðar Skúladóttur, deildarstjóra leiklistardeildar LHI Skýfall og er eftir spænska leikritahöfundinn Sergei Belbel, Ingibjörg Haraldsdóttir þýðir. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu en hann útskrifaðist með leikstjórnargráðu frá Statens Teaterskole í Kaupmannahöfn sl. vor. „Það er okkur sönn ánægja að bjóða Egfl velkominn hingað tO okkar,“ segir Ragnheið- ur, „hann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Is- lands 1999 og fór strax utan tO náms og vona ég að hans námsferill verði hvatning fyrir þá nemendur okkar sem hyggja á framhalds- nám.“ Annað verkefni Nemendaleikhússins í vet- ur er Tattú, nýtt leikrit eftir Sigurð Pálsson undir leikstjóm Rúnars Guðbrandssonar og af því tOefni verður gerð sérstök dagskrá um Sig- urð og fyrri verk hans. Nýja leikritið hans kom tO upp úr útboði deOdar- innar eins og íslands þús- und tár eftir Elísabetu JökiOsdóttur í fyrra, en þá var höfundum boðið að senda inn hugmyndir sem síðan var valið úr tfl frekari úrvinnslu. Þessi tOhögun hefur tekist af- bragðsvel, að mati Ragn- heiðar, þar sem hún býð- ur höfundum upp á þann möguleika að senda inn hugmyndir að verkum í stað þess að þurfa fufl- vinna verk sem síðan verða kannski aldrei sett upp. Leiklist er myndlist og allt er hönnun „Það er ekki bara dýrt fyrir Listaháskólann aö vera á mörgum stöðum í borginni, það rýr- ir líka möguleika á gefandi samskiptum nem- enda í ólíkum greinum," segir Ragnheiður um leið og hún gengur með blaðamanni og ljós- myndara DV um gamla Landssmiðjuhúsið við Sölvhólsgötu og útskýrir það sem fyrir augu ber. í húsinu eru tónlistar- og leiklistardeOd Listaháskóla íslands saman og líður afar vel. „Miðað við hvað sambúðin býður upp á mikla möguleika getur maður ímyndað sér hvemig það yrði ef hönnunarnemar, arki- tektanemar, myndlistarnemar og danslistar- nemar bættust í hópinn,“ segir hún. „Þegar bandaríski danshöfundurinn Merce Cunning- ham heimsótti okkur um daginn fannst hon- um mikið tO þess koma að aflar listgreinam- ar væra saman í skóla. Auðvitað verður hver listgrein áfram út af fyrir sig þegar við verð- um öO komin undir eitt þak, en þó ekki sé annað en að þessir nemendur hittist á kaffi- stofunni, á bókasafninu, hafi á auglýsingatöfl- unni fyrir framan sig að í kvöld verði leiklest- ur eða kynning í hönnunardeOd eða tónleikar, og þó að það séu ekki nema einn eða tveir nemendur sem fari á viðburði hjá annarri defld í hvert skipti þá er það nóg tO að hugs- un og sköpun fari af stað. Líka skiptir miklu máli að kennaramir við skólann - sérfræðing- amir sem hann hefur safnaö að sér - kynnist að leggja lokahönd á drög að fræðanámi við deOdina. Fræðanámið hentar þeim sem vOja fá gmnnmenntun í leikritun, leikstjóm eða dramatúrgiu. Það verður skipulagt sem þriggja ára nám tO BA-gráðu hér heima og undirbúningur undir framhaldsnám erlendis. Þetta stækkar defldina talsvert og bætir nýt- inguna á kennurum og aOri aðstöðu. Framtíðin er því litrík og björt í gömlu Landssmiðjunni, og maður getur ekki annað en hugsað að þetta sé fullkominn staður fyrir Listaháskólann, ekki síst nú þegar þörf er á lifandi stofnun eins og honum í okkar deyfð- arlega miðbæ. -SA Ragnheiður fyrir utan Smiðju nemenda Þó að það séu ekki nema einn eða tveir nemendur sem fara á viöburöi hjé annarri deild þá er þaö nóg til aö hugsun og sköpun fari af staö. í Landssmiðjuhúsinu gamla eru ótalmargar vistarverur sem nú nýtast nemendum í leiklist og tónlist Þaö passar vel aö hafa háskóla allra listgreina í miðri borg þar sem mörg hundruö nemendur og kennarar myndu lífga upp á borgarlífiö frá því snemma á morgnana þangaö til seint á kvöldin. Benda má á aö viö hliöina á Landssmiöjuhúsinu stendur Landsímahúsiö autt...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.