Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 I>V Fréttir 9 Sumarið 2002 senn á enda: Vott, sólarlítið en fremur hlýtt Sumarmánuöimir júni til sept- ember voru vætusamir og sólar- litlir en fremur hlýir. Aðeins í júnímánuði var sólríkara en venja er i Reykjavík en á Akureyri var sólskin alla sumarmánuðina und- ir meðallagi. Sérlega vætusamt var í ágúst og september. Sumar- hitinn á Akureyri var 10,0° og í Reykjavík 10,3° og er það um 1° yfir meðaliagi á báðum stöðum. Úrkoma sumarsins í Reykjavík var 280,2 mm sem er fimmtungi meiri en venja er og á Akureyri mældust 192,6 mm sem tæplega háif önnur meðalúrkoma þar. Sól- skinsstundir voru 87 færri en venja er í Reykjavík, alls 524,6 og á Akureyri voru þær 107 færri, alls 448,7. Veðurfar sumarsins 2002 fer því varla á spjöld sögunn- ar þó meðalhitinn í Reykjavík hafi verið yfir meðaltali í júní og sept- ember, en 11. júní var hæsti júní- hiti sem mælst hefur á Veðurstof- unni, 22,4°. Nokkrum dögum síðar féllu sólarhringsúrkomumet á Austfjörðum og á Norðurlandi. Spá hörðum vetri Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dal- vík spáði hitabylgju í júlímánuði, sögðu orðrétt: „Klúbbfélagar eru bjartsýnir á veðrið í júlí, mánuður- inn verður yfir meðallagi hlýr og einhverjir minntust á veðurmet, Vott sumar Dæmigerð sumarmynd á íslandi 2002, eða hvað? allavegana myndu ýmsar tölur verða nálægt metum.“ Það gekk ekki eftir því veður var mjög rysjótt. Gamlingjarnir spáðu besta veðrinu norðanlands um verslunarmanna- helgina, en eina góða veðrið var á Austfjörðum, en t.d. hellirigndi fyrir norðan með lágu hitastigi. Spáð var góðri berjaspettu en því fór víðs- fjarri víðast hvar. Veðrið á höfuðdaginn 29. ágúst skiptir marga máli fyrir framhald- ið, og allt bendir til þess að hann verði votur hér norðanlands, kannski segir það okkur eitthvað um erfiðan vetur fram undan, meira um það síðar. Spáð var svölum septembermánuði, en hann reyndist einn sá besti í áraraðir. Fyrsti vetrardagm- er á laugardaginn, og veður þann dag kann að skipta sköpum. Dalbæ- ingar spáðu björtu veðri á Gallus- messu, 16. október, sem mundi boða góðan vetur. Þá var hins veg- ar slæmt veður, hriðarhraglandi og kalt í veðri. Stundum er sagt að veðrið frá krossmessu að hausti 14. september og fram til allraheil- agramessu, 1. nóvember, ráði veð- urfari til ársloka. Við sjáum til. Mildur vetur Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, segir að sumarið hafi verið sérlega gott, mikið gróð- ursumar og mikill heyfengur, og þvi ráði mildur vetur þar á undan. Þetta sé í samræmi við spá hans frá því í maímánuði. Páll telur að næstu 5 vetur verði mildir, þó misjafnlega eftir árum, og því ættu landsmenn að fá aftur gott sumar 2003. Páll bendir á að göm- ul, vestfirsk veðurhyggindi segi að rigni þrisvar eftir fyrsta vetrar- dag fram til jóla í norðanátt, verði veturinn mildur. Það ætti að ganga eftir. -GG DVWYND GVA Allt er þegar þrennt er Þrjú af hetstu kennileitum höfuðborgarsvæðisins skörtuðu sínu fegursta í haustblíðunni í gær. Hallgrímskirkjuturn trónir viö hlið Kópavogskirkju og engu er líkara en Perlan sé einnig í Kópavogi. Bjartviöri er spáð áfram á suövesturhorninu. Stend við orð mín um kartöflubændur: Þeim svíður að geta ekki keppt við Bónus - segir Karl Ólafsson, kartöflubóndi í Lyngási Karl Ólafsson, kartöflubóndi í Lyngási á Suður- landi, segir með ólíkindum hvað kollegar hans séu viðkvæmir fyrir gagnrýni um að þeirra eig- in dreifingarfyr- irtæki séu að fara illa með þá. Hann segist standa við öll fyrri orð varðandi góða afkomu sína af við- skiptum við Bónus. „Þeim sviður bara að geta ekki keppt við Bónus sem er með langbesta verðið á markaðnum. Ég segi nú ekki ann- að en það að þetta eru lélegir „bis- nessmenn" ef þeirra fyrirtæki nær ekki meiru út úr sölu á kartöflum, sem seldar eru út úr búð á 150 krónur kílóið, en 60 krónum." Bergvin Jóhannsson, kartöflu- bóndi á Áshóli í Grýtubakka- hreppi, sagði í DV i gær að svo virtist sem Karl talaði hreinlega fyrir Jóhannes í Bónus þegar hann héldi þvi fram að álagningin í Bón- us væri ekki nema 3-9%. Bergvin taldi að Karl mætti í leiðinni vel upplýsa þjóðina um hvað sé á bak við gróða hans síðustu 12 árin. Karl segist ekkert eiga sökótt við Bergvin Jóhannsson. „Ég stend við það sem ég sagði um álagningarprósentu Bónuss. Það er hins vegar alrangt sem Bergvin heldur fram um að ég borgi engin sjóðagjöld. Sjóðagjöld sem heita núna búnaðargjald er lögboðið og skattstjóri hefur undanfarin ár lagt þetta á um leið og aðra skatta. Innheimtan fer í gegnum inn- heimtumann ríkissjóðs. Það er síðan bundið í lög að ef ég borga ekki þá er gengið að mér. Fram- leiðendur sleppa því ekki undan þessu gjaldi. Þessi orð Bergvins eru því ekki rétt.“ Karl segir að bændasamtökin hafi líka náð öllu sínu af sér á sínum tíma og geng- ið þar fram með harðri hendi. Ég er búinn að rækta kartöflur síðan ég var 17-18 ára, eða i ein 28 ár. Ríkidæmi mitt eftir allan þennan tíma er góð heilsa, dugn- aður og mikill kraftur og ég þakka Guði fyrir það,“ segir Karl Ólafsson. -HKr. Jóga hjá Guðjóni Bergmann Ármúla 38, 3.hæð - www.gbergmann.is - yoga@gbergmann.is - 690-1818 Jógo fyrir byrjendur Næsta námskeið hefst 28.október. Leiðbeinandi: Guðjón Bergmann. Skráðu þig núna! V_____________________________________________* SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagi og breytingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík: Teigagerðisreitur, Bakkagerði, Breiðagerði, Teiga- gerði, Steinagerði, deiliskipulag. Tillagan tekur til húsa á svokölluðum Teigagerðisreit og nær til Bakkagerðis, Teigagerðis, Steinagerðis og húsa nr. 2, 4, 6, 8 og 10 við Breiðagerði. í tillögunni eru m.a. skilgreindir viðbyggingarmögu- leikar fyrir öll hús á umræddu svæði til framtíðar þar sem talið er mögulegt að byggja við hús á annað borð. Miðað er við að heimilt verði að byggja við þau hús þar sem nýtingarhlutfall lóðar er undir 0,4 (ef ekki er kjallari í húsi) en 0,5 (ef kjallari er í húsi). Settir eru byggingar- skilmálar um breytingar á húsunum s.s. um hækkun þaks, byggingu bílskúra og reglur um aukaíbúðir o.fl. Nánar um tillöguna vísast til hennar. Þórsgötureitur, Lokastígur, Baldursgata, Þórsgata, Týsgata, deiliskipulag. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi reits sem af- markast af Lokastíg til norðausturs, Baldursgötu til suðausturs, Þórsgötu til suðvesturs og Týsgötu til norðvesturs. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt verði að byggja við og inndregna hæö ofan á húsið að Þórsgötu nr. 1, útbyggingar á suðvestan við húsin nr. 2, 4, 6 og 8 við Lokastíg, bakbyggingu við húsið nr. 37 við Baldurs- götu. Gerir tillagan ráð fyrir breytingum á lóðum við Lokastíg auk lóðanna nr. 1 við Þórsgötu og Baldurs- götu 37. Lóðin nr. 1 við Þórsgötu stækkar en hinar lóðirnar minnka u.þ.b. sem nemur gangstétt fyrir framan húsin. Þá gerir tillagan ráð fyrir viðbyggingu norðvestan við húsið nr. 13 við Þórsgötu. Leiksvæði, milli lóðanna nr. 9 og 13 við Þórsgötu verður óbreytt. Á reitinn í heild er sett ávæði um verndun byggða- mynsturs. Nánar um tillöguna vísast til hennar. Reitur 1.171.2, Bankastræti, Skólavörðustígur, Bergstaðastræti, Hallveigarstígur og Ingólfsstræti, nýtt deiliskipulag. Um er að ræða tillögu að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Bankastræti og Skólavörðustíg til norðurs, Bergstaðastræti til austurs, Hallveigarstíg til suðurs og Ingólfsstrætis austurs. Af reitnum er í gildi deiliskipulag frá 1989 m.s.br. og fellur það úr gildi verði hin auglýsta tillaga samþykkt. Tillagan gerir ekki ráð fyrir verulegum breytingum utan þess að gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja 3-4 hæða nýbyggingu aftan við Bankastræti 12 auk þess sem heimilt verði að rífa húsið nr. 7 við Hallveigarstíg og byggja á lóðinni hús á þremur hæðum með risi. Nánar um tillöguna vísast til hennar. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og bygginga- rsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 25. október til 6. desember 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa, Borgartúni 3, 105 Reykjavík eigi síðar en 6. desember 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 25. október 2002. Skipulagsfulltrúi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.