Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Page 13
13
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002
DV
HEILDARVIÐSKIPTI 2.094 m.kr.
Hlutabréf 549 m.kr.
Spariskírteini 835 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Baugur 123 m.kr.
Q Þorm.rammi-Sæb. 91 m.kr. :
© Skeljungur 69 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Þorm.rammi-Sæb. 6,3% ;
© Baugur 1,5% j
© Þróunarfélagið 1,3% j
MESTA LÆKKUN
© Landsbankinn 3,6%
© Eimskip 1,0% i
© Pharmaco 0,7% j
ÚRVALSVÍSITALAN 1.309
- Breyting ©0,41%
Verndarsjóður
villtra laxastofna:
Uppkaupum
á laxakvóta
að Ijúka
Vemdarsjóður villtra laxastofna
(NASF), sem berst fyrir uppgangi
stofna hins villta Atlantshafslax, hefur
á undanfomum 13 árum keypt upp lax-
veiðiréttindi við Atlantshaf fyrir um 20
milljónir doOara. Nú stefnir í að sjóðn-
um takist að klára ætlunarverk sitt á
næstu tveimur til þremur árum - að
uppræta allar veiðar á laxi í sjó í Atl-
antshafi. Næstu verkefiii sjóðsins felast
í því að kaupa upp veiðiréttindi við
Norður-frland og í Norðursjó en þar
veiða menn lax i reknet en þau eru sér-
staklega hættuleg villtum laxastofiium.
NASF er tilbúið til að borga 300 miilj-
ónir króna til að kaupa upp reknetin
en rétthafar krefjast 600 milljóna og því
strangar samningaviðræður fram und-
an.
NASF er alþjóðleg stofnun með höf-
uðstöðvar í Reykjavík en útibú sjóðsins
er að fmna víðs vegar um heim. Starf-
semi sjóðsins er fjármögnuð með opin-
bem fé og fjármagni frá einkaaðilum
en NASF er ekki ætlað að skila hagaði.
Milli eitt og tvö þúsund sjálfboðaliðar
starfa fyrir sjóðinn og hefur hann hlot-
ið fjölda viðurkenninga fyrir starf sitt
sem þegar er farið að skila árangri.
Vart hefur orðið við auknar laxagöng-
ur í Noregi, á norðanverðum Spáni og
í Kanada og er Orri Vigfússon, stjóm-
arformaður NASF, sannfærður um að
þar eigi uppkaup sjóðsins á laxveiði-
réttindum hlut að máli. „Þetta er ein-
falt og svínvirkar."
Dell á toppinn
Tölvufyrirtækið Dell Computer
endurheimti stöðu sína sem öflug-
asta fyrirtækið í sölu á einmenn-
ingstölvum i heiminum þegar það
dreifði fleiri tölvum en Hewlett-
Packard á þriðja ársfjórðungi þessa
árs. Dell dreifði þá 5,2 milljónum
einmenningstölva, 3.5% meira
magni en samkeppnisaðilinn Hew-
lett-Packard.
Tölvufyrirtækið Dell hafði verið
leiðandi í sölu á einmenningstölv-
um en féll tímabundiö í annað sæti
fyrr á þessu ári þegar tölvufyrirtæk-
in HP og Compaq sameinuðust. Nú
hefur Dell náð forystunni á ný.
Samkvæmt upplýsingum frá
greiningarfyrirtækinu IDC hefur
dreifmg á einmenningstölvum vax-
ið um 3,8% á þriðja ársfjórðungi eft-
ir samdrátt í rúmlega ár. Greining-
araðilar sjá ýmis merki þess að
markaðurinn sé að taka við sér og
benda meðal annars á mikinn vöxt
Dell í Bandaríkjunum þar sem fyrir-
tækið er nú komið með um 30%
markaðshlutdeild. Dreifingaraðili
Dell á íslandi er EJS.
____________________________Viðskipti
Umsjón: Viðskiptabla&ið
Stórtíðindi í viðskiptaheiminum:
Meirihluti í
Heklu seldur
forstjóra Baugs
Samþykkt hef-
ur verið tilboð
Tryggva Jónsson-
ar, forstjóra
Baugs Group, í
meirihlutaeign
bræðranna Sig-
fúsar R. Sigfús-
sonar forsfjóra og
Sverris Sigfús-
sonar, fram-
kvæmdastjóra í
Heklu. Tryggingamiðstöðin hf„ sem
á þriðjungs hlutafjár í Heklu, mun
áfram halda sínum hlut. Tryggvi
mun taka við forstjórastöðu hjá
Heklu þegar niðurstöður áreiðan-
leikakönnunar liggja fyrir. Tryggvi
er vel kunnugur rekstri Heklu en
hann sat þar sem ráðgjafi á árunum
1994-1996 og var endurskoðandi fyr-
irtækisins frá 1996-1998. Kaupverð
er ekki gefið upp en Sigfús R. sem
verið hefur forstjóri frá 1990 mun
taka við sem starfandi stjómarfor-
maður. Þá mun Sverrir einnig
starfa enn um sinn með fyrirtæk-
inu.
Jafnframt þessum tíðindum hefur
stjórn Baugs Group tilkynnt að
Tryggvi muni láta af störfum for-
stjóra Baugs 1. nóvember en gert er
ráð fyrir að hluthafafundur, sem
haldinn verður 20. nóvember, ráði
Jón Ásgeir Jóhannesson sem for-
Sigfús R. Jón Ásgeir
Sigfússon. Jóhannesson.
stjóra Baugs. Þangað til gegnir Jón
Scheving Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Baugs ID, starfi for-
stjóra. Þá er það stefna stærstu hlut-
hafa að Hreinn Loftsson verði kjör-
inn í stjóm og taki þar við for-
mennsku af Jóni Ásgeiri.
Hekla var stofnuð af Sigfúsi
Bjamasyni og fleiri árið 1933 og var
m.a. í innflutningi á ávöxtum. Árið
1947 fékk Hekla umboð fyrir Cater-
pillar þungavinnuvélar og Kenwood
heimilistæki og er elsti umboðsaðili
þess fyrirtækis í Evrópu. Frægasta
bilaumboð Heklu er án efa
Volkswagen sem Hekla fékk 1952 og
hóf þá sölu á „bjöllunni" marg-
frægu. Þá er Hekla með umboð fyr-
ir Audi, Mitsubishi Motors, Mitsu-
bishi Heavy Industries, Scania,
Galloper, Skoda, HLAB og fjölda
annarra framleiðenda.
-HKr.
Tryggvi
Jónsson.
Bifreiðir:
Samdráttur í inn-
flutningi á enda
Síðastliðin tvö ár hafa verið
bflainnflytjendum erfið og
dróst nýskráning bifreiða
saman um 47% milli 2000 og
2001. Þá hefúr samkvæmt Hag-
stofu íslands bflainnflutningur
dregist saman um 7% fyrstu
átta mánuði ársins samanbor-
ið við sama tíma í fyrra.
Greiningardeild Kaupþings
telur að nú sé það versta af-
staðið og að bflainnflutningur
muni aukast eitthvað á næsta
ári samfara aukinni neyslu.
Nýskráðar bifreiðir frá jan-
úar fram í ágúst hafa verið
rétt rúmlega 6.000 og má ætla
að nýskráning bifreiða á þessu ári
muni nema milli 7.500 og 8.000, að því
er segir í Morgunpunktum Kaupþings.
Þar er bent á að meðaltal nýskráninga
bifreiða undanfarin 20 ár hefur numið
um 11.300 bifreiðum á ári svo að síðast-
liðin 2 ár hafa verið vel undir meðal-
tali. Það sem hefur verið einkennandi
fyrir bflainnflutning siðustu ára eru
miklar sveiflur sem hafa fylgt hag-
sveiflunni og eftirspum vel eftir.
Samkvæmt nýjum þjóðhagsspám bú-
ast flestir við lítils háttar aukningu
einkaneyslu á næsta ári. í Morgun-
punktum er þó tekið fram að það sé
hins vegar óvíst hvort nýskráning bif-
reiða muni ná meðaltalinu á næsta ári
en á árunum milli 1997 og 2000 var ný-
skráning bifreiða langt yfir meðaltali.
Þannig voru fjögur ár í röð þar sem
bilainnflutningur var langt yfir sögu-
legu jafnvægi og því í sjálfú sér ekki
óeðlilegt að bflainnflutningur sé undir
meðaltalinu nokkur ár þar á eftir.
Hótelnýting
svipuð milli ára
Nýting gistirýma á hótelum á höf-
uðborgarsvæðinu og úti á landi er
svipuð það sem af er ári og hún var
í fyrra. Meðalnýting á hótelum úti á
landi er 47,2% það sem af er ári en
72,8% á höfuðborgarsvæðinu. Nýt-
ingin í fyrra var mjög svipuð úti á
landi en hækkaði örlitið á höfuð-
borgarsvæðinu. Nýting hótela úti á
landi er að jafnaði mun verri en
nýtingin á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig er meðalnýting hótela úti á
landi yfir árið einungis 43% frá ár-
únum 1996 til ársins í fyrra en 68%
á höfuðborgarsvæðinu. Það sem
dregur niður nýtinguna úti á landi
er mjög slæm nýting hótelanna á
vetuma en nýtingin úti á landi er
nokkuð nálægt nýtingunni á höfuð-
borgarsvæðinu yfir sumarmánuð-
ina. Hótelnýtingin úti á landi var
einungis 23,7% frá janúar til apríl á
þessu ári en hún var tæp 60% á höf-
uöborgarsvæðinu.
L' —
****** "r
u - ^mm í: •
r
Still rafmagnslyftari
árg. 1991, í góðu lagi.
Mazda E 2000
árg. 1994.
Volvo F 7
árg. 1979.
M. Benz 817
árg. 1994.
Bílasalan Hraun Sími: 565-2727
www.bilhraun.is
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar
til kynningar tillögur aó breytingum á deiliskipuiags-
áætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík:
Reykjavíkurhöfn, Norðurgarður, Vesturhöfn, lóð
Granda hf., breyting á deiliskipulagi.
Tillagan tekur til Norðurgarðs í Vesturhöfn Reykjavíkur-
hafnar nánar tiltekið lóðar Granda hf.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir nýrri landfyllingu, í samræmi
við Aðalskipulag Reykjavíkur, og stækkun lóðar
Granda hf. úr u.þ.b. 8.371 m2 í u.þ.b. 30.800 m2. Þá
gerir tillagan ráð fyrir nýrri götu, tveimur nýjum bygg-
ingarreitum, annars vegar til þess að mögulegt sé að
stækka núverandi hús til norðausturs, og hins vegar
reit fyrir nýtt hús suðaustan við gamla húsið. Nánar um
tillöguna vísast til hennar.
Borgartún 34-36, breyting á deiliskipulagi.
Tillagan tekur til lóðanna nr. 34 og 36 við Borgartún og
afmarkast af Sóltúni til vesturs, lóð Borgartúns 32 til
norðurs, Kringlumýrarbraut til austurs og aðkomugötu
frá Kringlumýrarbraut að Sóltúni (milli lóðar nr. 30 við
Sóltún og 34-36 við Borgartún) til suðurs.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingu á lóðarmörkum.
Tvær verkstæðisbyggingar, sem nú standa á lóðunum,
ásamt opinni bílgeymslu verði rifnar. Fallið verði frá
byggingu 6 hæða fjölbýlishúss, sem gildandi
deiliskipulag gerir ráð fyrir að heimilt sé að byggja í
suðvesturhorni lóðarinnar nr. 36. í staðinn verði heimilt
að byggja byggja fimm hæða fjölbýlishús, með
inndreginni 6. hæð, vestast á reitnum, eina hæð ofan á
núverandi gistiheimili og nýtt sex hæða hús, undir
gistiheimili eða sambærilega starfsemi til suðurs frá
eldra húsi, austast á reitnum. Þá gerir tillagan ráð fyrir
um 109 bílastæði á verði svæðinu, þar af um 54 í bíl-
geymslum neðanjarðar. Nánar um tillöguna vísast til
hennar.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10.00 - 16.00 frá 25. október til 6. desember 2002. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa,
Borgartúni 3, 105 Reykjavík eigi síðar en 6. desember
2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 25. október 2002.
Skipulagsfulltrúi.
___________________________________________________:______