Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Qupperneq 28
m FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 Sport DV Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ: Stækkanir nauðsynlegar „Það er orðin mikil þörf fyrir nýja golfvelli á höfuðborgarsvæðinu. Við sjáum það í dag að golf-klúbbarnir á höfuðborgarsvæðinu eru nánast all- ir orðnir fullir og taka því ekki við nýjum félagsmönnum, en í þeim eru nú um eða yfir 6 þúsund félagsmenn og við þurfum í raun stækkanir á golfvöllum alls staðar á höfuöborgar- svæðinu," segir Hörður Þorsteins- son, framkvæmdastjóri Golfssam- bands íslands. 11 þúsund félagsmenn Hörður bendir á að þrátt fyrir að klúbbamir í Reykjavík og nágranna- sveitarfélögunum taki ekki við fleiri félagsmönnum þá sé enn hægt að komast að í öðrum golfklúbbum sem ekki séu svo ýkja langt frá höfuð- borginni, en það sé í raun eina leið- in þar til golfvöllum fjölgi eða þeir stækki. Hann segir félagsmenn í golfklúbbum landsins sem eru innan Golfsambandsins nú vera um 11 þús- und manns, en hægt sé að reikna með að um 30 þúsund manns stundi íþróttina með einum eöa öðrum hætti. Ekki dýrara en annað Talsverð gagnrýni hefur heyrst á að það sé dýrt að stunda golf hér á landi og það sé ekki fyrir láglauna- fólk að spila golf, en Hörður blæs á þessa gagnrýni. „Ég fór í sund í gær og þar sá ég það hvað foreldrar eru að borga í félagsgjöld fyrir sundiðk- un bama sinna og það er svipað þeim árgiöldum sem eru í dýrustu golfklúbbunum á höfuðborgarsvæð- inu, eða um 50 þúsund, en það má einnig benda á það að í þeim klúbb- um er ódýrara fyrir böm og ung- linga, námsmenn og fleira. Ég full- yrði að þetta er ódýrasta íþrótt fyrir böm og unglinga að stunda og eftir aö hafa kannað félagsgjöld í öðrum íþróttagreinum er ég sannfærður um það. Verðlagningin er mjög sanngjöm." Meiri réttur Gagnrýni á verðlagið i golfinu hef- ur einnig snúist um verðlagningu þegar golfarar sem ekki eru félags- menn koma á vellina og kaupa stakt vallargjald. „Það byggist á því að það er verið að gefa félagsmönnum meiri rétt og er verðlagningin notuð til að stýra umferðinni inn á vell- ina,“ segir Hörður Þorsteinsson að lokum. -PS Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GSÍ, segir lífsnauðsynlegt fyrir iþróttina að stækka velli og fjölga þeim. DV-mynd GVA Sex þúsund félagsmenn í golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu: Mjög mikil þörf á fjölgun golfvalla - framkvæmdir við nýjan völl í Kópavogi að hefjast Hér að ofan sést skipulag nýja golf- vallarins í Leirdal í Kópavogi sem hannaður er af Jóni Sigmundssyni golfvallahönnuði. HM 1 golfi: Haraldur lék * á einu höggi undir pari Heimsmeistaramót áhuga- manna í golfí hófst í Malasíu i gær og eftir fyrsta dag keppn- innar er íslenska sveitin í 19.-28. sæti af 63 þátttökuþjóð- um. Haraldur Heimisson, GR, lék best íslendingana en hann kom inn á 71 höggi eða einu höggi undir pari vallarins. *■ Hann var í 8.-14. sæti yfir besta skor einstaklings. Ævar Örn Hjartarson, GS, lék á 79 höggum og Helgi Birkir Þóris- son, GS, á 81 höggi. Haraldur meö tvo fugla Keppt er á tveimur aðskild- um völlum og lék íslenska lið- ið á Palm-vellinum og byrjaði Haraldur á að para fyrstu tvær holurnar, fékk síðan skolla en lék næstu níu hol- urnar á pari. Síðan fékk hann fugl á 13. og 17 holu. Ævar Örn paraði átta holur, fékk átta skolla, einn skramba og þrjá fugla. Helgi Birkir paraði ell- efu holur, fékk einn skramba og fimm skolla. Bandaríska sveitin er í for- ystu eftir fyrsta dag en hún lék á sjö höggum undir pari og hefur fimm högga forysta á Frakka sem eru í öðru sæti. í 3.-7. sæti koma síðan Argent- ina, Kólumbía, England, Finn- ar og Tailendingar. Mjög heitt er á þessum slóð- um og hefur hitinn komist yf- ir 40 stig síðustu daga. -JKS Gríðarleg aukning hefur verið á undanfórnum árum í iðkun golfí- þróttarinnar hér á landi og þá sér- staklega á höfuðborgarsvæðinu. Flestir golfklúbbar á svæðinu eru að fyllast eða orðnir fullir og þeir því hættir að taka inn nýja félags- menn. Þörf fyrir fleiri golfvelli er mikil, en þar sem mikið landsvæði þarf undir slíka velli er ekki um auðugun garð að gresja í þeim efn- um nema farið sé töluvert út fyrir höfuðborgarsvæðið sem þykir ekki eins fýsilegur kostur. Það eru þó möguleikar í stöðunni og ýmsir aðilar að undirbúa eða íhuga stækkun valla eða byggingu nýrra og jafnvel hafa heyrst raddir um að ónefndir viðskiptamenn séu að leita að landsvæði til að gera golfvöll, en það yrði algerlega um einkaframkvæmd að ræða. Það er þó ljóst að miðað við gang mála eru nokkur ár þar til nýir golfvellir verða gerðir eða þær stækkanir sem í undirbúningi eru verða tilbúnar. Níu holur í Leirdal Hjá Kópavogsbæ hefur verið sam- þykktur níu holu golfvöllur í Leir- dal en þar yrði um að ræða stækk- un golfvallar sem nú er í Garðabæ og er í umsjá Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Golfvöllur GKG yrði því í tveimur sveitarfélögum og liggja teikningar að vellinum fyrir. Að sögn Þórarins Hjaltason, bæjar- verkfræðings í Kópavogi, munu framkvæmdir við völlinn hefjast fyrir áramótin, en gert er ráð fyrir að hann verði afhentur golfklúbbn- um til afnota árið 2005. Sáning í völlinn mun fara fram næsta haust, en framkvæmdir munu að mestu fara fram á næstu tveimur árum. Það tekur þó lengstan tíma að völlurinn grói. Framkvæmdahraði mun þó ráðast af þeim fjármunum sem veitt verður í verkefnið, en heildarkostnaður liggur þó ekki fyr- ir þar sem eftir er að fá tilboð i alla verkþætti. Golfvöllur á Álftanesi? í sveitarstjóm Bessastaðahrepps hafa verið lagðar fram frumhug- myndir að níu holu golfvelli á norð- anverðu Álftanesi. Gunnar Valur Gíslason sveitarstjóri segir að þess- ar hugmyndir hafi verið í umfiöllun í nokkum tíma og nú hafi verið samþykkt að skipulagsnefnd vinni áfram með þessar hugmyndir, en jafnframt verði Náttúrufræðistofn- un íslands fengin til að fara yfir málið með sveitarstjórninni. Gunnar Valur segir að svæðið sem um ræðir sé nokkuð viðkvæmt hvað náttúru varðar, en það ráðist af því að hvaða niðurstöðu Náttúru- fræðistofnun komist hvort farið verður út í framkvæmdir á svæðinu sem er norðan Bessastaða, handan við Bessastaðatjömina. Gunnar Val- ur segir enn fremur að komist menn að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að framkvæma á þessu svæöi þá sjái hann ekki annað svæði sem komi til greina undir golfvöll. Þær teikningar sem nú liggja fyr- ir að vellinum eru komnar frá Hannesi Þorsteinssyni golfvalla- hönnuði. Stofnaður hefur verið Golfklúbbur Álftaness sem hefur nú um 90 stofnfélaga en á næstu dögum verður undirritaður samningur við klúbbinn um gerð æfmgagolfvallar á sunnanverðu nesinu en sveitarfé- lagið hefur látið vinna grunnhug- myndir að svæöinu. Það verður síð- an golfklúbbsins að sjá um fram- kvæmdir. Það em einnig uppi hugmyndir hjá Golfklúbbi Reykjavíkur um að bæta níu holu golfvelli við núver- andi völl á Korpúlfsstöðum. Þegar hefur verið hafist handa um að reyna að útvega land undir goifvöll- inn, en horft er til svæðis sem ligg- ur fyrir ofan Korpuvöllinn, langleið- ina upp að Vesturlandsvegi. Stækkun á Korpuvelli Einnig hefur Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði bent á að vestan Straums sé landsvæði sem nýta mætti undir golfvöll og hafa lýst áhuga sínum á að gera þar völl í framtíðinni og einnig hafa forráða- menn Golfklúbbsins Ness á Seltjarn- amesi verið að íhuga stækkun vali- arins sem nú er aðeins níu holur. Miðað við það sem kemur fram hér að framan verður þess enn langt að bíða hægt verði að anna þeirri fiölgun sem fyrirsjáanleg er í iðk- endafiölda í golfinu og því Ijóst að þeir sem hafa í hyggju að fara að stunda golfið að einhverju marki verða að horfa til golfklúbba fyrir utan höfuðborgarsvæðið, hvort sem er fyrir austan fiall eða á Suðurnesj- um. -PS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.