Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002 29 Jóhannesi vegnar vel Þessa dagana stendur yflr heims- meistaramót í snóker í Kaíró í EgyptalEmdi og eru tveir íslenskir snókermenn á meðal keppenda. Jóhannes R. Jó- hannsson hefur hlotið fjóra vinn- inga í fimm leikj- um. Hann sigraöi þýskan spilara, 4^3, í síðustu viðureign. Brynjar Valdimarsson er kominn með þrjá vinninga í fjórum leikjum. -JKS Super Cup í Þýskalandi um helgina: Höfum alla burði til að standa okkur - segir Ólafur Stefánsson hjá þýska liöinu Magdeburg deburg á laugardag. Magdeburg vann Super Cup í fyrra þegar liðið vann San Antonio Portland frá Spáni í úrslitaleik. Gaman að mæta Rúnari og félögum í Ciudad Real „Þetta verður spennandi mót og það verður gaman aö kljást við Rún- ar og félaga í Ciudad Real. Við höf- um alla burði til að standa okkur vel og stefnum að því að vinna þetta mót annað árið í röð. Við leikum á heimavelli og þaö eitt sér ætti að hjálpa okkur,“ sagði Ólafur Stefáns- son sem leikið hefur vel í þýsku úr- valsdeildinni í vetur. Ólafur Stefánsson og Rúnar Sig- tryggsson halda síðan til móts við íslenska landsliðið á mánudaginn kemur en landsliðið tekur eins og kunnugt er þátt í heimsbikamum sem hefst í Svíþjóð. - Hvemig skyldi mótið í Svíþjóð leggjast í Ólaf? „Ég hlakka mikið til mótsins og þá ekki síst að hitta strákana en lið- ið hefur ekki hist fullskipað síðan i leikjunum gegn Makedóníu snemma i sumar. Það skiptir miklu máli fyrir okkur að komast í alvöru- mót og viö eigum eftir að læra mik- ið. Við sjáum hvar liðið stendur og hvemig sem fer á mótið eftir að verða liðinu lærdómsríkt sem kemur því til góða fyrir heimsmeist- aramótið í Portúgal," sagði Ólafur Stefánsson í spjallinu við DV. -JKS Um helgina fer fram í Þýskalandi Super Cup í handknattleik og em þar saman komin fjögur bestu hand- knattleikslið Evrópu. Þau em Mag- deburg, sem vann meistaradeildina í vor, Ciudad Real, sem er Evrópu- meistari bikarhfa, Kiel, sem vann EHF-keppnina, og Fotex Vesprem sem lék til úrslita gegn Magdeburg í meistaradeildinni. Keppnin hefst í kvöld í borginni Dessau og mætir þá Magdeburg spænska liðinu Ciu- dad Real en með því liði leikur Rún- ar Sigtryggsson. Hin viðureignin er á milli Fotex Vesprem og Kiel og leika sigurliðin til úrslita í Mag- Það var glatt á hjalla þegar Magdeburg vann meistaradeild Evrópu sl. vor. Hér fagna Ólafur Stefánsson og Alfreð Gíslason, þjálfari liðsins, titlinum. Hart lagt að Wislander - að leika með Svíum í heimsmeistarakeppninni Eftir Evrópukeppnina í hand- knattleik fyrr á þessu ári lýstu nokkrir sænskir landsliðsmenn því yfir að þeir myndu ekki gefa kost á sér framar í landsliðið. í þessum hópi voru leikmenn sem borið hafa liðið uppi á síðustu árum en eins og flestir vita hefur sænska lands- liðið verið í fremstu röð um tíu ára skeið. Nú er svo komið að hart er lagt að gömlum refum að gefa kost á sér áfram og hafa þeir flestir orðið við beiðni Bengts Johannssonar lands- liðsþjálfara. Svíar tilkynntu á dög- unum liðið sem keppir á heimsbik- armótinu sem hefst í Svíþjóð í næstu viku. Þar má sjá nafn á borð við Magnus Wislander en Svíar telja sig ekki geta verið án hans. Hann leikur nú með Rebergslid í Svíþjóð. Hann hætti að leika með þýska liðinu Kiel á sl. vori og er hans sárt saknað. Kiel hefur átt erfitt upp- dráttar og menn reKja það m.a. til brotthvarfs Wislanders. Bengt Jo- hannsson er bjartsýnn á að Wis- lander leiki með Svíum á heims- meistaramótinu í Portúgal í janúar enda ætla Svíar sér stóra hluti í mótinu. Svíar verða án Stefans Lövgrens á heimsbikarmótinu í næstu viku en hann hefur í vetur átt við erfið bakmeiðsli að stríða og hefur hon- um verið fyrirskipað að taka sér tveggja vikna frí frá æfingum og keppni. -JKS Patrick Viera fær að punga út peningum vegna ósæmilegrar framkomu í garö dómara í leik liösins gegn Chelsea í haust. Patrick Viera dæmdur í gær: Tveggja leikja bann og peningasekt Enska knattspyrnusambandið komst að niðurstöðu í gær í máli Frakkans Patricks Viera hjá Arsenal. Var hann dæmdur í tveggja leikja keppnisbann og til að greiða um 3,5 mOljónir ísl. krónur í sekt. Viera þótti sýna Andy D’Urso dómara mikinn dónaskap með kjaft- brúki í leik Arsenal og Chelsea þann 1. september sl. Viera tekur leikbönnin út i leik gegn Tottenham 16. nóvember og sjö dögum síðar gegn Southampton en báðir þessir leikir eru í úrvalsdeildinni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem aganefnd enska knattspymusam- bandsins fær mál upp á borð tengt Patrick Viera. Skemmst er að minnast þess þegar hann var dæmd- ur í sex leikja bann fyrir að hrækja á Neil Ruddock, vamarmann West Ham, í október 1999. Frakkinn hefur stundum átt erfitt með að hemja skap sitt og hafa forsvarsmenn Arsenal oft lýst yfir áhyggjum yfir því. -JKS ítalir hafa augastað á Luis Scolari Á meðan Giovanni Trappatoni situr sem fastast í starfi landsliðs- þjálfara ítala f knattspymu er hver maðurinn á fætur öðrum nefndur sem hugsanlegur arftaki hans. ítalskir fjölmiðlar fara fram á það daglega að Trappatoni segi af sér og hann hefur enga burði til að halda áfram með landsliðið sem beið skell á dögunum fyrir Wales í Evrópu- keppninni. í gær skaut nafni Luis Felipe Scolari upp á yfirborðið en hann mælir götumar síðan hann lét af starfi sem landsliösþjálfari Brasilíu í sumar. Hann þykir vænlegur kost- ur enda er þar á ferö fær þjálfari sem gerði Brasilíumenn að heims- meisturum í sumar. Gianluca Vialli hefur einnig ver- ið orðaður við starfið en hann hefur sagt að hann myndi skoða málið ef til hans yröi leitað. -JKS Norðurlandamót drengja í nýja Bjarkarhúsinu Um næstu helgi veröur Nórðurlandameistaramót drengja í fimleikum haldið hér á landi í íþróttamiðstöðinni Björk i Hafnarfirði sem er eitt glæsilegasta fim- leikahús landsins og er það fyrsta erlenda mótið sem er haldið í húsinu. Dreng- ir teljast þeir sem eru á aldrinu 13 til 16 ára. Keppt verður í liða- og einstaklingskeppni í fjölþraut á laugardag en á sunnu- dag verður keppt um meistaratitil á einstökum áhöldum. 30 keppendur eru á mótinu og koma þeir frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð auk íslensku drengjanna. Norðurlandmót drengja er haldið annað hvert ár og var haldið hér á landi síðast árið 1992. íslenska landsliðið sem keppir á mótinu er skipað eftirtöldum flmleikamönn- um: Jónas Valgeirsson, Ármanni, Anton Heiðar Þórólfsson, Ármanni, Gunnar Sigurðsson, Ármanni, Gísli Ottósson, Ármanni, Teitur P. Reynisson, Ármanni, Róbert Kristmannsson, Gerplu. Daði S. Pálsson, Ármanni er síðan til vara. Þjálfarar eru þeir Bjöm M. Tómasson, Ármanni, og Heimir J. Gunnarsson, Gerplu. Árangur drengjanna á Haustmóti FSÍ, sem haldiö var þann 13. okt síðastlið- inn í íþróttamiðstöðinni Björk, var lagður til gmndvallar á vali i landsliðið og íslenska drengjalandsliöiö í fimleikum. Taliö frá vinstri: Daöi, Anton, Jónas, Gísli, Gunnar, Róbert, Teitur og Björn, em^unmr drengjanna og stig í samanlögðum árangri á haustmótinu annar þjálfara liösins. ’a islenska liðið goða moguleika á verðlaunasæti a motrnu. -OOJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.