Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2002, Síða 32
BILAVIÐGERÐIR
BILHUSIÐ
Smiöjuvegl 60 (Rauö gata) - Kópavogl
Slmi 557 2540 • 554 6350
Allar almenrtar bílaviögeröir
á öllum tegundum bifreiöa
Vönduö vlnna - aöeins unnln af fagmönnum
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 2002
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allia - Loforð er ri lo !S®
Sími: 533 5040 - - www.allianz.is
Raufarhöfn:
„Lausafjárstaðan
svakalega slæm“
Lausafjárstaða Raufarhafnarhrepps
' er afar slæm og er hætt við að sveitar-
sjóður geti ekki greitt laun starfs-
manna 1. nóvember nema til komi ut-
anaðkomandi aðstoð eða fyrirgreiðsla
peningastofnunar. Landsbankinn hef-
ur hafnað beiðni um fyrirgreiðslu.
„Lausafjárstaða sveitarsjóðs er al-
veg svakalega slæm, og við errnn að
leita þeirra ráða sem okkur eru til-
tæk. Landsbankinn neitar okkur um
fyrirgreiðslu, hann kemur ekkert til
móts við okkur þó þetta sé okkar við-
skiptabanki.
Þessi staða kemur í ljós nú eftir
endurskoðun á bókhaldi sveitarfélags-
ins sem ákveðið var að gera eftir að
ný sveitarstjóm tók við í vor. Við-
skilnaður fyrri sveitarstjórnar er
tslæmur,“ segir Guðný Hrund Sverris-
dóttir, sveitarstjóri Raufarhafnar-
hrepps.
Guðný fer á fund félagsmálaráðu-
neytisins næsta mánudag. Hún segir
að sveitarsjóður muni borga laun
starfsmanna Raufarhafnarhrepps.
Eftir nýlegan fund í sveitarstjórn hef-
m- verið leitað allra leiða til þess að
finna lausn á vandanum. „Við hefð-
um ekki verið að borga símareikn-
inga ef við skulduðum laun og ég
væri því varla að svara í GSM-sím-
ann nú og tala við þig.“ -GG
Innflutningur bíla:
Spá aukningu
Greiningardeild Kaupþings telur
að það versta sé afstaðið í innflutn-
ingi bíla og vísar þá til verulegs
samdráttar í innflutningnum síð-
ustu tvö ár. Er spáð aukningu í
bílainnflutningi á næsta ári sam-
fara aukinni neyslu en nýskráning
bíla á þessu ári mun væntanlega
ekki nema meira en 7-8 þúsund bíl-
um sem er langt undir meðaltali sl.
20 ára. -hlh
Sjá bls. 13
ea
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI f STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | vwww.securitas.is
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
rðUMARIO KVEÐUR-1
EN KOM PAÐ?
DVA1YND GVA
Stelnn í götu blindra
Jarðrask vegna ýmissa framkvæmda er nú í nágrenni húss Blindrafélagsins. Umrótið er ósköp hversdagslegt og jafn-
vel minni háttar í augum hinna sjáandi en heimur blindra getur raskast verulega þar sem hefðbundin kennileiti eins
og girðingar, gangstéttir og gangstéttarbrúnir eru ekki lengur á gönguleiðinni. Blindur maður týndist bókstaflega í
hverfinu vegna þessa á dögunum og varð aö grípa til GSM-símans til að komast á rétt spor. Maðurinn á myndinni,
sem er sjónskertur, var mun lengur á leið sinni upp Hamrahlíðina í gær en hann er vanur og var ekki öruggur um sig.
Gríðarleg rýrnun í verslunum dregur úr möguleikum á verðlækkunum:
Ein Smáralind árlega
- átta til níu milljarðar króna á ári sóttir í vasa almennings
Rýmun á vörum í viðskiptum
hérlendis er gríðarleg ef marka má
orð forsvarsmanna verslunarinnar
og skipta mörgum milljörðum
króna á hverju ári. í Evrópusam-
bandsríkjum er miðað við að rým-
un í verslun geti verið að meðaltali
um 1,75%. Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, telur þó síst of mikið
að áætla rýmunina hérlendis 2%.
Það hafi síðan áhrif á að erfiöara sé
en ella að mæta kröfum um lægra
vöruverð. Þessa rýrnun þurfi ein-
hverjir að borga og á endanum séu
það viðskiptavinir verslunarinnar,
almenningur í landinu, sem borgi
brúsann.
Þarna getur verið um að ræða
rýmun af ýmsum toga, m.a. vegna
skemmda í flutningum, vegna
skemmda á matvælum sem renna
Sigurður
Jónsson.
Andrés
Magnússon.
Smárallnd í Kópavogi
íslendingar reiða fram álíka upphæð og Smáralind kostaði í
rýrnun á vörum í heild- og smásöluverslun á hverju einasta ári.
út hvað geymsluþol varðar og ýmis-
legt fleira. í DV síðustu daga hefur
líka verið greint frá þjófnaðarmál-
um starfsfólks Nóatúns. DV hefur
heimildir fyrir þjófnaði úr fleiri
verslunum annarra verslunarkeðja
en þar á starfsfólk síður en svo
alltaf sök á málum. Svokölluð rým-
un, bæði auðskýranleg og óútskýrð,
virðist því mun umfangsmeiri en
marga grunar.
Samkvæmt virð-
isaukaskattsskýrsl-
um sem sýna veltu
árið 2001 voru smá-
söluverslanir að
velta rúmum 174,4
milljörðum króna
það ár. Þá voru
bílasölur, viðhalds-
og bensínstöðvar
að velta til viðbót-
ar þessum rúmu 40
milljörðum og aðrar umboðs- og
heildverslanir voru að velta tæpum
241,5 milljörðum króna. Samtals
gerir þetta tæplega 456 milljarða
króna veltu í verslanageiranum
árið 2001. Sigurður Jónsson telur
ekki ólíklegt að rýmun i heildsölu
sé með svipuðum hætti og í smásöl-
unni. Miðað við það má ætla að
rýmun, sem á endanum er greidd af
almenningi í landinu, nemi allt að 9
milljörðum, (9000.0000.0000), króna.
Þetta er álíka og árlega sé lagt á
vöruverð hérlendis sem almenning-
ur greiðir, upphæð sem nemur
nærri einu stykki verslunarmiðstöð
á borð við Smáralind í Kópavogi.
Minna í heildverslun
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunarinnar - fé-
lags íslenskra stórkaupmanna, vill
ekki taka alveg svo djúpt í árinni og
segir rýmun í heildsölunni líklega að
meðaltali um 1-1,5%. Mest sé um
rýrnun vegna dagsstimplunar, en
rýmun af öðrum toga óveruleg og
rýrnun af völdum þjófnaðar nær
óþekkt fyrirbæri. Vandinn í heildsöl-
unni geti því verið nokkuð annars
eðlis en í smásölunni þar sem um-
talsverðu er hreinlega stolið. Miöað
við það þá getur heildarrýrnunin í
allri verslun á landinu verið um 8
milljarðar króna. -HKr.
Flugfélag íslands:
Hagnaður í fyrsta skipti í sögunni
í fyrsta skipti í sögu Flugfélags ís-
lands mun reksturinn skila hagnaði
samkvæmt 9 mánaða uppgjöri. Endur-
skoðun er þó ekki lokið og eins er
reksturinn hluti af samstæðureikn-
ingi. í samræmi við minnkað framboð
og færri áfangastaði en í fyrra fækk-
aði farþegum í innanlandsflugi Flug-
félags Islands í septembermánuði um
2,6%, úr 22.784 farþegum í fyrra í
22.182 í ár, á meðan sætanýting félags-
ins jókst um 8,0%. Sætanýting hjá FÍ
hefur batnað um 6,6% fyrstu níu mán-
uði ársins og á þátt í verulegum bata
á afkomu fyrirtækisins ásamt með
kostnaðarlækkun og mikilli hagræð-
ingu á flestum sviðum starfseminnar.
Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags íslands, segir aö far-
gjöldum FÍ hafi verið gjörbreytt á síö-
DV-MYND GVA
Afgreiösla Rugfélagslns
Hagnaður er fyrirsjáanlegur á rekstri
Flugfélags íslands. Flugi til
Hornafjaröar verður hætt 1. nóv.
ustu tveimur árum, bókanir á Netinu
hafi stóraukist, og þetta þýði að ef far-
þegar bóki með einhverjum fyrirvara
fái þeir mjög hagstæð fargjöld. FÍ
hættir flugi til Hornafjarðar 1. nóv-
ember nk. þar sem íslandsflug
hreppti samning samkvæmt útboði,
og eftir það flýgur félagiö til þriggja
meginstaða út frá Reykjavík, þ.e. Ak-
ureyrar, ísafjarðar og Egilsstaða, og
út frá Akureyri tO Grímseyjar,
Vopnafjarðar og Þórshafnar. Auk
þess er flogið til Færeyja og Græn-
lands og það flug ætlar einnig að
skila hagnaði, en sætanýtingin er þó
síðri til Færeyja. Þegar FÍ var stofnað
1997 gekk ekki að flugmenn yrðu all-
ir steufsmenn Flugfélagsins heldur
voru að hluta til starfsmenn Flug-
leiða, en með næstu áramótum verð-
ur allur flugreksturinn tekinn yfir,
sem er mikið hagræði fyrir FÍ. Hjá FÍ
eru 48 flugmenn. -GG
Greining Búnaðarbankans:
Vextir í 5% án
stóriðju
Greiningardeild Búnaðarbankans
telur að komi ekki til stóriöjufram-
kvæmda sé líklegt að stýrivextir
Seðlabankans lækki enn frekar og
verði komnir niður í um 5,2% að ári
liðnu og niður í 5% í byrjun árs
2004. Þeir eru nú 6,8%.
Greiningardeildin telur að stýri-
vextir lækki niður í um 6% næsta
sumar hvort sem af stóriðjufram-
kvæmdum verður eða ekki. Á þess-
um tíma skilur hins vegar á milli;
verði af framkvæmdunum hækki
vextimir á ný um mitt næsta sumar
og verði orðnir svipaðir um mitt ár
2004 og þeir eru í dag, eða um 7%.
Forsendur spárinnar eru að hag-
vöxtur á næsta ári verði 1,5 til 2%;
verðbólga verði undir markmiði
Seðlabankans; atvinnuleysi fari vax-
andi; og að viðskiptajöfnuður verði
nokkum veginn í jafnvægi. -ÓTG
DV-MYND HARI
Sumarið kveöur
Síðasti sumardagur er í dag og útlit
fyrir að sumarleikir barna séu brátt
að baki. Sumarmánuðirnir júní til
september voru vætusamir og
sólarlitlir en þó fremur hlýir aö því er
fram kemur í gögnum Veöurstofu
íslands. Sumarhitinn á Akureyri var
um 10,1' og í Reykjavík 10,3’ oger
það um einni gráðu yfir meðaltali á
báðum stöðum. Á blaðsíðu 9 í
blaðinu í dag er sumariö gert upp
og segir Páll Bergþórsson,
fyrrverandi veðurstofustjóri, að
næstu fimm vetur verði mildir.
CAFE
P R EST0
- Góó tónlist -
Margrómabcir súpur í hádeginu
- Hádegisréttir -
Opið virka daga 10—23
laugardaga og sunnudaga 12—18
- Nœg bUastœbi -
Hliðarsmári 15, sími 555-4585,
sama húsi og Úrval/Útsýn