Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002 mfc-'cr Fréttir Allir heilsugæslulæknar á Suðurnesjum hættir: Höfnuðu tilboði um sjálfstæðan rekstur - segir heilbrigðisráðherra sem segir stöðuna mjög erfiða DV-MYND HARI Tómar biðstofur í morgun. Starfsemi Heilsugæslu Suburnesja er lömuö eftir aö heimilislæknar á staönum lögöu niöur vinnu í morgun. Sjúklingar veröa aö leita annaö í vanda sínum og hefur veriö beint til Kópavogs og Reykjavíkur. Samkvæmt oröum ráöherra hér á síöunni er vinnudeilan í algerum hnút. Ársfundur ASÍ hafinn: Skattaaögeröir sagðar valda uppnámi Umræða um velferðarmál og Evrópumál, auk ársfundarstarfa, setja svip sinn á annan ársfund Alþýðusam- bands íslands sem hófst í Reykjavík í gær- morgun. Þema ársfundarins er „Afl í þina þágu“. Umrædd mál hafa mjög verið til um- ræðu á undan- förnum misser- um. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði viö upphaf þessa 2. árs- fundar ASÍ að ríkisstjómin hefði gefið loforð um að aðgerðir í efna- hagsmálum yrðu mótaðar að höfðu samráði við verkalýðs- hreyfinguna. Alþýðusamband Is- lands telur að með boðuðum að- gerðum ríkisstjórnarinnar í skattamálum hafi kjarasamning- ar á almennum vinnumarkaði verið settir í uppnám. „Húsnæðismál hjá stórum hóp- um í samfélaginu eru í sjálfheldu. Ákvörðun um að draga verulega úr niðurgreiðslu vaxta í félags- lega kerfinu bitnar á þeim sem síst skyldi. Þeim breytingum sem gerðar hafa verið á síðustu árum hefur ekki fylgt nauðsynleg íjölg- un félagslegra leiguíbúða og það, sem skiptir ekki minna máli, að gera lágtekjufólki kleift að búa í slíku húsnæði. Ef menn vilja af alvöru takast á við þetta vanda- mál þá verður leigan að vera við- ráðanleg fyrir þetta fólk. Húsa- leigubætur duga þar ekki til nema þær verði hækkaðar veru- lega,“ sagði Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, við setninguna. -GG Heilsugæslulæknar á Suður- nesjum höfnuðu tilboði heilbrigð- isráðherra um að semja um sjálf- stæðan rekstur innan heilsugæsl- unnar, að sögn Jóns Kristjánsson- ar heilbrigðisráðherra. Þá höfn- uðu þeir tilboði um að fara inn á samning sjálfstætt starfandi heim- ilislækna og vinna þá inni á stöðv- unum. Hann segir, að læknarnir séu ekki til viðtals um neitt annað en að fá að fara inn á sérfræðinga- saminga. Tíu heimilislæknar hjá Heil- brigðisstofnun Suðumesja pökk- uðu saman í gær og hættu störf- um. Enginn heimilislæknir er því starfandi á heilsugæslunni. Heil- brigðisráðuneytið hafði boðið þeim til viðræðna gegn því að þeir frestuðu uppsögnum sínum um tvo mánuði. Þvi höfnuðu læknarn- ir á þeirrir forsendu að í tilboðinu fælist ekki að starfsréttindi þeirra yrðu gerð sambærileg við starfs- réttindi annarra sérmenntaðra lækna í landinu. Heilbrigðisráðherra sagði að haldið yrði uppi neyðarþjónustu á sjúkrahúsinu. Þá yrðu hjúkrunar- vaktir auknar. Þá yrði aðstaða í nágrannabyggðum notuð ef eitt- hvað kæmi upp á. Ráðherra sagði að landlæknir hefði metið það svo, að ekki væri um neyðarástand væri að ræða. Hægt yrði að þjóna öllum bráðatilfellum. „Maður vonar að það náist nið- urstaða í þessu máli og að það fá- ist menn til að vinna þama,“ sagði ráðherra. „En þeir hafa að- eins verið til viðræðu um eitt at- riði, þ.e. sérfræðingaatriðið. Við reynum hvað við getum að fmna út úr þessu en staðan er mjög erf- ið eins og er.“ -JSS Grétar Þorsteinsson. Bensínverð lækkar um 50 aura lítrinn: Lag til að lækka um eina krónu - segir framkvæmdastjóri FÍB Þróun heimsmarkaðsverós og útsöluverðs á bensíni 2002 - 95 oktana meö fullri þjónustu kr jan. febr. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. Olíufélögin hafa lækkað verð á bensín- lítranum um 50 aura frá og með deginum í dag. Verð á gas-, ílota- og svartolíu lækkar um kr. 1,50. „Mér sýnist á þeirri verð- þróun sem verið hefur á heimsmark- aði að nú hefði verið lag til að lækka bensínlítrann um krónu,“ sagði Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bif- reiðaeigenda, við DV. Runólfur sagði að heimsmark- aðsverð hefði verið að hníga að undanförnu. Olíufélögin hefðu verið fremur hófsöm i verðlagn- ingu á fyrri hluta ársins fram á vor. 1 sumar hefðu þau hins vegar S Heimsmarkaösv. kr/l Útsóluv. kr/l „slegið í klárinn" og hækkað rýmilega miðað við þróun verð- lags á heimsmarkaði. Staða doll- ars væri svipuð og undanfarna daga. Tölur í meðfylgjandi línuriti eru fengnar frá FÍB. Heimsmark- aðsverðið er miðað við verðsvæði N-Evrópu (ARA) og gengið út frá síðasta skráða gengi dollara í mánuði gagnvart krónu. -JSS Dekkjahótel vib geymum dekkin fyrir þig gegn vægu gjaldi sóuwme (ontinenlal * Kópavogi - Njarbvík - Selfoss DV-MYND HALLDÓR INGI ÁSGEIRSSON Morgunverðurinn Hér er þaö Elvar Reykjalín sem færir Gúsí morgunveröinn áöur en hann held- ur út á fiskimiöin. Mannelsk gæs á Hauganesi í sumar varð fólk á Hauganesi við Eyjafjörð vart við frekar grannholda gæs í kolluhópnum sem heldur til í höfninni. Var ljóst á öllum athöfnum hennar og fram- komu að hún taldi sig eina af koll- unum. Kollurnar aftur á móti voru alveg með það á hreinu að þetta aðskotadýr var ekki eins og þær, því þegar gæsargreyið reyndi að blanda sér í hópinn höfðu kollurn- ar varann á sér og héldu henni í hæfilegri fjarðlægð. Tóku því nokkrir aðilar sig til og fóru að gefa gæsinni alltaf á sama stað við vigtarskúrinn. Smám saman varð Gúsí, eins og gæs- in grannholda var nefnd, hugaðri og var farin að labba upp í fjöru og nálgast þá sem voru með brauðmola handa henni. Er það nú orðin regla að þegar Elvar Reykjalín, Ámi Halldórsson og Ragnar Reykjalín mæta í vinnu eða á sjóinn á morgnana, gefur ein- hver þeirra eða allir Gúsí í gogginn og svo koma margir aðrir íbúar og gefa henni af og til allan daginn, enda er hún orðin vel bústin. Nú er það orðið þannig að ef blístrað er hátt þá svarar hún, jafnvel þótt hún sé á sjónum inni á víkinni, kemur að landi og labbar alveg upp að dyr- um og borðar úr höndum manna. Það má hrósa krökkunum á Hauga- nesi fyrir það að þau voru beðin um að henda ekki grjóti í Gúsí eða hrekkja hana og hafa þau haft það í heiðri. -hiá Fundaöi meö Annan Framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, Kofi Ann- an, lýsti í gær yfir stuðningi við upp- byggingu rannsókn- armiðstöðvar við Há- skóla Islands um málefni smárra ríkja. Annan átti fund i höfuðstöðvum SÞ með Ólafi Ragnari Grímssyni for- seta vegna málsins. Ólafur sagði í samtali við mbl.is að fundurinn hefði verið afar árangursríkur og fróölegur. Flug til Hornafjarðar Islandsflug tekur í dag yflr áætlun- arflug milli Hornafjarðar og Reykja- víkur. Fjöldi ferða verður sá sami og var hjá FÍ eða átta ferðir á viku. Flog- ið verður alla daga utan þriðjudaga og laugardaga. Sprengjugabb Lögreglan í Reykjavík handtók karlmann i gærkvöld sem grunaður er um sprengjugabb. Símtcd þess efnis að sprengja væri við Kínverska sendi- ráðið barst í gærkvöld. Lögregla vissi þegar í stað deili á innhringjanda og fannst hann eftir stutta leit. Bráðlæti kaupmanna Karl Sigurbjörns- son, biskup íslands, segir æskilegt að kaupmenn miðið jólaundirbúning við upphaf aðventunnar, fjórum vikum fyrir jól. Biskup sagði í samtali við mbl.is að sér fyndist það heldur mikið bráðlæti hjá kaupmönnum að setja jólaskraut upp í nóvember. Þrír stútar teknir Lögreglan í Reykjavík tók þrjá ökumenn í nótt sem allir eru grun- aðir um ölvun við akstur. I öllum tilvikum voru ökumennirnir stöðv- aðir við hefðbundið umferðareftir- lit. Par í gæsluvarðhald Par um tvítugt hefur verið úrskurð- að í vikulangt gæsluvarðhald vegna afbrota sem hafa verið framin að und- anfómu í Grundarfirði, Selfossi og í Reykjavík. -aþ Rangur sýslumaður var nefndur í frétt blaðsins í gær þar sem fjallað var um vanhæfi sýslumanns vegna synjunar á veitingaleyfi til handa nektarstað í Keflavík. Fréttin átti við Jón Eysteinsson, sýslumann í Keflavík, en ekki Jóhann R. Bene- diktsson, sýslumann á Keflavíkur- flugvelli. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. helgarblað Læt ekkert buga mig I Helgarblaði DV á morgun verður viðtal við Kristínu Ingu Brynjarsdótt- ur, 34 ára þriggja barna einstæða móður sem lenti í bílslysi í sumar og lamaðist upp að brjósti. Kristín Inga tekst á við hlutskipti sitt af fágætu jafnaðargeði og styrk. DV ræðir einnig við Björgvin Halldórsson, ókrýndan konung íslenskra dægurlagasöngvara, spjallar við Ingibjörgu Haraldsdóttur skáld um lífið i Sovét, veltir fyrir sér mannanöínum í undarlegu samhengi og Öallar um kynlíf aldraðra. Einnig eru birtir kaflar úr tveimur mjög forvitni- legum jólabókum og Qallar annar um fæðingu en hinn um dauðann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.