Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002
DV
Fréttir
Hafa allir lækkað í launum
Ungir læknar, sem starfa í
heilsugæslunni, hafa allir lækkað
í launum eftir úrskurð Kjara-
nefndar, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Félagi ungra
lækna. Segir enn fremur að full-
yrðingar heilbrigðisráðuneytisins
um að enginn hafi lækkað í laun-
um séu því fyrir neðan allar hell-
ur. Dæmi séu um allt að 35%
launalækkun hjá ungum læknum
starfandi í heilsgæslunni.
FUL krefst þess að heilbrigðis-
ráðuneytið upplýsi hvemig það
geti staðið við slíka fullyrðingu
þar sem ljóst sé að hún á ekki við
um unga lækna í heilsugæslu.
Þessi úrskurður Kjaranefndar
mun verða til þess að ungir
læknar ráði sig enn síður í vinnu
í heilsugæslu á íslandi.
Vesturfarasetur til Kanada
Undirritaður hefur verið samn-
ingur milli Vesturfarasetursins á
Hofsósi, ferðaskrifstofunnar Vest-
fjarðaleiðar og flugfélagsins
Atlanta um leiguflug til Kanada.
Samið er um eitt flug með Boeing
747 og em 470 sæti í boði. Flogið
er til Winnipeg 24. júlí og til baka
5. ágúst. Ef næg þátttaka fæst
verða skipulagðar ferðir til fleiri
staða í Kanada. Ferðimar em
settar upp til að auðvelda sam-
skipti fólks af íslensku bergi brot-
ins í Vesturheimi og íslendinga.
Hvert sæti kostar á bilinu 55 til 60
þúsund krónur.
Listflug í Reykjavík í dag
Þrír snillingar munu sýna listir
sínar í dag á Reykjavíkurflug-
velli, ef veður leyfir. Flugið er í
tilefni vígslu endurbætts Reykja-
víkurflugvallar. Þetta eru Pekka
Havbrandt, sem sýnir svifflug, og
Magnús Norödahl og Patty
Wagstaff sem sýna vélflug. Hægt
verður að fylgjast meö listfluginu
frá Öskjuhlíðinni og jafnframt
hlusta á beina útvarpslýsingu á
Bylgjunni FM 98,9.
170 nýjar fréttir vikulega
Nýr fréttavefur hefur verið opn-
aður á Netinu undir nafninu
local.is. Um er að ræða fjölmiðil
sem ætlað er að höfða sérstaklega
til allra íbúa í væntanlegu Norð-
austurkjördæmi. Local.is er með
tvær starfsstöðvar: á Akureyri og
í Neskaupstað.
Vefurinn local.is er uppfærður
daglega og er markmiðið að hvern
virkan dag verði settar inn 25 til 35
nýjar fréttir en færri um helgar. í
hverri viku munu því koma um
130 til 170 nýjar fréttir; aliar tengj-
ast þær Norðausturkjördæmi. íbú-
um svæðisins hefur ekki áður stað-
ið til boða slíkt magn staðbund-
inna frétta í einum miðli. Upplýs-
ingaflæðið innan svæðisins mun
því aukast til muna og rödd kjör-
dæmisins út á við mun styrkjast
með tilkomu miðilsins.
Local.is er landsbyggðarmiðill
og ætlað að verða öflugur
málsvari hins nýja Norðaustur-
kjördæmis á landsvísu auk þess
að skapa samstöðu og efla sam-
vinnu innan kjördæmisins.
Félagið Local miðlun ehf. á og
rekur vefsetrið local.is - ritstjóri
er Kristján J. Kristjánsson.
-JSS/hiá/GG
íslandssamningur um
jarðhita gerður í Peking
- víðtækir möguleikar - jarðhitasvæðin skipta þúsundum
íslendingar skrifuðu í gær undir
liðlega 40 milljóna króna samning í
Peking við Kínverja um jarðhitaráð-
gjöf. Ásgeir Margeirsson, aðstoðar-
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
segir að samningurinn, sem unnið
hefur verið aö ásamt öðru í um 2 ár,
hafi þá þýðingu að nú opnist dyr
sem gefi möguleika á að íslendingar
komist í fleiri jarðhitaverkefni í
Kína. Þar í landi er talið að séu 2 til
3 þúsund staðir þar sem jarðhiti fyr-
irfmnst. Kína er nær hundraðfalt
stærra en ísland.
Ráðgjöfin sem samið var um í
gær snýr að hönnun hitaveitukerfis
fyrir fjölbýlishúsahverfi í Norður-
Peking og því hvemig skynsamleg-
ast er að haga nýtingu jarðhitans á
svæðinu þannig að auðlindin verði
sem best nýtt til langs tíma.
Það voru Orkuveita Reykjavíkur
og Enex hf. sem gerðu samninginn
við Kínverja. Enex er samsteypa
stærstu verkfræðistofa og orkufyrir-
tækja landsins, stofnað til að sam-
eina krafta í útflutningi sem þess-
um.
„Þessi samningur mun skapa ís-
lenskum jarðvísindamönnum og
verkfræðingum vinnu við að meta
jarðhitasvæðið sem um er samið og
hanna hitaveituna í 4 til 6 mánuði í
vetur,“ segir Ásgeir. „Mesta vinnan
fer fram á íslandi en menn munu
engu að síður þurfa að fara
nokkrum sinnum á staðinn. Gert er
ráð fyrir að verklok vegna samn-
ingsins verði í árslok 2003.“
Ólafur Egilsson, sendiherra í Pek-
ing, sem einnig hefur unnið að
verkefninu, sagði við DV að jarð-
hitasamstarf hefði veriö eitt af
áherslumálunum í opinberri heim-
sókn Jiang Zemin til íslands i júní.
Hann segir íslenska ráðamenn
hafa stutt dyggilega við hina ís-
lensku samningsaðila enda sé á
stefnuskrá rikisstjórnarinnar að
vinna að útflutningi islenskrar sér-
fræðiþekkingar. -Ótt
DV-MYNDIR HARI
Jeppafrumburöur Volkswagen afhjúpaöur
Sverrir Sigfússon, forvígismaður Heklu, var þess heiöurs aönjótandi aö vera fulltrúi fyrsta Volkswagen-umboðsins í
heimi til aö afhjúpa nýjustu afurö VW, lúxusjeppann Touareg. Bíllinn fer í almenna sölu hér á landi á næsta ári en
þetta sýningareintak veröur einungis á landinu í þrjár vikur. Á innfelldu myndinni halda þeir bræöur Sverrír og Sigfús
boröanum fyrir þýska fulltrúa frá höfuöstöðvum WJ. ítaríega umfjöllun um bílinn má finna í helgarblaði DV á morgun.
Skemmdir af völdum flóðanna eystra:
Fullyrða má að
tjónið er verulegt
- -
________________________
DVMYND JÚLÍA IMSLAND
Beljandl ár
Árnar á Austurlandi voru í miklum ham í október - sumar árnar uröu sem
hafsjór yfir aö líta. Vatnavextirnir hafa valdiö verulegu tjóni.
Komið er í ljós að verulegt tjón
varö hjá mörgum bændum í Homa-
firði í vatnavöxtunum á dögunum
þegar jökulár flæddu yfir tún og
beitilönd, girðingar brotnuðu og
skurðir fylitust af leðju. Þrúðmar
Sigurðsson, bóndi í Miðfelli, sem
lengi hefur starfað við uppgræðslu í
sýslunni, segir að afleiðingar flóð-
anna séu að koma í ljós og senn
búið að fara yfir allt svæðið. Ljóst
er að tjónið er mikið. Þrúðmar sagði
að kostnaður Landgræðslunnar,
sem hann starfar fyrir, sé orðinn
ein milljón króna við bráðabirgða-
viðgerðir á varnargörðum við
Hólmsá á Mýrum, Hofsá í Álftafirði
og Gjádalsá í Lóni. Tvær fyrmefndu
stíflumar þurfi að hækka og styrkja
og verði endanlegur kostnaður því
til muna meiri. Fleiri hafa þurft að
leggja fram mikið fé vegna flóðanna,
einstaklingar sem og Vegagerðin.
Hólmsá á Mýmm rauf tvö stór
skörð í vamargarða sem liggja út að
eyðibýlinu Bakka með þeim afleiö-
ingum að vatnsflaumurinn náði al-
veg austur að Borg og fór yfir mik-
iö graslendi þar sem eftir situr leir
og dmlla. Verulegar skemmdir urðu
á túninu á Skálafelli í Suðursveit
eftir jökulhlaup úr Kolgi;ímu sem
einnig flæddi yfir beitilönd. Þrúð-
mar segir að Hornafjarðarfljót hafi
umturnað miklu á mifli Svínafells
og Hoffells og þar hafi farvegur ár-
innar breikkað mikið, sums staðar
um 100 metra, en vamargarðar hafi
staðist hlaupið.
Hluti varnargarðs við Hofsá í
Álftafirði rofnaði og flæddi áin yfir
stórt gróið svæöi en skemmdir hafa
ekki verið kannaðar þar, segir
Þrúðmar.
Jökulsá í Lóni varð sem hafsjór
og flæddi yfir beitilönd og tún í
Volaseli, sem eru stórskemmd, en
bændur voru viðbúnir þessu og
búnir að smala svæðið svo engar
skepnur voru í hættu. -JI
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 17.12 16.57
Sólarupprás á morgun 09.13 08.58
Síðdegisflóð 15.39 22.12
Árdegisflóð á morgun 04.14 08.47
Vedríd f
Austan 15 til 20 metrar á sekúndu
og rigning eða súld meö köflum á
sunnanverðu landinu en hægt vax-
andi austanátt og þykkar upp norö-
an til, 10-15 og dálítil rigning seint í
kvöld.
Veðfíö á
■mhmhbi
Lægir og dregur úr úrkomu sunnan
til og noröanlands. Suöaustan 5 til
10 metrar á sekúndu og skúrir
sunnanlands en skýjaö með köflum
og þurrt að mestu fýrir norðan.
Veðríö n
Sunnudagur Mánudagur Þríðjudagur
"VöV5
ðð Ö
Hiti 3°
öð Ö
Hiti 4°
ðóö
Hiti 4°
tii 8° til 9“ til 9°
Vindur 8-13”/» Vindur: 8-13™/* Vindur: 8-13”/»
\£
Dálitil rigning austan til en annars úrkomulítiö. Væta í flestum landshlutum. Fremur hlýtt í veðri. Væta í flestum landshlutum. Fremur hlýtt í veöri.
1 Vindhraðí
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvlðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
AKUREYRI skýjaö 4
BERGSSTAÐIR rigning 3
B0LUNGARVÍK léttskýjaö -7
EGILSSTAÐIR léttskýjaö -4
KEFLAVÍK skýjað 2
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 4
RAUFARHÖFN alskýjað 3
REYKJAVÍK hálfskýjaö 0
STÓRHÖFÐI alskýjað 5
BERGEN léttskýjaö 2
HELSINKI snjókoma 0
KAUPNIANNAHÖFN skýjað 5
ÓSLÓ léttskýjaö -2
STOKKHÓLMUR -4
ÞÓRSHÖFN alskýjað 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -1
ALGARVE léttskýjað 14
AMSTERDAM þokumóða 6
BARCELONA léttskýjaö 12
BERLÍN hálfskýjaö 5
CHICAGO léttskýjað -1
DUBUN skýjað 13
HALIFAX léttskýjaö -1
HAMBORG lágþokublettir 4
FRANKFURT þokumóða 8
JAN MAYEN skýjað 0
L0ND0N mistur 13
LÚXEMBORG þoka 10
MALL0RCA rigning 15
M0NTREAL heiðskírt 0
NARSSARSSUAQ alskýjaö 7
NEW YORK skýjaö 7
ORLANDO alskýjaö 21
PARÍS þokumóöa 11
VÍN þokumóða 7
WASHINGTON heiðskírt -1
WINNIPEG heiðskírt -10
WLÚdúfál|Ji»iá^á-liALd|iu