Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Page 11
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002
!DV Fréttir
Sigrún María fær styrk
Eigendur fyrirtækjanna Sjafnar
hf., Mjallar hf. og Hörpu-Sjafnar
hf. ætla að leggja hálfa milljón
króna í söfnunarsjóð til stuönings
Sigrúnu Maríu Óskarsdóttur og
fjölskyldu í Dalsgerði 1K á Akur-
eyri. Þeir hafa jafnframt ákveðið
að í nóvember og desember næst-
komandi renni 10 krónur af hverj-
um seldum lítra af málningu frá
Hörpu-Sjöfn, í málningarvöru-
verslun fyrirtækisins að Austur-
síðu á Akureyri, til fjölskyldunn-
ar, sem og andvirði 5% af stað-
greiðsluviðskiptum í þvottahúsi
og fatahreinsun Mjallar hf. á Ak-
ureyri til áramóta.
Fjölskyldan í Dalsgerði lenti
sem kunnugt er í umferðarslysi í
Danmörku í júlí sl. og Sigrún
María, átta ára gömul, varð fyrir
alvarlegum áverkum í slysinu.
Hún er nú bundin við hjólastól,
hvað sem síðar kann að verða.
Krökkt af háhyrningum
Gríðarlega mikið er af háhym-
ingi á Héraðsflóadýpi og hefur
það truflað veiðar þeirra síld-
veiðiskipa sem þar eru. Aðeins
hefur veiöst um 18% síldarkvót-
ans sem er um 23.000 tonn af 129
þúsund tonna kvóta. Síldin er
mjög blönduð og því ^erfið til
manneldisvinnslu. Síld hefur
einnig verið að finnast í Víkurál
og á Eldeyjarsvæðinu. Stóra síld-
in virðist alveg vera horfin,
a.m.k. í bili.
Menningarnóttin heiðruð
Borgarstjóri veitti í gær verk-
efnisstjóm Menningarnætur
starfsviðurkenningar Reykjavík-
urborgar fyrir árið 2001. Venja er
að Reykjavíkurborg veiti
starfsviðurkenningu árlega og á
siðasta ári hlaut Miðgarður, fjöl-
skylduþjónusta í Grafarvogi, við-
urkenninguna en þar hafa m.a.
verið þróaðar nýjar leiðir í sam-
þættingu heildstæðrar fjölskyldu-
þjónustu. Þær stofnanir borgar-
innar sem áður hafa hlotið
starfsviðurkenningu eru ÍTR fyrir
árið 1997, Félagsþjónustan fyrir
árið 1998 og Leikskólar Reykja-
víkur fyrir árið 1999.
Gripnir með þýfi
Lögreglan í Reykjavík handtók
í fyrranótt tvo karlmenn þar sem
þeir voru í ökuferð á Vatnsmýrar-
vegi. Fyrr um nóttina hafði verið
brotist inn í bifreið við Hverfis-
götu og meðal annars stolið
geislaspilara. Við leit í bíl mann-
anna fannst geislaspilarinn og
voru þeir færðir i fangageymslur.
Mennirnir, sem eru báðir um fer-
tugt, voru yfirheyrðir vegna máls-
ins i gær. Þeir munu áður hafa
komið við sögu hjá lögreglunni.
-aþ/GG
11
HOMLULAU
SKULDARAP
Islenskar eyðslu
í meðferð
Biörn Svi
bameir
ROBERT
STEINGRIMUR
GUÐJÓNSSON
VAR DÆMDUR
'PM
Gerdur Bjarnadóttir Heiðnar konur Svava Þórdís Baldvinsdóttir Ein„.
Björgvin Frans Gíslason Stefán Guójohnsen Falleg úr Nína Dögg Fíl
23 • Sími 590 20Ö0
www.bennt.is
Nóvember 2002 09. tbl. 19. árg. krónur 799, -m. vsk
BFGoodricH
. ii. . i ii ■■ wmmmmmmmmmmmmmm—mDakk
Umboösaöilar:
hans Bubba
Kon.in í líí:i n,u,;);).* MonKionin
!)')•>;;íoi,:' !i;)0; Ioyíi- rofnvoiuii1 irn
< );<s Mmaið
BFGoodrich
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmDekk
- veldu aðeins það besta
m ■ .... m
Hjólbarðaverkstæði
Bílabúðar Benna • Reykjavík
Hjólbarðaverkstæði
Sigurjóns • Reykjavík
Nesdekk • Seltjarnarnesi
Dekk og smur • Stykkishólmi
Léttitækni • Blönduósi
Höldur • Akureyri
Bflaþjónustan • Húsavík
Smur og Dekk • Höfn Hornafirði
IB Innflutningsmiðlun • Selfossi