Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Síða 13
13
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2002___________________________________________________________________________________________
py___________________________________ Útlönd
Tuttugu og tveir látnir eftir jarðskjálfta á Ítalíu í gær:
Vonir um að fleiri finn-
ist á lífi fara dvínandi
Tuttugu börn létu lífið þegar leik-
skóli í smábænum San Giuliano di
Puglia á Italíu hrundi í öflugum
jarðskjálfta í gær.
Björgunarsveitamenn leituðu
ákaft í rústunum í morgun en vonir
þeirra um að fmna fleiri á lífi fóru
dvínandi. Átta manns var enn sakn-
að í morgun.
Örvæntingarfullir foreldrar,
margir hverjir frávita af sorg, biðu
í alla nótt eftir fréttum af bömum
sínum sem höfðu verið að skemmta
sér í hrekkjavökuveislu þegar
skjálftinn reið yfir i gærmorgun.
Skjálftinn í gær, sá öflugasti sem
riðið hefur yfir Italíu frá árinu 1997,
hristi og skók héraðið Molise í
sunnanverðu landinu. Þrjú þúsund
manns misstu heimili sín. Þá létust
tvær fullorðnar konur þegar heimili
þeirra eyðilögðust.
Háttsettur lögreglumaður sagði
að átta væri enn saknað, sjö barna
og eins kennara. Hann sagði að
REUTERSMYND
Orvænting eftir jarðskjálfta
Örvæntingin skein úr andlitum kvennanna í ítalska bænum San Giuiiano di
Puglia þegar þær fytgdust meö björgunarsveitamönnum leita í rústum leik-
skóla sem hrundi í snörpum jaröskjálfta í gærmorgun. Jaröskjálftinn fannst
víða um sunnanveröa Ítalíu, meöal annars i Róm.
hundruð björgunarsveitamanna
væru að grafa i rústunum með ber-
um höndum en vonir um að fleiri
fyndust á lífi hefðu farið dvínandi
eftir því nær leið morgninum. Þrjá-
tíu manns var bjargað úr rústunum
i gær.
„Það heyrast engin hljóð,“ sagði
Emesto Angelotti, starfsmaður al-
mannavama, í samtali við frétta-
mann Reuters. „Við greinum ekkert
með hitanemum okkar. Jarðýturnar
eru á leiðinni og ég er hræddur um
að lítil von sé eftir,“ sagði hann.
Björgunarsveitamenn höfðu áður
heyrt barnsraddir úr rústunum.
„Ég mun deyja með honum, ég
mun deyja með honum," hrópaði
ung örvæntingarfull móðir við slys-
staðinn. Maður á fertugsaldri sem
var þar nærri hrópaði: „Heilög
guðsmóðir, veslings bamið mitt.“
Og siðan féll hann í ómegin.
REUTERSMYND
Hvetur flokksmenn til dáða
George IV. Bush Bandaríkjaforseti er
lagstur í feröalög til stuönings fram-
bjóöendum repúblikana fyrir kosn-
ingarnar á þriöjudag.
Bush kominn í
kosningasmölun
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ætlar að leggja sitt af mörkum
til að tryggja repúblikunum meiri-
hluta í báðum deildum þingsins í
kosningunum á þriðjudag. Mjög
mjótt verður á mununum.
Forsetinn lagði í gær upp í kosn-
ingaferðalag til sautján borga til
stuðnings frambjóðendum repúblik-
ana. Fram að kosningunum mun
Bush heimsækja fimmtán ríki, þar
af þrjú í dag, áður en hann heldur
til Texas þar sem hann mun sjálfur
greiða atkvæði.
REUTERSMYND
Síberíutígur á hrekkjavöku
Síberíu-tígurinn Tony, sem dvelur í góöu yfirlæti í dýragaröinum í San Fransisco í Bandaríkjunum, fékk eins og önnur
dýr í garöinum aö leika sér meö grasker í tilefni hrekkjavökunnar sem Bandaríkjamenn héldu hátíðlega t gær.
Sharon skipar harðlínumann
í sæti varnarmálaráðherra
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Israels, hefur boðið hinum herskáa
Shaul Mofaz, fyrrum yfirmanni ísra-
elska hersins, að taka við embætti
varnarmálaráðherra landsins af
Binyamin Ben-Eliezer, leiðtoga
Verkamannaflokksins, sem sleit
stjórnarsamstarfinu við samsteypu-
stjórn Sharons fyrr í vikunni.
Mofaz er þekktur fyrir harða af-
stöðu sína gagnvart Palestínumönn-
um og hefur oftar en einu sinni látið í
ljósi þá skoðun sína að nauðsynlegt sé
að losna við Yasser Arafat úr embætti
leiðtoga Palestínumanna með öllum
ráðum.
Að sögn Arons Perlmans, helsta að-
stoðarmanns Sharons, hefur Mofaz,
sem síðastliðin tvö ár hefur stjómað
hörðum aðgerðum hersins gegn
Palestínumönnum, þegar þegið boðið
og þvi Ijóst að Sharon er kominn lang-
Shaul Mofaz
Mofaz hefur síöustu tvö ár stjórnaö
höröum aögeröum gegn
Palestínumönnum.
leiðina með að mynda hreina harð-
línustjóm.
Harka Mofaz gagnvart Palestínu-
mönnum hefur að undanfömu verið
harðlega gagnrýnd, bæði af vinstri
mönnum á ísraelska þinginu og ýms-
um mannréttindahópum, en undir
hans stjórn hafa ísraelskar hersveitir
ítrekað orðið uppvísar að árásum og
■ drápum á óbreyttum borgurum.
Mofaz hefur ítrekað sakað palest-
ínsk stjórnvöld um að hvetja til
hryðjuverka gegn ísraelum og reynd-
ar sagt þau á kafi í þeim frá toppi til
táar.
Arafat hefur þegar látið í ljósi
áhyggjur og varað við því að harðn-
andi deilur muni fylgja í kjölfar inn-
komu harðlínumanna í stjórnina í
stað ráðherra Verkamannaflokksins,
sem helst hafa haldið aftur af árásar-
gleði Sharons.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag
í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagi og
breytingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin
svæði í Reykjavík:
Laugavegur, Ingólfsstræti, Hverfisgata,
Smiðjustígur, reitur 1.171.0, deiiiskipulag.
Tillagan tekur til staðgreinireits 1.171.0. sem af-
markast af Laugavegi til suðurs, Ingólfsstræti til
vesturs, Hverfisgötu til norðurs og Smiðjustíg til
austurs. Um er að ræða endurskoðun á gildandi deili-
skipulagi svæðisins frá 1963 m.s.br.
Tillagan gerir ráð fyrir verulegum breytingum mióaða
við gildandi deiliskipulag frá 1963 með hliðsjón af
breyttum viðhorfum í skipulagsmálum. Aðeins er gert
ráð fyrir nýbyggingum á lóðunun nr. 1,5 og 9-11 við
Laugaveg og nr. 6 við Traðarkotssund eins og nánar
greinir í tillögunni. Heimil landnotkun á reitnum verði í
samræmi við ákvæði aðalskipulags. Þá gerir tillagan
ráð fyrir að húsin nr. 11 við Bankastræti, 3 við Lauga-
veg og nr. 14, 16, 16a og 18 verði hverfisvernduð sem
20. aldar byggingar. Nánar um tillöguna vísast til
hennar.
íþróttasvæði Fylkis við Árbæjarlaug, gervi-
grasvöllur, deiliskipulag.
Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi
íþróttasvæðis Fylkis í Árbæ.
Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að breyta nú-
verandi malarvelli í gervigrasvöll. Tillagan gerir m.a.
ráð fyrir að heimilt verði að byggja um 40 m2 dæluhús
fyrir snjóbræðslukerfi og setja upp Ijósamöstur vegna
lýsingar á vellinum. Nánar um tillöguna vísast til
hennar.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingar-
sviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 -
16.00 frá 1. nóvember til 13. desember 2002. Eru þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillögurnar. Nánari upplýsingar eru veittar á
sama stað og sama tíma hjá skipulagsfulltrúa, 3. hæð.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal
skila skriflega til skipulagsfulltrúa, Borgartúni 3, 105
Reykjavík eigi síðar en 13. desember 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 1. nóvember 2002.
Skipulagsfulltrúi.
—