Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2002, Síða 28
36
FÖSTDAGUR 1. NÓVEMBER 2002
9
Sport
Jens Herlufsen varð íslandsmeistari í GF-flokki sandspyrnunnar. „Hann er
stöðugt að vaxa með bíladellunni," segir Selma Ágústsdóttir, ánægð með
sinn mann, þegar vinkonur hennar spyrja hana hvenær Jens ætli að vaxa
upp úr bíladellunni. DV-myndir JAK
íslandsmeistarar í kvartmíluakstri og fulltrúar þeirra fagna árangri sumarsins.
íslandsmeistarar í spyrnu krýndir um síðustu helgi:
Kristján og Viðar
unnu tvöfalt í ár
^ - mikil gróska í spyrnunni og fjöldi íslandsmeta leit dagsins ljós
Islandsmeistararnir í spyrnu-
íþróttum, kvartmíluakstri og sand-
spyrnu voru krýndir á sameiginlegri
uppskeruhátíð Kvartmíluklúbbsins
og BOaklúbbs Akureyrar sem fram
fór á laugardaginn. Þar kom fram að
mikill uppgangur er í þessum akst-
ursíþróttagreinum, keppendum fjölg-
ar, mikil gróska er í uppbyggingu og
innflutningi keppnistækja og áhorf-
endum hefur fjölgað.
Mikill fjöldi meta
Þá er árangur keppenda að aukast
sem sést á þeim nýju íslandsmetum
sem sett hafa verið á síðasta keppnis-
tímabili. Forsvarsmenn þessara akst-
ursíþróttaklúbba líta því björtum
augum til framtíðar og búast við enn
meiri grósku á næsta keppnisári.
Islandsmeistarar 2002 í spyrnu
(kvartmílu) urðu eftirfarandi:
Einar Örn Reynisson vann í S-
flokki mótorhjóla að 600 cc, Ólafur F.
Harðarson bar sigur úr býtum í F-
flokki mótorhjóla að 750 cc, Ólafur
Helgi Sigþórsson varð hlutskarpast-
ur í N-flokki mótorhjóla að 1000 cc,
Viðar Finnsson sigraði bæði í T-
flokki, mótorhjóla að 1300 cc og O-
flokki mótorhjóla, Guðlaugur M.
Halldórsson sigraði í RS-flokki, Hall-
dór Theódórsson varð hlutskarpastur
í GT-flokki, Smári Helgason bar sig-
ur úr býtum í MC-flokki, Rúdolf Jó-
hannsson vann SE-flokkinn, Einar Þ.
Birgisson sigraði í GF-flokki og
Kristján Skjóldal hreppti fyrstu verð-
laun í OF-flokki.
íslandsmeistarar í sandspyrnu
urðu eftirfarandi:
Árni Grant sigraði í keppni
vélsleða, Pétur V. Pétursson varð
hlutskarpastur í keppni krosshjóla,
Steingrímur Ásgrímsson vann í
flokki ofurhjóla, Birgir Karl Birgis-
son sigraði í flokki fólksbíla, Jens
Herlufsen vann í flokki útbúinna
fólksbíla, Anton Ólafsson bar sigur
úr býtum í jeppaflokki, Guðmundur
Pálsson sigraði í flokki útbúinna
jeppa og Kristján Skjóldal bar sigur
úr býtum i opnum flokki. -JAK
Spyrnumenn kusu Einar P. Birgisson akstursíþróttamann ársins úr sínum
rööum en hann er frá Akureyri, eins og Kristján Skjóldal sem hampaði
Islandsmeistaratitlum í ofurbílaflokki beggja spyrnugreinanna.
*
Bland í poka
Enska háskólaliöiö Team Bath
tryggöi sér í fyrrakvöld sæti í fyrstu
umferð ensku bikarkeppninnar eftir
sigur á Horsham, 4-3, eftir vita-
spymukeppni i aukaleik. Team Bath
er fyrsta háskólaliöið til að komast úr
forkeppni bikarkeppninnar síðan lið
Oxford-háskóla og Cambridge-há-
skóla tóku þátt í keppninni árið 1880.
Team Bath leikur i svæðisskiptri
vesturdeild sem má segja að sé átt-
unda deild í Englandi og mun liðiö
mæta Mansfield í 1. umferðinni 16.
nóvember næstkomandi. Mansfield
er í botnsæti ensku 2. deildarinnar og
því heilum fimm deildum fyrir ofan
Team Bath.
Danski knattspyrnumaðurinn Stig
Töfting mun yfirgefa herbúðir enska
úrvalsdeildar liðsins Bolton í lok
þessa keppnistimabils. Töfting var
dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi i
Danmörku fyrir likamsárás á
skemmtistað í sumar og vora forráða-
menn Bolton lítið hrifnir af því
uppátæki kappans.
Þeir ákváöu þó að halda Töfting á
samningi þar til næsta vor í stað þess
að ógilda samninginn strax og fá yfir
sig málsókn og kröfu um skaöabætur.
Töfting ætlar að áfrýja dómnum til
hæstaréttar i Danmörku en ólíklegt
þykir að honum verði ágengt með að
hnekkja dómnum því mörg vitni sáu
hann skalla rekstrarstjóra skemmti-
staðarins auk þess sem hann kjálka-
braut annan mann í starfsliði
skemmtistaðarins. -ósk
íslandsmeistararnir í sandspyrnuakstri meö bikara sfna eftir verðlaunaafhendinguna.