Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2002, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2002
31
Bestu ummæli
helgarinnar
„Friedel hlýtur aö hafa
skipt um föt í símaklefa
fyrir leikinn(<
Tölfræðin:
Hvaða lið
standa sig
best og verst í
ensku úrvals-
deildinni?
í eindálkinum hér til hægri
má sjá hvaöa lið ensku úrvals-
deildarinnar skara fram úr á
ákveðnum sviðum tölfræðinnar
en þessir listar eru uppfærðir
eftir leiki helgarinnar og verða
hér eftir fastur liöur á ensku síð-
unum í mánudagskálfmum.
-ÓÓJ
Markahæstu menn
ítalinn aldni, Gianfranco Zola, hefur
skorað manna
mest í ensku
úrvalsdeild-
inni það sem
af er þessu
keppnistima-
Gianfranco Zola. bili
Gianfranco Zola, Chelsea ........9
Michael Owen, Liverpool .........8
Alan Shearer, Newcastle..........7
Sylvain Wiltord, Arsenal.........7
Nicolas Anelka, Manchester City . 7
Thierry Henry, Arsenal ..........6
Harry Kewell, Leeds..............5
James Beattie, Southampton.......5
Kevin Campbell, Everton .........5
Mark Viduka, Leeds...............5
Nwanwo Kanu, Arsenal ............5
Paolo Di Canio, West Ham ........5
Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Southampton, var nánast orðlaus
eftir að menn hans höfðu misst leikinn gegn Blackburn niður í jafntefli
á síðustu sekúndunum eftir að hafa átt aragrúa af tækifærum til að gera
út um leikinn. Hann laumaði samt gulikomi til enskra blaðamanna í
formi hróss til markvarðar Blackburn, Brads Friedels, sem átti stórleik
í markinu og bjargaði mönnum sínum oft á ævintýralegan hátt í
leiknum.
„Friedel hlýtur að hafa skipt um fot í símaklefa fýrir leikinn. Ég væri
ekki hissa þó að það leyndist blá preysa með „s“ á undir markvarðar-
peysunni hjá honum, slík var frammistaða hans i leiknum í dag,“ sagði
Strachan. -ósk
Stórleikur helgarinnar í ensku knattspyrnunni var á Maine Road:
Niðurlæging
- Manchester City skellti grönnum sínum í United á sannfærandi hátt á laugardaginn
Leikmenn Manchester City
glöddu stuðningsmenn sína á besta
mögulega hátt þegar þeir niður-
lægðu granna sína í Manchester
United á Maine Road á laugardag-
inn.
Þegar flautað var til leiksloka
hafði Manchester City unnið leik-
inn á sannfærandi hátt, 3-1, og þar
með fyrsta sigur liðsins á rauðum
nágrönnum sinum í 13 ár.
Frakkinn Nicolas Anelka kom
Manchester City yfir á 5. mínútu
eftir að hafa stungið Rio Ferdi-
nand, dýrasta vamarmann heims,
af. Ole Gunnar Solskjær jafnaði
þremur mínútum síðar fyrir
Manchester United en það var eig-
inlega aldrei spurning um það
hvorum megin sigurinn myndi
lenda. Leikmenn Manchester City
höfðu meiri sigurvilja og börðust
meira en leikmenn Manchester
United og uppskáru annað mark á
26. minútu þegar Shaun Goater
nýtti sér hræðileg mistök hjá Gary
Neville og skoraði örugglega fram
hjá Fabien Barthez í marki United.
Hann var síðan aftur á ferðinni á
50. mínútu, skoraði þriöja mark
City og rak síðasta naglann i kistu
United-manna.
Kevin Keegan, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, var himin-
lifandi með menn sína eftir leikinn
en lærisveinar hans unnu þriðja
leik sinn í röð.
Sýndu mikinn sigurvilja
„Þetta var frábær frammistaða
hjá liðinu. Leikmennimir sýndu
mikinn siguryilja og það var aldrei
neinn spuming um það hvom lið-
inu langaði meira tO að vinna. Ég
get varla tekið nokkrun mann út
úr liðinu en get þó ekki orða bund-
ist yfir frammistöðunni hjá Shaun
Goater og Nicolas Anelka. Þeir ná
frábærlega vel saman og gerðu
hinum sterku vamarmönnum
Manchester United lífið leitt allan
leikinn. Ég held að það sé ekki
hægt að frnna tvo ólíkari leikmenn
en ég er samt viss um að vamar-
menn Manchester United eiga ekki
eftir að lenda í meiri vandræðum
gegn sóknarmönnum Valencia eða
Real Madrid en í dag,“ sagöi Keeg-
an eftir leikinn.
Miðjumaðurinn Danny Tiatto,
sem átti mjög góðan leik með
Manchester City, var í skýjunum
og lýsti sigrinum sem hápunkti
ferilsins.
„Þetta er það besta sem ég hef
lent í á knattspyrnuferlinum. Það
gáfu allir allt i leikinn og upp-
skáru eftir því. Við stóðum saman
og það eru spennandi timar fram
undan hjá Manchester City,“ sagði
Tiatto eftir leikinn.
Munu svara til saka
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, var æva-
reiður og sagði að leikmenn sínir
hefðu brugðist sér og
stuðningsmönnum liðsins í leikn-
um.
„Ég er búinn að lesa yfir hausa-
mótunum á þeim inni í klefa. Þeir
brugðust mér og það sem verra er,
þeir brugðust stuðningsmönnum
okkar. Ég var að velta þvi fyrir
mér hvort ég ætti að hleypa stuðn-
ingsmönnum inn í klefann til að
þeir geti látið leikmennina vita
hvemig þeim líður,“ sagði Fergu-
son eftir leikinn.
„Við gerðum heimskuleg mistök
og gerðum okkur seka um einbeit-
ingarleysi sem er nokkuð sem er
ekki hægt að leyfa sér í leik eins
og þessum. Manchester City verð-
skuldaði sigurinn fyllilega. Ég tek
það ekki frá þeim en mig svíður
sárt hversu andlausir leikmenn
mínir voru í leiknum. Þeir munu
þurfa að svara til saka fyrir það,“
sagði Ferguson eftir leikinn. -ósk
Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, var sáttur viö menn sína eftir sigurinn gegn Manchester United á laugardaginn. Reuters
Sport
Liöin sem standa sig
best og verst í
ensku úrvalsdeildinni
Besta gengift
Liverpool 21 stig af
síöustu 24 möguleg-
um, markatalan er
14-4 í leikjunum.
Með besta genginu er átt við
besta árangur liðs í síðustu
átta deildarleikjum
Flestir sigur-
leikir í röð
&A w L
■Wi&L- Everton fjórir.
Besta sóknin
Arsenal hefur skor-
aö flest mörk, eöa
28, í 13 ieikjum, eða
2,23 aö meðaltali.
Besta vörnin
Middlesbrough og
Liverpool hafa feng-
iö á sig fæst mörk,
10 í 13 leikjum, eöa
0,76 mörk í leik.
Bestir heima
Arsenal hefur náö í
18 stig af 21 mögu-
legu, hefur unnið 6
af 7 leikjum, marka-
talan er 16-7.
Bestir úti
Liverpool hefur náö f
13 stig af 18 mögu-
legum, hefur unniö 4
af 6 leikjum, marka-
talan er 10-5.
Bestir fvrir te
Arsenal hefur náö f
29 stig af 39 mögu-
legum og er meö
markatöluna 18-5 í
fyrri hálfleik.
Bestir eftir te
Liverpool hefur náö í
27 stig af 39 mögu-
legum og er með
markatöluna 18-9 f
seinni hálfleik.
Versta gengift
Sunderland er meö
3 stig af síðustu 24 Æ. pKg
mögulegum, marka-
talan er 8-16 f
ieikjunum.
Versta sóknin
Sunderland hefur
skorað fæst mörk,
eöa 8, í 13 leikjum,
eöa 0,61 aö meðal-
tali.
Versta vörnin
West Ham hefur
fengið á sig fiest
mörk, 23 í 13 leikj-
um, eöa 1,76 f ieik.
Verstir heima
West Ham hefur náö
í 2 stig af 21 mögu-
legu, hefur tapaö 5
af 7 leikjum, marka-
talan er 6-12.
Verstir úti
Aston Villa hefur
náð í 2 stig af 18
mögulegum, hefur
tapað 4 af 6 leikjum,
markatalan er 1-7.
Oftast haldið
hreinu
Middlesbrough og
Liverpool hafa hald-
iö sjö sinnum hreinu
f 13 leikjum.
Oftast mistekist
að skora
Aston Villa hefur
ekki náö að skora í
átta leikjum af 13.