Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Síða 13
13
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 5.149 m.kr.
Hlutabréf 518 m.kr.
Húsbréf 2.175 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Eimskip 174 m.kr.
0 Landsbankinn 113 m.kr.
© Pharmaco 105 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 SÍF 3,3%
© Síldarvinnslan 2,9%
© Baugur 1,0%
MESTA LÆKKUN
o Ker 5,9%
© Eimskip 1,8% 1
© Flugleiöir 1,0%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.314
- Breyting ©0,55%
Hlutabréfamark-
aðurinn sann-
gjarnt verðlagður
- ad mati Greiningar
íslandsbanka
Hlutabréfamarkaðurinn er al-
mennt nokkuð sanngjarnt verðlagð-
ur að mati Greiningar ÍSB. Uppgjör
3. ársfjórðungs voru í fleiri tilvikum
undir væntingum Greiningar ISB
en yfir. í mörgum tiifellum er þó
ekki unnt að draga þá ályktun að af-
koma ársins verði verulega fjarri
fyrri væntingum heldur frekar að
árstíðabundnir eða tilfallandi þætt-
ir hafi komið fram með öðrum hætti
en ráð var fyrir gert. Þetta kom
fram í Morgunkomi í gær.
Þar kemur fram að að mati Grein-
ingar sé ekki líklegt að niðurstaða
uppgjöra fiórða ársfiórðungs verði
til þess að stuðla að hrinu hækkana.
Almennt felast í verði raunhæfar
væntingar um ágæta afkomu félaga
á íslenskum hlutabréfamarkaði
enda þótt þær megi telja bjartsýnar
í sögulegu samhengi. Gangi þær eft-
ir er útlit fyrir að hlutabréf geti á
næstu misserum skilað viðunandi
arðsemi með hliðsjón af ávöxtunar-
kröfu Greiningar íslandsbanka og í
samanburði við aðra fiárfestingar-
kosti. Þegar til skemmri tima er lit-
ið eru fram undan annasamir dagar
á hlutabréfamarkaði ef marka má
þróun síðustu ára á þessum árs-
tíma. Koma þar til fiárfestingar ein-
staklinga vegna skattaafsláttar og
þá sýnir sagan að aukinn þungi fær-
ist í fiárfestingar fagfiárfesta.
JÓLABLAÐ MANNLÍFS
ER KOMIÐ ÚT!
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002
Viðskipti
DV
Bandaríkin:
Markaðsaðilar
spá viðsnúningi
Eftir miklar hækkanir í október
og nóvember eru fiárfestar og hag-
fræðingar í auknum mæli famir að
spá því að bandarískt efnahagslíf sé
farið að taka við sér. Hlutabréfavísi-
tölur hafa til þessa verið undanfari
vaxtarskeiðs og spurningin er sú
hvort það sama eigi við í þessu til-
liti. Þetta kom fram í Morgunkomi
Islandsbanka í gær.
Margir hagvísar em famir að
benda til þess að viðsnúningur sé að
eiga sér stað í efnahagslífinu. Hag-
vöxtur var 4% á þriðja ársfiórðungi,
tölur úr smásöluverslun benda til
þess að einkaneysla sé enn sterk og
horfur em einnig famar að batna á
vinnumarkaði. Lítill vöxtur virðist
þó vera í fiárfestingum fyrirtækja
og samdráttur heldur áfram í fram-
leiðslugeiranum. Mikill styrkleiki
virðist liggja í þjónustugeiranum
því vísitala þjónustustjóra hækkaði
nokkuð milli október og nóvember.
Samkvæmt vísitölunni hefur þjón-
ustugeirinn verið í stöðugum vexti
síðastliðna 10 mánuði og vex geirinn
nú hraðar en undanfarið hálft ár.
Varað er við frekari
framleiðslu á eldislaxi
Á vefriti Intrafish í vikunni kom
fram gagnrýni Paul Birger Torgnes,
forstjóra Fjord Seafood, þar sem
hann varar bæði Noreg og Chile við
að auka framleiðslu á eldislaxi sem
stendur. Nýlega voru framleiðslu-
leyfi í Noregi aukin um 40 og þá hef-
ur verið gefið út að þeim verði fiölg-
að um allt að 50 til viðbótar á næsta
ári. Þá hefur framleiðsla farið mjög
vaxandi í Chile og fátt sem bendir
til annars en að sá mikli vöxtur
haldi áfram á næstu misserum.
Að mati Torgnes myndi aukning
framleiðslu leiða til þess að verð
lækkaði enn frekar. Nokkur við-
snúningur hefur átt sér stað í
rekstrarumhverfi greinarinnar að
undanfómu en framleiðendur eldis-
lax hafa staðið í ströngu hin síðari
ár í kjölfar lækkandi heimsmark-
aðsverðs. Fjord Seafood gerði
ákveðnar ráðstafanir í vor til þess
að draga úr framleiðslu í fyrirtækj-
um sínum í Chile og hafði það já-
kvæð áhrif á verðþróun. Hagnaður
getur þannig aukist með því að
draga úr framleiðslu frekar en að
auka hana. Torgnes segir kröftun-
um því betur varið í vöru- og mark-
aðsþróun en í aukna framleiðslu.
Einnig sé mikilvægt að halda áfram
að auka skilvirkni og skera niður
kostnað, ekki síður en að efla mark-
aðsrannsóknir og tryggja aðgang að
mikilvægustu mörkuðunum.
Fjord Seafood er þriðja stærsta
fyrirtæki heims í framleiðslu á eld-
isfiski á eftir Nutreco og Pan Fish.
Umsjón: Viðskiptablaðiö
Spáir 0,3% vaxtalækkun
í nóvember fór verðbólga undir verð-
bólgumarkmið Seðlabankans í fyrsta
sinn frá því verðbólgumarkmiðið var tek-
ið upp. Þessi staðreynd, auk ýmissa vís-
bendinga um aukinn slaka í þjóðarbú-
skapnum, styöur væntingar um að Seðla-
bankinn muni lækka stýrivexti á næst-
unni, að því er fram kom í Markaðsyfir-
liti Landsbankans í gær. Þar segir að at-
vinnuleysi hafi aukist og sé árstíðaleið-
rétt atvinnuleysi nú um 3%, auk þess sem
mikið hafi verið um fréttir af uppsögnum
að undanfómu. Þá hafi virðisaukaskatt-
skyld velta dregist saman fyrstu átta
mánuði ársins. Á móti vegi að innflutn-
ingur á bifreiðum hafi aukist síðustu
mánuði og húsnæðisverð hafi farið hækk-
andi. I ljósi þessa geri greiningardeild ráð
fyrir að Seðlabankinn lækki vexti um
0,3% fyrir áramót, úr 6,3% í 6,0%.
r
ÞRJAR
SORTIRAF
Steinunn Sigurðardóttir,
og barnabarnið
UNAÐUR
AAÐVENTU
Jól&vínið* jólifötin
og jóladekrið
SKI RÓMEÓ
og allir hinir
SIGUR RÓS, GABRÍELA, BJÖRK OG MÚM
Ég fór í ge
Sesar A -» Pilates -* Þórunn Antonía -* Með fuliri reisn
-* í svörtum fötum -* Listgagnrýni -* Erpur Eyvindarson