Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Side 29
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002
29
Þriggja leikja hvíld
Gerard Houllier, fram-
kvæmdastjóri Liverpool,
hefur gefiö það út að
Chris Kirkland muni
standa í marki liðsins í
það minnsta í næstu
þremur leikjum. Aðal-
markvörður liðsins,
Jerzy Dudek, hefur verið
gagnrýndur fyrir
frammistööu sína að und-
aníomu. Houllier segist
ætla að gefa honum hvíld
til þess að ná áttum og
öðlast sjálfstraust á ný.
Aðalfundur Evrópusambands ólympíunefnda:
Rjóminn af forystunni
situr þingið í Reykjavík
- þátttakendur hátt í 300 frá 60 þjóðlöndum
Rafpostur: dvsport@dv.is
Aðalfundur Evrópusambands
ólympíunefnda (EOC) verður hald-
inn á Grand Hótel Reykjavík 6.-7.
desember nk. þetta er stærsti fund-
ur íþróttaforystumanna sem hald-
inn hefur verið hérlendis. Á þriðja
hundrað gestir frá öllum Evrópu-
löndunum svo og frá fjölmörgum
öðrum löndum munu sækja fund-
inn. Meðal annars koma sendi-
nefndir frá framkvæmdanefndum
ólympíuleika, þ.e. Aþenu 2004,
Tórinó 2006 og Peking 2008.
Sendinefndir frá borgum sem
halda Ólympíuhátíð Evrópuæsk-
unnar munu sækja fundinn, þ.e.
Bled (Slóvenía) og París (Frakk-
land) 2003 og Monthey (Sviss) og
Lignano (Ítalía) 2005. Þá koma
einnig sendinefndir frá borgum sem
sækja um að fá að halda vetrar-
ólympíuleikana 2010, þ.e. Vancou-
ver í Kanada, Salzburg í Austurríki
og Pyongyang í Norður-Kóreu.
Á aðalfundinum verður auk
venjulegra aðalfundarstarfa rætt
um ýmis mál er tengjast starfi
ólympíunefnda um aUa Evrópu, þ.e.
ýmis fagmálefni nefnda sambands-
ins, ólympíuleikar, lyfjaeftirlit,
ólympíuhátið Evrópuæskunnar
o.s.frv. Gestir fundarins dveljast á
Grand Hótel Reykjavík, Hótel ís-
landi og Hótel Sögu.
Forseti íslands viöstaddur
setningu fundarins
Fundurinn verður haldinn í Gull-
teigi Grand Hótel Reykjavík. Setn-
ing aðalfundarins fer fram föstu-
daginn 6. desember kl. 9.00 að við-
stöddum forseta íslands, hr. Ólafi
Stefán Konráðsson.
Ragnari Grímssyni. Forseti EOC er
Mario Pescante frá Ítalíu en hann
er nefndarmaður í IOC - Alþjóða
ólympíunefndinni og ráðherra
íþróttamála í ríkisstjórn Italíu.
Framkvæmdastjóri EOC er Irinn
Patrick Hickey, nefndarmaður í
IOC og forseti írsku ólympíunefnd-
arinnar. Forystumenn ÍSÍ ásamt
framkvæmdastjóra EOC kynntu
fjölmiðlum fundarefni á fundi í há-
deginu í gær. Frá vinstri eru Pat-
rick Hickey, framkvæmdastjóri
EOC, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ,
og Stefán Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ.
Stærsta forystumannaþing
sem haldið hefur veriö hér
„Þetta er stærsta forystumanna-
þing sem haldið hefur verið hér á
landi. Hingað er mættur rjóminn af
allri íþróttamannaforystunni, vant-
ar einungis forseta Alþjóða ólymp-
íunefndarinnar. Langflestir, sem
eitthvað láta að sér kveða í heimin-
um, eru komnir til landsins til að
sitja fundinn. Hér á að ræða mörg
mál sem tengjast svona aðalfund-
um, ýmsar skýrslur nefnda og
annað því tengt,“ sagði Stefán
Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ,
í spjalli við DV um fundinn.
„Það verður eflaust mikið rætt
um ólympíuleikana en fundinn sitja
m.a. sendinefndir ólympíunefnda
frá Bandaríkjunum og Kóreu. Þá
munu Grikkir gefa skýrslu um
stöðu mála hvað varðar undirbún-
ing þeirra fyrir ólympíuleikana
2004. Nefnd frá vetrarólympíuleik-
unum 2006 i Tórínó mun segja frá
sínum undirbúningi og ennfremur
kemur hingað sendinefnd frá Pek-
ing en Kínverjar halda keppnina
2008. Þá verða einnig á fundinum
sendinefndir frá borgum sem sótt
hafa um að halda vetrarólympíu-
leikana 2010 þannig að stór hluti
fundarins fer í hinar ýmsu kynn-
ingar,“ sagði Stefán.
Stefán sagði að spurt yrði út í
stöðu mála varðandi ólympíuleik-
ana í Aþenu en svo virtist sem
menn væru áhyggjufullir vegna
hótelherbergja og mála sem snúa að
samgöngumálum í borginni.
Gaman og mikill heiöur fyrir
okkur aö halda fundinn
„Þetta verður ekki átakafundur
en hann er tvímælalaust mikilvæg-
ur í því ferli sem nú er í gangi. Það
er mjög gaman og mikill heiður fyr-
ir okkur að hafa fengið að halda
þennan fund en við unnum Belgrað
í Júgóslavíu i atkvæðagreiðslu um
að halda fundinn. Þetta er ákveðin
viðurkenning fyrir okkur,“ sagði
Stefán Konráðsson.
Þess má geta að þátttakendur á
fundinum verða hátt í 300 talsins
frá um 60 þjóðlöndum.
-JKS
Evrópukeppni
kvennalandsliða:
Sex lið frá
A-Evrópu
Dregið hefur verið í riðla í
undankeppni Evrópumóts
kvennalandsliða, bæði A-lands-
liða og landsliða skipaðra leik-
mönnum undir 19 ára. Sex af sjö
liðum sem þessi lið drógust gegn
eru frá Austur-Evrópu.
A-landslið íslands er í þriðja
styrkleikaflokki og mætir Rúss-
um, Frökkum, Ungverjum og
Pólverjum. Þama eru gamlir
kunningjar á ferð frá því á und-
anfomum árum því það er ekki
langt síðan ísland mætti bæði
Rússum og Frökkum.
U-19 ára landsliðið var hins
vegar í öðrum styrkleikaflokki
og dróst gegn Tékkum, Slóvök-
um og Lettum. -PS
<-
Lúkas þjálfar U-17 ára landslið
Lúkas Kostic var i gær ráöinn þjálfari landsiiðs íslands skipaö drengjum
undir 17 ára. Lúkas er reyndur þjálfari en hann hefur þjálfaö
meistarafiokksliö Víkings, KR, Grindavíkur og Þórs.
Grænlensku rjúpurnar bjarga miklu fyrir þessi jól:
Fleiri fá rjúpur en ella
- ástand rjúpnastofnsins í landinu alls ekki gott
Rjúpnaveiðin hefur ekkert verið
til að hrópa húrra fyrir en líklega
hafa veiðst um 50 þúsund ijúpur
núna þegar aðeins um 20 dagar eru
eftir af rjúpnaveiðitímanum. En í
fyrra veiddust um 110 þúsund rjúp-
ur, svo veiðin verður minni núna
en fyrir ári og ennþá minni en fyr-
ir tveimur árum. Grænlensku rjúp-
umar munu bjarga miklu, svo fremi
sem þær koma í tæka tíð fyrir jólin.
Fleiri munu þá fá ijúpur í jólamat-
inn en oft áður.
I fyrradag var lagt fram á Alþingi
frumvarp sem tekur á vanda rjúpna-
stofnsins en það var Siv Friöleifs-
dóttir umhverfisráðherra sem lagði
fram frumvarpið. Ráðherra sagði
meðal annars að það yrði fylgst vel
með rjúpnastofninum næstu fimm
árin en ástand hans er mjög alvar-
legt núna.
„Það þarf að gera átak með fjór-
hjólin og vélsleðana til að uppræta
þá á ijúpnaveiðum,“ sagði Siv Frið-
leifsdóttir og ráðherra bætti viö að
10% magnveiðimanna væri með
helminginn af veiddum ijúpum sem
veiddust á hverju ári.
„Ástand ijúpnastofnsins er mjög
slæmt núna,“ sagði Pétur Blöndal í
sinni ræðu og tók undir orð ráðherr-
ans um ástand stofnsins.
Við skulum aðeins koma með
veiðitölur: veiðimenn fóru vestur á
firði og fengu fimm rjúpur, aðrir
voru á Holtavörðuheiðinni og fengu
fjóra fugla, þrír fengu fjóra fugla á
Auökúluheiðinni, veiöimaður var í
Skagafiröi og fékk tvær rjúpur, tveir
veiðimenn voru við Húsavík og
fengu fimmtán fugla, einn maður
fékk sjö rjúpur í nágrenni við Breið-
dalsvík og veiðimaður við Djúpavog
fékk þijá fugla. Svona mætti lengi
telja, staðan er bara alls ekki betri
en þetta.
G.Bender
Mikið virðist sótt um hjá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
ef marka má umsóknir þetta
árið. Veiðiár eins og Leirvogsá
eru vinsælar meðal veiði-
manna, viss tími í Norðurá í
Borgarfirði, sem gaf flesta lax-
ana í fyrra, og Tungufljót. I
Leirvogsá komast færri aö en
vilja enda mjög góð veiði í
henni síðasta sumar. Hún var
betri en Laxá á Ásum. Reyndar
er bara veitt á flugu i Laxá en
í Leirvogsá má veiða bæöi á
maðk og flugu. Maðkurinn er
sterkastur í Leirvogsánni.
Eitthvað virðist vera í gangi
með Mýrarkvísl í Þingeyjar-
sýslu, Dalvíkingar hafa haft
svæðið á leigu í mörg ár en
núna hafa fleiri haft áhuga á
svæðinu. Málið ætti aö skýrast
á næstu vikum. Enginn hefur
fengið Núpá á Snæfellsnesi
ennþá, nokkrir hafa sent inn
tilboð.
r ■*
<