Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2003, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003
19
DV
M
agasm
Hvaó á oð gera
um helgina:
Kósí
kvöld
meö
kærast-
anum
„Á föstudagskvöld er ég boðin í
fertugsafmæli hjá Bjama Ólafi Guð-
mundssyni, útvarpsmanni á Bylgj-
unni. Nú veit ég ekki hvernig
stemningin verður. Boðskortið veit
hins vegar á gott og að þarna geti
orðið virkOega skemmtilegt. Ég
hlakka til að fara og líklega gef ég
afmælisbarninu, honum Dadda,
koníaksflösku. Hann er svo mikill
koníakskarl,“ segir Berglind Hreið-
arsdóttir. Hún er starfsmannastjóri
í World Class og einn af aðalstjórn-
endum Fegurðarsamkeppni
íslands.
Hún segist búast við að
laugardagurinn fari í vinnu
fram að hádegi og ýmiss
konar stúss í eftirmiðdag-
inn. „En síðan tekur við
kósí kvöld með kærastan-
um; pöntum pitsu og náum
okkur í DVD-mynd. Yfir-
leitt fær kærastinn að ráða
hvemig myndir við erum
með - og þá eru það engar
kerlingamyndir eins og ég
myndi velja. Þær eru hins
vegar allsráðandi á stelpu-
kvöldum hjá okkur vinkon-
unum. Annars er ég óskap-
lega gjöm á að sofna fljótt
yfir góðum myndurn," segir
Berglind.
Á sunnudag kveðst hún
ætla í gönguferð með hund-
inn sinn sem er írskur sett-
er. Eigendur nokkurra
slíkra hunda hittast alltaf
reglulega og fara saman
með þá í spássitúr - og síð-
an eiga menn og málleys-
ingjar skemmtilega stund á
eftir. „Vinimir hittast síð-
an gjarnan á sunnudags-
kvöldum og fara í einhver
skemmtileg spil sem allir
geta verið með í, eins og til
dæmis Hættuspilið og
Trivial Pursuit."
-sbs
„Yfirleitt fær kærastinn að ráða hvernig
myndir við erum með - og þá eru það engar
kerlingamyndir eins og ég myndi velja,“ segir
Berglind Hreiðarsdóttir. Magasín-mynd GVA
„Gömlu góðu íslensku lögin eru langbest,“
segir Sverrir Þór Sverrisson á Popp TÍVÍ.
Tónlistin í hlustunum:
Rolling Stones
stando fyrir sinu
„Ég hlusta nær eingöngu á Rolling Stones þessa dagana. Þeir
eru náttúrlega langþestir," segir Sverrir Þór Sverrisson, eða
Sveppi eins og hann er best þekktur, sjónvarpsmaður á Popp
TÍVÍ. Sveppi hefur getið sér gott orð fyrir spjallþáttinn 70 minút-
ur sem sýndur er alla virka daga á sjónvarpsstöðinni.
Sveppi er mikill tónlistaráhugamaður og hlustar allajafna mik-
ið á tónlist. Auk Rolling Stones segist Sveppi oft setja íslenska
tónlist á fóninn. „Ég hef líka aUtaf hlustað mikið á íslenska tón-
list - og má þar nefna Megas, Eyjólf Kristjánsson, Björgvin HaU-
dórsson og marga Qeiri," segir Sveppi og bætir við: „Mér fmnast
gömlu góðu íslensku lögin langbest. Ef ég á að nefna eitthvað nýtt
sem er að gerast i islenskri tónlist þá er þaö hljómsveitin Ég. Plat-
an þeirra heitir SkemmtUeg lög og fæst í öUum helstu plötuversl-
unum. Ég mæli eindregið með þessari plötu," segir Sveppi.
Spurður hvaða útvarpsstöðvar séu í mestu uppáhald kveðst
Sveppi hlusta töluvert á íslensku rásina á FM 91,9 en hún hóf
göngu sína í haust. „Ég hlusta líka á Rás 2 endrum og sinnum og
svo hlusta ég að sjálfsögðu á Sigurjón Kjartansson á Radíó X alla
virka morgna,“ segir Sveppi. , ,
Bækurnar á náttborðinu:
Alltafmeð
s fokinu í einu
„Ég er nú þannig að ég sofna aUtaf út frá bók á kvöldin. Það er
ágæt leið til að dreifa huganum frá amstri dagsins,“ segir Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður.
„Ég hef nýlega lokið við bókina Fridu sem kom út fyrir jólin. Bók-
in rekur sögu myndlistarkonunnar Fridu Kahlo sem var uppi á fyrri
hluta síðustu aldar og aðstæðum hennar á heimaslóöum í Mexíkó.
Frida var ung þegar hún giftist hinum þekkta listamanni Diego
Rivera og hóf sjálf listamannsferil sinn. Hún ögraði umhverfi sínu
og lét ekkert stoppa sig. Hún fluttist með manni sinum tU Bandarikj-
anna og í sögunni er að finna mikla gagnrýni á smáborgaralífið sem.
þar var við lýði,“ segir Ásta Ragnheiður enn fremur.
„Þetta er nú sú bók sem ég lauk síðast viö en ég er hins vegar oft-
ast með margar bækur í gangi í einu,“ bætir hún við.
„Þessa dagana er ég að lesa Svaninn. Reyndar er ég að hlusta á
hann. Ég geri líka dálítið að því að hlusta á bækur. Það er ágætis
leið til að hvUa augun þar sem maður þarf að lesa mikið í vinnunni.
Fleiri bækur sem koma upp í huga mér er t.d. bókin um SteUu
Blómkvist og svo auðvitað Röddin eftir Arnald Indriðason. Ég hef
lesið aUar hans bækur og finnst þær frábærar í aUa staði,“ segir
Ásta Ragnheiður að lokum. -gfv
„Eg geri líka dálítið aö því að hlusta á bæk-
ur,“ segir Ásta R. ióhannesdóttir
alþingismaður.
Leikfélag Húsavíkur sýnir Þrúg-
ur reiðinnar eftir Steinbeck:
Þrúgur af
Þjódvegi 66
Leikfélag Húsavíkur frumsýnir
Þrúgur reiðinnar næstkomandi
föstudagskvöld, í leikstjóm Arnórs
Benónýssonar. Þetta er önnur upp-
setning verksins hérlendis, sú fyrri
var í Borgarleikhúsinu fyrir áratug
eða svo - og margir kannast við tón-
list KK úr þeirri sýningu. Má þar
meðal annars nefna lagið Þjóðvegur
66, en hann liggur þvert í gegnum öU
Bandarikin. Leikstjórinn Amór Ben-
ónýsson telur verkið eiga enn meira
erindi tU leikhúsgesta nú en fyrir tíu
árum. Segir það endurspegla veru-
leika sem fólk, sérstaklega á lands-
byggðinni, þekkir af eigin raun.
Bylting á eigin skinni
„í fyrsta lagi er þetta ótrúlega
magnað verk sem byggt er á einni
vinsælustu og virtustu skáldsögu 20.
aldar,“ segir Arnór. „Þetta er saga
mikiUa fóUísUutninga í Bandaríkjun-
um á sínum tíma, þegar smábændur
í Oklahoma voru hraktir af jörðum
sínum af bönkum og stórfyrirtækjum
og Uúðu tU Kalifomíu. Á síðustu tutt-
ugu árum eða svo höfum við íslend-
ingar líka farið í gegnum mikla þjóð-
Uutninga, sem likja má við byltingu,
sem við á landsbyggðinni höfum
fundið á eigin skinni."
Arnór segir að söguþráðnum í
þessu magnaða leUíverki Johns
Steinbecks svipi um margt tU þess
sem hafi verið að gerast á íslandi i
sambandi við kvótakerfið.
„Stórfyrirtæki hafa verið að sölsa
þau minni undir sig, í krafti tækni-
breytinga, en ekki síst í krafti þeirr-
ar frumstæðu og hráu frjálshyggju
sem hefur ríkt hér á íslandi sl. 10
tU15 ár, þar sem gróðafiknin skiptir
öllu máli og vísitölufréttir í sjónvarpi
em meira áberandi en fréttir af líðan
fólks. Þetta verk kennir okkur líka
lexíu, vegna þess að boðskapur sög-
unnar er mjög skýr. Það er sá boð-
skapur sem forfeður okkar fundu fyr-
ir 120 árum: samstaða og samvinna."
Engir pólitískir þunga-
flutningar
Arnór segir að þrátt fyrir þennan
undirtón í verkinu sé fjarri því að
þar séu einhverjir pólitískir þunga-
Uutningar á ferð. „Það er þessi stór-
kosUega mannlega örlagasaga sem
gerir þetta að spennandi leikhús-
verki, sem sló í gegn í Bandaríkjun-
um í kringum 1990 og virkar á öllum
tímum. Ástin, vonbrigðin, vonin,
gleðin, sorgin, þetta er aUt tU stað-
ar.“
Tónlist KK er notuð í verkinu en
að auki er bætt inn lögum eftir
Bubba Morthens. Guðni Bragason
tónlistarstjóri hefur líka samið lög
sérstaklega fyrir þessa uppsetningu
og Hörður Benónýsson texta.
„Við leggjum, þrátt fyrir aUt,
meiri áherslu en stundum hefur ver-
ið gert, á gleðina í verkinu. Og auð-
vitað eru ekki bara eintómar hörm-
ungar tengdar þvi að Uytja búferlum.
í því felst líka ný von, nýr áfangi i líf-
inu. Enda skín það í gegn í verkinu.
Við vUjum því fyrst og fremst
skemmta áhorfendum með góðu leik-
húsverki, en um leið fá þá tU að
hugsa um þann veruleika sem þeir
sjálfir búa við,“ sagði Amór Benón-
ýsson að síðustu
-Jóhannes Sigurjónsson
„Ótrúlega magnað verk sem byggt er á einni vinsælustu og virtustu
skáldsögu 20. aldar,“ segir leikstjórinn, Amór Benónýsson.
Svipmynd af sviöinu i uppfærslu Leikfélags Húsavíkur á Þrúgum reiðinn-
ar. „Þetta verk kennir okkur líka lexíu, vegna þess að boöskapur sög-
unnar er mjög skýr. Það er sá boðskapur sem forfeður okkar fundu fyrir
120 árum: samstaða og samvinna," seglr leikstjórinn hér í viðtali.