Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Page 3
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003
19
DV
Sport
Kiel tapaöi
í Hamborg
ÚrvalsdeMin í þýska hand-
boltanum hófst að nýju um helg-
ina eftir hlé sem gert var meðan
heimsmeistarakeppnin í Portú-
gal stóð yfir. Kiel sótti Hamborg
heim og mátti þola eins marks
ósigur, 30-29, í æsispennandi
leik frammi fyrir 14200 áhorfend-
um. Spánverjinn Jon
Belaustegui skoraði 11 mörk fyr-
ir Hamborgara en hjá Kiel skor-
uðu þeir Preiss og Stefan
Lövgren sex mörk hvor.
Gústaf Bjarnason og félagar í
Minden töpuðu fyrir Grosswald-
stadt, 26-25, og var Gústaf ekki á
meðal markaskorara liðsins.
Einar Öm Jónsson gerði tvö
mörk fyrir Wallau Massenheim
sem sigraði TuS N-Lúbbecke,
28-30, á útivelli. Gylfi Gyifason
skoraði tvö mörk fyrir Will-
helmshavener sem tapaði, 25-33,
á heimavelli fyrir Pfullingen.
Lemgo sigraði Göppingen, 35-32,
og skoraði Markus Baur 11 mörk
fyrir Lemgo.
-JKS
Gaspart hættir
sem forseti
Það gengur mikið á hjá
spænska knattspymustórveld-
inu Barcelona þessa dagana. Of-
an í slæma gengið hjá liðinu í
vetur og brottrekstur Luis van
Gaal þjáifara á dögunum ákvað
Joan Gaspart, forseti félagsins,
um helgina að láta af forsetastóli
l. mars nk. Gaspart, sem tók við
sem forseti í júlí 2000, sagði þeg-
ar hann tilkynnti ákvörðunina
að hún hefði verið óumflýjanleg
eftir það sem á undan er gengið
hjá félaginu í vetur.
„Barcelona á stóran hlut í
mínu hjarta og ég mun áfram
þjóna því með einhverjum hætti
meðan ég lifi,“ sagði Gaspart
m. a. á blaðamannafundi í höfuð-
stöðvum Barcelona. Þess má
geta að Josep Luis Nunes, sem
Gaspart leysti af hólmi fyrir
tveimur og hálfu ári, var 22 ár á
forsetastóli.
-JKS
14 ára gamalt
met slegið
Tvö met litu dagsins ljós á
bandariska meistaramótinu inn-
anhúss í frjálsum íþróttum um
helgina. Gail Davers bætti 14 ára
gamalt met Jackie Joyner
Kersee í 60 metra hlaupi. Davers
hljóp á 7,78 sekúndum en gamla
metið var 7,81 sekúnda. Þá virð-
ist Stacy Dragila ætla að mæta
sterk til leiks í stangarstökkinu
á þessu tímabili en hún bætti
eigið met um einn sentimetra
þegar hún fór yfir 4,72 metra.
-JKS
Jóns sárt saknað
Trier, lið Jóns Arnórs Stefáns-
sonar í þýska körfuboltanum,
tapði fyrir Ludwigsburg, 102-69,
um helgina. Jón Arnór er enn
frá vegna meiðsla og sagði þjálf-
ari liðsins eftir leikinn að Jóns
væri sárt saknaö en hann er
sagður á góðum batavegi.
-JKS
Sören Hermansen þurfti að horfa á leik Þróttar og KR á föstudag þar sem leikheimild hafði ekki fengist í tæka tíð.
DV-mynd Hari
Þróttarar hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir sumarið í Símadeildinni:
Hafði engu að tapa
og ákvað að slá til
segir hinn danski Sören Hermansen um ástæður komu sinnar til landsins
í síðustu viku gengu nýliðar
SímadeMarinnar í knattspymu,
Þróttarar, frá samningum við
danska framherjann Sören Herman-
sen. Hann er 32 ára og á að baki
langan feril sem atvinnumaður í
Danmörku og Belgíu. Sören var
m.a. á mála hjá danska liðinu Ár-
hus, þar sem hann skoraði 67 mörk
í 89 leikjum. Gekk hann þá til liðs
við úrvalsdeildarliðið Lyngby og
skoraði 29 mörk í 58 leikjum á
tveggja ára tímabili. Frá árinu 2000
hefur Sören spilað með liði
Mechelen i belgísku úrvalsdeMinni
og skoraði hann 7 mörk í 26 leikjum
með liðinu áður en það varð gjald-
þrota undir lok síðasta árs.
DV-Sport náði tali af þessum
mikla markaskorara um helgina og
forvitnaðist um hvað í ósköpunum
hann væri eiginlega að gera á ís-
landi:
„Það eru margar ástæður. Mitt
gamla félag í Belgíu, Mechelen, varð
gjaldþrota fyrir síðustu jól og ég var
að leita mér að nýju liði. Ég þekki
umboðsmann heima í Danmörku
sem stóð fyrir komu Ronny B. Ped-
ersens hingað til lands sem spMði
fyrir Fram fyrir tveimur árum. Við
spiluðum í sama liði í Danmörku
fyrir nokkrum árum og erum góðir
kunningjar. Ég spurði hann um
landið og hann bar því vel söguna
svo að þegar áhugi Þróttar kom í
ljós þá ákvað ég að slá til þar sem ég
hafði engu að tapa,“ segir Sören.
Hvernig hefur þér verid tekið?
Ég hef verið hér í rúma viku
núna og mér líður vel. Fólkið hjá
Þrótti hefur verið mér mikið innan
handar og allir hafa verið mjög vin-
gjarnlegir og hjálpfúsir," segir
Sören.
Leikheimild fyrir Sören fékkst
ekki í tæka tíð fyrir leik Þróttara og
KR i deildarbikamum á fostudaginn
svo hann gat ekki annað en horft á.
Hann segist hafa séð tvo leiki hjá
Þrótti og sé bara nokkuð hrifinn af
spilamennskunni á íslandi.
„Ég sá þá gegn Val fyrir viku og
þá náði liðið sér ekki á strik gegn
sterkum andstæðingum. En gegn
KR spiluðu þeir vel og áttu í fullu
tré við íslandsmeistarana. Það kom
mér nokkuð á óvart þar sem ég
hafði heyrt að þeir væru meö
langöflugasta liðið."
Þróttur er með ungt lió og er
nýliði i úrvalsdeildinni. Hvernig
meturðu möguleika liðsins á
halda sér uppi?
„Það er erfitt fyrir mig að segja
það þar sem ég hef ekki séð svo mik-
ið til liðsins, en fyrst við náum jafn-
tefli við meistarana þá hljótum við
að eiga möguleika," segir Sören.
Ásamt því að spM fyrir Þrótt
mun Sören koma að þjálfun yngri
flokka liðsins. En hefur hann
einhverja reynslu af þjálfun?
„Nei, alls enga. En ég hef verið
atvinnumaður svo lengi að ég hlýt
að geta miðlað reynslu minni eitt-
hvað til krakkanna hjá félaginu."
Hjálmar Þórarinsson, fram-
herji Þróttar, er af mörgum tal-
inn einn efnilegasti framherji
landsins. Heldurðu að þú getir
kennt honum eitthvað?
„Ég veit það nú ekki en af þvi
sem ég hef séð til hans virðist hann
rosalega efnilegur. Ég held að hann
verði kominn til Evrópu innan
fárra ára.
Mætti vera stærri
Sören segist lítið hafa spMð gegn
íslenskum leikmönnum á sínum
ferli.
„Ég spOaði þó gegn ÍBV fyrir mitt
gamla félag, Lyngby, fyrir nokkrum
árum og ég held að það sé mín eina
reynsla gegn íslenskum leikmönn-
um,“ segir Sören.
Áttu þér einhverja fyrirmynd i
boltanum?
„Þar sem ég er Dani má ég tO með
að nefna Michael Laudrup; hann er
konungur fótboltans í Danmörku.
En ég var rosalega hrifinn af Mara-
dona þegar hann var að spOa og
mér finnst hann vera sá besti sem
uppi hefur verið. Af þeim leikmönn-
um sem ég hef leikið gegn er Brian
Laudrup líklega sá besti sem ég
þekki. Hann var stórkostlegur leik-
maður.“
Aðspurður um sína kosti og gaOa
sem leikmaður er Sören ekki seinn
tO svars.
„Þar sem ég er ekki hávaxinn hef
ég reynt að einbeita mér að öðrum
eiginleikum sem góður sóknarmað-
ur þarf að hafa, annað en að geta
skallað boltann. Ég hef mjög gott
auga fyrir marktækifærum og veit
hvar ég á að staðsetja mig inni á
veUinum tO að klára færin. En ég
mætti vera stærri og sterkari," seg-
ir Sören að lokum og skeUihlær.
-vig
íþróttafélagið Hörður á Patreksfirði ðskar eftir að ráða þjálfara fyrir
sumarið 2003, í þjátfun yngri flokka í knattspyrnu og frjálsum íþróttum.
Gott tækifæri fyrir þá sem eru uið nám f íþróttafræöum að afla sér
reynslu á suiðinu.
Hhugasamir hafi samband í sima 8623796, Hlagnús,
4561166, flnna, 4561183, Björg.
Einnig er hægt að senda inn umsókn á netfangið maggitoU@isl.is með
upplýsingum um menntun og fyrri störf.