Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 23 DV Sport Leikur sem stóð ekki undir væntingum - ÍR sigraði HK með þremur mörkum í Austurbergi Leikur ÍR og HK á föstudags- kvöldið stóð ekki undir vænting- um en liðin voru í öðru og þriðja sæti fyrir leikinn. ÍR sigraði, 29-24, og hélt þar með öðru sæt- inu i leik þar sem markverðir liðanna voru í aðalhlutverki. ÍR- ingar byrjuðu af miklum krafti, HK-ingar byrjuðu á 5+1 vörn til höfuðs Ólafi Sigurjónssyni en gekk ekki sem skyldi. Hjá ÍR var vörnin öflug og Hreiðar í miklu stuði í markinu. Það fór líka svo að ÍR náði afgerandi tökum á leiknum og eftir 23 mínútur var forystan orðin sjö mörk, 12-5. HK-ingar skiptu loks í 6-0 vörn og með smábaráttu tókst þeim að laga stöðuna nokkuð fyrir hálf- leik og staðan þá 14-11. ÍR-ingar gerðu út um leikinn á upphafs- mínútum síðari hálfleiks, HK- ingar voru nokkrum sinnum ein- um og tveimur mönnum færri á þessum kafla og fóru auk þess af- ar illa að ráði sínu í sókninni. Þegar 14 mínútur voru eftir var staðan 23-13 og þá gátu ÍR- ingar leyft sér að slaka á, enda með leik tveimur dögum síðar. Svo mjög slökuðu þeir á að HK- ingar hefðu í raun getað unnið upp forskotið með smáheppni og meiri trú. Hreiðar góöur í marki ÍR- liðsins Hjá ÍR varði Hreiðar Guð- mundsson af stakri prýði og Bjarni Fritzson leysti vel af hendi sitt nýja hlutverk í stöðu skyttu hægra megin. Hjá HK var Björgvin Gústafsson mjög góður í markinu og Vilhelm Bergsveins- son átti góða innkomu eftir langa fjarveru. -HRM Markaveisla í Eyjum 66 mörk skoruö þegar Eyjamenn lögðu Stjörnuna, 35-31, á föstudagskvöldiö ÍBV-Stjarnan 35-31 1-0, 7-7, 12-10, 15-13, 17-15, (17-18), 15-18, 22-24, 25-27, 30-27, 33-30, 35-31. ÍBV: Mörk/viti (skot/viti): Sigurður Bragason 10 (14), Davíö Þór Óskarsson 8/5 (13/6), Robert Bognar 5 (11), Erlingur Richardsson 4 (5), Kári Kristjánsson 4 (5), Sigurður Ari Stefánsson 3 (10), Sigþór Friðriksson 1 (2), Sindri Ólafsson (2), Grétar Þór Eyþórsson (1). Mörk, úr hraöaupphlaupum: 6 (Sigurður B. 2, Erlingur 2, Kári, Sigþór). Vitanýting: Skorað úr 5 af 6. Fiskuö vítU Erlingur 2, Sigurður B, Sigurður Ari, Davíð Þór, Bognar. Varin skot/viti (skot á sig): Eyjólfur Hannesson 9 (26/3, hélt 3, 35%), Viktor Gigov 10/1 (24/6, hélt 6, 42%, eitt víti í slá). Brottvisanir: 12 mínútur. í Eyjum tóku heimamenn á móti Stjörnunni í hröðum og spennandi leik. Alls urðu mörk- in 66 í leiknum en heimamenn sigu fram úr á lokakaflanum og sigruðu með fjórum mörkum, 35-31. Það var hins vegar augljóst að liðin voru að koma úr HM-pás- unni því bæði lið gerðu mistök sem gerðu leikinn reyndar mjög skemmtilegan á að horfa. Jafnt var á öllum tölum í fyrri hálfleik en þó voru heimamenn ávallt skrefi á undan. Undir lok fyrri hálfleiks náðu gestirnir hins veg- ar ágætum leikkafla og komust marki yfir áður en flautað var til hálfleiks. Síðari hálfleikur var rólegri til að byrja með en Garðbæingar héldu áfram forystunni sem var ekki meira en í mesta lagi tvö mörk. Þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka náðu Eyjamenn hins vegar að skora fimm mörk í röð og breyta stöðunni úr 25-27 í 30-27. Þeir léku svo skynsamlega það sem eftir lifði leiks og fögn- uðu líka fimm marka sigri í leiks- lok. Sigurður Bragason, fyrirliði og jafnframt besti maður Eyjamanna sagði eftir leikinn að ÍBV væri með sterkara lið en Stjarnan. Við æfðum stíft í pásunni „Við höfum notað pásuna vel, æft stíft, og svo fórum við til útlanda í æfingaferð. Þetta er að skila okkur sigri i kvöld enda var mikil stemning í hópnum. Við eigum enn möguleika á sæti í úr- slitum, og þangað ætlum við okk- ur, en við verðum að halda ein- beitingunni áfram.“ -jgi ÍR-HK 29-24 4-0, 6-2, 7-4, 10-4, 12-5, 14-8, (14-11). 16-11, 19-12, 23-13, 25-16, 25-20, 26-22, 29-24. ÍR: Mörk/viti (skot/viti): Bjarni Fritzson 7/2 (11/3), Ragnar Helgason 6 (10), Sturla Ásgeirsson 6/4 (10/5), Ingimundur Ingi- mundarson 4 (6), Guðlaugur Hauksson 2 (6/1), Fannar Þorbjörnsson 1 (1), Davíð Ágústsson 1 (1), Júlíus Jónasson 1 (1), Ólafur Sigurjónsson 1 (9/1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 7 (Ragnar 4, Bjarni 2, Ingimundur). Vitanýting: Skorað úr 6 af 10. Fiskuð víti: Fannar 3, Ingimundur 2, Ólafur 2, Bjarni, Sturla, Ragnar. Varin skot/víti (skot á sig): Hreiðar Guömundsson 24/1 (47/3, hélt 10, 51%). Hallgrímur Jónasson 0 (0/1). Brottvisanir: 12 mínútur, Júlíus Jónas- son rautt (3x) Maður leiksins: Hreiðar Guömundsson, ÍR. Dómarar (1-10): Guöjón L. Sigurðs- son og Ólafur Har- aldsson (6) Gœði leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 270. HK: Mörk/viti (skot/viti): Jaliesky Garcia 7/2 (17/2), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 6 (9), Ólafur Víðir Ólafsson 5/1 (12/2), Alexander Arnarsson 3 (4), Samúel Árnason 2 (7), Már Þórarinsson 1 (2), Brynjar Valsteinsson (1), Atli Þór Samú- elsson (3). Mörk úr hradaupphlaupum: 2 (Ólafur, Alexander) Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Fiskuö viti: Samúel 2, Atli, Vilhelm. Varin skot/viti (skot á sig): Björgvin Gústafsson 24/4 (52/9, hélt 7, 46%), Arn- ar Freyr Reynisson 0 (0/1). Brottvisanir: 12 mínútur. Alexander Arnarson með rautt (3x). KA-Grótta/KR 29-26 0-1, 2-2, 2-4, 5-7, 10-7, 11-10, (13-11). 14-11, 17-14, 19-17, 22-18, 25-20, 28-24, 29-26. KA: Mörk/viti (skot/viti): Arnór Atlason 9/2 (15/2), Andrius Stelmokas 8 (8), Baldvin Þorsteinsson 5 (8), Jónatan Magnússon 3 (10/1), Hilmar Stefánsson 3 (3), Einar Logi Friðjónsson 1 (3). Mörk úr hraöaupphlaupum: 3 (Baldvin 2, Hilmar). Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Fiskuö víti: Baldvin, Hilmar, Stelmokas. Varin skot/viti (skot á sig): Egidyus Petkivicius 14 (37/4, hélt, 37,8%, Hans Hreinsson 0 (3/3, hélt 0, 0%) Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Jónas Elíasson og Ingvar Guöjónsson (6). Gœöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 650. Maður leiksins Andrlus Stelmokas, KA. Grótta/KR Mörk/viti (skot/viti): Páll Þórólfsson 13/7 (18/7), Alexander Petersons 5 (9), Magnús Magnússon 3 (3), Sverrir Pálma- son 2 (4), Davíð Ólafsson 2 (4), Alfreð Finnsson 1 (2), Kristján Þorsteinsson (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 0 Vítanýting: Skoraö úr 7 af 8, eitt í slá. Fiskuó viti: Davíð 2, Kristján 2, Páll 2, Magnús. Varin skot/viti (skot á sig): Hlynur Mortens 8/1 (32/3, hélt 1, 25%, Kári Garð- arsson 2 (7/1, hélt 2, 28,6%). Brottvísanir: 12 mínútur. Maður leiksins: Siguröur Bragason, ÍBV Dómarar (1-10): Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson (5). Gœói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 90. Vörnin small saman - þegar KA-menn lögðu Gróttu/KR norðan heiða Stiarnan: Mörk/viti (skot/viti): Þórólfur Nielsen 11/8 (14/9), David Kekelia 4 (4), Bjöm Friðriksson 3 (3), Kristján Kristjánsson 3 (6), Amar Agnarsson 3 (6), Zoltan Belanyi 2 (3), Bjami Gunnarsson 2 (6), Vilhjálmur Halldórsson 2 (8/1), Sigtryggur Kolbeinsson 1 (1). Mörk úr hraöaupphl.: 10 (Vilhjálmur 2, Kristján 2, Kekelia 2, Belanyi 2, Sigtryggur, Amar). Vitanýting: Skoraö úr 8 af 10. Fiskuö viti: Kekelia 3, Belanyi 2, Bjami 2, Bjöm 2, Þórólfúr. Varin skot/viti (skot á sig): Ámi Þorvarðarson 23/1 (56/5, hélt 14, 42%), Guðmundur Geirsson 0 (1/1, 0%). Brottvisanir: 16 mínútur (Amar rautt). Grótta/KR byrjaði betur þegar hún mætti KA á fostudagskvöldið. Grótta/KR náði fljótlega. 2 marka forystu og hélt henni fyrstu 10 mínút- urnar. KA hrökk þá í gang. Vörnin small sam- an og skoruðu KA- menn næstu fimm mörkin. KA-menn misstu for- ystuna aldrei frá sér eft- ir þetta og héldu þriggja marka forskoti út leik- inn. Páll Þórólfsson var besti maður Gróttu/KR i leiknum, með 13 mörk af þeim 26 sem þeir skoruðu, en þar af voru 7 mörk úr vítum. Hjá KA voru Andrius Stelmokas og Arnór Atlason bestir en Egi- dyus Petkevicus varöi 14 skot í marki KA og stóð í markinu allan tímann, fyrir utan þrjú vítaskot. KA-menn reyndu nokkrum sinn- um að byrja á miðju „leiftursnöggt" eftir mörk Gróttu/KR en með misjöfnum árangri í upphafi leiks og skilaði það ekki tilætl- uðum árangri. Fleiri áhorfendur voru í KA-heimilinu en vanalega og má rekja þaö til fjölda boðsmiða á leikinn og er von um að Akureyringar hafi með þessu fengið aftur áhuga á handboltanum og muni fjölmenna á leiki á Akureyri, en áhorfendur geta skipt gríðarlegu máli þegar leiknir eru tvísýnir leikir. Arnór Atlason var sterkur og skoraði níu mörk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.