Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Side 9
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 25 DV NBA-deildin: Fleiri leikir í úr- slitakeppninni Stjórn NBA-deildarinnar hefur ákveðiö að íjölga leikjum í úrslita- keppninni sem hefst í lok april. Breytingin frá fyrri árum felst í því að í fyrstu umferð úrslitakeppninn- ar munu liðin spila þar til annað hvort liðið hefur unnið fjóra leiki í stað þriggja áður. Nú munu liðin spila þar til annað hvort liðið hefur unnið fjóra leiki í öllum umferðum úrslitakeppninnar og breytingin taka gildi strax í vor. -ósk ísland vann þriðju deild íslenska landsliðið í ísknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, bar sigur úr býtum í þriðju deild heimsmeistaramóts þessa aldur- flokks eftir hafa sigrað alla þrjá and- stæðinga sína. ísland byrjaði á því að bera sigurorð af Tyrkjum, 5-2. Næst mætti liðið ísraelsmönnum. Sá leikur tapaðist, 5-4, en íslenska lið- inu var dæmdur sigur, 5-0, þar sem ísraelar stilltu upp þremur ólögleg- um leikmönnum. í lokaleiknum tók íslenska liðiö Bosníumenn í bakarí- ið, 9-2, og þar með var efsta sætið í höfn. íslenska liðið fékk sex stig í efsta sæti en hin liðin tvö hvert.-ósk Grótta/KR-Haukar 28-25 2-0, 3-1, 5-2, 5-5, 9-7,11-0,13-9,15-11,10-12, (17-13). 17-14, 18-19, 20-20, 20-22, 24-22, 25-24, 28-24, 28-25. Grótta/KR: Mörk/viti (skot/viti): Alexanders Petter- sons 9 (10), Páll Þórólfsson 9/6 (11/6), Gísli Kristjánsson 3 (4), Davíð Ólafsson 3 (8), Magnús Agnar Magnússon 2 (2), Sverrir Pálmason 1 (3), Alfreð Finnsson 1 (5). Mörk úr hradaupphlaupum: 6 (Gísli 2, Páll 2, Pettersons, Davíö). Vitanýting: Skorað úr 6 af 6. Fiskud viti: Pettersons 2, Kristján, Alfreð, Páll, Sverrir. Varin skot/viti (skot á sig): Hlynur Mortens 24/1 (49/1, hélt 11, 49%) Brottvisanir: 16 mínútur, Gísli rautt. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (5) Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 250. Maður leiksins: Hlynur Morthens, Gróttu/KR. Haukar: Mörk/viti (skot/viti): Robertas Pauzoulis 7 (13), Aron Kristjánsson 7 (13), Halldór Ing- ólfsson 4 (12/1), Þorkell Magnússon 3 (3), Vignir Svavarsson 2 (4), Jason Ólafsson 2 (5), Andri Stefán (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Þorkell) Vitanýting: Skorað úr 0 af 1. Fiskuö vitL' Jason Varin skot/viti (skot á sig): Birkir ívar Guðmundsson 16 (42/4, hélt 4, 38%) (Bjami Frostason (2/2) Brottvisanir: 10 mínútur. K A R L A R i T-QCf 0@8(í)[jDBO[LE> Valur 19 14 3 2 531-408 31 KA 18 12 3 3 497-454 27 ÍR 19 13 1 5 547-504 27 HK 19 12 2 5 530-502 26 Haukar 18 12 1 5 531-422 25 Þór, A. 19 12 0 7 543-493 24 Fram 18 9 3 6 457-443 21 Grótta/KR 18 10 1 8 489-449 21 FH 18 9 2 7 479457 20 Stjaman 19 5 2 12 498-544 12 ÍBV 19 5 2 12 448-543 12 Afturelding 18 4 2 12 426-470 10 Víkingur 19 1 2 16 458-586 4 Selfoss 18 0 0 18 432-591 0 Næstu leikir: ÍR-FH.............14. febr. kl. 20. Selfoss-Víkingur ... 14. febr. kl. 20. Valur-Grótta/KR 14. febr. kl. 20. ÍBV-Þór ..........15. febr. kl. 20. KA-HK ............15. febr. kl. 20. Afturelding-Fram .. 16. febr. kl. 20. Haukar-Stjaman 16. febr. kl. 20. Sport Leikur kattarins að músinni í Víkinni: Afslappaðir Valsmenn í litlum vandræðum Valur treysti stöðu sína á toppnum með stórsigri á Víkingi, 34-20, í Víkinni í gærkvöld og hefur nú fjögurra stiga forskot á næstu lið. Vikingar náðu í óvænt stig í viðureign liðanna á sama staö í fyrra en það leit aldrei út fyrir að það myndi endurtaka sig aö þessu sinni. Víkingar héldu jöfnu upp i 4-4 en þá náðu Valsmenn undirtökunum og komust fljótt í fjögurra marka forskot en virtust ekki almennilega með hugann við efnið. Vikingar voru áræðnir í sókninni framan af en síðan fóru að koma fram brotalamir í leik þeirra og sterkt lið Vals gekk á lagið. Valsmenn juku hægt og rólega forskotið sem var sex mörk í háifleik, 11-17. Valsmenn virkuðu af- slappaðri í síðari hálfleik, Víkingar náðu að halda aftur af þeim til þess að byrja með líkt og í fyrri hálfleik en eftir sex Valsmörk í röð var mótspyrna þeirra að mestu brotin á bak aftur. Þrír fyrrum leikmenn Víkings fóru illa með sína gömlu félaga í seinni hálf- leiknum og skoruðu þá 8 af 17 mörkum Vals. -HRM Páll Pórólfsson, Gróttu/KR, og Jason Ólafsson, Haukum, kljást hér í viðureigninni í gærkvöld. DV-mynd Hari Seldum okkur dýrt - Grótta/KR lagði Hauka að velli á Nesinu í gærkvöld Grótta/KR vann í gærkvöld góð- an sigur á Haukum, 28-25, í hörku- leik á.Seltjarnarnesi og hefur liðið þar með unnið báða leiki sína gegn Haukum í vetur. Leikurinn byrjaöi með látum og var spennustigið hátt meðal leikamanna og þjáifara. Leik- menn Gróttu/KR virtist hungra meira og voru Haukar fullrólegir í tíðinni á köflum. Mfkill hiti var í mönnum varð- andi flest sem snerti dómgæsluna og stóð eftirlitsmaður leiksins oft á tíðum í ströngu við að róa menn niöur. Heimamenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17-13, og fátt um fína drætti í varnarleik gest- anna en það verður ekki tekið af heimamönnum aö þeir sýndu mjög góðan leik. í byrjun seinni hálfleiks fóru leikmenn Gróttu/KR að fjúka út af hvað eftir annað og á fyrstu 12 mínútum seinni hálfleiks var Grótta/KR einum færri í 10 mínút- ur. Það nýttu Haukamir sér og komust yfir, 18-19. Þarna virtist leikurinn að vera snúast gestunum í hag og komust Haukar síðan tveimur mörkum yflr, 20-22, og út- litið ekki gott hjá Gróttu/KR. Þá tók Hlynur Morthens, markvörður Gróttu/KR, sig til og lokaði mark- inu og kom 8-2 kafli þar sem heima- menn tryggðu sér sigur og náðu i tvö mikilvæg stig í baráttunni um sæti í útslitakeppninni. Hjá Gróttu/KR var Hlynur frá- bær í markinu og Alexanders Peter- sons var illviðráðanlegur í sókninni þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð lungann úr leiknum. Aðrir stóðu fyrir sínu og var Páll Þórólfsson ör- yggið uppmálað á vítalínunni. Hjá Haukum var Robertas Pavzolis mjög góður í fyrri hálfleik og dró vagninn sóknarlega. Hann var tek- inn úr umferð í þeim seinni og komst lítt áleiðis. Aron Kristjáns- son og Halldór Ingólfsson áttu sína góðu og slæmu kafla og Birkir ívar Guðmundsson hefur oft átt betri daga í markinu. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR, var sáttur við lífið og tilveruna þegar DV-Sport hitti hann að máli að leik loknum. „Þetta var góður sigur hjá okkur. Við spiluðum virkilega góðan bolta. Við vorum fjórum mörkum yfir í hálfleik en misstum þetta síðan nið- ur þar sem við héldum ekki alveg einbeitingu og fórum að fá brottvís- anir fyrir algjöran klaufaskap. Menn sýndu síðan góðan karakter þegar þetta virtist vera að snúast Haukum í hag og rifu sig upp aftur með góð- um stuðningi áhorfenda. Ég er virki- lega ánægður með þennan sigur og höfum við unnið báða leikina gegn Haukum í vetur sem er mjög gott. Það eru ekki margir sem leika það eftir að taka fjögur stig á móti Hauk- um. Við ætluðum aö selja okkur dýrt. Við spiluðum mjög vel á móti KA á fóstudaginn og ég er ósáttur við að hafa ekki fengið annað stigið úr þeim leik. Við erum í mikilli bar- áttu um að komast í úrslitakeppnina og hver leikur og hvert mark er gríð- arlega mikilvægt. Það eru fleiri erf- iðir leikir fram undan og þetta verð- ur barátta fram í síðasta leik. Hlyn- Hörð barátta á Spáni - Heiðmar Felixson skoraði 7 mörk fyrir Bidasoa Barcelona heldur eins stigs for- ystu í 1. deildinni í handbolta á Spáni. Barcelona sótti botnlið Torrevieja heim og sigraði, 21-26. Börsungar náðu strax yfirhöndinni í leiknum, náðu mest níu marka forystu en gáfu aðeins eftir á lokakafla leiksins. Ciudad Real sigraöi Granollers, 27-22, og var Rúnar Sigtryggsson ekki í leikmannahópi Ciudad Real. Egyptinn Hussein Zaky skoraði fimm mörk fyrir Ciudad í sínum fyrsta leik með liðinu. Portland San Antonio heldur áfram sínu striki og sigraöi Barakaldo, 21-27, á útivelli þar sem Hvít-Rússinn Jakimovic skoraði sex mörk fyrir Portland. Ademar Leon, sem sló Hauka út úr Evrópukeppninni, sigraði félaga Heiðmars Felixsonar í Bidasoa, 30-27. Rússinn Krivoschlykov skor- aði sex mörk fyrir Ademar en Heiðmar var atkvæðamestur hjá Bidasoa og skoraði sjö mörk. Heið- mar var mjög ógnandi hjá Bidasoa og skilaði enn fremur vamarhlut- verkinu mjög vel. Hilmar Þórlindsson á enn viö meiðsli að stríöa og lék af þeim sökum ekki með Cangas sem tap- aði fyrir Valladolid, 37-26. Barcelona er í efsta sæti með 29 stig en Ciudad Real og Portland San Antonio eru jöfn í 2.-3. sæti með 28 stig og í fjórða sæti kemur Ademar Leon með 26 stig. Það er Ijóst að þessi fjögur lið berjast um Spánartitilinn. Vafladolid og Altea koma í næstu sætum með 21 stig. -JKS ur varði mjög vel i dag. Hann hefur verið i meiðslum en ég veit að það- býr hellingur í honum. Hann hefur átt erfitt uppdráttar vegna þessara meiðsla en núna kemur hann sterk- ur til leiks og lofar góðu upp á fram- haldið. -Ben Víkingur-Valur 20-34 0-2, 2-2, 4-4, 4-8, 6-10, 9-13, 9-16, (11-17), 11-18, 13-19, 15-21, 15-27,17-31, 18-83, 20-34. Vikineur: Mörk/víti (skot/víti): Hafsteinn Hafsteinsson 5/1 (6/1), Eymar Kruger 4 (14), Davíð Guðnason 3 (4), Ragnar Hjaltested 3/1 (4/2), Þórir Júlíusson 3 (10), Ágúst Guðmundsson 1 (2), Björn Guömundsson 1 (4). Mörk úr hraöaupphlaupum: 2 (Ragnar 2) Vitanýting: Skoraö úr 2 af 3. Fiskuö vítL Eymar, Davíð, Hafsteinn. Varin skot/viti (skot á sig): Trausti Ágústsson 9 (30/2, hélt 4, 30%), Jón Ámi Dómarar (1-10): Amar Sigurjóns- son og Svavar Pét- ursson (5). Gœöi leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 50. Maöur leiksins Snorri Steinn Guöjónsson, Val Traustason 2 (15, hélt 1,13%). Brottvisanir: 8 mínútur. Valur: Mörk/víti (skot/víti): Snorri Steinn Guöjónsson 6/1 (6/1), Markús Máni Michaelsson 6/1 (9/1), Hjalti Gylfason 4 (5), Hjalti Pálmason 4 (5), Freyr Brynjarsson 4 (5), Ásbjöm Stefánsson 3 (4), Sigurður Eggertsson 3 (4), Þröstur Helgason 2 (5), Davíð Höskuldsson 1 (1), Ragnar Ægisson 1 (1), Brendan Þorvaldsson (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 7 (Ásbjöm 2, Freyr 2, Hjalti G. 1, Þröstur 1) Vitanýting: Skorað úr 2 af 2. Fiskuö vítL Þröstur, Snorri. Varin skot/viti (skot á sig): Roland Valur Eradze 16/1 (34/3, hélt 6, 47%), Pálmar Pétursson 1 (3, hélt 1, 33%). Brottvísanir: 6 mínútur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.