Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Page 16
32 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 Sport DV Úrslit: Liverpool-Middlesbrough ... 1-1 0-1 Njitap Geremi (38.), 1-1 John Ame Riise (74.). Birmingham-Chelsea..........1-3 0-1 Gianfranco Zola (44.), 0-2 Eiður Smári Guðjohnsen (49.), 0-3 Jimmy Floyd Hasselbaink, víti (69.), 1-3 Robby Savage, víti (87.). Blackburn-Southampton .... 1-0 1-0 David Thompson (26.). Charlton-Everton............2-1 1-0 Radostin Kishishev (19.), 1-1 Brian McBride (69.), 2-1 Kevin Lisbie (83.). Fulham-Aston Villa..........2-1 0-1 Gareth Barry (3.), 1-1 Steed Malbranque, víti (14.), 2-1 Jon Harley (36.). Leeds-West Ham .............1-0 1-0 Seth Johnson (20.). Tottenham-Sunderland .......4-1 1-0 Gustavo Poyet (14.), 1-1 Kevin Phillips (26.), 2-1 Gary Doherty (45.), 3-1 Simon Davies (68.), 4-1 Teddy Sheringham (84.). West Brom-Bolton............1-1 0-1 Henrik Pedersen (18.), 1-1 Andy Johnson (90.). Man. Otd-Man. City..........1-1 1-0 Ruud Van Nistelrooy (18.), 1-1 Shaun Goater (86.). Newcastle-Arsenal...........1-1 0-1 Thierry Henry (32.), 1-1 Laurent Robert (53.). Staðan: Arsenal 27 17 6 4 57-29 57 Man. Utd 27 16 6 5 44-25 54 Newcastle 26 15 4 7 42-32 49 Chelsea 27 13 9 5 48-27 48 Everton 27 13 6 8 35-32 45 Liverpool 27 11 10 6 38-26 43 Tottenham 27 12 6 9 40-37 42 Charlton 27 12 6 9 36-34 42 Southampt. 27 10 9 8 28-26 39 Man. City 27 11 5 11 38-38 38 Blackburn 27 9 10 8 32-31 37 Aston Villa 27 10 5 12 31-29 35 Leeds 27 10 4 13 34-34 34 Middlesbr. 26 8 7 11 30-30 31 Fulham 26 8 6 12 28-34 30 Birmingh. 27 6 8 13 2340 26 Bolton 27 5 10 12 3044 22 West Brom 26 5 6 15 20-38 21 WestHam 27 4 8 15 28-52 20 Sunderland 27 4 7 16 18-42 19 1 ■ D E I L D J SR]@[L£\K]B Úrslit Birghton-Wolves...............4-1 Coventry-Bumley ..............0-1 Grimsby-Stoke.................2-0 Ipswich-Sheff. Utd............3-2 Portsmouth-Derby........ 6-2 Preston-Millwall .............2-1 Sheff. Wed.-Norwich ..........2-2 Walsall-Leicester.............1-4 Watford-Rotherham.............1-2 Wimbledon-Bradford............2-2 Nott. Forest-C. Palace .......2-1 Staðan: Portsmouth 31 19 9 3 65-31 66 Leicester 31 19 7 5 51-29 64 Sheff. Utd 29 15 7 7 44-30 52 Nott. Forest31 14 9 8 49-32 51 Norwich 30 12 10 8 43-30 46 Reading 29 14 4 11 34-29 46 Wolves 30 12 9 9 50-34 45 Watford 31 13 6 12 3747 45 Ipswich 30 12 8 10 47-38 44 Rotherham 31 12 8 11 5043 44 Coventry 31 11 10 10 36-34 43 Millwall 31 12 7 12 3945 43 C. Palace 30 10 12 8 43-33 42 Derby 31 12 5 14 4045 41 Bumley 30 11 8 11 44-55 41 Wimbledon 30 10 9 11 50-50 39 Gillingham 28 10 9 9 36-39 39 Preston 31 9 11 11 47-50 38 Bradford 30 9 8 13 37-51 35 Walsall 31 9 6 16 42-50 33 Grimsby 31 7 7 17 36-59 28 Stoke 31 5 10 16 34-56 25 Sheff. Wed. 31 5 9 17 29-54 24 Brighton 31 5 8 18 32-51 23 Eiöur Smári Guöjohnsen fagnar hér marki sínu gegn Birmingham á laugardaginn. Paö var fjórða mark hans í síðustu fimm deildarieikjum. Reuters Átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn - leikmenn Liverpool óðu í færum, nýttu aðeins eitt þeirra og töpuðu tveimur dýrmætum stigum Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Liverpool, sat veikur heima og gat því ekki horft á lærisveina sína gera jaftv tefli gegn Middlesbrough á Anfield Road. Leikmenn Liverpool voru mun sterkari aðilinn í leiknum og geta ein- ungis kennt eigin klaufaskap um að þeim tókst ekki að innbyrða sigur í leiknum. Fjölmörg færi fóru forgörð- um hjá liðinu og var Michael Owen þar fremstur í flokki. Kamerúninn Geremi skoraði glæsi- legt mark beint úr aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og var markið það fyrsta sem Middlesbrough skorar á úti- velli siðan í september. Steve McClaren, knattspyrnustjóri Middlesbrough, var sáttur við úrslitin og baráttu sinna manna. „Það mikilvægasta var að við sýnd- um baráttu og rétt hugarfar. Vömin stóð sig frábærlega og stóðst pressuna sem Liverpool setti á hana,“ sagði McClaren. John Arne Riise fagnar hér marki sínu gegn Middlesbrough. Reuters Phil Thompson, aðstoðarmaður Houlliers, grét töpuð stig að leik lokn- um. „Ég trúi þvi ekki að við skulum ekki hafa fengið meira en eitt stig út úr þessum leik. Heppnin virðist algjör- lega hafa yfirgefið okkur. Við vorum að spila gegn öðru úrvalsdeildarliði og áttum allan leikinn en því miður virð- ist okkur vera fyrirmunað að skora," sagði Thompson. Ömurleg endurkoma Lee Bowyer átti miður skemmtilega endurkomu á Elland Road á laugardag- inn þegar hann mætti þar með félögum sínum í West Ham. Stuðningsmenn Leeds bauluðu á hann í hvert skipti sem hann fékk boltann og tfl að bæta gráu ofan á svart tapaði West Ham enn einum leiknum og sökk dýpra ofan í fen faflbaráttunnar. Glenn Roeder, knattspyrnustjóri West Ham, er þó ekki enn farinn að ör- vænta. „Auðvitað höfum við áhyggjur af stöðunni en það eru ellefu leikir eftir og þvi engin ástæða til að fara á taug- um,“ sagði Roeder eftir leikinn. Enn skorar Eiður Eiður Smári Guðjohnsen heldur sinu striki með Chelsea og skoraði fjórða mark sitt i síðustu fimm deildar- leikjum þegar Chelsea bar sigurorð af Birmingham á útivelli. Eiður Smári skoraði annað mark liðsins með skalla en besti maöur Chelsea var markvörð- urinn Carlo Cudicini sem bjargaði oft á tíðum frábærlega frá leikmönnum Birmingham. Claudio Ranieri, knattspymustjóri Chelsea, hrósaði Cudicini í hástert eft- ir leikinn. „Carlo (Cudicini) átti frábæran leik og bjargaði nokkrum sinnum stórkost- lega. Hann er svo öruggur. Þegar and- stæðingar okkar gera eitthvað frábært er hann til staðar og þegar við gerum mistök þá er hann líka til staðar. Ég veit ekki hvort hann er besti mark- vörðurinn í deildinni en hann er ör- ugglega einn af þeim betri,“ sagði Ranieri. Fyrsti sigurinn í níu leikjum Blackburn tókst loks að sigra eftir að hafa leikið átta leiki í deildinni án þess að vinna. Það var kantmaðurinn knái, David Thompson, sem skoraði sigurmarkið gegn Southampton um miðjan fyrri hálfleik. Graeme Souness, knattspyrnustjóra Blackburn, létti eftir leikinn. „Við spiluðum ekki áferðarfallega knattspyrnu en baráttan hjá minum mönnum var góð og hún skilaði þrem- ur stigum í hús,“ sagði Souness. Kennir dómaranum um David Moyes, knattspymustjóri Ev- erton, kenndi Jeff Winter, dómara leiksins, um tapið gegn Charlton á laugardaginn. Moyes var á þeirri skoð- un að Kevin Lisbie hefði verið rang- stæður þegar Charlton skoraði fyrra mark sitt í leiknum. „Þið skulið fara varlega í að lýsa fyrra markinu hjá Charlton. Hann (Kevin Lisbie, var klárlega rangstæður en því miður ákvað dómarinn að gera ekki neitt. Það sáu allir að við áttum að vinna þennan leik,“ sagði Moyes. Alan Curbishley, knattspymustjóri Charlton, sagði eftir leikinn að hann hefði verið frábær. „Þetta var frábær leikur en við hefð- um átt að vera búnir aö klára hann fyrir hálfleik. Nú erum við komnir yf- ir 40 stiga múrinn og það er glæsilegur árangur, miðað við að það eru enn ell- efu leikir eftir.“ Get ekki kvartað Graham Taylor, knattspyrnustjóri Aston Villa, var vonsvikinn eftir tapið gegn Fulham á laugardaginn en sagð- ist ekki geta kvartað. „Við byrjuðum mjög vel en ég get ekki kvartað yfir úrslitunum. Sigur Fulham var sanngjam en það var svekkjandi að tapa þessum leik þar sem við hefðum getað færst nær sjötta sætinu með sigri,“ sagði Taylor. Á síöustu stundu Andy Johnson var hetja West Brom í botnbaráttuslagnum gegn Bolton á laugardaginn þegar hann tryggði lið- inu dýrmætt stig á lokamínútu leiks- ins. Gary Megson, knattspyrnustjóri West Brom, hrósaði sínum mönnum fyrir að gefast aldrei upp en Sam Allar- dyce, knattspyrnustjóra Bolton, varð óglatt við tilhugsunina um vamarleik sinna manna á lokakaflanum. „Við köstuðum frá okkur sigrinum með skelfilegum varnarleik sem er óþolandi," sagði Allardyce. Tottenham tók Sunderland í bakarí- ið á White Hart Lane og situr Sunder- land því enn á botni deildarinnar. Ég trúi því enn að við getum bjarg- að okkur," sagði Howard Wilkinson, knattspyrnustjóri Sunderland, eftir leikinn. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.