Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Side 22
38 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003 Iþróttir unglinga fc:.,'í/. ...,|f . *v . "t J : ®ÍS9S|SSf|í9S|lfl!8^á *tat "S"' ' , Si . .**t A'...................................... 8S® f ' 1 |Jj I , ■- >' :'V> . _________________________________________ ■ • • • „ . , .'..,; • , ■ r • v - b':ísáSS5i»»íf ||f|jj|pi§|lj s - ; s •,.- - /$:*:+' a Gymnova-þrepamót í fimleikum í Laugardalshöll: Efnilegir strákar - strákarnir sýndu flott tilþrif í Laugardalshöllinni Það var hörð keppni hjá strákun- um á Gymnova-þrepamótinu sem * fram fór í Laugardalshöll fyrstu ' helgina i febrúar. Það mátti sjá á tilþrifum margra að miklar framfar- ir höfðu átt sér stað frá því í byrjun vetrar og erflðar æfingar svo sann- arlega að skila sér. Guðmundur góður í flokki 9-10 ára sigraði Guð- mundur Þ. Héðinsson úr Gerplu í samanlögðu með 55,55 stig. Hann sigraði í gólfæfingum ásamt Eyþóri Ómari Ragnarssyni sem kemur úr Ármanni, en báðir fengu þeir 9,15 í einkunn fyrir æfingar sínar. Guðmundur var síðan öflugur í hringjunum þar sem hann sigraði og svo var hann með efstu mönnum • í hinum greinunum. Ungur og efnilegur strákur þar á ferð en margir þessara ungu drengja, sem kepptu í þessum flokki, sýndu að þeir eiga framtið- ina fyrir sér. Barátta hjá Haraldi og Andra Hjá 11-12 ára drengjunum sigraði Haraldur Karlsson úr Gerplu í sam- anlögðu með 54,30 stig en Fylkis- maðurinn Andri Þór Jónsson kom næstur með 54,25 stig, þannig að ekki mátti miklu muna hjá þeim tveimur. Haraldur sigraði í engum af þeim greinum sem hann tók þátt í en var með efstu mönnum í þeim öllum og sýndi hversu fjölhhæfur strákur þar er á feröinni. Andri og Haraldur voru yfirburöamenn í hringjunum og hafði Andri þar sigur að lokum en æfingar hans þóttu mjög vel út- færðar. Andri sannaði svo hæfileika sína í loftinu með góðum sigri á svifránni. Góðir Gerplufélagar Ándri Örvarsson úr Gerplu fór með sigur af hólmi í flokki 13-14 ára drengja. Hann sigraði með yfirburð- um á bogahestinum og var með jafn- ar og góðar æfrngar í flestum hinum ^ sem færðu honum" þau stig sem vantaði til þess að sigra 1 saman- lögðu. Félagi hans úr Gerplu, Tómas Tómasson, var skammt undan en hann var mjög jafn og góður í greinunum. Þeir Haraldur Birgisson, Gerplu, og Steingrímur Þór Ágústson, Ár- manni, háðu harða baráttu um sig- urinn í samanlögðu í 3. þrepi 11-12 ára drengja. Haraldur hafði að lok- um sigur með 52,55 stig en skammt undan kom Steingrímur með 52,50 stig. Haraldur sigraði í hringjum með 8,80 i einkunn en einnig sigraði hann í stökkinu þar sem hann fékk einkunnina 9,30. Steingrímur sigr- aði í gólfæfmgunum en þar fékk hann fékk 9,05 og þóttu æfingar hans ákaflega vel heppnaðar. Þessir strákar eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinna ef þeir halda áfram að æfa vel. Helgi öflugur Helgi Steinsson úr Gerplu haíði mikla yfirburði í samanlögðu í 3. þrepi 13-14 ára drengja. Hann sigraði með yfirburðum í gólfæfingum þar sem hann fékk glæsilega einkunn, 9,50. Reyndar fékk Helgi yfir 9 í öllum sínum greinum en hann sigraði í þeim öll- um nema stökki þar sem Oddur Oddsson, Ármanni, skákaði honum með glæsilegu stökki. Þetta er frábær árangur hjá Helga og verður gaman að fylgjast með þessum strák í framtíðinni. Frábær tilþrif Ingvars 12. þrepi 13-14 ára drengja reynd- ist Ingvar Jochumsson, Gerplu, sterkastur í samanlögðu en hann fékk alls 55,75 stig fyrir æfingar sín- ar á mótinu. Tæplega heilu stigi á eftir honum kom síðan félagi hans úr Gerplu, Ólafur Gunnarsson. Ingvar sýndi frábær tilþrif í stökki þar sem hann fékk 9,70 fyrir besta stökkið. Einnig sigraði hann á tvíslá og svifrá og þóttu tilþrif hans þar ekki siðri en í stökkinu. Þessi strákur er á sífelldri upp- leið og á eftir að láta mikið til sin taka á komandi árum ef að líkum lætur. Hjalti hafði Daða Hjalti Geir Erlendsson úr Ár- manni varð sigurvegari i saman- lögðu hjá drengjum 15-16 ára sem eru í 2. þrepi. Hann háði harða baráttu við fé- laga sinn úr Ármanni, Daða Páls- son, um sigurinn en hafði að lokum sigur með 52,65 stig en Daði kom þar rétt á eftir með 52,45 stig. Þeir félagar fengu sömu einkunn á bogahestinum, 8,90, en Hjalti hafði betur í hringjunum og á tvíslánni. Daði reyndist aftur á móti sterkari á gólfinu og á svifránni. Tvísláin reyndist Daða nokkuð erfið og það var fyrst og fremst einkunn hans þar sem varð þess valdandi að hann missti af sigrinum í samanlögðu. Frammistaða þeirra beggja er engu að síður góð hjá þeim báðum en þeir voru í sérflokki í þessum hópi. í 3. þrepi 15-16 ára drengja var að- eins einn keppandi, Þórarinn Val- geirsson úr Gerplu en hann lét það ekki aftra sér frá því að sýna frábær tilþrif. Strákurinn sýndi lipur til- þrif á gólfinu þar sem hann fékk 9,60 í einkunn og sömu einkunn fékk hann fyrir æfingar sínar á svifránni. Stökkið hjá honum var einnig glæsilegt þar sem hann fékk 9,75 í einkunn. Einnig sýndi hann ágæt tilþrif á bogahestinum, sem og í hringjunum en veikasta grein hans var tvísláin þar sem hann fór undir 8 í einkunn. -HBG Úrslit á Gymnova- þrepamótinu Strákar: 9-10 ára 1. Guðmund. Héðinss., Gerplu . 55,55 2. Egill Gunnarsson, Gerplu . . 55,10 3. Eyþór Ragnarsson, Árm .... 54,65 4. Úlfar Bjömsson, Árm.......53,45 5. Guðmundur Ólafss., Árm . . . 53,15 11-12 ára 1. Haraldur Karlsson, Gerplu . . 54,30 2. Andri Jónsson, Fylki......54,25 3. Pétur Ólafsson, Gerplu....53,80 4. Amaldur Ingvarss., Gerplu . 53,00 5. Baldur Roikjer, Ármanni . . . 52,05 13-14 ára 1. Andri Örvarsson, Gerplu . .. 53,55 2. Tómas Tómasson, Gerplu . . . 52,35 3. Daníel Bjarkason, Ármanni . 50,50 4. Sigurður Sigurðss., Fylki . . . 45,40 5. Birgir Þorsteinss., Gerplu . . 40,60 3. þrep, 11-12 ára 1. Haraldur Birgisson, Gerplu . 52,55 2. Steingrímur Ágústs., Árm . . 52,50 3. Gunnar Gunnarsson, Gerplu . 51,30 4. Jón Gunnarsson, Árm .......51,25 5. Sindri Davíðsson, Árm......50,55 6. Atli Jasonarson, Árm.......43,30 3. þrep, 13-14 ára 1. Helgi Steinsson, Gerplu .... 56,40 2. Stefán Pálsson, Ármanni . .. 52,65 3. Oddur Oddsson, Ármanni .. 52,60 4. Hallur Ólafsson, Gerplu .... 47,80 3. þrep, 15-16 ára 1. Þórarinn Valgeirss., Gerplu . 54,30 2. þrep, 13-14 ára 1. Ingvar Jochumsson, Gerplu . 55,75 2. Ólafur Gunnarsson, Gerplu . 54,85 3. Bjarki Ásgeirsson, Árm .... 53,40 4. Magnús Jónasson, Gerplu .. 45,25 5. Tómas Guðmunds., Árm ... 43,60 6. Brynjar Jochumss., Gerplu . 37,90 2. þrep, 15-16 ára 1. Hjalti Erlendsson, Árm .... 52,65 2. Daði Pálsson, Árm..........52,45 3. Sigurður Pétursson, Gerplu . 46,35 4. Hlynur Kristjánsson, Gerplu 45,60 5. Þorsteinn Eggerts., Árm .... 31,80 Þa& vantaði ekki tilþrifin hjá strákunum í Höllinni og einbeitingin var gríðarieg eins og sést á þessum myndum hér aö ofan. DV-myndir Sig. Jökull

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.