Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2003, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2003
39
i
■
Hér sjáum viö verölauna-
hafana í 2. þrepi 11-13 ára,
þær Friöu Run ur Gerplu.
sem sigraöi. Fanneyju úr
Gróttu. sem varö önnur. og
(Jnni Ósk ur Gerplu sem
hreppti bronsiö.
Gymnova-þrepamót í fimleikum í Laugardalshöll:
Miklar framfarir
- hjá stelpunum sem hafa bætt sig mikið á undanförnum mánuðum
Það var frábær þáttaka á
Gymnova-þrepamótinu í fimleikum
í Laugardalshöllinni í byrjun febrú-
ar en alls voru keppendur um 240 og
komu þeir frá 9 félögum en öll félög
sem stunda áhaldafimleika áttu
keppendur á mótinu.
Dóra sterk
í 5. þrepi stúlkna 9-10 ára sigraði
Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir úr
Gerplu í samanlögðu með 34,225
stig.
Hún hafði talsverða yfirburði í
fiokknum því næst henni kom Mar-
grét Edda Magnúsdóttir úr Ár-
manni með 32,850 stig.
Dóra Sigurbjörg gerði sér lítið
fyrir og sigraði í þremur greinum af
tjórum, eða á tvíslá, slá og I gólfæf-
ingum. Glæsilegur árangur hjá
þessari stórefnilegu stúlku.
Baráttusigur Sigurbjargar
Hjá 11 ára stúlkunum í 5. þrepi
reyndist Sigurbjörg Jóna Vilhjálms-
dóttir úr Rán hlutskörpust í saman-
lögðu en hún hlaut 32,625 stig.
Keflvíska stúlkan Hildur Ösp
Randversdóttir kom síðan í öðru
sæti skammt á eftir með 32,500 stig.
Sigurbjörg sigraði á tvíslánni með
8.600 í einkunn og var með jafnan
og góöan árangur í hinum greinun-
um sem fleytti henni á toppinn í
samanlögðu en baráttan í þessum
flokki var mjög hörð.
Lipur tilþrif Önnu
Anna Guðný Sigurðardóttir úr
Gerplu sýndi lipur tilþrif í 5. þrepi
stúlkna 12 ára og eldri og sigraði i
samanlögöu með 35,100 stig.
Félagi hennar i Gerplu, Auður
Björk Arnardóttir, kom síðan í öðru
sæti með 34,375 stig.
Anna sigraði í stökkinu og fékk
glæsilega einkunn fyrir sitt besta
stökk, 9,200, og hún sigraði einnig á
tvíslánni með 9,150.
Auður var iðulega skammt undan
og henni tókst að skáka Önnu á gólf-
inu þar sem hún sigraði með ein-
kunnina 8,925. Skemmtileg barátta
hjá þessum efnilegu stelpum sem
eru á hraðri uppleið.
Yfirburöir Thelmu
Thelma Rut Hermannsdóttir úr
Gerplu hafði umtalsverða yfirburði
í 4. þrepi stúlkna á aldrinum 9-11
ára. Hún hlaut 35,400 stig samtals
én félagi hennar í Gerplu, Anna Lín-
ey ívarsdóttir, kom næst með 32,800
stig.
Sterkustu greinar Thelmu eru
tvísláin og gólfið og þar sýndi hún
glæsileg tilþrif og sigraði í báðum
flokkum en æfingar hennar voru
jafhar og minnst fékk hún 8,400 í
einkunn á slánni sem er frábær ár-
angur en sá árangur dugði henni til
silfursætis í þeirri grein.
Öruggt hjá Huldu
Hulda Rún Ingvarsdóttir úr FRA
vann glæsilega sigur í 4. þrepi 13
ára og eldri en hún fékk samtals
33,325 stig.
Bára Guðmundsdóttir úr Fylki
kom svo í öðru sæti með 31,500 stig.
Hulda sigraði á slá og tvíslá og
nældi sér þar af auki í silfur í stökk-
inu þar sem hún varð að lúta í
lægra haldi fyrir Ásu Sigurðardótt-
ur úr Keflavík.
Hulda sýndi góða takta á mótinu
og þarf helst að bæta hjá sér gólfæf-
ingamar til að geta bætt við stiga-
fjöldann í framtíöinni.
Barátta Gerplustúlkna
Hin bráðefnilega Karítas Harpa
Davíðsdóttir úr Gerplu sigraði í 3.
þrepi hjá Ármanni, Björk, Gerplu
og Fylki. Hún hlaut 35,250 stig sam-
tals fyrir æfingar sínar en rúmu
stigi á eftir henni kom félagi henn-
ar úr Gerplu, Harpa Dögg Steindórs-
dóttir, með 34,125 stig.
Karítas sigraði á slá, gólfi og í
stökki en hún fékk yfir 9 I stökkinu,
9,050. Æfingar hennar á slánni þóttu
einnig glæislegar enda vann hún
þar með nokkrum yfirburðum.
Harpa gaf henni aldrei þumlung
eftir á mótinu og tókst að hafa bet-
ur á tvíslánni þar sem hún fékk
9,050 í einkunn fyrir frábærar æf-
ingar.
Fríöa fór á kostum
Fríða Rún Einarsdóttir úr Gerplu
hafði mikla yfirburði í 2. þrepi
stúlkna 11-13 ára þar sem hún hlaut
34,500 stig en Fanney Hauksdóttir
úr Grótta náði öðru sæti í saman-
lögðu með 30,450 stig.
Yfirburðir Fríðu voru miklir og
sigraði hún á öllum áhöldum og þá
sérstaklega með miklum yfirburð-
um á tvíslá sem og í gólfæfingum.
Ljóst er að þama er á ferð geysi-
lega mikið efni sem gaman verður
að fylgjast með á komandi árum.
Tæpt hjá Björk og Annie
Baráttan um sigurinn í saman-
lögðu í 2. þrepi 14 ára og eldri var
geysilega hörð en þar börðust fram
á síðasta áhEdd þær Björk Óðins-
dóttir úr FRA og Annie Mist Þóris-
dóttir úr Gerplu.
Fór nú svo að lokum að Björk
hafði nauman sigur með 28,650 stig
en Annie var örskammt á eftir með
28,325 stig.
Annie sigraði þó á fleiri áhöldum
þar sem hún fékk gull á slá og tvíslá
en Björk nældi sér í gullið á gólfinu.
Þar fékk hún talsvert betri einkunn
en Annie og má segja að þar hafi
ráðist útkoman í samanlögðu.
Þetta var skemmtileg rimma hjá
þeim og mátti vart á milli sjá hvor
þeirra væri sterkari.
Sara Sif góö
í 1. þrepinu sigraði Sara Sif
Sveinsdóttir úr Gerplu með 31,625
stig samtals. Elín Vigdís Andrés-
dóttir úr Gróttu kom síðan í öðru
sæti með 30,525 stig.
Sara hafði nauman sigur á Elínu
í stökkinu en hún sigraði með mikl-
um yfirburðum á slánni og lagði þar
grunninn að sigri sínum í saman-
lögðu.
Elín sýndi aftur móti frábæra
takta á tvíslánni þar sem hún tók
gullið. -HBG
Stúlkurnar sýndu glæsileg tilþrif á mótinu og Ijóst er að framtíðin er björt í
íslenskum fimleikum. DV-mynd Hari
íþróttir unglinga
Úrslit á
Gymnova-
þrepamótinu *
Stelpur:
5. þrep, 9-10 ára
1. Dóra Guðraundsd., Gerplu . .34,225
2. Margrét Magnúsd., Árm .. .32,850
3. Ester Ragnhildard., Árm . . .32,125
4. Sara Jónsdóttir, Gerplu ... .31,950
5. Berglind Bjamad., Gerplu . .31,625
6. Daniella Belany, Gróttu ... .31,325
7. Róshildur Hilmarsd., Björk .30,850
8. María Sigurbjömsd., Ránni .30,175
9. Hilda Guðbrandsd., Keflavik 29,950
5. þrep, 11 ára
1. Sigurbjörg Vilhjálmsd., Rán .32,625
2. Hildur Randversd., Keflavík 32,500
3. Guðrún Gunnarsd., Björk. . .32,475
4. Rósa Ámadóttir, FRA......31,550
5. Eva Benjamínsd., Gerplu . . .31,525
6. Heiðdís Lúövíksd., Björk .. .31,025
7. Domino Belany, Gróttu . . . .30,900
8. Sylvía Sigurðard., FRA . . . .30,500
9. Sjöfn Guðmundsd., Fylki . . .29,700
5. þrep, 12 ára og eldri
1. Anna Sigurðard., Gerplu . . .35,100
2. Auöur Amard., Gerplu . .. .34,375
3. Vala Jóhannsd., FRA.......33,800
4. Kristrún Hlynsd., Ránni . . .33,275
5. Díana Ólafsd., Ránni......33,050
6. Alexandra Barkard., Gerplu 32,425
7. Jóhanna Lárusd., Björk .. . .31,750
8. Helga Gunnarsd., Kefiavik . .31,300
9. Sigríður Sumarliðad., Björk .30,425
4. þrep, 9-11 ára
1. Thelma Hermannsd., Gerplu 35,400
2. Anna ívarsd., Gerplu........32,800
3. Hanna Ragnarsd., Árm ... .32,050
4. Eydís Eysteinsd., Stömunni 30,500
5. Karen Sigurlaugsd., Björk . .27,650
6. Elisabeth Helgad., Árm.....26,000
7. Rakel Einarsd., Árm.......25,100
8. Sólveig Bergsd., Árm.......24,800
9. Sigrún Ólafsd., Fylki......24,750
4. þrep, 12 ára
1. Karen Viktorsd., Gerplu .. .33,250
2. Guðlaug Matthíasd., Stjöm. .32,200
3. Sif Ingarsd., Gerplu......30,250
4. Steinunn Thoroddsen, Stj. . .29,700
5. Selma Ólafsd., Keflavík . . . .28,450
6. Þórann Kárad., Björk .....27,850
7. Helga Garöarsd., FRA.......26,600
8. Ágústa Ámad., Stjömunni. .26,400
9. Lára Ólafsd., Björk ......23,800
10. Ylfa Ólafsd., Ármanni . . . .19,200
4. þrep, 13 ára og eldri
1. Hulda Ingvarsd., FRA ......33,325
2. Bára Guðmundsd., Fylki .. .31,500
3. Ása Sigurðard., Keflavík .. .31,100
4. Stefanía Jónsd., Gerplu .. . .31,100
5. Elín Bragadóttir, FRA......30,350
6. Ólöf Kristjánsd., FRA ....28,950
7. íris Egilsd., FRA.........27,800
8. Rakel Höskuldsd., Fylki . . . .26,975
9. Katrín Jónsd., FRA........25,900
3. þrep, Árm/Bjö/Fyl/Ger
1. Karítas Davíösd., Gerplu .. .35,250
2. Harpa Steindórsd., Gerplu . .34,125
3. Eva Tulinius, Gerplu.......33,775
4. Eva Magnúsd., Keflavík . .. .32,100
5. Magdalena Birgisd., Árm. . .31,300
6. Gunnhildur Guðjónsd., Ger. 30,375
7. Rebekka Heiðarsd., Fylki. . .29,500
8. Hulda Þorsteinsd., Ármanni .28,350
9. Sandra Matthíasd., Fylki . . .28,000
2. þrep, 11-13 ára
1. Fríða Einarsd., Gerplu.....34,500
2. Fanney Hauksd., Gróttu . . .30,450
3. Unnur Rúnarsd., Gerplu .. .29,400
4. Vilborg Guðjónsd., Gróttu . .28,450
5. Sonja Jónsd., Björk........25,300
6. Andrea Gústafsd., Björk. . . .25,100
2. þrep, 14 ára og eldri
1. Björk Óðinsd., FRA.........28,650
2. Annie Þórisd., Gerplu......28,325
3. Ásta Emilsd., Fylki .......25,900
4. Ragna Bjamad., Árm.........24,650
5. Katrín Pétursd., Árm.......24,225
6. Þórdfs Ólafsd., Fylki .....23,825
7. Snædís Guðmundsd., Árm . .17,750
8. Steinunn Kristinsd., Fylki . .12,175
1. þrep
1. Sara Sveinsd., Gerplu .....31,625
2. Elín Andrésd., Gróttu ....30,525
3. Edda Ingibergs., Björk....28,650
4. Fíóla Þrastard., Björk....28,650