Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
Fréttir DV
Verðhjöðnun í
febrúar
Vísitala neysluverðs lækkaði um
0,18% í febrúar og er niðurstaðan und-
ir væntingum markaðsaðila sem
spáðu að meöaltali 0,07% lækkun. Síð-
astliðna 12 mánuði hefúr vísitala
neysluverðs hækkað um 1,5%.
Athygli vekur að vísitala neyslu-
verðs án húsnæðis lækkaði um 0,36%
í mánuðinum og síðastliðna 12 mán-
uði hefur vísitala neysluverðs án hús-
næðis aðeins hækkað um 0,3%. Það er
því ljóst að mikil þensla á fasteigna-
markaði heldur verðbólgu uppi.
Útsöluáhrif voru óvenjumikil í
mánuðinum en einnig getur verið um
varanlegar verðlækkanir að ræða
vegna styrkingar gengis en innfluttar
vörur lækkuðu þó nokkuð í mánuðin-
um. Sá liður sem haföi hvað mest
áhrif á vísitöluna að þessu sinni var
verð á fatnaði sem lækkaði um 5,7%
og hafði það 0,3% áhrif á vísitöluna tO
lækkunar. Bensínverð lækkaði litils
háttar, eða um 0,45%, sem hefur 0,02%
áhrif á vísitöluna til lækkunar. Mat-
vælaverð stóð nokkum veginn i stað í
mánuðinum en þó lækkaði verð á
kjötvörum mikið en mikil verðlækkun
hefur verið á kjúklingum að undan-
fömu. -VB
Skattsvik við hrossasölu:
Endurálagning
og væg refsi-
meðferð
Meðferð þeirra mála er upp komu
vegna skattsvika í tengslum við út-
flutning á íslenskum hrossum árið
1999 er nú lokið, að sögn Skúla Egg-
erts'Þórðarsonar skattrannsóknar-
stjóra. Umrædd mál komu fyrst upp í
Þýskalandi 1999 og vörðuðu þá und-
anskot á tollgreiðslum vegna hrossa-
útflutnings héðan. Við samvinnu er-
lendra tollayfirvalda og íslenskra
skattrannsóknaryfirvalda kom í ljós
að nokkrir útflytjendur höfðu svikið
undan skatti upphæðir sem námu
tugum milljóna króna.
Að sögn skattrannsóknarstjóra
lauk nokkrum málanna með endurá-
kvörðun um álagningu skatta. Sum
þeirra fóru síðan í væga refsimeð-
ferð. Um hefði verið að ræða mál
sem ekki hefði verið talin efni til að
fara meö til lögreglu.
„Þetta er ekkert öðru vísi heldur
en allur annar atvinnurekstur,"
sagði skattrannsóknarstjóri. „Mál af
þessu tagi koma upp aftur og aftur.
Þessi pakki sem um ræðir og varðaði
hrossaútflutninginn var frábrugðinn
að því leytinu til að þama fengum
við svo mikið af upplýsingum í einu
að það vakti sérstaka athygli.
Hins vegar má ekki rugla þessu
saman við tollsvikamálin sem komu
upp í Þýskalandi þótt sömu útflutn-
ingsaðilar ættu þar hlut að máli í
sumum tilvikum. Það var alfarið i
verkahring erlendra tollyfirvalda að
sjá um þann anga undanskotanna
sem fram fór í Þýskalandi." -JSS
Forsætisráðherra á Viðskiptaþingi:
Hugað verður að
skattalækkunum
„Það er engin goðgá að huga að
breytingum á sköttum í rétta átt, til
lækkunar, en ekki hækkunar," sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra á
Viðskiptaþingi Verslunarráðs í gær.
Engin ástæða væri að láta ríkissjóð
fitna um of heldur ætti að skOja sem
mest eftir hjá fólki og fyrirtækjum í
landinu.
Spurður um hvort i þessum orðum
fælist loforð um væntanlegar skatta-
lækkanir segist Davíð telja að góð
skilyrði séu til þess á næsta kjörtíma-
bili að huga að frekari skattalækkun-
um en gerðar hafi verið á þessu kjör-
tímabili. „Eigna-
skattar voru að vísu
lækkaðir, hátekju-
skattur var lækkað-
ur og fleiri slíkar
breytingar gerðar en
staða ríkissjóðs er
slík að það er hægt
að huga að þessu og
það verður gert,“
segir Davíð.
1 ræðu sinni á Viðskiptaþingi tók
hann að nokkru leyti undir gagnrýni
Verslunarráðs á vaxtastefnu Seðla-
bankans. Vegna gagnrýni á þróun
gengis krónunnar og kröfur um að-
gerðir af hálfu stjómvalda sagði hann
hins vegar að forráðamenn fyrirtækja
hefðu samanlagt meira um gengið að
segja með sínum aðgerðum en ríkið.
Davíð sagðist telja að þjóðin væri
nú að komast í efnahagslega óska-
stöðu og lauk ræðu sinni með tilvísun
til komandi kosninga og sagði: „Dæm-
in úr sögunni sýna að jafnvel slíkri
stöðu má klúðra á örstuttum tíma ef
þeir sem tO slíks eru hæfastir fá tæki-
færi tO.“ -ÓTG
Sjá bls. 16-17
og viðbrögð á baksíðu
Davíö Oddsson.
DV-MYND SIG. JOKULL
Stækkun hótels fagnaö
Jóhannes Viöarsson, veitingamaöur í Fjörukránni, hefur stækkaö og endurbætt Hótel Viking sem rekiö er í húsnæöi
gömlu smiöjunnar viö hliö Fjörukrárinnar. Hefur 10 nýjum herbergjum veriö bætt við svo heiidarfjöldi herbergja er nú
29. Jóhannes bauö viöskiptavinum og velunnurum aö skoöa stækkaö hótei í gærkvöld.
Bótalaus eignaupptaka ríkisins á þinglýstum bújörðum bænda:
Dæmi um gagns-
lausa valdsetningu
- segir Sigurður Líndal lagaprófessor
Ríklö vill sitt
Hér er ein stóru jaröanna, Svínafell í Öræfum, sem
ríkiö vill eignast hlutdeild í.
„Hvað mundu Reykvdtingar
segja ef stjómvöld ákvæðu að
þeir mættu bara eiga svo og svo
marga metra upp eftir húsunum
sínum - rfldð ætti restina?" spyr
Bjöm Sigurðsson, bóndi í Úthlíð
í Biskupstungum. Jörðin hans er
í hópi þeirra stærri á landinu og
er hann afar óhress með þá
ákvörðun fjármálaráðherra að
reyna að „krækja í eigur ann-
arra“ með þvi að setja málið fyr-
ir dómstóla. Mikfll hiti er land-
eigendum sem telja sig verða fyr-
ir barðinu á ríkisvaldinu í þjóðlendu-
málinu.
Borgarafundur í Öræfum
Bændur og aðrir jarðeigendur í
SkaflafeUssýslum hafa nú boðað tO al-
menns fundar í Öræfum á laugardag.
Þar verður tekin fyrir kröfugerð ráð-
herra í þjóðlendumálum.
1 fréttatOkynningu fundarboðenda
segir að fuOtrúar fjármálaráðherra fari
mUtlu offari í kröfugerð sinni i þjóö-
lendumálum. Ýmsir alþingismenn hafi
lýst því yfir að þessar kröfugerðir nái
langt út yfir tOgang þjóðlendulaga og
það hafi aldrei verið vflji Alþingis að
rfldð ásælist þinglýstan einkaeignarrétt
að jörðum bænda bótalaust. Slík eigna-
upptaka sé beinlínis brot á stjómarskrá
og mannréttindum.
Meðal frummælenda á fundinum
verða lögmennimir Ragnar
Aðalsteinsson og Sigurður Líndal
prófessor. Sá síðamefndi hefur uppi
alvarlegar athugasemdir við ráðagerð
ríkisvaldsins í þessum efnum:
„Ég er ekki sáttur við þjóðlendulög-
in,“ segir Sigurður. Hann ætlar að ræða
um eignarrétt að landi og hvers
eðlis þessi eignarréttur er. Hvað
merkir þaö tfl að mynda að eiga
Ódáðahraun?
„Þetta er takmarkaður eignar-
réttur að ýmsu leyti, réttur tíl
beitar, réttur tO veiði og fleira.
Það er ekki endflega að menn
eigi landið með öflum gögnum og
gæðum,“ sagði Sigurður og bætti
við að menn væm ekkert ánægð-
ir með þessi mál og að sínum
dómi sé það algjör óþarfi að hafa
sett þessi lög. „Þetta er dæmi um
gagnslausa valdsetningu. Ég hef ekki
skflið nauðsyn þessa og mér finnst bara
eðlflegt að taka svæðin fyrir ef þess þarf
á hveijum stað fyrir sig.“
Þegjandi samþykki þingmanna
„Það er von þeirra sem tfl fundarins
boða að sem flestir mæti því tilgangur-
inn er að efla samstöðu bænda og ann-
arra gegn þessari makalausu aðfór að
þinglýstum eignarrétti - aðför embætt-
ismanna fjármálaráðherra með þegj-
andi samþykki alþingismanna," segir í
fundarboði. -JI
Hófsamir drykkjumenn
íslendingar drekka eOma minnst
áfengi Evrópuþjóða ef marka má frétt
í norska blaðinu Dagsavisen. Norö-
menn eru á botni listans en Svíar og
íslendingar rétt fyrir ofan. írar drekka
manna mest í Evrópu.
Borgarstjóri ósáttur
Borgarstjóri,
Þórólfur Ámason,
lýsti því yfir við
RÚV í gær að hann
væri ósáttur við hve
hlutur höfuðborgar-
innar væri rýr þegar
horft væri tfl þess at-
vinnuátaksfjár sem
ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja
tfl framkvæmda. Aðeins um 16% fiár-
ins fara tfl framkvæmda á höfúðborg-
arsvæðinu en þar er hópur atvinnu-
lausra langijölmennastur.
Mikill munur á fiskverði
Munur á hæsta og lægsta fiskverði
getur verið meira en 90% á mflli
verslana. Þetta kemur fram i könnun
sem Verðlagseftirlit ASÍ gerði á nýver-
ið. Af 25 vöruflokkum sem voru tfl í
meira en helmingi verslana var
munur á hæsta og lægsta verði í 19
tilvikum yflr 90%. mbl.is greindi frá.
Mest hækkun í Hafnarfirði
Hver Hafiifirðingm- greiðir 40%
hærri fasteignagjöld í ár en árið 2000.
Hækkunin var 33% á hvem Kópavogs-
búa, 27% á hvem Garðbæing, 25% á
hvem Seltiming. Minnst er hækkunin
í Reykjavík eða 19%. mbl.is greindi
frá.
Óvissa um vígslubiskup
Kjósa þarf á mflli séra Jóns Aðal-
steins Baldvinssonar, sendiráðsprests
I í London, og Vals Ingólfssonar lektors,
i annarri umferð kosningar um nýjan
vigslubiskup í Hólabiskupsdæmi. Úr-
slit ættu að liggja fyrfr í mars. i fyrri
umferð kosninganna féflu út þau sr.
Dafla Þórðardóttir og sr. Guðni Þór
Ólafsson.
Hass með flugi
Lögreglan á Siglufirði lagði í gær
halda á sjö grömm af hassi sem voru
send með flugi frá Reykjavík. -aþ
I afmælisgrein um Ásrúnu Heið-
arsdóttur í DV 8. febrúar sl. er
ranghermt að Einar Einarsson sé
fyrrverandi eiginmaður Guðbjargar
Elinar Heiðarsdóttur, hann er nú-
verandi sambýlismaður hennar.
Prentvillupúkinn komst líka í nafn
Sigfúsar Benediktssonar, eigin-
manns Hugrúnar Kristjánsdóttur,
móður Ásrúnar. DV biðst velvirð-
ingar á mistökunum.
f ókus
rma Á MORGUN
í fótspor feðranna
í Fókus á morg-
un er rætt við
Ragnar Kjartans-
son sem oftast er
kallaður Rassi
prrunp. Ragnar er
listamaður og með-
limur í hljómsveit-
inni The Funerals
og er einn af aðstandendum V-
dagsins sem er á morgun. Við fiöU-
um líka um Valentínusardaginn
sem er einnig á morgun og ræðum
við mótorhjólakappann Valda
kalda. Þá er umfiöUun um fólk sem
fetar í fótspor foreldra sinna og
starfar á sama vettvangi og þeir og
hljómsveitin Brain Police ræðir
um gott gengi sitt undanfarið. Við
segjum frá uppistandi á Sportkaffi
um helgina og spjöUum við Tómas
Inga Ragnarsson sem var að koma
úr mánaðar ævintýrafór í TaUandi.