Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 27 4 Miklar sveiílur í leik Vals og Aftureldingar á Hlíöarenda í gærkvöld: Engir kjúklingar - Afturelding á leiö í bikarúrslit eftir sigur á Val í dramatískum leik Lið Aftureldingar bjargaði slöku tímabili í Essó-deildinni í gærkvöld þegar það lagði topplið deildarinn- ar, Val, á heimavelli þess í undanúr- slitum SS-bikarkeppninnar. Mosfell- ingar höfðu öll völd á vellinum í 40 mínútur en Valsmenn komu til baka og jöfnuðu skömmu fyrir leiks- lok en það dugði skammt þar sem gestimir tryggðu sér dramatískan sigur, 22-23, á lokamínútunum. Hörkuvörn gestanna Það var ljóst strax á upphafsmín- útum leiksins að Mosfeliingar ætl- uðu að selja sig dýrt því þeir komu dýrvitlausir til leiks og spiluðu grimma 5:1 vöm á heimamenn sem virtust slegnir út af laginu. Þegar Valsmenn höfðu áttað sig á því að leikurinn var hafinn voru Mosfell- ingar búnir að gera fjögur fyrstu mörk leiksins og það voru fimm mínútur liðnar af hálfleiknum þeg- ar Markús Máni skoraði fyrsta mark þeirra í leiknum. Smám saman komust Valsmenn síðan inn í leikinn og það eingöngu fyrir einstaklingsframtak þeirra Markúsar og Snorra Steins því sóknarleikurinn var ekki burðugur og vægast sagt fátt um fina drætti á þeim bænum. Það voru 7 mínútur eftir af hálfleiknum þegar Ásbjörn Stefánsson skoraði fyrir þá en fram að því höfðu þeir Markús og Snorri einir séð um markaskorunina fyrir heimamenn. Það var siðan Daði Hafþórsson sem skoraði tvö síðustu mörk hálf- leiksins og fóru Mosfellingar með fimm marka forystu inn í leikhlé, 10-15. Valsmenn vakna Það var fátt sem benti til annars í upphafi síðari hálfleiks en Mosfell- ingar færu með öruggan sigur af hólmi því þeir héldu áfram að leika frábæra vöm á Valsara sem voru ákaflega ráðleysislegir í sókninni sem fyrr. Þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum náðu leikmenn Aftureldingar 7 marka forystu, 13-20, og allt lék í lyndi hjá þeim. Þá hófst endurkoma Valsmanna. Aðrir leikmenn liðsins en Snorri og Markús tóku allt í einu upp á því að skora, Roland hrökk í gírinn og fór að verja og smám saman söxuðu þeir á forskot gestana. Þegar fimm mínútur voru eftir minnkaði Markús Máni muninn í eitt mark fyrir heimamenn, 21-22, og við það tók Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar, leikhlé. Illa gekk að stöðva klukkuna og varð að ræsa hana á ný og tók það ferli um fimm mínútur þannig að hitinn í mönnum minnkaði fyrir vikið. Ekki tókst Aftureldingarmönnum að skora í næstu sókn og þegar 2 og hálf mínúta lifði leiks jaínaði Snorri leikinn, 22-22, úr vítakasti. Daði Hafþórsson kom þá sterkur upp og skoraði fyrir gestina og kom þeim yfir á ný. Mikill darraðardans var stiginn á lokasekúndunum þar sem bæði lið fengu tækifæri til að skora og það var Markús sem tók síðasta skotið fyrir Valsmenn en Reynir Þór varði slakt skot Markúsar og í sömu andrá rann leiktíminn út. Mosfell- ingar stigu trylltan striðsdans af fögnuði enda munaði litlu að þeir hefðu klúðrað unnum leik. Daöi og Atli sterkir Daði Hafþórsson var manna best- ur hjá gestunum. Hann spilaði frá- bæra vörn og skoraði mörkin sem skiptu máli fyrir Aftureldingu. Atli Rúnar Steinþórsson var einnig frá- bær sem fremsti maður í vöm gest- ana og kláraði sín færi í sókninni. Þjálfarinn Bjarki Sigurðsson átti góðan fyrri hálfleik en hamurinn rann af honum í þeim seinni. Reyn- ir Þór var einnig drjúgur í markinu. Geir ósáttur Geir Sveinsson, þjálfari Vals- manna, var þungur í brún í leiks- lok. „Þetta er mikið svekkelsi. Mos- fellingar mættu gríðarlega grimmir til leiks og voru greinilega vel und- irbúnir en við vorum ekki jafn- snarpir og ég hafði vonast eftir,“ sagði Geir en hann var langt í frá sáttur með dómgæsluna í leiknum. „Ég legg það ekki í vana minn að gagnrýna dómgæsluna í fjölmiðlum en mér fannst halla virkilega á okk- ur í þessum leik. í fyrsta lagi komu dómaramir allt of seint á staðinn sem er til háborinnar skammar. í annan stað þá fannst mér þeirra frammistaða halla virkilega á okk- ur. Eins og ég segi þá hef ég ekki lagt það i vana minn að gagnrýna dómara í fjölmiðlum en ég ætla að gera það núna þar sem það var mik- ið í húfi hjá mér og það að dóm- gæslan geti ekki verið betri en þetta veldur mér verulegum áhyggj- um. Það breytir samt ekki því að við heföum getað spilað betri hand- bolta,“ sagði Geir og var vægast sagt ósáttur við framgöngu þeirra Guðjóns og Ólafs. Það má eflaust rökræða lengi um frammistöðu dómaranna en stað- reyndin er engu að síður sú að Valsmenn léku hreinlega illa í 40 mínútur af leiknum. Sóknarleikur- inn var hugmyndasnauður og virt- ust þeir ekki hafa neinar lausnir í hægri skyttustöðuna þar sem Bjarki Sigurðsson er vanur að leika. Alls spiluðu fjórir leikmenn stöðu hans í leiknum og fengu þeir eitt mark þaðan í níu tilraunum. Vömin hefur oft verið betri og munaöi mikið um það að Roland lék meiddur en hann varð fyrir hnjaski í upphitun. Hann fann sig þó ágætlega í síðari hálfleik. Snorri og Markús voru allt í öllu í leik liðs- ins en þeir einir og sér geta ekki sigrað lið eins og Aftureldingu og verður Geir að leysa vandamálið með hægri skyttustöðuna ef Vals- menn ætla sér að fara alla leið í deildinni. -HBG Daði Hafþórsson átti virkilega góðan leik í liði Aftureldingar og hann sést hér skora eitt af fjórum mörkum sínum í leiknum ón þess aö Ragnar Ægisson komi nokkrum vörnum við. DV-mynd Sig. Jökull Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar: Þetta er æðislegt „Við vorum rosalegir klaufar síðustu 15 mínútumar verð ég nú að segja,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar, eftir leik- inn. „Að missa niður 7 marka for- skot er rosalegt. Þá var þreytan farin að segja til sín. Við vorum búnir að keyra vel í 45 mínútur og uppskárum 7 marka forystu en einhverra hluta vegna duttum við í þá værukærð sem við höfum gert oft í vetur en við héldum út og þetta er æðislegt," sagði Bjarki og leyndi sér ekki aö honum var mik- ið létt enda stóð sigurinn tæpt í lokin. „Ég hafði ekki bgint áhyggj- ur undir það síðasta. Liðið var bú- ið að sýna svakalegan karakter all- an leikinn og ég átti ekki von á öðm en við myndum klára þetta. Ég veit hreinlega ekki hvað ég á að segja en ég er bara rosalega stoltur af liðinu í dag. Við sýndum klassa- handbolta. Við gáfum þeim kannski tækifæri til að komast inn í leikinn en við kláruðum dæmið og það skiptir mestu máli,“ sagði Bjarki að lokum en hann átti góð- an fyrri hálfleik í leiknum og skor- aði þá fjögur mikilvæg mörk. -HBG Portland sýnir Patreki áhuga Patrekur Jóhannesson, landsliðs- maður i handknattleik, er eftirsótt- ur leikmaður ef marka má áhuga sterkra liða í Evrópu á kappanum. Patrekur, sem leikið hefur með Essen síðustu fimm ár, hefur nú þegar tilboð undir höndum frá þýska liðinu Grosswaldstadt, eins og áður hefur komið fram. Spánska liðið Bidasoa, sem Heiðmar Felixs- son leikur meö, hefur lýst yfir áhuga á að fá Patrek í sínar raðir. Samkvæmt heimildum hefur spænska stórliðið og núverandi meistarar í Portland San Antonio frá Pamploma bæst í hópinn sem vill Patrek fyrir næsta tímabO. Samningur Patreks við Essen rennur út í vor og mun hann á næstunni setjast niður með for- svarsmönnum Essen og ræða fram- tíð sína við liðið. Vitaö er að Essen vill gera nýjan samning viö Patrek en það skýrist væntanlega á næst- unni hvort hann söðlar um eða leikur áfram i Þýskalandi. -JKS Sport Valur-Afturelding 22-23 0-1, 0-4, S-4, 5-8, 7-12, (10-15), 10-16, 11-18, 13-20, 18-21, 20-22, 22-22, 22-23. Valur: Mörk/viti (skot/víti); Snorri Steinn Guö- jónsson 8/1 (12/1), Markús Máni Maute 8/1 (19/1), Ragnar Ægisson 3 (3), Ásbjöm Stef- ánsson 1 (2), Hjalti Gylfason 1 (1), Freyr Brynjarsson 1 (4), Hjalti Pálmason (6), Þröst- ur Helgason (2). Mörk úr hraóaupphlaupunv 3 (Snorri 3). Vítanýting: Skoraö úr 2 af 2. Fiskud viti: Ragnar, Markús. Varin skot/víti (skot á sig): Roland Valur Eradze 14/2 (37/5, hélt 13, 38%,). Brottvisanir: 14 minútur. Aftureldine: Mörk/víti (skot/viti): Bjarki Sigurösson 5/1 (13/2), Daði Hafþörsson 4 (5), Valgarð Thoroddsen 4/2 (8/3), Sverrir Bjömsson 3 (4), Atli Rúnar Steinþórsson 2 (2), Haukur Sigurvinsson 2 (4), Jón Andri Finnsson 2 (5), Erlendur Egilsson 1 (3). Mörk úr hraóaupphlaupunv 4 (Haukur, Sverrir, Bjarki, Valgarö).) Vitanýting: Skoraö úr 3 af 5. Fiskuó viti: Atli Rúnar 2, Jón Andri 2, Er- lendur). Varin skot/víti (skot á sig): Reynir Þór Reynisson 16 (38/2, hélt 13, 42%). Brottvisanir: 4 mínútur. < Ðómarar (1-10): Guöjðn L. Sigurðs- son og Ólafur Har- aldsson (5) Gœói leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 350. Maður leiksins: Daði Hafþórsson, Aftureldingu. Argentinski landsliðsmaðurinn Ariel Ortega ætlar ekki að dvelja lengi hjá tyrkneska liðinu Fener- bache sem hann gerði fjögurra ára samning við á sl. sumri. Hann hefur engan veginn náð sér á strik hjá lið- inu sem greiddi fyrir leikmanninn um 600 miUjónir. Ortega segir að úr þvi sem komiö er geti hann ekki leng- ur verið í Tyrklandi og hann vilji snúa heim til sins gamla félags í River Plate. Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Múnchen, segir ekkert hæft í sögu- sögnum að hann sé á leiö til Spánar. í augnablikinu hafi hann ekki áhuga og ætli að vera með Bæjara þangað til samningur hans veröi úti vorið 2004. Svo gceti farið að Peter Schmeichel, markvörður Manchester City, verði að leggja skóna á hilluna í vor. Hann hefur átt við meiðsli að stríða í kálfa og gætu þau komiö í veg fyrir að hann léki eitt tímabil til viðbótar á Englandi. Schmeichel er 39 ára gam- aU. Frakkinn David Trezeguet segist ánægður í herbúðum Juventus og í bígerð sé að hann geri nýjan samning við liðið. Áður höfðu fjölmiðlar á ítal- íu sagt frá að Trezeguet vildi fara frá liðinu en hann sló á þær fréttir í gær. -JKS NBA í nótt Philadelphia-Chicago.....119-111 Iverson 36, V. Hom 18, Thomas 17 - Rose 38, Marshall 21, Chandler 21 (17 frák.). Toronto-Atalanta .........97-96 Davis 22, Carter 21, Lenard 13 - Robinson 26, Rahim 24, Terry 14. Cleveland-Minnesota......91-102 Davis 26, Jones 18, Palacio 12 - Gamett 26 (17 frák.), Szczerbiak 18, Gill 16. New York-Golden State . 107-113 Houston 32, Harrington 16, Thomas 13 (11 frák.) - Arenas 25, Richardson 18. Memphis-New Jersey .......97-90 Watson 21, Person 14, Gooden 11, Wright 11 - Kidd 28, Martin 15, Kittles 14. New Orleans-Indiana ......72-83 Mashbum 18, Brown 14, Magloire 13 - Miller 18, R. Miller 17, O’Neal 14. Milwaukee-Dallas .......120-114 Allen 28, Thomas 27, Cassell 15 - Notitzki 27, Nash 26, Finley 25. Denver-LA Lakers........102-113 Howard 22, Tskitishvili 17, Yarbrough 12 - Bryant 51, O’Neal 18, Fox 13. Utah Jazz-Houston .......76-106 Kirilenko 15, Malone 13 - Francis 36, Ming 15, Posey 13, Taylor 13. LA Clippers-Washington . 104-108 Maggette 22, Odom 19 - Jordan 23 (12 stoðs.), Lue 21, Laettner 17 (14 frák.).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.