Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
Hjörvar frá í sumar
Hjörvar Hafliöason, sem varði mark
Valsmanna í 1. deildinni í knattspyrnu
á sl. leiktíö, veröur frá knattspyrnuiðk-
un allt þetta ár. Hjörvar er með slitin
krossbönd og mun gangast undir upp-
skurð á næstunni. Hann verður ekki
klár að nýju fyrr en eftir næstu áramót.
Ólafur Þór Gunnarsson, fyrrum
Skagamaður, gekk í raðir Vals á
dögunum og stendur hann á milli
stanganna í úrvalsdeildinni í sumar.
-JKS
HK-Fram 40-39
1-0, 6-6, 10-14, (15-16). 15-18, 21-21, 28-24,
29-29. 30-29, (31-30). 32-30, 34-32, 34-34.
34-86, 37-30, 40-39.
HK;
Mörk/viti (skot/víti): Jaliesky Garcia 11/1
(21/2), Ólaftir Víöir Ólafsson 8/1 (15/1), Már
Þórarinsson 6 (8), Samúel Árnason 6 (9), Al-
exander Arnarson 5 (6), Vilhelm G. Berg-
sveinsson 2 (4), Atli Samúlsson 2 (7).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 10 (Samúel 3,
Már 3, Alexander 2, Atli, Vilhelm).
Vitanýting: Skoraö úr 2 af 3.
Fiskuö viti: Alexander 2, Atli.
Varin skot/víti (skot á sig): Björgvin
Gústavsson 3 (17/1, hélt 2, 27%,), Arnar
Freyr Reynisson 15 (40/1, hélt 5, 35%)
Brottvisanir: 16 mínútur.
Dómarar (1-10):
Hlynur Leifsson og
Anton Gylfi Páls-
son (8).
GϚi leiks
(1-10): 9.
Áhorfendur: 750.
Maöur leiksins:
Alexander Arnarson, HK.
Fram:
Mörk/viti (skot/viti): Hjálmar Vilhjálms-
son 10 (16), Valdimar Þórsson 8 (18), Þorri
Bjöm Gunnarsson 6 (7), Héöinn Gilsson 5/1
(9/1), Björgvin Björgvinsson 4 (6), Guöjón
Drengsson 4/1 (6/2), Haraldur Þorvaröarson
2(2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 6 (Haraldur
2, Björgvin 2, Valdimar 2, Guöjón, Þorri)
Vítanýting: Skoraö úr 2 af 3.
Fiskuö viti: Þorri 2, Valdimar.
Varin skot/viti (skot á sig): Sebastian Al-
exandersson 22 (61/2, hélt 7, 35%), Magnús
Gunnar Erlendsson 1 (4, hélt, 25%)
Brottvisanir: 14 mínútur, Björgvin rautt.
Sigurður frá
í 4-6 vikur?
Sigurður Bjamason, landsliðs-
maður í handknattleik og leik-
maður þýska liðsins Wetzlar,
meiddist á æfingu með liðinu í
fyrrakvöld og er óttast að liðþófl
í hné hafi rifnað. Ef það reynist
niðurstaðan verður Sigurður frá
keppni í 4-6 vikur. Um er að
ræða sama hnéð og Sigurður
meiddist á í heimsmeistara-
keppninni en hann sagðist í sam-
tali við DV hafa verið búinn að
ná sér alveg þegar þetta gerðist
nú.
„Það er ömurlegt að lenda í
þessu en ég get ekki stigið í löpp-
ina. Ég fæ endanlega niðurstöðu
um það hvað gerðist í raun þeg-
ar ég fer í speglun í dag. Ég ætla
rétt að vona að krossbandið hafi
haldið en liðið má varla við því
að fleiri leikmenn lendi á sjúkra-
lista. Ástandið í þeim efnum er
ískyggOegt en 4-5 lykilmenn eru
frá þessa dagana. Liðið á erfiða
baráttu fram undan og stefnan
úr þessu er að liðið haldi sæti
sínu í deildinni," sagði Siguröur
Bjamason i samtali við DV.
-JKS
Kiel vann Essen
Kiel vann Essen, 34-27, í
þýsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik í gærkvöld. Stefan
Lövgren skoraði 7 mörk fyrir Ki-
el en Dimtri Torgawanov skor-
aði 8 mörk fyrir Essen. Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði 2
mörk fyrir Essen en Patrekur
Jóhannesson var ekki meðal
markaskorara.
Olsson hættir hjá Kiel
Svíinn Staffan Olsson gaf þá
yfirlýsingu út í gær að hann
myndi hætta að leika með Kiel í
vor og halda heim til Svíþjóðar
í 8-liða úrslitum þýsku bikar-
keppninnar sigraöi Göppingen 2.
deildarliðið TuS Spenge, 37-25,
Wallau Massenheim sigraði
Gummersbach, 33-31. Sigurliðin
eru komin í undanúrslit.
Framarinn Valdimar Þórsson sækir að Jelisky Garcia í leik liöanna í Digranesi í gærkvöld. Hátt í átta hundruð áhorfendur voru á leiknum.
DV-mynd Sigurður Jökull
- HK í úrslit bikarsins eftir tvíframlengdan leik við Fram í Digranesi
Þeir gerast ekki flottari leikimir
en sá sem leikmenn HK og Fram
buðu upp á í Digranesinu í gær-
kvöld. Þá tryggðu Kópavogspiltar
sér sæti í úrslitaleik bikarkeppn-
innar í handbolta eftir hreint magn-
aðan og tvíframlengdan leik Þetta
verður annar bikarúrslitaleikur HK
en fyrir tveimur árum beið það
lægri hlut fyrir Haukum en þetta
lið nú er talsvert sterkara en þá og
möguleikar þess á fyrsta stóra titlin-
um em því góðir.
Fram undir miðjan fyrri hálfleik
var jafnræði með fiðunum en þá
tóku gestimir góðan kipp og náðu
mest fjögurra marka forskoti, 10-14.
Þeir spiluðu hratt og ákveðið en
voru frekar miklir klaufar að fara
ekki með meira forskot til leikhlés-
ins en þá munaði aðeins einu
marki, 15-16. Framarar héldu svo
frumkvæðinu framan af síðari hálf-
leik en heimamenn voru aldrei
langt undan. Þeir náöu svo að jafna
og komust yfir á 13. mínútu hálf-
leiksins og þremur mínútum
seinna var forskot þeirra orðið þrjú
mörk. Allt stefndi svo í öruggan sig-
ur HK en á síðustu tíu minútum
venjulegs leiktíma skoruðu Framar-
ar funm mörk í röð og komust yfir,
28-29. Már Þórarinsson jafnaði þeg-
ar ein mínúta var eftir og
Framarar nýttu lokamínútuna illa
og framlenging því staðreynd. í
fyrri framlengingunni virtust
heimamenn hafa þetta í hendi sér
og voru tveimur mörkum yflr,
34-32, þegar rúmlega ein mínúta var
eftir. Framarar neituðu að gefa eftir
og Héöinn Gilsson jafnaði eftir
aukakast þremur sekúndum fyrir
lok framlengingarinnar.
Framarar voru síðan í nánast
svipaðri stöðu í seinni framlenging-
unni og HK var í þeirri fyrri; voru
tveimur mörkum yfir þegar rúm-
lega tvær mínútur voru eftir og ein-
um manni fleiri. Þá sýndu feikmenn
HK hvað í þeim býr og þeir jöfnuðu
mínútu síðar. Framarar fengu svo
kjörið færi til að komast yfir en
taugaspennan fór illa með þá og HK
héft í fokasóknina. Tveimur sekúnd-
um fyrir leikslok skoraði siðan Al-
exander Arnarson sigurmarkið af
miklu harðfylgi inni á línunni eftir
að hafa fengið frábæra sendingu ffá
Ólafi Viði Ólafssyni. Þar með lauk
frábærri skemmtun sem bæði lið
mega vera stolt af.
Framarar voru að vonum hnípn-
ir eftir þessa niðurstöðu, þeir voru
með þetta í hendi en hélst ekki á;
þeir geta þó borið höfuð hátt.
Sebastian Alexandersson var góður
í markinu og Þorri Björn Gunnars-
son og Valdimar Þórsson voru
drjúgir. Liðsheild Framara var góð
en bestur þeirra var þó Hjálmar Vil-
hjálmsson og hann hélt á tímabili
sínum mönnum inni í leiknum upp
á sitt eindæmi og mörg marka hans
voru virkilega glæsileg. Jaliesky
Garcia lék vel hjá HK þrátt fyrir
stranga gæslu og þeir Már Þórar-
insson og Samúel Ámason voru
sprækir í homunum. Amar Freyr
Reynisson var ágætur í markinu og
Ólafur Víðir Ólafsson sýndi á köfl-
um frábæra takta. Liðsheifd HK
var frábær og þar fór fremstur í
flokki baráttuhundurinn Afexander
Amarson og hann kórónaði góðan
leik með sigurmarki.
Ámi Jakob Stefánsson, þjálfari
HK, var rétt í þann mund sem
blaðamaður náði tali af honum að
koma ofan úr sjöunda himni:
Banhungraöir
„Þessi bikarsaga okkar þetta
tímabilið er ævintýri líkust, sigur-
inn á móti ÍR í síðustu umferð var
ótrúlegur og svo þessi magnaði
leikur. Staðan var orðin slæm hjá
okkur alveg í restina en viljinn í
þessum strákum er bara svo rosa-
legur eins og lokakaflinn sannaði.
Bikarúrslitaleikurinn er stærsti
leikurinn á tímabilinu og ég fór í
hann fjögur ár í röð með KA og veit
að það er ótrúlega skemmtilegt og
ekki verður síðra að fara með þessa
stráka í Höllina. Við fórum ban-
hungraðir í bikarúrslitaleikinn og
það kemur ekkert annað til greina
en að hirða bikarinn. Ég vil þakka
Frömurum fyrir frábæran leik og
hrósa þeim fyrir baráttuna," sagði
nánast raddlaus Ámi. -SMS
Alexander Arnarson:
Þakka áhorfendum
stuðninginn
Alexander Arnarson var enn í
sigurvímu, sem vonlegt var, þegar
DV-Sport ræddi við hann rétt eft-
ir leik:
„Nú veit ég hvemig Samma leið
þegar hann skoraði sigurmarkið
á móti ÍR í bráðabana í síðustu
umferð. Við vorum ábyggilega
svolítið heppnir í restina, einum
færri og tveimur mörkum undir,
en þetta sýnir bara hvað barátt-
an, trúin og samheldnin getur
komið manni langt. í leikjum
bökkuðum við hver annan enda-
laust upp og á æfingum rífumst
við eins og hundar. Ég vil endi-
lega þakka áhorfendum rosalegan
stuðning og vonast til að þeir íjöl-
menni í Höllina þamæstu helgi og
styðji okkur alla leið,“ sagði hetj-
an Alexander.
-SMS