Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.2003, Side 25
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003
DV
25
Tilvera '
lífiö
E F T I R V I N N U
Gay-Lord á Spotlight
DJ Gay-Lord er með diskó allt
kvöldið á Spotlight í kvöld. Opið kl.
21-1.
Klúbbakvöld á Astró
Ný klúbbakvöld hefja göngu sína
á Astró í kvöld, tileinkuð
drum’n’bass. Plötusnúðar kvöldins
eru Tryggvi, Bjöggi og Gunni auk
Junglizt og VDE-066 sem flytja lif-
andi tónlist. Kvöldið hefst kl. 21 og
stendur yfir til 1 eftir miðnætti.
Miðaverð er aðeins 300 kr. og 500
kr. eftir kl. 11.
Grænlensk list og listiðnaður
í anddyri Norræna hússins verð-
ur í dag opnuð sýning á verkum
grænlenska listamannsins Thue
Christiansen.
Alþjóðlegur uppistandklúbbur
Fyrsta alþjóðlega uppistand-
klúbbnum á íslandi, Rosalegt uppi-
stand, verður hleypt af stokkunum í
Sportkaffi dagana 13., 14. og 15. febr-
úar. Fyrstu gestimir verða írinn
David O Doherty og Nýsjálendingur-
inn Rhys Darby.
Burt með Kidda
Kiddi Kanína í Hljómalind verður
kvaddur á Gauk á Stöng í kvöld.
Meðal þeirra sem fram koma eru:
KK, Eivör Pálsdóttir, Dr. Gunni,
Bubbi og Stríð & Friður, Brain
Police, OK-G (Guðlaugur Kristinn
Óttarsson), Rúnar Júlíusson og
Gálgar frá Keflavík, Maus og DJ
Andrea Jónsdóttir. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21.
Stallone í þriðju
myndinni um
njósnakrakkana
HFyrir tiltölulega
litla peninga á
Hollywood-skalanum
hefur mexíkóski
leikstjórinn Robert
Rodriguez gert tvær
Spy Kids-myndir
sem hafa náð vin-
sældum og halað
inn dollara fyrir Rodriguez og fleiri.
Það er sjálfsagt að mjólka kúna með-
an hún gefur eitthvað af sér og nú er
ailt komið á fuilt í gerð Spy Kid 3:
Game Over sem að sögn á að vera
lokakaflinn. Sömu leikarar með Ant-
onio Banderas í broddi fylkingar
leika aðalhlutverkin. í fýrri myndun-
um tveimur voru það Alan Cumming
pg Steve Buscemi sem léku þijótana.
í þriðju myndinni er það enginn ann-
ar en Sylvester Stallone sem leikur
þijótinn Toymaker sem fjölskyldan
frækna þekkir frá fornu fari.
Steve Coogan
leikur Phileas Fogg
Þá er búið að
ákveða hver leikur
Phileas Fogg í end-
urgerð Around the
World in 80 Days.
Breski leikarinn
Steve Coogan hefur
orðið fyrir valinu.
Nokkuð er síðan
Jackie Chan var ráðinn í hlutverk
samferðamanns hans, Passepartou. í
fyrri útgáfu myndarinnar, sem hlaut
óskarsverðlaunin sem besta kvik-
myndin árið 1956, voru það David
Niven og Cantinflas sem léku þessi
hlutverk. Coogan var, þar til hann
lék eftirminnilega aðalhlutverkiö í 24
Hour Party People, einn þekktasti
grínisti Breta. Umhverfis jörðina á 80
dögum er gerð eftir skáldsögu Jules
Vemes þar sem breskur aðalsmaður
seint á nítjándu öld veðjar um að
hann komist hringinn í kringum
jörðina á 80 dögum. Áætlað er að
myndin kosti 100 milljón dollara.
Bíófrumsýningar:
Einstæðingur, fasteignasali,
njósnarar og skrýtinn karl
Bíogagnrýní
Njósnaleikur
Smárabíó/Regnboginn - I Spy ★★i
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyn dir.
Þá er búið að birta tilnefhingar til
óskarsverðlauna og meðal þeirra
kvikmynda sem fá tiinefningar er
About Schmidt sem frumsýnd verður
á morgun. Það eru gæðaleikaramir
Jack Nicholson og Kathy Bates sem
fá tilnefhingar fyrir leik sinn í mynd-
inni. Aðrar kvikmyndir, sem sýning-
ar hefjast á á morgun, em hver úr
sinni áttinni, Kalli á þakinu er sænsk
teiknimynd, byggð á sögu eftir Astrid
Lindgren. Ballistic: Ecks vs. Sever er
harðsnúin njósnamynd og Two
Weeks Notice er rómantísk gaman-
mynd þar sem Hugh Grant leikur
draumaprinsinn, einu sinni enn.
About Schmidt
Það er jafnan viðburður þegar stór-
leikarinn Jack Nicholson kemur
fram í nýrri mynd en hann fer með
titilhlutverkið í About Schmidt.
Myndin er byggð á samnefndri skáld-
sögu Louis Begley um Warren
Schmidt, ósköp hversdagslegan
mann sem lendir á skömmum tíma í
ótrúlegu mótlæti. Til að byrja með er
hann að ljúka starfsævinni sem
tryggingafræðingur og veit ekki hvað
hann á af sér að gera. Augasteinninn
hans, einkadóttirin Jeannie (Hope
Davis), er um það bil að giftast
Randall, náunga sem Schmidt hefur
óbeit á. Þar með er ekki öll sagan
sögð því kona hans fellur skyndilega
frá eftir 42 ára hjónaband. Orðinn
einstæðingur, án eiginkonu, fjöl-
skyldu og starfs, heldur Schmidt i ör-
væntingarfuila leit að fyllingu í sitt
sviplausa líf.
Leikstjórinn Alexander Payne
hlaut mikið lof fyrir Election. Hann
skrifar einnig handritið í félagi við
Jim Taylor.
Kalli á þakinu
Það er ekki auðvelt að vera litill
strákur og eiga vin sem enginn trúir
að sé tii í raun og veru. Það fær Brói
litli að reyna þegar hann kynnist
Kalla á þakinu, skrýtnum karli sem á
About Schmidt
Jack Nicolson leikur hinn 66 ára
gamla Warren Schmidt.
Hún er frábær lögfræðingur og er án
efa einn besti hugsuður fyrirtækis-
ins. Vandamálin eru að hún hefur
magasár og sefur lítið. En þaö er ekki
vinnan sem fer svona í hana heldur
er það miiljónamæringurinn, yfir-
maður hennar, George Wade, sem
veldur þessum veikindum hennar.
Hann er aðlaðandi og myndarlegur
en einnig mjög upptekinn af sjáifum
sér og hann fer með Lucy eins og hún
sé bamfóstra, ekki lögfiræðingur, og
getur hann varla látið á sig bindi án
hennar hjálpar.
Kalli á þakinu
Kalli er skrýtinn kari sem á hús uppi á þaki og er meö þyrluspaöa á bakinu.
þeirra sem ljá raddir sínar eru Jó-
hann Páll Jóhannsson, Atli Rafh Sig-
urðsson, Sigurður Sigurjónsson, Jó-
hanna Jónas, Steinn Ármann Magn-
ússon, Davíð Þór Jóns-
son, Guðfinna Rúnars-
dóttir og Jóhanna
Vigdís Amar-
dóttir.
Ballistic: Ecks vs. Sever
Antonio Banderas og Lucy Liu em
í aðalhlutverkum í spennumyndinni,
Ballistic: Ecks vs Sever. Þegar það
kvisast út að nýtt fuUkomiö morð-
vopn sé komið á markaðinn, morð-
vopn sem er nánast ósýnilegt og drep-
ur þegar morðingjanum hentar, er
ljóst að það þarf að gera það óvirkt.
Aðeins tveir njósnarar teljast hæfir
til að leiða leiða þetta verkefni til
lykta. Annar njósnarinn hefur
dulnefnið Sever. Engin veit
hver þessi njósnari er ann-
að en hann er kona. Hinn
njósnarinn er Ecks, fýrr-
um FBI-maður sem hefur
sest í helgan stein. Það
er ljóst að það þarf að fá
þau til að starfa saman
en það getur reynst
erfitt því að þau hata
hvort annað. -HK
Ballistic: Ecks vs. Sever
Antonio Banderas og Lucy Liu leika
ofurnjósnara.
hús uppi á þaki og er með þyrluspaða
á bakinu svo hann getur flogið um
eins og fugl. En
svo gerast ósköp-
in. Einhver kemur
auga á Kaila á
flugi og stórfe er
heitið þeim sem
getur upplýst ráð-
gátuna um þennan
dularfulla, fljúg-
andi furðuhlut.
Þegar tveir
skuggalegir ná-
ungar, sem svífast
einskis til að kom-
ast yfir verðlauna-
féð, bijótast inn til
Bróa til að hand-
sama Kalla eru
góð ráð dýr. En
Kalli á þakinu hefur reyndar ráð
undir rifi hveiju.
Kalli á þakinu er teiknimynd og
byggð á bók eftir Astrid Lindgren. ís-
lenskt tal er við myndina og meðal
Two
Weeks
Notice
Two Weeks
Notice skartar
tveimur af
helstu kvikmynda-
stjömum nútímans,
Hugh Grant og Söndru
Bullock. Builock leikur
Lucy Kelson, ráðgjafa hjá
einu stærsta fasteignaverk-
takafyrirtæki New York.
Two Weeks Notice
Hugh Grant leikur milljaröamæring og
kvennagull og Sandra Bullock leikur lög-
fræöing sem er aö fara á taugum vegna
vinnuálags fyrir hann.
Owen Wilson leikur Alexander
Scott, njósnara sem er enginn
James Bond, svo ekki sé meira sagt,
og lifir sínu njósnaralífi í stöðugri
minnimáttarkennd gagnvart
súpernjósnaranum Carlosi (Gary
Cole). Sá skilur ekki bara við konur
algjörlega fullnægöar heldur fær
líka alltaf flottustu græjumar á sín-
um njósnaferðum: minnstu mynda-
vélarnar, öflugustu sprengjumar og
hátæknihlerunarbúnað. En þegar
fyrstu ósýnilegu orrustuflugvélinni
er rænt aif alþjóðlega vopnasalanum
Gundars (McDowell) er það Scott
sem er sendur til Ungverjalands þar
sem Gundars er að bjóða flugvélina
til kaups - Carlos er orðinn svo
heimsfrægur spæjari að það er ekki
hægt að nota hann í neitt nema for-
síðufréttir með forsetanum. Til að
Gundars fatti ekki að Scott er njósn-
ari fer hann sem aðstoðarmaður
boxarans Kellys Robinsons
(Murphy) sem ætlar að verja titil
sinn í Búdapest. Kelly er nefnilega
heimsmeistari í boxi - og monti ef
Hnefalelkakapplnn og njósnarinn
Eddie Murphy hefur ekki veriö
skemmtilegri í mörg ár.
það væri keppt í því. Þeim félögum
kemur að sjálfsögðu illa saman og
þrasa mikið og deila. Enda gengur
allt á afturfótunum, ekki síst vegna
þess að Scott er skotinn í öðrum am-
erískum njósnara, Rachel (Famke
Janssen) sem eitt sinn hét Onatopp
og var andstæðingur Bond, þannig
að allt stefnir í óefni.
I Spy á að vera blanda af húmor
og spennu og annar þessara þátta
gengur algjörlega upp en hinn alls
ekki. I Spy er óneitanlega fyndin
mynd og Eddie Murphy hefur ekki
verið svona skemmtilegur í mörg
ár. Það er helst að aðfarir hans
minni mann á eina bestu persónu
hans, Alex Foley í Beverly Hills
Cop. Hann er jafn pirrandi og hann
er sjarmerandi sem hinn ofursjáifs-
ánægði boxari Robinson sem hefur
unnið 57 hnefaleikasigra í röð og
þrisvar sinnum fleiri kvenmanns-
hjörtu. Owen Wilson er líka sérdeil-
is skemmtilegur í hlutverki Scott
sem er síkvartandi yfir klunnaleg-
um og gamaldags njósnagræjum
sem honum er alltaf úthlutað og
vælandi yfir því að ná ekki í skvís-
una sem hann er skotinn í. Samleik-
ur þeirra félaga er fínn, Wilson leyf-
ir Murphy að njóta sín sem aðal-
grínarinn en á samt nokkur nett at-
riði sjálfur og Cyrano de Bergerac-
atriðið, þar sem Robinson hjálpar
Scott að reyna við stelpu með því að
hvísla að honum textanum við
gamla lagið hans Marvins Gaye,
Sexual healing, er eitt og sjáift ferö-
arinnar virði.
Vandræðin byrja þegar myndinni
er ætlað að færa sig úr fyndninni
yfir í spennuna því þótt leikstjórinn
Betty Thomas hafi greinilega eyru
og augu fyrir húmor þá eru spennu-
atriðin algjörlega laus við - ja,
spennu. Enda er plottið ómögulegt
og maður bíður óþreyjufullur eftir
því að bílaeltingarleikjunum og
byssubardögunum ljúki svo maður
geti farið að flissa áftur. Því maður
flissar svo sannarlega.
Leikstjóri: Betty Thomas. Handrit: M.
Wibberley, C. Wibberley, D. Ronn og J.
Scherick. Kvikmyndataka: Oliver Wood.
Tónlist: Richard Gibbs. Aöalleikarar: Eddie
Murphy, Owen Wilson, Famke Janssen,
Malcolm McDowell og Gary Cole.
At