Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2003, Blaðsíða 2
oru hvor? Það var meiriháttar stemningá Gauknum um helgina og spilaði írafár fyrir fullu húsi. Guðjón Vff ilfell mætti og var hress að vanda, Erling FM var kátur og Sif svakalega var tvö- föld, Jói Hjöll mætti ásamt Jenna og Frikka, Hannes Góu fflaði Lisu Loud og Rut litla var með vinkonuhópinn á trúnó. Inga Djamm.is var vel hress og Daði Mix var til friðs. John Glaumur og Atli litli sáust og Óli Amster skimaði staðinn, Magni Á móti sól drakk Sigga Hólm undir borð og Silli var góðurvið litla bróður. Miss Moneypenny lét sjá sig, Hanni vildi í pool en fékk ekki leyfi og fór heim eins og sumir kl. 8.00 Hverfisbarinn var fullur líkt og við- skiptavinirnir alla helgina. Með nærveru sinni heiðruðu meðal annars: Andri Már eigandi Heimsferða, Nonni í Landi 6 son- um, Sammi Jagúar, Landsíma Þóráfe, fvar Guðmunds af Bylgjunni, Kristinn B lög- fræðingur X-D, Nanna í Decode, Sissy Ár- mann, Ragnar Jónasar frá Kaupþingi auk þess sem staðurinn fylltist á laugardags- kvöldinu af módelum frá Playboy-blaðinu sem voru í helgardjammferð á íslandi. Norræna kvikmyndahátfðin í Háskólabfói tókst mjög vel og fóru margir sjokkeraðir út af sænsku kvikmyndinni Lilja 4-ever. Þeir sem lögðu leið sína á hátíðina voru m.a Brynja leikona, Tamas Lenraríiitis betur þekktur sem Nói Albinói, Gínar Vaidirnarshjá Kom °g rapparinn Erpur Eyvindar sem varð að eigin sögn að Ifta nokkrum sinnum undan á meðan á sýningunni stóð. í stórborginni London hópuðu fslending- ar sig saman um sfðustu helgi eins og oft vill gerast á erlendri grundu. Á föstudagskvöld- inu mátti sjá til hóps á japönskum veitinga- stað við Tottenham Court Road. Hópurinn lagði undir sig efri hæðina sem var búin karaókfvél og skemmti sér við söng og drykkju frameftir nóttu. Þarna mátti sjá Rebekku Jónsdóttur og Kristfnu Laufeyju Guðjónsdóttur viðskiptafræðinema, tvo fjármálaspekinga sem heita Kári, sálfræði- nemann Jónfnu, Hildi, Eyrúnu líffræðinema, Tóta kennara, íslandsvininn Bob Emerson og marga fleiri. Á laugardagskvöldinu sást svo til hóps Islendinga á bar íAustur-London og þar hafði bæst í hópinn fjármálaneminn Páll úr Hafnarfirði. Á sama bar sást Francis Jeffers knattspyrnumaður í Arsenal sem blandaði ekki geði við Islendingana. Á sunnudeginum gátu áhugasamir svo barið Liam GaUagher, söngvara Oasis, augum á gangi á Carnaby stræti í miðborginni. StendurþlJ fyrir O einhverjuf s(:ho'ij okkur u|>pIysin(>o:r' fokusðfokus■is Það er alltaf nóg að gerast hjá plötusnúðnum og hústónlistar- manninum Tomma White. Eins og Fókus hefur greint frá hefur Tommi vakið athygli fyrir tónlist sína erlendis og nú hefur hann endurvakið gamalt útgáfufyrirtæki. Stórir hlutir eru í fæðingu og í lok mánaðarins heldur fyrirtækið kynningarpartý í New York. flllt á vínyl „Við verðum ekki eingöngu með ís- lenska listamenn á okkar snærum, við viljum bara þá sem eru að gera góða tónlist og teljum okkur þegar vera komna með góðan hóp,“ segir Tommi White um út- gáfufyrirtækið New Icon Records sem ný- lega var sett á stofn. Fyrirtækið byggir reyndar á gömlum grunni þvf Tommi og félagar hans stofhuðu útgáfufyrirtæki árið 1996 sem fljótlega lagði upp laupana. Hucmyndin að HJÁLPA LISTAMÖNNUNUM „Við vorum bara ungir strákar þegar við byrjuðum ‘96 og gáfum út fjórar plötur á fyrirtækinu sem hét þá Icon Records. Þetta voru reyndar dúndurplötur en fyrir- tækið leystist fljótlega upp og við hættum þessu,“ segir Tommi sem hefur verið á fullu í bransanum síðan þá og telur eðlilegt að hann taki upp þráðinn aftur. Hann hef- ur átt í góðu samstarfi við Lewis Copeland úti í London sem hefur séð um hans mál þar og segir Tommi hann hafa hjálpað til með fyrirtækið. Fyrsta platan hjá nýja út- gáfufyrirtækinu kom út á síðasta ári og önnur er væntanleg á næstunni. Á henni er að finna tónlist Aron Carl ffá Detroit auk Tomma sjálfs og af þessu tilefni held- ur fyrirtækið útgáfúpartí í New York í lok mánaðarins. „Hugmyndin er aðallega að hjálpa lista- mönnunum þó ég sé alls ekki að fara að tapa á þessu,“ segir Tommi en aðrir lista- menn hjá New Icon eru þeir Blake (Magnús Jónsson sem var í GusGus) og Ilo (Ólafúr Breiðfjörð). Styrktartónleikar á Grandrokk í KVÖLD Hvemig tekur svo Kaninn í það sem þið eruð að geral „Mjög vel, það er mikil spenningur fyr- ir því sem við erum að gera og mikið fylgst með út af þessu partýi.“ Afhverju Bandaríkin, afhverju ekki Bret- land eða eitthvað annað land? „Það er stór markaður fyrir það sem við erum að gera í Bandaríkjunum. Bretamir eru meiri tækifærissinnar því þeir ein- blína á það sem er í gangi hverju sinni. Ég vil frekar gefa út góða tónlist sem skiptir ekki máli hvenær kemur út heldur en einblína á einhverja tískustrauma.“ Gefið þið út á diskum eða vínyl? „Þetta er allt á vtnyl hjá okkur. V6 stefhum reyndar að því gefa alltaf út einn disk fyrir jólin héma heima með því helsta sem hefur verið í gangi á árinu hjá okkur. fslendingar verða að fá að heyra þetta líka og þeir fá einhvem góðan pakka.“ Fyrsta New Icon-kvöldið verður svo haldið á Grand Rokk í kvöld og þar koma fram helstu listamennimir sem tengjast útgáfufyrirtækinu en Tommi segir að stefht sé að því að verða með tvo til þrjú slík kvöld hér á hverju ári. „Þetta em nokkurs konar styrktartón- leikar fyrir okkur svo við komumst út. Vð emm fimm sem emm að fara og aðgangs- eyririnn fer allur í ferðasjóð.11 Tomtni White var að stofna útgáfufyrir- tækið New lcon Records og fagnar því á Grand Rokk í kvöld með lista- mönnum sem fyrir- tækíð gefur út. Forsíðumyndina TÓK Teitur af Elísu Arnardóttur rir norðan... upplifðu það! FfmðnrPfivl C3A.RÖEW Ævintýraland árshátíðanna! BPOfíTf'Bmmm Akureyri - Mývatn f ó k u s 2 II. október 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.