Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2003, Side 12
Annan veturinn í röð stendur hún á nærfötunum einum fata og syngur með sinni saklausu röddu um ríðingar og holdlega ást. Fókus kynnir hina aldeilis ófeimnu Elísu Arnardóttur. fl korseletti fyrir framan mömmu og pabba „Það er helst afi sem er ósáttur við þetta, öðrum ættingjum finnst bara gaman að þessu og styðja mig í þessu,“ segir hin 17 ára gamla Elísa Amardóttir sem sprangar um á nærfötum og korseletti í uppfærslu Fjölbrautaskólans í Garðabæ á Rocky Horror. Elísa er orðin nokk- uð sjóuð í því að standa klæðlítil uppi á sviði því í fyrra tók hún þátt í uppfærslu Fjölbrautaskóla Suður- lands á sama leikriti. Að þessu sinni fer hún með hlutverk Janet en í fyrra lék hún Kolubíu. „Það er mikill munur á þessum tveimur sýningum. Það er miklu meiri fagmennska í sýningunni hjá FG en FSU og mun meira lagt í sýninguna í heild sinni.“ Meiri klíka í FC Elísa, sem er fædd og uppalin á Hellu, hefúr verið aktív í Leikfélagi Rangæinga og m.a. tekið þátt í þeirra úrfærslum á Hárinu og Greese. Það var í haust sem hún flutti í bæinn, tilbreytingarinnar vegna, en hún býr um þessar mundir hjá afa sínum og ömmu í Garðabæ. „Mesti munurinn á FG og FSU er kennslan og klíkuskapurinn. Það er allt miklu frjálslegra í FSU, mun meiri klíkuskapur í FG en kennsl- an þar er skipuíagðri. Báðir skólarn- ir hafa sína kosti og galla,“ segir El- ísa sem sér þó ekki eftir að hafa skipt um skóla. Helgunum segist hún helst eyða í foreldrahúsum á Hellu enda viðurkennir hún að hún sé svo mikil sveitastelpa að hún kunni best við sig í rólegheit- um fyrir utan borgina. SVÆSIÐ FRUMSÝNINGARPARTÍ - En er ekkert mál að standa uppi á sviði og syngja á nærfötunum ein- um fata? „Eg er nú komin með reynslu í þvf frá því í fyrra en auðvitað verð- ur maður að hafa gott sjálfsállit til þess að þora því. Ég segi ekki að það hafi verið auðvelt að standa á kor- seletti fyrir framan mömmu og pabba í fyrra.“ - Hvemig hafa eiginlega æ/ingam- ar gengið fyrir sig þegar allir eru hálf- naktir? „Flestir í Leikfélagi FG eru á föstu þannig að fólk er ekki mikið að spá í hitt kynið,“ segir Elísa og bætir við að það gildi einnig um sig. 1 fyrra hafi það hins vegar verið öðruvísi í uppfærslu FSU, þar virð- ist fólk ekki hafa þolað nektina eins vel og máli sínu til stuðnings nefnir hún afdrifaríkt og nokkuð svæsið frumsýningarpartí. „Stelpumar eru alltaf að kvarta yfir búningunum en ég veit að „beauty is pain“,“ segir Elísa og brosir. Ákveðin en saklaus rödd Það er þó ekki bara á sviðinu sem Elfsa hefur þurft að telja í sig kjark. I fyrrasumar var hún t.d. að vinna hjá Holtakjúklingi á Hellu. „Ég var f pökkuninni en ég held að það þurfi frekar sterkar taugar til þess að vera að vinna þarna,“ segir Elísa sem segist þó hafa kunnað vel við sig t starfinu enda kjúklingur eitt- hvað sem hún borðar gjaman. Hvað framtíðina varðar er hún að mestu óráðin. Hana langar til þess að taka einkaþjálfann að loknu stúdentsprófi, Leiklistarskólinn kitlar einnig sem og kennarinn og jafnvel söngnám. „Ég myndi segja að rödd mín hljómi frekar saklaus en ég get samt verið mjög ákveðin," segir Elísa að lokum. f ó k u s Fókusmynd: Teitur Fördun: Katla Hreiðarsdóttir 12 14. mars 2003

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.