Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2003, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2003, Page 13
Verslunin Oasis í Kringlunni hélt tískusýningu í Smáralindinni um síðustu helgi í tengslum við brúðkaupssýningu sem þar fór fram. Ljósmyndari Fókuss mætti á svæðið og smellti af myndum af vorvörum verslunarinnar. Hlýralausir toppar og vfðar buxur Samfest- ingarnir sjást aftur í sumar. Þessi er úr glansandi teygjuefni og kostar 12.990 kr. iGull og brons eru kjörnir litir i brúðkaupin í sumar. Pallfettutopp ur kr. 6.900, buxur kr. 7.900. Pastellitirnir dúkka enn á ný upp þetta vorið. Pastelbleikur kjóll á kr. 12.990. Hvítt er sumar- liturinn f ár eins og svo oft áður. Hördragt kr. 20.980. Skásniðin halda sér í pilsum og toppum. „Sumartoppamir eru hlýralausir þvertoppar með skásniði að neðan og gjaman rykktir í hliðun- um.“ segir verslunarstjór- inn Ingibjörg. Einhverj- um stelpum er líklega enn í fersku minni toppar síðasta sumars, sem voru gjaman með eina öxlina bera. Slík snið sjást hins vegar ekki lengur né heldur „boots-cut" á buxum sem einnig heyrir tískusögu síðasta árs til. „Buxumar núna eru vfðar en þröngar Quart- buxumar koma einnig sterkar inn. Það má segja að her- mannaþemað haldi sér en í stað hins hermannagræna litar er litaúrvalið orðið breiðara og efn- isvalið einnig,“ upplýsir Ingi- björg. Fyrir utan hina klassísku ljósu sumarliti, hvítt og beis, em neonskærir litir einnig áberandi í Oasis eins og svo víða annars staðar, sem og pastellitir. Gull og brons er einnig áberandi í fínni fatnað- inum en slíkir litir eru einmitt kjömir í brúðkaup. „Mínipilsin em tískusíddin úti en ég veit ekki hversu vel þau munu ná til íslenskra kvenna. Þær sem þora að láta sjá sig í þeim geta ver- ið f gammosíum og berfættar í skónum við,“ segir Ingibjörg og bendir um leið á að hnésíð pils séu annars cinnig vel gjaldgeng í sumar. Gallabuxur og gallapils, sem allir urðu að eiga síðasta sumar, víkja fyrir bux- um í æpandi litum og efnin f „djammholun- um“ fara úr glansandi gerviefnum yfir í bómull. „Stelpurnar hafa bara verið að taka venjulega bómullar- boli á djammið enda þeir í svo skemmti- lega skærum litum í sumar og gaman að vera t.d. í tveim lit- um, öðrum yfir hinn,“ segir Ingibjörg að lok- um. [ Sumartopp- arnir eru hlýralausir þvertoppar með skásniði að neðan og gjarnan rykktir í hlið- unum eða þá með japönsku sniði. Isaumur eins og sést á þessum topp þykir alltaf sumarlegur. Toppurinn kostar 5.900 kr. og buxurnar 7.900 kr. Pokabuxur eins og þessar eru málið í sumar. Gallabuxur með „bootscut“ sem voru vinsælar f fyrrasumar mega liggja áfram inni í skáp. Buxurnar kosta 7.900 kr. — 14. mars 2003 f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.