Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003
Fréttir
Málflutningur í máli dagföðurins fór fram í Hæstarétti í gær:
Verjandi telur læknisfræði-
legan vafa á dánarorsök
Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagöi
í máiflutningi sínum fyrir Hæstarétti
í gær aö mikið álag á dagfóöur um-
ræddan dag hefði leitt til þess að
hann heföi hrist litla drenginn með
þeim skelfilegu afleiðingum aö hann
lést á spítala tveimur dögum síðar.
Skoðun lækna og réttarmeinafræð-
ings hefði leitt í ljós að um svokölluð
„shaken baby“ heilkenni hefði verið
að ræöa og að drengurinn hefði ver:
ið hristur og höfði hans slegið til.
Sérfræðingar hefðu útilokað aðrar
dánarorsakir, eins og bamaskyrbjúg,
ofnæmi, bólusetningu, flogaveiki
móður eða meltingarfærasýkingu
eins og verjandi mannsins hefði
haldið fram.
Sýndi eðlilega hegðun
Samkvæmt áliti sérfræöinga
leiddu áverkar drengsins hann til
dauða á tveimur sólarhringum eða
skemur og því taldi ríkissaksóknari
að enginn annar en dagfaðir hefði
getað valdið dauða hans. Útilokað
væri að drengurinn hefði getað sýnt
eðlilega hegðun eins og að borða,
drekka og leika sér eftir að hann var
hristur þar sem
böm misstu
meövitund nán-
ast strax við slík-
Hæstiréttur i
Ríkissaksóknari taldi útilokaö aö einhver annar en dagfaöir heföi getaö valdiö dauöa drengsins.
DV-MYNDIR GVA
an hristing. Drengurinn hefði verið
hress þegar hann kom í dagvistunina
um morguninn og að allt hefði verið
með eðlilegum hætti til klukkan tvö
um daginn. Þá hefði dagfaðirinn far-
ið með hann út í bílskúr og lagt hann
í vagninn. Hefði hann verið u.þ.b.
tvær til þrjár mínútur í bílskúmum
með drengnum og því langlíklegast
að atvikið hefði átt sér stað á þeim
tíma.
það missti stjóm á sér. Hann sagði
að langvarandi grátur ungbama gæti
skapað þetta hættuástand. Dagfaðir-
inn og kona hans hefðu haft 21 bam
á heimilinu þennan dag og hún hefði
verið komin tæp-
lega níu mánuði
Erla Kristín Arnadóttir á ieið. Því hefði
biaöamaöur maðurinn nán-
ast annast börnin einn. Mikið áiag
gæti myndast við slíkar aðstæður og
að mati ákæruvaldsins væri ekki á
mannlegu valdi að gæta svo margra
bama þannig að vel færi. Hjónin
hefðu sýnt dæmalaust ábyrgðarleysi
og sinnuleysi gagnvart bömunum og
heföu þau tekið verulega áhættu með
því að taka að sér svo mörg böm í
einu.
Mikiö álag á heimilinu
Ríkissaksóknari vék síðan að til-
efni brotsins og sagði að mikið hefði
verið ritað um ástæður þess að fólk
hristi lítil böm með þessum hætti.
Kvaö hann fólk yfirleitt undir miklu
álagi sem geröi það að verkum að
Fullkominn vafi á dánarorsök
Lögmaður verjanda krafðist þess
að maðurinn yrði sýknaður þar sem
drengurinn hefði ekki verið hristur.
Hann lagði mikla áherslu á að engin
vitni hefðu verið að hinum meinta
hristingi og að fullkominn læknis-
fræðilegur vafi væri á dánarorsök.
Verjandinn taldi að margt annað
hefði getað valdið dauða drengsins
og samkvæmt álitsgerð átta erlendra
sérfræöinga, sem aflir hefðu kynnt
sér málið, væri líklegast að dánaror-
sökin hefði verið samsetning margra
þátta. Drengurinn hefði verið mjög
veikur eftir bólusetningu við 6 mán-
aða aldur og benti margt til þess aö
hann hefði hlotið öndunarfærasýk-
ingu í kjölfarið. Sýklalyf hefðu m.a.
valdið blæöingum og hefði hann síð-
an fengið skyndilega lifrarbólgu af
völdum eitrunar. Starfsfólki sjúkra-
hússins hefði yfirsést það og því
hefði hann ekki fengið viðeigandi
meðferö til að stööva blæðingamar.
Einnig hefði margt bent til þess að
drengurinn hefði þjáðst af alvarleg-
um bamaskyrbjúg. Verjandinn sagði
að hinn hræðilegi atburður 2. maí
2001 hefði verið endalok veikinda
hans og að dagforeldramir hefðu
verið óheppnir að vera á staðnum
þegar hann féll í yfirlið og dó
skömmu síðar.
Hæstiréttur kveður upp dóm í
málinu innan nokkurra vikna.
Verjandinn við upphaf málfiutnings
Sveinn Andri Sveinsson, verjandi
mannsins, taldi ekki hægt aö úti-
loka aörar dánarorsakir.
Hinir heppnu
Nokkrir styrkþega ásamt menntamálaráöherra og borgarstjóra.
DV-MYND TEITUR
32 milljónum úthlutaö úr Menningarborgarsjóði:
Höggmyndir og Humar eða frægð
í gær var úthlutað úr Menningar-
borgarsjóði samtals 32 milljónum
króna til 57 verkefna. Hæstu styrkina,
kr. 1.200.000, fengu Eiðar ehf. til að
kosta vinnu tíu listamanna frá Japan,
Norðurlöndum og íslandi við um-
hverfislistagarð á Eiðum, Listasafnið
á Akureyri til að setja upp sýningu á
höggmyndum eftir marga helstu
meistara formsins á 20. öld, þar á
meðal Henry Moore og Alberto Gi-
acometti, og Smekkleysa til aö setja
upp sýninguna Humar eða frægð um
helstu stiklur í sögu útgáfunnar og
hennar frægustu aðstandendur.
Titillinn Humar eða frægð vísar í
gamlan Sykurmolatexta, enda teng-
ist upphaf Smekkleysu útgáfu á verk-
um Sykurmolanna. Ásmundur Jóns-
son hjá Smekkleysu sagði að sýning-
in yrði fyrst opnuð 4. júní í Spitz-gall-
eriinu í London. Opnunin tengist fyr-
irhuguðu Smekkleysukvöldi þar í
borg og útgáfu á safnplötu, tveggja
diska setti með sögulegu og nýju
efni. Útsendarar annarra evrópskra
safha hafa boðað komu sína á sýn-
inguna í London. Til dæmis er áhugi
á því hjá Pompidou-safninu í París
að setja hana upp. Sýningin verður
svo sett upp í Listasafni Reykjavíkur
- Hafnarhúsi, 13. júní og stendur þar
til hausts.
„Við höfum verið að safna gögnum
og gripum lengi,“ sagöi Ásmundur,
„en styrkurinn gerir gæfumuninn í
sambandi við uppsetninguna sjálfa
sem Ólafur Engilbertsson, einn af
stofnendum Smekkleysu, sér um.“
- Ætlið þið að sýna kjóla Bjarkar?
„Það hefur nú ekki komið til tals,“
sagði Ásmundur, „en þama verða
ýmsir merkilegir hlutir, til dæmis
tillögur Smekkleysu um nýjan þjóð-
búning sem settar voru fram 1994,
bækur, plaköt og póstkort, og það
verða sýndar heimildamyndir og
myndbönd. Svo verða auðvitað lif-
andi uppákomur tengdar sýningunni
í sumar.“
Meðal annarra sem styrk hlutu úr
sjóðnum má nefna Annað svið sem
hyggst sviðsetja Ulfhamssögu, Arki-
tektafélag íslands til að setja upp
sýningu um vistvænar byggingar,
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju,
tónlistarhátíðina Við djúpið og há-
tíðasýningu íslenska dansflokksins i
tilefni þrítugsafmælis hans á árinu.
-SA
DV
Guörún Gísladóttir KE:
Sanalitiö miðar
við björgun
Fjórir íslenskir kafarar hafa
verið við flak Guðrúnar Gísla-
dóttur KE sem sökk skammt und-
an Leknes í Noregi á sl. ári. Með
þeim eru fimm til sex norskir
kafarar. Þeir hafa farið niður og
komið festingum á skipið og hlíf-
um undir kjölinn svo taugarnar
skerist ekki á hvössum kilinum.
Ekkert miðar við að snúa skipinu
þar sem þaö liggur á stjórnborða,
en það er nauðsynleg aögerð áður
en skipinu verður lyft af hafs-
botni. Framkvæmdir hafa tafist
vegna þess að of mikill sjógangur
hefur verið á strandstað, og segir
Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem
stjórnar verkinu í Noregi fyrir ís-
húsfélag Njarðvíkur, að stöðugar
lægðir frá íslandi tefji verkið.
Gert hafi verið ráð fyrir að 21
sólarhringur færi í verkið; átta
séu frá svo enn sé nokkur tími til
stefnu.
Samkvæmt þessu heföi mátt
gera ráð fyrir að Guðrún Gísla-
dóttir KE kæmi upp á yfirborðið
um miðjan marsmánuð en sá
tími er liðinn og enn langt til
Skipið var fulllestaö af frystum
afurðum og velta menn nú vöng-
um yfir þvfhvort nokkurt verð-
mæti sé lengur í aflanum, jafnvel
þótt hann hafi geymst I kulda á
40 metra dýpi. -GG
Verðbólgan með því
lægsta í Evrópu
Samræmd vísitala neysluverðs
í febrúar hækkaði um 0,4% milli
mánaða en á sama tímabili lækk-
aði samræmda vísitalan fyrir ís-
land um 0,2% frá fyrra mánuði.
Verðbólgan í EES-ríkjum var
2,4%, mæld með samræmdri vísi-
tölu neysluverðs en var 1,1% á ís-
landi. Þetta kom fram í tölum um
samræmda vísitölu neysluverðs
fyrir febrúar, sem Hagstofan birti
í gær.
Verðbólgan er aðeins lægri í
Sviss af öllum EES-ríkjunum þar
sem hún er 0,9%. Hins vegar er
ljóst að verðbólgan á íslandi,
samkvæmt samræmdri vísitölu
neysluverðs, á eftir að hækka
verulega í mars í samræmi við
mikla hækkun á íslensku vísitöl-
unni nú í mars. Verðbólgan á ís-
landi mun því á næstu mánuðum
nálgast það að vera svipuö og í
hinum ríkjum sambandsins. -VB
MYND: VERKFRÆÐISTOFAN TEIKN Á LOFTI
Bpú yfir Úlafs-
fjapðapós boðin út
Vegagerðin hefur óskað eftir
tilboðum í brú yfir Ólafsfjarðar-
ós. Brúin á að vera um 40 metra
steypt eftirspennt plötubrú í
tveimur höfum. Verkinu skal að
fullu lokið 15. október 2003 en til-
boð verða opnuð 31. maí 2003.
Nýlega voru opnuð tilboð í nið-
urrekstrarstaura í brúna og kom
lægsta tilboðið frá Loftorku í
Borgarnesi. Um er að ræða fyrsta
áfangann í gerð jarðganga milli
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. -HIÁ