Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2003, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 27 DV Sport KH aftur meðal þeirra bestu - eftir 102-100 sigur á Ármanni/Þrótti í framlengdum oddaleik Þaö var Qör og mikil spenna í Jak- anum á Ísaíirði í gærkvöldi þegar KFÍ tryggði sér sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru. KFÍ vann odda- og úr- slitaleik gegn Ármanni/Þrótti, 102-100, en leikurinn var framlengdur eftir að Jeremy Sargent setti tvö víti niður á lokasekúndum venjulegs leik- tíma og jafnaði leikinn í 92-92. Sargent var síðan aftur á ferðinni í lok framlengingar þegar hann skoraði sigurkörfu KFÍ og tryggði liðinu sæti í úrvalsdeildinni á ný. Sargent skor- aði 46 stig í leiknum þrátt fýrir að hvíla í nokkum tíma vegna villuvand- ræða. Baldur Ingi Jónasson skoraði mest annarra leikmanna eða 14 stig en Guðmundur Guðmannsson var með 11 stig. Ármenningar, sem töpuðu með 40 stigum í fyrsta leik liðanna, komu mörgum á óvart með því að vinna annan leikinn örugglega og þeir komu sér líka á ótrúlegan hátt inn í leikinn í gær eftir að hafa lent 22 stigum und- ir um miðjan þriðja leikhluta. Sveinn Blöndal skoraði 26 stig fyrir Ármenn- inga en alls skoruðu sex leikmenn liðsins yfir 10 stig. Steinar Páll Magn- ússon var með 21, Einar Bjamason gerði 19, Stefán Guðmundsson og Hall- dór Úlriksson gerðu 11 stig hvor og þjálfarinn Karl Guðlaugsson var með 10 stig. Það verða því KFÍ og Þór Þor- lákshöfn sem komast upp í úrvals- deild fyrir næsta vetur og þau spila úrslitaleik um 1. deildarmeistaratitil- inn á ísafirði annað kvöld. -ÓÓJ Anna María Sveinsdóttir, þjálfari Keflavíkur, iék í 27 mínútur í fyrsta leik úrslitakeppninnar og Keflavík tefldi fram einbeittu og samheldnu liði í leiknum. Anna María gefur hér sínum stelpum fyrirmæli fyrr í vetur. DV-mynd Hari Bnbeitdr meistarar - deildarmeistarar Keflavíkur byrja úrslitakeppnina af miklum krafti - unnu Njarövík meö 25 stigum í gær Deildarmeistarar Keflavíkur mættu einbeittar til fyrsta leiks í úrslita- keppni í Keflavík í gær. Keflavík skor- aði fyrstu sjö stigin gegn nágrönnum sínum í Njarðvik og var komin í 32-7 þegar 12 mínútur voru liðnar og vann á endanum 25 stiga sigin-, 87-62. Anna María Sveinsdóttir, spilandi þjálfari Keflavíkur, var komin í byrj- unarliðið og stýrði skútunni á frábær- um upphafsmínútum liðsins og var ein þriggja leikmanna liðsins sem var mjög nálægt þrefaldri tvennu í þessum leik. Anna María var með 15 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar, Son- ia Ortega skoraði 14 stig, gaf 11 stoðsendingar og tók 9 fráköst og besti maður vallarins, Erla Þorsteinsdóttir, skoraði 18 stig, tók 8 fráköst og varði 7 skot. Erla skoraði meðal annars 10 stiga sinna í upphafi leiks þegar Keflavík stakk af. Annars var allt liðið samstillt í verkefnið, allar komust á blað og Keflavík gaf alls 30 stoðsendingar enda voru þær að spila hvor aðra uppi allan leikinn. Anna María var ánægð en sagði liðið þó geta betur. Ætlum aö gera þetta saman „Við spiluðum mjög vel á köflum og mjög sterk vöm í byrjun skilaði auð- veldum körfum úr hraðaupphlaupum sem hjálpaði okkur að komast í gang. Mér fannst þetta samt svolítið stór sigur því við spiluðum ekkert svakalega vel. Við vitum það að ef við spilum sem lið þá stoppar okkur ekk- ert lið. Við fórum á egótripp á tímabili og það gekk ekkert upp en við náðum að stilla okkur i gírinn á nýjan leik. Við erum með breiðan hóp og það er ekki nóg að stoppa bara einhverja eina hjá okkur því þá tekur bara önn- ur við. Við ætlum að halda áfram að gera þetta saman og þá verður erfitt fyrir hin liðin að stoppa okkur,“ sagði Anna María í leikslok. KeflavíK - Njarðvík 87-62 7-0, 7-2, 14-2, 14-4, 22-4, (24-7), 32-7, 32-10, 3&-10, 38-12, 38-23, (42-27), 44-27, 44-32, 52-32, 56-38, (58-44), 64-44, 74-54, 78-58, 83-60, 87-62. Stig Keflavikur: Erla Þorsteinsdóttir 18, Anna María Sveinsdóttir 15, Sonia Ortega 14, Bima Valgarösdóttir 9, Marín Rós Karls- dóttir 9, Svava Ósk Stefánsdóttir 8, Kristín Blöndal 6, Sonja Kjartansdóttir 4, Rannveig Randversdóttir 2, Lára Gunnarsdóttir 2. Stig Njaróvíkur: Ingibjörg Elva Vilbergs- dóttir 18, Krystal Scott 17, Helga Jónasdótt- ir 11, Auöur Jónsdóttir 8, Pálína Gunnars- dóttir 2, Sigurlaug Guðmundsdóttir 2, Bima ýr Skúladóttir 2, Guörún Ósk Karlsdóttir 2. Dómarar (1-10): Leifur Garöarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson (8). Gœði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 100. Maður leiksins Erla Þorstelnsdóttir, Keflavík Fráköst: Keflavík 40 (10 í sókn, 30 í vöm, Ortega 9), Njarövík 39 (9 í sókn, 30 í vöm, Scott 11, Helga 11). Stoösendingar: Keflavík 30 (Ortega 8, Anna María 8), Njarövík 16 (Pálína 6). Stolnir boltar: Keflavik 14 (Ortega 4), Njarðvík 9 (Scott 5). Tapaöir boltar: Keflavík 16, Njarövík 24. Varin skot: Keflavík 10 (Erla 7), Njarövík 7 (Helga 3, Ingibjörg Elva 3). 3ja stiga: Keflavík 16/5 (31%), Njarövík 15/5 (33%). Víti: Keflavík 10/8 (80%), Njarövík 12/7 (58%). Keflavík - IMjanövík 1-0 Grindavík tekur í kvöld á móti KR í öðrum leik liðanna í hinu einvígi undanúrslitanna en KR vann fyrsta leikinn 71-55 og hefur 1-0 yfir í einvíginu en tveir sigra gefa sæti í úrslitunum. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í Grindavík í kvöld. -ÓÓJ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, þarf að endurvekja trúna hjá sínum stelpum fyrir annan leik- inn annað kvöld en Njarövíkurliðið getur mun meira en i þessum leik. „Það var deginum ljósara að stelpurn- ar höfðu ekki verið í þessari stöðu áð- ur og þurftu greinilega fyrstu 12 til 13 mínútumar til að hlaupa stressið af sér. Ég var mjög ósáttur með að við voru ekki að leysa pressuna vel því við höfum ekki verið að tapa leikjum gegn pressu síðan Krystal kom,“ sagði Einar. Hann fékk ekki nægilega mik- ið frá Krystal Scott í leiknum sem misnotaði 11 af 17 skotum og tapaði 9 boltum. Þurfum algjöran toppleik „Við höfum verið að fá 29 stig að meðaltali frá henni (Scott) í vetur og við vissum að við þurftum að fá eitt- hvað enn meira frá henni í úrslita- keppninni. Það sama á við nokkra aðra lykilleikmenn sem hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit í undanfórn- um leikjum. Nú erum við vonandi búin að fara í gegnum þennan stress- pakka en við vitum það að við þurfum algjöran toppleik tU að vinna þetta Keflavíkurlið. Keflavíkurliðið hefur tekið kipp síðan við spiluðum við það síðast og það er einkenni góðra liða að toppa þegar ballið byrjar,“ sagði Ein- ar Árni í samtali við DV-Sport eftir leik. Hin 15 ára Ingibjörg Elva Vilbergs- dóttir var best hjá Njarðvík og skor- aði meðal annars 13 stig Njarðvíkur í röð (gegn 4 hjá Keflavík) í öðrum leik- hluta þegar munurinn fór úr 26 stig- um, 38-12, niöur í 13 stig, 40-27. Þá átti Pálína Gunnarsdóttir ágæta inn- komu og Helga Jónasdóttir gerði lengstum vel í glímu sinni við Erlu en það var gaman að sjá þessa tvo sterku miðherja glíma undir körfúnni. -ÓÓJ www.sporttours.is éVvltlS .' -*y;- fer fram á Lágheiði við Olafsfjörð laugardaginn 22. mars kl. 14:00 Dagskrá: 10:00 Mæting keppenda I i :00 Pit lokar og æfingar hefjast 14:00 2. umferð íWSA lceland Snocrossinu 16:00 Áaetluð mótslok og verðlaunaafhending Mjög gott færi er á Lágheiði og gott aðgengi fyrir alla bíla. Gott sleðafæri er í nágrenni við Ólafsfjörð og hvetjum við allt sleðafólk til að koma með fáka sína og njóta fegurðarTröllaskagans Nánari upplýsingar á www.snocross.is eða i símum 464-4164 og 894-2967 ijJ&llua JUtCTKCAT POLRRIS ftiyjVJr (cTrlsberjc 0 R.SIGMUNDSSON Greifinn MOTORSPORTS V',/ ^pmtt HUGTÍLAG ÍSIANOS MOIUL cPedtomyndir' V-Power

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.