Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 DV Fréttir Kaupþing og Búnaöarbankinn í viðræður um sameiningu: Hæstiréttur: Hjörleifur Jakobsson. Slgurður Einarsson. Stjóm Kaup- þings og bankaráð Búnaðarbankans hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um sam- vinnu eða samein- ingu bankanna og gera stjómarfor- menn þeirra ráð fyrir að þær hefjist strax eftir helgi. Stefnt er að því að ljúka þeim sem íýrst. Þótt enginn segi það berum orðum má lesa á milli lín- anna að markmiðið sé fyrst og fremst að búa til stóra og öfl- uga einingu frekar en að stórkostlegir hagræðingarmögu- leikar séu í sjónmáli. Heilbrigð |skynsemi Sigurður Einars- son, stjórnarformað- ur Kaupþings, segir of snemmt að segja til um hver sé áætluð hagræðing af hugsanlegum samruna. „En það er ljóst ef þú htur á þessa tvo banka að þeir virðast falla vel hvor að öðrum. Annar er aðallega í viðskiptabanka- starfsemi en hinn aðallega í hefðbund- inni fjárfestingarbankastarfsemi," segir Sigurður. Hann treystir sér ekki til að segja til um hver samanlagður hagnaður fé- laganna i fyrra hefði átt að geta orðið hefðu þau starfað sem eitt félag. „Al- mennt má segja að við hugsanlegan samruna yrði til mun sterkari eining á fjármálamarkaðinum sem ætti að Sai Bjarni Ármannsson. Ríkisstjórnin og Öryrkjabandalag íslands hafa gert með sér samkomulag um breytingar á örorkulifeyriskerfmu sem miða að hækkun á grunnlífeyri öryrkja. Breytingarnar taka gildi frá og með næstu áramótum en með þess- um aðgerðum er gert ráð fyrir allt að tvöföldun á grunnlífeyri þeirra sem yngstir hljóta örorku. Grunnlifeyrir- inn er í dag tæpar 21 þúsund krónur en eftir breytingar verður hann um 41 þúsund krónur. Sigríður Bjömsdóttir fæddist mjög sjónskert og er örorka hennar metin 75%. Þetta veldur því að hún á erfitt með að finna sér starf við hæfi og í dag lifir hún á bótum. Sigríöur býr samt sem áður í eigin húsnæði og stundar nám við öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíö. Hún sér nú fram á bjartari tíma ef nýja bótakerfið kemst í gegn en segir þó réttindabaráttu öryrkja vera langt frá því að vera lokið. „Ég vona bara að þetta sé ekki eitt- hvert kosningaloforð því mér skilst að það sé enn eftir að útfæra þessar hug- myndir og samþykkja á þingi næsta haust. Fólk sem er í sömu sporum og ég er í það minnsta mjög ósátt við kerfið eins og það er í dag en þessar breytingar em vissulega skref í rétta átt,“ segir Sigríður. Eins og áður sagöi býr Sigríður í eigin húsnæði en segir það ómögulegt fyrir fólk í hennar sporum að kaupa sér íbúð ef það hefur engar aðrar tekj- ur en bætumar. „Ég var í vinnu þegar ég keypti mína íbúð og hefði aldrei getað gert það fyrir bætumar einar. Þessar breytingar auka samt möguleika ör- yrkja í þeim efnum,“ segir Sigríður og bætir því við að núverandi kerfl sé tO skammar. „Ég fæ um 63 þúsund krónur á mánuði eftir skatta eins og staðan er í dag. Það er í raun ótrúlegt að fólk haldi að nokkur maður geti lifað á þessu og því er þessi breyting löngu timabær. Þetta mun td. breyta miklu fyrir mig þótt ég viti ekki enn ná- kvæmlega hversu mikið lífeyrir minn mun hækka. Ég sé í það minnsta fram á að geta í framtíðinni stundað nám i Háskólanum en það er eitthvað sem ég hef ekki efni á í dag. Þessi breyting kemur sér því vel fyrir mig og aðra í mínum sporum en þó er enn talsvert í land hvað réttindabaráttu öryrkja varðar. Tekjutengingar bótanna eru til dæmis eitthvað sem enn þarf að laga,“ segir Sigríður. -áb Fæddist mjög sjónskert - 75% öryrki „Ég fæ um 63 þúsund krónur á mónuöi eftir skatta eins og staöan er í dag, “ segir Sigríöur Björnsdóttir. Breytingar á bótakerfi - öryrkjar segja loksins loksins: Kröfu Kára hafnaö Hæstiréttur hafh- aði í gær kröfu Kára Stefánssonar um að úrskurður úrskurð- amefndar skipulags- og byggingarmála vegna byggingar hans í Skerjarfírði Kári yrði felldur úr gildi. Stefánsson. Málavextir voru þeir að Kári fékk á sínum tíma leyfi til að reisa hús með tvöfaldri bilageymslu á lóð sinni við Skeljatanga 9 í Skerjafiröi að feng- inni ákvörðun borgaryfirvalda um breytt deiliskipulag lóðarinnar. Ná- grannar hans kærðu veitingu leyfis- ins til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála þar sem þeir töldu meðal annars að fyrirhuguð bygging myndi skyggja á lóðir þeirra og draga úr verðgildi húsa þeirra. Úr- skurðamefnd tók kröfu þeirra til greina um að stöðva framkvæmdir til bráðabirgða þann 8. ágúst 2001 og felldi síðan byggingarleyfið úr gildi með úrskurði 14. desember sama ár. Kári reisti málatilbúnað sinn á því að hann hefði fengið byggingarleyfi sem gefið hefði verið út í samræmi við skipulagsskilmála frá 1990 og reglur skipulags- og byggingarlaga. Skýra yrði skipulagsskilmálana rúmt og til samræmis við það sem annars staðar hefði verið leyft á umræddu byggingarsvæði. Hæstiréttur sagði að niðurstaða málsins færi eftir skýringum á bygg- ingar- og skipulagsskilmálum um- rædds hverfis og ákvæðum skipu- lags- og byggingarlaga en að fyrir- hugað hús Kára fuflnægði ekki ákvæðum skilmálanna og því var kröfu hans hafnað. -EKÁ vera betur í stakk búin til að þjónusta viðskiptavini með samkeppnishæfu verði og þjónustu og um leið yrði hann stór áfangi í að ná aukinni stærð, sem auðveldar samkeppni á al- þjóðlegum mörkuðum," segir Sigurð- ur. Við samruna bankanna yrði til langstærsta fyrirtæki á íslandi á flesta mælikvarða. „Jú, mér sýnist það,“ segir Sigurður Einarsson, stjómarfor- maður Kaupþings. „Ef maður leggur bankana einfaldlega saman, sem er ekki alveg nákvæmt en gefur góða nálgun, þá yrði efnahagsreikningur- inn upp á 430 milljarða króna, eigið fé upp á 33 milljarða, starfsfólk saman- lagt um 1.400, samanlagður hagnaður í fyrra var 5,4 milljarðar." Samanlagt markaðsverðmæti miðað við núver- andi gengi hlutabréfanna yrði ríflega 61 milljarður króna. Sigurður segist ekki sjá að hugsan- legur samruni stangist á við sam- keppnislög enda stundi fyrirtækin að meginhluta til ólíka starfsemi auk þess sem feiknarlega sterkir bankar séu fyrir á markaðnum. Þetta verði þó vitanlega kannað. En hefúr Kaupþing einhveija trygg- ingu fyrir því að nægilega stór hluti hluthafa í Búnaðarbankanum sé hlynntur samruna? „Við höfum enga tryggingu fyrir því. Við verðum bara að treysta á að heilbrigð skynsemi ráði fór,“ segir Siguröur. Yrði sameining til sóknar Hjörleifúr Jakobsson, stjórnarfor- maður Búnaðarbankans, segir að menn hafi lengi velt fyrir sér mögu- leikum á hagræðingu á íslenskum bankamarkaði og bankaráðiö sjái í þessum hugsanlega samruna eöa sam- vinnu möguleika á að efla þjónustu við viöskiptavini bankans hérlendis CHAMPION5HIP MANAGER PCOO-MM Kaupauki #1 Askrift að Sýn til 7. apríl 2003 fylgir með 500 fyrstu leikjunum* *Cildir aöeins fyrirbásem eru nú beaar rneö afruniara frá !Ú mm m ÍÚIJJ 'jjJSJÍJJJ Aætlaö markaösviröi nokkurra fyrirtækja i króra. hlutabréfa í gær. Nafn Markaösverö Pharmaco 49.253 ísiandsbanki 45.450 Landssíminn 39.050 Eimskip 33.230 Kaupþing * 31.820 Búnaöarbankinn * 29.528 Landsbankinn 28.069 Baugur 24.658 Bakkavör 19.621 SH 7.480 SÍF 7.157 * Samanlagt markaösvirði Kaupþings og Búnaöarbankans er ríflega 61 milljaröur króna. og stækka hann á alþjóðlegum gnmd- velli. Spurður um hvort hann telji skyn- samlegra að efúa til samvinnu við Kaupþing en aðrar fjármálastofnanir segir Hjörleifúr að vissulega séu aðrir möguleikar fyrir hendi en einhveijar takmarkanir séu eflaust á því vegna samkeppnisreglna. Spurður um hag- ræðingu af samruna við Kaupþing segir hann að það eigi eftir að koma í ljós í viðræðunum hvaða tækifæri bankarnir sjái í því en hér yrði fyrst og fremst um að ræða sameiningu til sóknar sem fælist í að styrkja starf- semi hvors bankans um sig. Hjörleifur segir það sína tilfmningu að jákvæðni sé fyrir því hjá hluthöf- um að skoða þessa möguleika betur. Viðbrögö íslandsbanka Bjami Ármannsson, bankastjóri ís- landsbanka, segir að bankinn hafi lengi talið að í kjölfar sölu ríkisbank- anna færi hagrceðingarferli af stað á fjármálamarkaðinum og því komi það ekki á óvart að einhveijar slíkar við- ræður skuli nú hefjast. „En það vekur athygli að Búnaðar- bankinn skuli fara út í einmitt þessar viðræður þar sem samlegðaráhrifm yrðu meiri með ýmsum öðrum kost- um,“ segir Bjami. Fyrr í gær keypti íslandsbanki stór- an hlut í Búnaðarbankanum, jók eign- arhlut sinn úr 4,99% í 7,85% og varð þar með þriðji stærsti einstaki hlut- hafinn. Bjarni segir að bankinn telji Búnaðarbankann áhugaverðan fjár- festingarkost. Hann segist aðspurður ekki reiðubúinn að meta á þessu stigi hvort sammni við Kaupþing yrði til hagsbóta út frá sjónarhóli hluthafa. -ÓTG Yrði langstærsta lyrlrtæki á íslandi Sép fram á betri tíma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.