Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003
DV
Fréttir
Tæki jaf ntefli nuna
- segir Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari sem mætir varkár til leiks gegn Skotum
Islendingar mæta Skotum í und-
ankeppni EM á morgun. Leikurinn
fer fram á Hampden Park í Glas-
gow og hefst kl. 15 að íslenskum
tíma. Það er mikið undir í þessum
leik, íslenska liðið á harma að
hefna eftir tap gegn skoska liðinu
síðastliðið haust, en Atli Eðvalds-
son, þjálfari íslenska liðsins, sagði í
samtali við DV-Sport í gær að hann
og leikmennimir hefðu lært sína
lexíu af slæmum skellum í síðustu
útileikjum liðsins [innsk. blm. gegn
Norður-írlandi og Danmörku] og
myndu mæta til leiks með því hug-
arfari að verja stigið sem liðið heíði
í byrjun leiks.
Áhersla á agaðan leik
„Okkur hefur ekki gengið vel í
undanfómum útileikjum þannig að
við verðum að koma til leiks með
varfæmislegu hugarfari. Ég mun
leggja áherslu á að liðið leiki agað,
að menn vinni saman og passi sig á
því að loka þeim svæðum sem Skot-
ar vilja sækja í.
Við þurfum að vera með fulla
einbeitingu frá fyrstu mínútu því
að ég býst fastlega við því að Skot-
amir reyni að pressa okkur stíft
fyrsta halftímann og klára leikinn.
Það er okkar að standast þá atlögu.
Það tókst okkur ekki í leiknum í
október, lentum undir strax í byij-
un og vorum í eltingaleik eftir þaö.
Þá misstum við einbeitinguna en
ég vona að það verði ekki uppi á
teningnum á morgun."
Atli sagðist aöspurður ætla að
breyta vamarskipulagi liðsins ör-
lítið - spila með fimm manna vöm
í fyrsta sinn á þjálfaraferlinum - og
nýta sér hæfileika Guðna Bergsson-
ar sem aftasta manns.
„Það er engin spuming í mínum
huga að Guðni á eftir að koma mjög
sterkur inn í leikinn á morgun.
Hann hefur mikla reynslu, er enn-
þá mjög fljótur og les leikinn vel.
Við emm með reynslulitla leik-
menn í vöminni, stráka sem marg-
ir hverjir em að stíga sín fyrstu
skref í landsliðinu, og þeir munu
njóta góðs af tilkomu Guðna. Með
því að spila með fimm manna
varnarlínu vonast ég til þess að þau
svæði sem vora opin í fyrri leikn-
um bak við vamarlínu okkar verði
lokuð þannig að Skotamir eigi ekki
eins greiða leið að marki okkar.
Öðruvísi á útivelli
Fylgir því ekki nokkur áhœtta aö
breyta um varnarskipulag meö
svona stuttum fyrirvara þegar aú-
eins eru þrír dagar í mjög mikilvœg-
an leik?
„Ég var fyrir löngu búinn að
ákveða að við myndum spila öðru-
vísi á útivelli en á heimavelli. Á
útivöllum er augljóslega lögð meiri
áhersla á varnarleik, þarf skiptir
aginn öllu máli, á meðan ég hef
reynt að láta liðið spila frjálsari
sóknarknattspyrnu á heimavelli.
Hvað varðar leikaðferðina og fimm
manna vörn þá hef ég ekki miklar
áhyggjur af því að tíminn sé naum-
ur. Það skiptir í raun og veru ekki
neinu máli hvort það era fimm
menn eða fjórir í vöm - grunn-
hreyfingamar era þær sömu. Þess-
ir strákar eru flestir atvmnumenn
og ég hef þá trú að við náum að
slípa liðið saman á þeim tíma sem
við höfum þó ég viðurkenni að
hann mætti vera meiri.“
Er ekki slœmt aö liöiö skuli aö-
eins hafa þrjá daga til undir-
búnings fyrir svona mikilvægan leik
þegar Skotarnir eru saman í viku?
„Auðvitað væri frábært fyrir mig
að geta gert eins og Berti [innsk.
blm. Vogts], það er kallað saman
liðið viku fyrir leik og undirbúið
það af kostgæfni. Við erum hins
vegar í ailt annarri stöðu heldur en
Skotarnir. Allir þeirra leikmenn
spila í Skotlandi eða Englandi og
gátu því farið strax eftir leikina
um helgina og komið saman. Okkar
strákar spila víðs vegar um Evr-
ópu og það verður að segjast eins
og er að mörg félög, til að mynda í
Noregi, sýna okkur afar lítinn
skilning varðandi undirbúning fyr-
ir landsleiki. Við eigum rétt á leik-
mönnum þremur dögum fyrir leik
og það væri lítið vit í því að hóa
saman fjórum til fimm mönnum í
Englandi og láta þá æfa eina þar til
afgangurinn af hópnum kæmi sam-
an. Það verður einnig að hafa í
huga að fjárhagslegt bolmagn
skoska knattspymusambandsins er
mun meira en þess íslenska. Það er
mjög dýrt að halda heilu landsliði
uppi í marga daga og ég efast um að
HSHMHmm
m
■
B
Ferðamálaráö íslands
lcelandic Tourist Board
Ferðamálaráð íslands
býður til samstarfs
um auglýsingar á íslenskri ferðaþjónustu
► Ferðamálaráð íslands hefur ákveðið að bjóða íslenskum fyrirtækjum til samstarfs um
gerð og birtingu auglýsinga sem hvetja landsmenn til ferðalaga innanlands. Um er að
ræða hluta af kynningarherferðinni „ísland - sækjum það heim” og er gert ráð fyrir
að útlit og efnistök auglýsinga taki mið af því sem gert hefur verið til þessa.
► Ferðamálaráð hyggst verja 15 milljónum króna til verkefnisins á tímabilinu 15. maí
2003 - 30. apríl 2004. Hér með er auglýst eftir fyrirtækjum sem hafa áhuga á að leggja
fram fé á móti Ferðamálaráði og auglýsa þjónustu sína á framangreindu tímabili.
Skilyrði er að viðkomandi fyrirtæki sé starfandi í ferðaþjónustugeiranum og reiðubúið
að auglýsa í fjölmiðlum sem ná til allra landsmanna.
► Fjármunum Ferðamálaráðs er skipt í 20 hluta; tíu að fjárhæð ein milljón króna og tíu
að fjárhæð 500.000 krónur. Lágmarksframlag þeirra sem vilja taka þátt er jafnhá
upphæð i hverjum hluta. Hver aðili getur einungis boðið í einn hlut. Samstarfsaðilar
verða valdir með hliðsjón af fjárframlögum og fyrirhuguðum kynningarverkefnum
hvers og eins. Sérstakt tillit verður tekið til verkefna sem höfða til ferðalaga utan
háannar og á landsvísu.
► Að uppfylltum skilyrðum verður, að öðru jöfnu, sá aðili
sem leggur til hæst mótframlag á móti Ferðamálaráði
valinn til samstarfs.
► Tekið er við skriflegum umsóknum um samstarf til 30. apríl
nk. á skrifstofu Ferðamálaráðs (slands, Lækjargötu 3, 101
Reykjavík. Umsóknum skal skila á sérstöku eyðublaði sem
nálgast má á vefsíðu Ferðamálaráðs, www.ferdamalarad.is
Feróamátaráó Islands • Lækjargötu 3 • 101 Reykjavík
Sími: 535 5500 • www.ferdamalarad.is