Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Blaðsíða 29
Föstudagur 28. mars 2003
29
Með Charlton á næsto ttmabili
í gær var formlega gengið frá samn-
ingum Hermanns Hreiðarssonar og
Charlton. Samkvæmt fréttum enskra
fjölmiðla og heimasíðu Charlton geng-
ur Hermann strax til liðs við félagiö, en
hann má þó ekki leika með liðinu fyrr
en á næsta keppnistímabili, vegna
félagsskiptareglnanna umdeildu, en
leikur samt ekki meira með Ipswich.
Alan Curbishley, framkvæmdastjóri
Charlton, segir að þegar Hermann hef-
ur náð sér af meiðslunum muni hann
hefja æfingar hjá liöinu og að hann fái
góðan tíma til að aðlaga sig aðstæðum-
hjá félaginu áður en undirbúningur
fyrir næsta tímabil hefst.
Kaupverö Hermanns er um 900 þús-
und pund og greiðir Charlton, Ipswich
800 þúsund pund núna og 100 jíúsund ef
liðið nær að halda sér í úrvalsdeildinni
á næsta keppnistímabili. -PS
Rcifpóstur: dvsport@dv.is
8-liða úrslit í Essodeild kvenna í handknattleik hefjast á morgun:
- keppni í hverju orði
Spema og barátta fram ntdan
8-liða úrslit í Esso-deild kvenna í hand-
knattleik hefjast á laugardag. ÍBV varð á
dögunum deiidarmeistari og búast margir
viö miklu af liðinu í úrslitakeppninni enda
liðið vel mannað í flestum stöðum. Haukar
munu ekki gefa þumlung eftir í baráttunni
sem fram undan er en liðið hefur íslands-
meistaratitil að verja. Fleiri lið ætlar sér
stóra hluti og má hiklaust ganga út frá því
aö spennandi dagar séu í aösigi í kvenna-
handboltanum. Það lið sem fyrr vinnur tvo
leiki kemst áfram i undanúrslit.
Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs
Gróttu/KR, er öflum hnútum kunnugur í
kvennahandboltanum og var meir en tilbú-
inn að spá í viðureignimar i 8-liða úrslitun-
um.
„Ég held að það sé klárt mál að ÍBV vinn-
ur viðureignina við Fylki/ÍR, 2-0. Stúlkurn-
ar úr Fylki/ÍR hafa eigi að síður verið að
gera ágætishluti undir öruggri stjórn Gunn-
ars Magnússonar, þjálfara liðsins. Ég held
samt að ÍBV sé of stór biti fyrir Fylki/ÍR og
Eyjastúlkur vinni þetta nokkuð sannfær-
andi. Stúlkurnar úr Fylki/ÍR eru búnar að
standa sig vel í vetur og mega vel við una.“
„Þama á reynslan eftir aö vega þungt og
hana hafa Haukastúlkur svo sannarlega.
Haukaliðið hefur yfir að ráða betri mann-
skap en Gróttu/KR-liðið en Hafnarfjarðar-
liðið þarf samt sem áður að hafa fyrir hlut-
unum í þessari viðureign. Hið unga og efni-
lega lið Gróttu/KR á svo sannarlega fram-
tíðina fyrir sér. Þeirra tími á eftir að koma
og það er mín tilfinning að þær muni vinna
heimaleikinn gegn Haukum sem vinnur síð-
an tvo leiki á Ásvöllum. Haukar vinni
þannig þennan slag, 2-1. Haukaliðið leikur
sterkan varnarleik og eitt sterkasta vopn
liðsins eru hraðaupphlaupin sen erfltt hef-
ur reynst fyrir mótherjana að stöðva í vet-
ur.
Stjaman vinnur sína viðureign gegn FH,
2-1. Ég byggi þá spá á því að Stjaman hef-
ur meiri breidd og þrátt fyrir að hafa verið
að missa út leikmenn hef ég trú á að þær
vinni á beittum varnarleik. Markvarslan
getur líka fleytt liðinu langt og ef Jóna Mar-
grét verður í lagi þá held ég að Stjaman
hafi vinninginn 1 þessum nágrannaslag.
Það hefur verið stígandi í FH-liðinu sl. tvö
ár og mér hefur fundist Einvarður Jóhanns-
son, þjálfari liðsins, vera að gera góða hluti
en þær verða að bíða í eitt ár til að komast
áfram upp úr 8-liða úrslitunum."
„Ég held aö það sé ekki nokkur spuming
um að viðureign Vals og Víkings er stóri
slagurinn í 8-liða úrslitunum en á endanum
vinni Valur, 2-1. Þarna mætast tveir bestu
markverðimir í deildinni og markvarslan á
eftir að ráða miklu hvort liðið kemst áfram.
Valsliðið hefur betri mannskap en Vík-
ingsliðið og það sem ég hef séð til þessara
liða í vetur eru Valsstúlkumar beittari.
Víkingsliðið hefur átt í vandræðum með
sóknarleikinn og það skiptir því miklu máli
fyrir þær að fá Guðmundu Kristjánsdóttur
aftur inn,“ sagði Ágúst Jóhannsson. -JKS
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR.
Eiöur Smári Guðjohnsen.
Sol Campbell, miövöróur Arsenal
og enska landsliðsins verður ekki
með í landsleik Englendinga og
Lichtenstein sem fram fer í Lichten-
stein á laugardag. Hann gekkst undir
læknisskoðun í gær og þá kom í ljós
að meiösli hans á hásin eru það slæm
að hann mun ekki geta leikið. Lík-
legt er talið að Gareth Southgate
muni taka stöðu Campbells við hlið
Rio Ferdinands í leiknum.
Stoke hefur fengið tvo nýja leik-
menn fyrir loksprettinn í ensku 1.
deildinni en liðið á í harðri baráttu
við að forðast fall. Þetta eru þeir Ade
Akinbiyi, frá Crystal Palace og Paul
Warhurst frá Bolton. Leikmenn
þessir munu örugglega nýtast Stoke
vel í baráttunni framundan.
Magnús Ólafsson leikmaöur úr KR
hefur skipt yfir í Hauka í knatt-
spymu, eftir aðeins eins árs vem í
Vesturbænum. Magnús kom til KR úr
Haukum, en Willum Þór Þórsson, nú-
verandi þjálfari KR, þjálfaði Haukana
áður. Magnús lék átta leiki í Síma-
deildinni í fyrra og náði ekki aö
skora í þeim leikjum. Magnús hefur
einnig leikiö með Reyni Sandgerði,
Víöi og Njarðvík. -PS
Eiður Smári Guðjohnsen í samtölum við skoska fjölmiðla:
Vap mjög óánægður með
frammistöðu mína í Reykjavík
- Atli Eðvaldsson hrósar skoskum fjölmiðlum fyrir þeirra þátt í Reykjavík
Skoskir fjölmiðlar fjafla mikið
um landsleik íslendinga og Skota á
Hampden Park í Glasgow á laugar-
dag og beinast augu þeirra að, eins
og þeir kafla Eið Smára Guðjohn-
sen, einu stjörnunni í liðinu. Miðað
við ummæli Atla Eðvaldssonar ytra
virðist hemaðaráætlun hans vera
sú sama og hjá Berti Vogts fyrir
leikinn hér á landi. Að telja Skotum
trú um að þeir séu sterkari aðilinn.
„Ég var mjög óánægður með
frammistöðu mína í leiknum í
Reykjavík í haust. Mér fmnst ég þó
ekki að hafa neitt að sanna fyrir
neinum á laugardag, en ég vil þó
standa mig vel og sýna hvers megn-
ugur ég er. Ég náði þó aö sýna að-
eins af því í fyrri hálfleiknum þá,
en líkamlega og andlega var ég ekki
í 100% lagi. Ég var nýbytjaður að
leika aö nýju með Chelsea eftir
meiðsli og var ekki í besta formi. Ég
var hreinlega ekki í minu besta
formi,“ sagði Eiður Smári við kom-
una til Glasgow
Atli Eðvaldssson landsliðsþjálfari
var spurður við sama tækifæri út í
styrkleikalista FIFA og stöðu lið-
anna þar, en Skotar em nú komnir
niður fyrir íslendinga á honum. „Ég
hef enga trú á þessum styrkleika-
lista. Ég vona að þið trúið þessu en
ég held að þiö gerið það ekki. Skosk-
ir fjölmiðlar unnu frábært starf fyr-
ir lið ykkar i haust. Þeir náðu að
sannfæra okkur um að Skotar væru
lakara liðið og leikmennimir ættu
að þakka ykkur fyrir það. Viö erum
bara 270 þúsund manna þjóð svo
auðvitað hljóta Skotar að vera
sterkari aðilinn á laugardag, í það
minnsta fyrir fram. Ég held að það
trúi þvi enginn að við séum sterkari
en Skotar og Þjóðverjar og það era
þessi lið sem hljóta að vera að berj-
ast um tvö efstu sætin í riðlinum."
Atli Eðvaldsson segir þó enn
fremur að það hljóti alltaf að vera
möguleiki fyrir íslenska liðið og það
megi ekki gleyma því að íslenska
liðið sé með leikmann eins og Eið
Smára. „Þetta er hins vegar leikur
ellefu manna liða og við eigum bara
ekki nógu marga gæðaleikmenn. Ef
þú byðir mér jafntefli nú myndi ég
skrifa undir það, hér og nú,“ sagði
Atli.
Varðandi þessi ummæli Atla
segir Eiður að það geti verið að þau
séu sálfræðislegs eölis, en
samþykkir þó að hann myndi sætta
sig við jafntefli í þessum leik. „Það
mikilvægasta fyrir okkur nú er að
tapa ekki leiknum, en ég held að
það sé vonlaust fyrir okkur að
vinna hér í Glasgow. Ef við náum
góöum úrslitum, þá veit maður
aldrei. Það verður gott fyrir
sjálfstraustið í liðinu." -PS
Vandræði hjá
Lithaum
Hinn nýi þjálfari Litháa Al-
gimantas Liubinskas er í vanda
fyrir leik Litháa gegn Þjóðverj-
um á laugardag í Þýskalandi.
Hann hefur orðið að taka fyrir-
liðann Raimondos Zutautas út
úr liðinu vegna meiðsla á hné og
þá er nær öruggt talaið að Ed-
garas Jankauskas, framherji hjá
Portó, muni ekki geta leikið með
liðinu vegna meiðsla á ökkla.
Fyrr í vikunni urðu þeir Ro-
bert Poskus og Andrius Skerla
sömuleiðis að draga sig út vegna
meiðsla auk þess sem að vamar-
maður Bröndby, Aurelijus Skar-
balius, gat ekki gefið kost á sér
af persónulegum ástæðu og þá er
Deividas Cesnauskis, leikmaður
Dynamo Moskvu, í leikbanni.
Það lítur því allt út fyrir að
Litháar muni eiga erfiðan laug-
ardag í Numberg, en Liubinskas
þjálfari gat þó slegið á létta
strengi við brottforina á flugvell-
inum í Vilníus. Hann sagði að
hann myndi sýna fólki að þeir
væru ekki dauðir enn, þrátt
fyrir að svo margir leikmenn
væru dottnir út úr liðinu.
-PS
Mjódd
Mjódd
Dalbraut • Austurströnd
iooo kr. tiiboð
TILBOÐ SÓtt
c
kr. i.ccc
Stór pizza með^ .
4 áleggstegundum y $
Dalbraut • Austurströnd