Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Qupperneq 12
12 Útlönd FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003 DV REUTERSMYND Kúrdarnir komnir á stjá Vopnaðir Kúrdar eru komnir inn á svæöi þar sem íraskir stjórnarher- menn héldu áöur til. Flelri hermenn fluttir til Norður-íraks í nótt Bandaríkjamenn fluttu fleiri hersveitir til norðurhluta íraks í nótt þar sem ætlunin er að opna nýja víglínu í baráttunni gegn Saddam Hussein forseta. Fréttamaður Reuters sem kom að Harir-flugvelli klukkan fjögur í morgun að íslenskum tíma sá þar flutningaþyrlur, farartæki og hermenn sem höföu verið fluttir þangað í nótt. Hersveitir íraskra Kúrda fóru í gær yfir víglínuna inn á svæði sem er á valdi íraskra stjórn- valda. Ekki kom til átaka. írösku hermennimir virðast hafa flúið af hólmi, enda hötðu bandarískar flugvélar varpað á þá sprengjum undanfama daga. Irakarnir skildu eftir vélbyssur og annan vopnabúnað. HermaOur sendir bónorð bréfleíðis Breskur undirforingi, Adam Holmes, ákvað að taka enga áhættu og sendi heitkonu sinn formlegt bónorð bréfleiðis á dög- unum. Holmes var þá staddur ásamt herdeild sinni í Kúveit en leiðangur til íraks var á næsta leiti. Til þess að tryggja ásetning sinn enn frekar sendi Holmes bónorðsbréfið til bæjarblaðsins í Hebburn á Englandi. Heitkonan, Caroline Nesbitt, grét þegar hún las bréfið í blað- inu og ákvað samstundis að segja já. Það er hins vegar ekki heigl- um hent að koma ,jáinu“ til Holmes því ekki hefur náðst sam- band við hann undanfama daga - þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Nesbitt kveðst áhyggjufull um af- drif verðandi eiginmanns en ætlar að trúa á orðin í bréfinu en þar heitir Holmes henni því að koma fljótt heim. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Grýtubakki 8, 0301, 76,9 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð m.m. ásamt geymslu í kjallara, merkt 00-04, Reykjavík, þingl. eig. Ásdís Ásmundsdóttir, gerð- arbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðju- daginn 1. apríl 2003, kl. 14.00. Kambasel 21, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Óskar Smári Haraldsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 1. aprfl 2003, kl. 14.30. Skriðustekkur 9, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Pálsson og Margrét E. Krist- jánsdóttir, gerðarbeiðendur Búnaðar- banki íslands hf., Hilmar Jacobsen, íbúðalánasjóður, Kreditkort hf., Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis, úti- bú, Tollstjóraembættið og Trygginga- miðstöðin hf., þriðjudaginn 1. apríl 2003, kl. 15.30.______________ Teigasel 7, 0403, 2ja herb. íbúð á 4. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Guðný Júl- ía Kristinsdóttir, gerðarbeiðandi Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 1. apríl 2003, kl. 15.00.______________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Flugskeytaregn á Bagdad í nótt: Blair og Bush vara víð löngu og erfiðu stríði Hörðum sprengju- og flug- skeytaárásum á Bagdad, höfuð- borg íraks, var haldið áfram í nótt, á sama tíma og leiðtogar Bandaríkjanna og Bretlands eru farnir að vara landa sína við löngu og erfiðu stríði. Þeir rædd- ust við í Camp David, sveitasetri Bandaríkjaforseta skammt frá Washington, í gær. George W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði að hersveitir banda- manna myndu hafa sigur í barátt- unni við Saddam Hussein íraks- forseta, sama hversu langan tíma það tæki. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og helsti bandamaður Bush i herforinni gegn Saddam, varaði bresku þjóðina í morgun við því að upp myndu koma erfið- ir tímar i átökunum. Þá staðhæfði Blair að raunveruleg tengsl, eins og hann orðaði það, væru milli hryðjuverkahópa og bófaríkja, eins og írak hefur verið kallað, þegar gjöreyðingarvopn eru ann- ars vegar. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN sagði frá því í morgun að B- 52 sprengjuvélar hefðu í fyrsta sinn varpað rúmlega tveggja tonna jarðhýsabana á Bagdad. Talsmaður bandaríska landvarna- ráðuneytisins gat ekki staðfest þá frétt. Fréttaritari Reuters í Bagdad, Samia Nakhoul, sagði að sprengju- árásimar í nótt hefðu verið ein- hverjar þær hörðustu frá upphafi stríðsins fyrir níu dögum. Stjórnendur stríðsins, sem hafa bækistöðvar sínar í Persaflóarík- inu Katar, sögðu að sprengjuvélar og Tomahawk-stýriflaugar hefðu eytt fjarskiptamiðstöð og stjórn- stöð í árásunum í nótt. Bandarískur liðsforingi sagði að bandarísk herfylki á leið til Bagdad hefðu barist við um 1.500 íraka nærri borginni Najaf í nótt. Najaf er um 160 kílómetra suður af írösku höfuðborginni. Fréttamaður Reuters á átaka- svæðinu sagði að bandarísku her- mennirnir hefðu beitt skriðdrek- um og stórskotaliðsbyssum. Ekki var ljóst hvort verið var að berjast við óbreytta íraska hermenn eða þrautþjálfaða liðsmenn lýðveldis- varðarins. Bandarískar hersveitir héldu einnig áfrarn að safnast saman um 80 kílómetra suður af Bagdad. Þar búa þær sig undir þýðingarmikla orrustu við lýðveldisveröi við borgina Kerbala. Bandaríkjamenn hafa ákveðið að senda hundrað þúsund her- menn til viðbótar til Persaflóa- svæðisins og bandarískur hers- höfðingi sagði að bardagaaðferðir íraka bentu til að stríðið gæti orð- ið langvinnara en áætlanir gerðu ráð fyrir. . REUTERSMYND Iraki með byssu í Bagdad íraskur miðaldra karlmaöur í Bagdad heldur vígreifur á Kalasníkov-hríöskotariffli sínum og hrópar vígorö. Bandaríkja- menn héldu uppi linnulausum loftárásum á írösku höfuðborgina í nótt, á níunda degi stríösins. SÞ sárvantar 2 miljarða dollara tH að hjáipa þjáðum í írak Sameinuðu þjóðirnar ætla að fara fram á það við þjóðir heims í dag að þær leggi þegar í stað fram 2,1 milljarða dollara til neyðar- aðstoðar við stríðshrjáða íbúa íraks. Samtökin hafa aldrei áður farið fram á svo háa upphæð til neyðarað- stoðar í einu. Til stendur að verja 1,2 milljörðum dollara til kaupa á matvælum sem matvælastofnun SÞ mun koma áleiðis. Embættismenn SÞ sögðu í gær að Bandaríkin, Evrópu- sambandið, Japan, Kanada og Ástralía hefðu til þessa yfirleitt brugðist vel við neyðarkall hefur borist. Stjórnarerindrekar höfðu REUTERSMYND Bið á neyðaraöstoð Enn hefur oröiö biö á því aö breskt skip geti lagst aö brygglu í Umm Qasr í írak til aö hægt sé aö skipa upp 500 tonnum af neyöaraöstoö handa sárþjáöum írökum. því áhyggjur að einhver ríki þegar kynnu að vera treg til að leggja fram fé vegna framkomu Banda- þó af ríkjamanna og Breta sem fóru í stríð við írak án heimildar Öryggisráðsins. Búist er við að Öryggisráð- ið muni í dag ganga endan- lega frá samkomulagi um að verja milljörðum dollara af ol- íusölutekjum íraka til kaupa á matvælum og lyfium til að koma í veg fyrir neyðar- ástand I Irak þar sem meira en helmingur þjóðarinnar er háður utanaðkomandi aðstoð með mat. Breskt skip með um fimm hundruð tonn af hjálpargögn- um til íraks bíður enn eftir að geta lagst að bryggju í hafnar- bænum Umm Qasr. Sólar- hringstöf varð í gær á að skipið gæti komið inn til hafnar vegna þess að tvö tundurdufl fund- ust í innsiglingunni. Farið vel með stníðsfanga Bandaríski mannréttinda- frömuðurinn Jesse Jackson hvatti Bandaríkjamenn, Breta og íraka í gær til að fara vel með stríðsfanga sína, hvort heldur þeir væru í haldi í írak, Afganist- an eða á Kúbu. Þá hvatti Jackson til að skjótur endi yrði bundinn á stríðið í írak. Penle sagði af sén Richard Perle, einn helsti hug- myndafræðingur stríðsins í írak, sagði af sér í gær sem formaður ráðgjafamefndar Pentagons eftir að bent var á hagsmunaárekstur vegna starfa hans fyrir gjaldþrota Sénsveitín gætu dugað á Saddam Fyrrum liðsmaður bresku sér- sveitanna SAS, sem var pyntaður í fyrra Persaflóastríði, segir að eftir allt sprengjuregnið á Bagdad gæti svo farið að aðeins örfáir sérsveitarmenn mundu koma Saddam Hussein íraksforseta fyr- ir kattarnef. Myntu ekki henmenn írakar visuðu á bug staðhæf- ingum Tonys Blairs, forsætisráð- herra Bretlands, um að írakar hefðu tekið af lífi tvo breska her- menn, sem þeir handsömuðu. Raffanin hæðist að Könum Jean-Pierre Raf- farin, forsætisráð- herra Frakklands, hæddist í gær að þeim fullyrðingum Bandaríkjamanna að vegna hátækni- vopna væri hægt að takmarka mjög mannfallið í Irak. Hann sagði að stríðið nú væri jafnblóðugt að stríð sem voru háð á síðustu öld. flznan vill hafa SÞ með José Maria Azn- ar, forsætisráð- herra Spánar, sagði í gær að Sameinuðu þjóð- irnar yrðu að gegna mikilvægu hlutverki í írak að Saddam Hussein fóllnum. Þar gengur hann þvert á það sem Bush Bandaríkjaforseti hefur sagt. Aznar hefur stutt dyggilega við bakið á Bush. Senbneska löggan dnepun tvo Serbneska lögreglan hefur skot- ið til bana tvo bófaforingja sem taldir eru eiga þátt í morðinu á Zoran Djindjic forsætisráðherra fyrr í mánuðinum. Bófarnir skutu á laganna verði til að reyna að forðast handtöku. Enfitt hjá andstæðingunum Hópar sem hafa lagst gegn hernaði Bandaríkjamanna og fé- laga þeirra í írak eiga sífellt erf- iðara með að fá að birta auglýs- ingar gegn stríðinu í bandarísk- um ljósvakamiðlum sem flestir eru í eigu risafyrirtækja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.