Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2003, Qupperneq 16
16
17
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson
Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aðstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akuroyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Miklu lofað
Það segir sína sögu um stöðu Sjálf-
stæðisflokksins og forystumanna hans
í aðdraganda fyrstu alþingiskosning-
anna á nýrri öld að hann lofar miklu.
Mjög miklu. Ræða Daviðs Oddssonar,
formanns flokksins, við upphaf 35.
landsfundar flokksins í Laugardalshöll
i gær, var þrungin loforðum, en þess
utan var hún skreytt með hefðbundnu
háði um heimsku vinstrimanna og
hvað allir menn eru galnir i efnahags-
málum sem eru utan við sjónlinu Sjálfstæðisflokksins.
Oft hefur Sjálfstæðisflokkurinn komist af með styttri
loforðalista en fyrir þingkosningarnar i mai á þessu ári.
Stundum hefur hann ekki þurft að segja bofs á siðustu
metrum kosningabaráttunnar en látið andstæðingum sín-
um eftir að væla utan í kjósendur í von um að klifra upp
fyrir tuttugu prósentin í kjörfylgi. Slikir hafa yfirburðir
Sjálfstæðisflokksins verið um árabil að hann hefur getað
leyft sér að stíga til hliðar og horfa á hina flokkana met-
ast um eigin verðleika.
Kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins i ár sæta miklum
tíðindum. Flokkurinn lofar því að standa fyrir veigamikl-
um breytingum á skattkerfmu sem að likindum kosta rík-
issjóð allt að 22 milljarða króna. í ræðu sinni á landsfund-
inum mat formaður flokksins stöðu efnahagsmála með
þeim hætti að það væri verulegt svigrúm til skattalækk-
ana; niðurgreiðsla á skuldum ríkissjóðs á siðustu árum
ásamt jafnvægi í efnahagsmálum gæfu þjóð og landi veru-
leg sóknarfæri.
í ræðunni sagði Davið: „Við viljum lækka tekjuskatt
um 4 prósent á kjörtimabilinu. Við viljum afnema eignar-
skatt algerlega. Við viljum lækka um helming virðisauka-
skatt á matvæli, bækur, húshitun, rafmagnskostnað og
annað sem tilheyrir lægri virðisaukaskattsþrepinu. Við
viljum hækka barnabætur um 2 þúsund milljónir króna.
Við viljum helminga öll skattþrep erfðafjárskatts, þannig
að almennt þrep verði aðeins 5 prósent og að fyrstu 2
milljónirnar verði erfðaskattslausar.“
Þetta eru viðbrigði i íslenskum stjórnmálum. Líklega
hefur enginn flokkur hér á landi lofað jafn miklum og
hressilegum skattalækkunum í einu vetfangi. Og Davíð
bætti við: „Hingað til höfum við ekki lofað beinum skatta-
lækkunum fyrir kosningar en höfum lækkað þá samt. Það
þýðir að hér er um bein loforð okkar að ræða, sem við efn-
um fáum við til þess styrk í þetta sinn. Það vita allir sem
fylgst hafa með verkum okkar, að þessu má treysta,“ sagði
Davíð á landsfundinum.
Þetta eru lykilorð í ræðu Davíðs. Það hefur verið lán
Sjálfstæðisflokksins undir forystu Davíðs Oddssonar að
mikill hluti landsmanna hefur treyst flokknum og forystu-
mönnum hans til að fara með efnahagsmál þjóðarinnar.
Líklega hefur stór hluti þjóðarinnar kosið með buddunni
í síðustu þrennum alþingiskosningum og á þeim árum
hefur Davíð Oddssyni tekist að höfða til þessa góða sam-
bands síns við kjósendur þegar hann hefur setið á eintali
við þáttastjórnendur.
Eðlilegt er að Sjálfstæðisflokkurinn freisti þess að
virkja þetta samband sitt við kjósendur. Forysta flokksins
veit sem er að nú heyr hún sina hörðustu keppni. And-
stæðingarnir munu auðveldlega benda á að loforðaflaum-
ur flokksins í ár mun koma þeim best sem hafa hærri tekj-
urnar. Þeir munu benda á árásir flokksins á velferðarkerf-
ið, æ dýrari heilbrigðisþjónustu, lækkun barnabóta og
meiri skattbyrði. Og þeir munu spyrja hvort brandarar
Daviðs séu orðnir of gamlir.
Sigmundur Ernir
~\"r
FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003_FÖSTUDAGUR 28. MARS 2003
Skoðun
Olafur Þ.
Hallgrímsson
prestur
Kjallari
Hún var skrýtin, athöfnin
sem fram fór í félagsheim-
ilinu Végaröi í Fljótsdal
skömmu fyrir jól, þar sem
nýlagður Kárahnjúkavegur
og brú yfir Jökulsá á Dal
voru formlega tekin í
notkun eöa vígð, eins og
greint var frá í blöðum.
Ekki fór athöfn þessi þó fram á
heiðum uppi, eins og eðlilegra
hefði verið, heldur niðri í byggð-
inni, enda Landsvirkjun og iðnað-
arráðherra í mun að fá þangað sem
flesta gesti. í lok athafnarinnar í
Végarði tókust oddvitar Norður-
Héraðs og Fljótsdalshrepps í hend-
ur „og opnuðu brúna á táknrænan
hátt“, eins og komist var að orði í
fréttaklausunni. Sóknarpresturinn,
sr. Lára G. Oddsdóttir, blessaði
framkvæmdina og söng sálm ásamt
Valgerði iðnaðarráðherra.
Sjónieikur á svið
Hér var settur á svið sjónleikur
með iðnaðarráðherra og stjórnar-
formann Landsvirkjunar í aðal-
hlutverkum. Sjónleikur með kristi-
legu ívafi sem féll einkar vel að
markmiðum Landsvirkjunar að
fegra og bæta ímynd sína í
augum alþjóðar, sem stofn-
unin hefur verið einkar dug-
leg við upp á síðkastið.
Ekki öfunda ég sóknar-
prestinn á Valþjófsstað af
því hlutskipti að setja kristi-
legan stimpil á eyðilegging-
una sem Kárahnjúkavirkjun
mun hafa í för með sér fyrir
Fljótsdalshérað og öræfin
allt fram til jökla, þ. á m.
hina fógru sveit, Fljótsdal-
inn, þar sem nes og tún
munu verða meira og minna
ónýt vegna hækkandi vatns-
borðsstöðu og næsta ná-
grenni höfuðbólsins Val-
þjófsstaðar undirlagt umróti
og háspennuvirkjum. Ég
vildi ekki vera í þeim spor-
um.
Margir hafa undrast af-
stöðu Valgerðar Sverrisdótt-
ur iðnaðarráðherra í þessu
stórmáli. Hún hefur dyggi-
lega sótt línuna til flokksfor-
mannsins, Halldórs, sem nú
virðist um það bil að detta
út af þingi.
Málamiðlun?
Ekki hefur það komið
fram að ráðherranum hafi
þótt taka því að kynna sér
sóðaslóð álrisans Alcoa í
öðrum löndum, t.d. í Brasil-
íu, áður en við hann var
samið. Ekki virðist heldur
hafa farið fyrir brjóstið á
henni sú frétt að ítalska fyr-
irtækið Impregilo, sem átti
lægsta tilboð í stíflu og að-
rennslisgöng Kárahnjúka-
virkjunar, bíður nú dóms
fyrir mútuþægni í heima-
Ingvi Hrafn
Óskarsson
formaöur Sambands
ungra sjálfstæöis-
manna og frambjóö-
andi Sjálfstæöis-
flokksins í Reykjavík
Kjallari
Ummæli
„Nú hefur verið undirritaður samningur milli
Landsvirkjunar og Alcoa um byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar og álvers á Reyðarfirði. Fátt
virðist því geta komið í veg fyrir að af þessum
náttúrusóðaskap verði. “
landi sínu. í hvaða landi
öðru skyldu slík vinnu-
brögð geta viðgengist
nema í þeim sem kennd
eru við orðið banana. Hlut-
verk iðnaðarráðherrans
hefur verið hlutverk hins
auðmjúka þjóns i þessu
sem þiggur án
ra kröfur og tek-
ur öllu fagnandi. Afstaða
hennar og rikisstjórnar-
innar í heild til
umhverfisverndarfólks
hefur einkennst af hroka
og lítilsvirðingu. Orðið
málamiðlun virðist ekki
fyrirfinnast á þeim bæ.
Nú hefur verið undirrit-
aður samningur milli
Landsvirkjunar og Alcoa
um byggingu Kárahnjúka-
virkjunar og álvers á Reyð-
arfirði. Fátt virðist því
geta komið í veg fyrir að af
þessum náttúrusóðaskap
verði. Iðnaðarráðherra og
Landsvirkjun virðast hafa
ákveðið að kljúfa þjóðina
niðúr í tvær andstæðar
fylkingar 1 þessu máli. Þá
skyldu þessir aðilar minn-
ast þess að sá sem valdi
beitir mun uppskera ill-
deilur og hatur. Það eru
gömul. og ný sannindi. Er
það þetta sem þjóðin þarf mest á að
halda um þessar mundir? Eitt er
víst að baráttan fyrir verndun há-
lendisins heldur áfram og mun fara
mjög harðnandi. Ekki fer á milli
mála að stór hluti þjóðarinnar er
andvígur virkjunaráformum við
Kárahnjúka.
Baráttan heldur áfram
Hin gríðarhörðu mótmæli á dög-
unum í Borgarleikhúsinu og við
Ráðhúsið sýna hug fólks til þessara
áforma svo ekki verður misskílið.
Þau tala sínu máli.
Mótmæhn við Lagarfljótsbrú sýna
að áhyggjur fólks á Héraði fara
vaxandi.
Stjórnvöld geta beitt valdi.
Þeirra er valdið en hvorki máttur-
inn né dýrðin. Vitur stjómmála-
maður fer vel með vald sitt. Það
skyldu menn muna. Baráttan held-
ur áfram. Mótmælum Kárahnjúka-
virkjun. Um hana verður kosið að
vori.
Sálmaskáldið, sr. Hallgrímur,
yrkir á nokkrum stöðum í Passiu-
sálmunum um valdsmenn og varar
þá við að beita valdi ograngindum.
Svo yrkir hann um Júdasar iðrun:
Sjá hér, hvað illan erida / ótryggö
og svikin fá. Vel hefði fariö á því að
mínum dómi að þetta vers hefði
verið simgið við athöfnina í Vé-
garði. Það hefði verið við hæfi.
Sandkorn
sandkorn@dv.is
Búnaðartiing?
Fyrirhugaðar viðræður um
hugsanlegan samruna
Búnaðarbankans og Kaupþings
vekja vitanlega athygli þótt ekki
komi þær öllum mjög á óvart.
Gárugarnir benda á að
Kaupþingsmenn hafi um nokkurt
skeið haft áhuga á flestu sem tengist
landbúnaði, þannig fluttu þeir um
árið í gömlu höfuðstöðvar Bifreiða
og landbúnaðarvéla! Og sömu
mönnum finnst liggja beinast við að
sameinaður banki verði látinn heita
Búnaðarþing ...
Mæðgin í framboði
„Fjölskyldan er hornsteinn sam-
félagsins," er algengt viðkvæði
stjómmálamanna. Og stundum má
sjá þessa afstöðu endurspeglast í
Skattalyst Manneldisráös
„Hauskúpa yrði sett á sykurpok-
ann ef menn væru að uppgötva syk-
urinn núna. Sykur er eitur! Þetta
segja næringarfræðingar. Það er
sömuleiðis sagt að maður sé þaö
sem maður borðar. Samkvæmt því
eru ungir piltar að verða að út-
blásnum sykurpúðum og ég að kjöt-
fjalli ef marka má nýja könnun
Manneldisráðs á mataræði íslend-
inga. Ekki gott. Hins vegar er enn
verra og algerlega óviðunandi að
Laufey Steingrímsdóttir, forstöðu-
maður Manneldisráðs, skuli hafa
viðrað sérstaka skattheimtu á gos-
drykki í fréttum nýlega. Manneldis-
ráð verður að kunna sér magamál."
Jón G. Hauksson á Heimi.is.
Mogginn og Hávamál
„Heimskulegi leiðarinn [Morgun-
„Sjálfstæðisflokkurinn sendir
kerfisbimdið út þá þjóðsögu að
Davíð Oddsson hafi lækkað tekju-
skatta. Það er rangt.“ Þessi sami
Össur sagði hins vegar í tilefni af
skattalagabreytingum ríkisstjóm-
arinnar árið 1999 í viðtali á Stöð 2:
„í þessu þensluástandi sem núna
ríkir þá tel ég það vera mikil mis-
tök hjá ríkisstjórninni að lækka
skatta yfir línuna, líka til þeirra
sem höfðu enga þörf fyrir slíkt og
notuðu þetta sem kaupmáttarauka
til þess að eyða í innfluttan lúxus.“
Að lækka skatta yfir línuna sagði
hann þá, og það er einmitt þaö
sem var gert þó að þessar stað-
reyndir henti ekki málflutningi
Samfylkingarinnar nú í upphafi
kosningabaráttunnar. Þannig við-
urkenndi formaður Samfylkingar-
innar ekki aðeins að þessar að-
gerðir fælu í sér skattalækkun;
hann var beinlínis á móti þeim.
Og hversu sannfærandi getur það
talist að þessi sami flokkur og
þessi sami formaður gefi sig nú út
fyrir að vera sérstakir vildarmenn
skattgreiðenda?
Skattar lækka, laun hækka
Kjami málsins er sá að ríkis-
stjórnir Sjálfstæðisflokksins hafa
ekki gert breytingar á skattkerf-
inu sem leitt hafa til þyngri skatt-
byrðar - þvert á móti hefur tekju-
skattur einstaklinga og fyrirtækja
verið lækkaður. Efhahagslífið hef-
ur meðal annars af þeim sökum
blómstrað á stjómar-
árum flokksins sem
leitt hefur til
kaupmáttur
manna hefur aukist
um rúman þriðjurig á
átta árum. íslending-
ar hafa því
hærri tekjur en áður.
Meiri tekjur og meiri
velta hafa einnig leitt
til þess að skatttekjur
ríkisins hafa aukist
Skattkerfi okkar ér
þannig byggt upp að
því meiri tekjur
merm hafa þeim mun
meiri skatta greiða
þeir. Tölurnar sem
Össur tilgreinir í
greinum sínum um
fjölgun þeirra sem
greiða hærra hlutfall
launa sinna í skatt
nú en fyrir átta áram
endurspegla því ein-
vörðungu þá stað-
reynd að laun flestra
íslendinga hafa
hækkað verulega á
þessum árum. Þannig
er þetta nú og kæmi
mér verulega á óvart
ef félagshyggjufólkið í Samfylking-
unni telur ástæðu til þess að
breyta þessu. Raunar fjallaði tals-
maður Samfylkingarinnar, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, nýverið
um fjölþrepa skattkerfi sem hún
og meira að baki
áróðri Samfylkingar-
innar í skattamálum
en í fyrstu gæti
virst. Kann aö vera
að leikurinn sé til
þess gerður að
flækja og afvegaleiða
umræðu um þróun
kaupmáttar og lífs-
kjara á íslandi í
stjórnartíð Sjálfstæð-
isflokksins? Þetta er
einmitt tæknin sem
Ingibjörg Sólrún
beitti meö þokkaleg-
um árangri um tíma
til þess að villa um
fyrir kjósendum í
umfjöllun um
skuldastöðu Reykja-
víkurborgar. Sam-
fylkingin mun ekki
feitum hesti frá
slíkri umræðu;
landsmenn þekkja
„Formaður Samfylkingarinnar viðurkenndi ekki aðeins að þessar aðgerðir batnað8 á^ísiandMi
fælu í sér skattalœkkun, hann var beinlínis á móti þeim. Og hversu sannfœr- undanfórnum árum.
andi getur það talist að.þessi sami flokkur og þessi sami formaður gefi sig nú mun^kkTtakast að
út fyrir að vera sérstakir vildarmenn skattgreiðenda?“ eyða kaupmáttar.
telur sérstaklega vænlega hug-
mynd. í þessu felst reyndar hin
furðulegasta þversögn. Samfylk-
ingin býsnast yfir því að hærri
laun landsmanna leiði til þess að
þeir greiði hærri skatta en leggur
í sömu andránni til að skattkerf-
inu verði breytt þannig að þessi
áhrif aukist til mikilla muna.
Aö flækja umræöuna
Ef til vill liggur eitthvað annað
aukningunni og síst
af öllu með talnaleikfimi og útúr-
snúningum. Ekki nema þjóðin
slysist til þess að kjósa hana yflr
sig í vor. Svo mikið er þó víst að
við myndum ekki fá skattalækkun
yfir línuna.
framboðslistum þeirra. Skemmst er
að minnast þess að feðginin Sverrir
Hermannsson og Margrét Sverris-
dóttir skipuðu 1. og 3. sæti á lista
Frjálslyndra í Reykjavík fyrir síð-
ustu þingkosningar. Og fyrir kom-
andi kosningar eru mæðgin enn
saman á framboðslista því að þau
Kristján Jónasson jarðfræðingur og
Kristín Halldórsdóttir, fyrrverandi
alþingismaður, skipa 19. og 22. sæti
á lista Vinstri grænna í Suðvestur-
kjördæmi. Ekki er alveg útilokað
að enn bætist í þennan hóp því eins
og margir muna er Arndís Krist-
jánsdóttir, Pálssonar alþingis-
manns, ekki óvön stjórnmálum og
var m.a. í forystuhlutverki fyrir
Röskvu í stúdentapólitíkinni á sín-
um tíma ...
blaðsins] um að
vinir styddu vini
sina fjallaði alls
ekki um réttmæti
árásar á írak held-
ur skuldbindingu
íslendinga að fylgja
Bandaríkjunum.
Bandaríkin hafa
því miður ekki þá siðferðislegu yfir-
burði á leiksviði alþjóðastjórnmála
sem gerir okkur fært að veita þeim
skilyrðislausan stuðning. Hvorki
fyrr né síðar. Þetta segi ég sem vin-
ur Bandaríkjanna. Þakklátur fyrir
allt það góða sem mér hefur hlotn-
ast persónulega í Bandaríkjunum og
minnugur þess góða sem þau standa
oft fyrir. Sá er vinur er til vamms
segir. En Morgunblaðið veit auðvit-
að betur en Hávamál.“
Stefán Jón Hafstein á Heimi.is.
Samfylkingin fer um þess-
ar mundir mikinn í um-
ræðu um skattamál. Er
klifað á þeirri ásökun að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi
hækkað skatta, sérstak-
lega á þá sem lægstu
tekjurnar hafa. Allur þessi
málflutningur hefur verið
hrakinn oftar en einu
sinni. Tekjuskattshlutfallið
hefur verið lækkað, ekki
hækkað. En samt er hald-
ið áfram eins og lygin
verði trúlegri eftir því sem
hún er endurtekin oftar.
Össur Skarphéðinsson beit þó
höfuðið af skömmiimi með grein-
um sínum sem birst hafa í vikunni
í Fréttablaðinu og DV. í Frétta-
blaðinu sagði hann meðal annars:
4
+