Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2003, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2003, Blaðsíða 14
Laugardagur 24. MAÍ2003 ■ ^^sar|ifíÍHi^Æ| P| |l| IPIAA j |^|I 1Ivji . Guðmundur Guðmundsson og Jón Bergsson: Með nýsmíðaðan Subaru RS rallbíl Guömundur Guðmundsson og Jón Bergsson munu hefja keppni i um helgina á nýsmíðuðum Subaru Impreza rallbíl. DV-bílar tóku aðeins hús á þeim félögum og skoðuðu bílinn sem þeir hafa breytt nokkuð frá því í fyrra, sem var fyrsta ár þeirra með bílinn. Bíllinn er ameríkutýpa og svo- kallaður RS-bíll og var aðeins aft- urhjóladrifinn í fyrra, en nú er komin ný og öflugri vél í hann og hann er nú fjórhjóladrifinn. Vélin er um 240 hestöfl og einnig var settur nýr og sterkari gírkassi í bílinn. „Við notuðumst við sömu túrbínuna en settum í hann stærri púst og loftsíu," sagði Jón, yfirsmiður bílsins. „Við eigum reyndar eftir að fara með hann í tölvuna en við áætlum að þessi hestaflatala standist. Við settum einnig í hann lægri, 50 mm fjöðr- un og tókum allt fjöðrunarkerfið í gegn. Til þess styrktum við spyrn- ur og allan hjólabúnað að aftan,“ sagði Jón enn fremur. Jón er svo sem ekkert óvanur smíði rallbíla því að RS-bíllinn er þriðji bíllinn sem hann kemur að smíðinni á. Guðmundur er ökumaður bílsins og hefur keppt lengi í rallinu og tekið þátt í þjónustuliðum á árum áður. „Ætli það séu ekki rúm 20 ár síðan ég byrjaði að koma ná- lægt rallkeppni," sagöi Guömund- ur. „Við hófum keppni á bílnum í fyrra en þá hrjáðu barnasjúkdóm- ar okkur. Nú er hins vegar allt þaulreynt og prófað og við erum tilbúnir til keppni," sagði Guð- mimdur að lokum. • -NG STYRKTARAÐILAR: DV Pósturinn Snap On Ingvar Helgason Katla Bílar og Vélar Dynjandi Good Year Klettagörðum Þeir félagar brugðu aðeins á leik fyrir ljósmyndara í fjörunni og það er greinilegt að bíllinn er til í allt. Þeir Guðmundur Guðmundsson og Jón Bergsson eru ánægðir með nýja bílinn og ætla sér stóra hluti i rallinu í sumar. Bensíndælurnar eru tvær aftur í bílnurn til að auka bensínflæðið og ef önnur þeirra bilar er hin virk til vara. Að sjálfsögðu eru stærstu gerðir að PIA-ljóskösturum frarnan á bílnum. Öryggisbúrið er smíðað samkvæmt alþjóðareglutn FIA og þeir Guðmund- ur og Jón vita greinilega að þeir geta treyst sinni smíði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.