Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 Hættuleg fitubrennsluhylki seld á Netinu Flugslysaáætlun fyrir Eyjar EUUR: Lyfjastofnun og Um- hverfisstofnun hafa fengið upplýsingar um sölu á Net- inu á fitubrennsluhylkjum sem innihalda hættulegt efni, DNP. Hylkin eru einkum ætl- uð þeim sem stunda líkams- rækt til þess að auka fitu- brennslu. Efnið er lífshættu- legt þar sem það hefur áhrif á orkuframleiðslu í frumum líkamans. Það er ekki skil- greint sem lyf en er á lista yfir eiturefni og hættuleg efni og er stundum notað sem skor- dýraeitur. Vitað er um finnsk- an mann sem lagður var inn á gjörgæsludeild eftir að hafa tekið inn hylki með efninu. Finnsk yfirvöld hafa sent út viðvörun til annarra Evrópu- landa þar sem varað er við hylkjunum. Lyfjastofnun og Umhverfisstofnun ráðleggja því fólki að neyta ekki vara sem innihalda DNP. Lyfja- stofnun og Umhverfisstofn- un hvetja fólk til að vera á varðbergi gagnvart vörum sem seldar eru á Netinu eða í póstverslun, einkum ef inni- haldslýsingar eða notenda- fyrirmæli eru villandi. FLUGSLYS: I gær var undirrit- uð í Vestmannaeyjum ný og endurbætt flugslysaáætlun fyrir Vestmannaeyjaflugvöll. Áætlunin hefur að geyma upplýsingar um verkefni og samhæfingu allra viðbragðs- aðila íVestmannaeyjum. I lok október er stefnt að því að reyna virkni áætlunarinnar með flugslysaæfingu. Flug- málastjórn, ríkislögreglustjóri og viðbragðsaðilar á einstök- um stöðum vinna nú að flug- slysaáætlunum fyrir alla áætl- anaflugvelli landsins og byggjast þær m.a. á þeim fjölmörgu hópslysaæfingum sem átt hafa sér stað á und- anförnum árum, nú síðast á Vopnafirði og Þórshöfn. Stórum eignum fjölgar enn Sagt var frá því í DV fyrir skömmu að sala fasteigna hefði farið vel af stað á árinu. Það sem af er mánuðinum hafa rúmlega 340 þinglýstir kaupsamningar verið gerðir og ef áfram heldur sem horfir stefnir í að met verði sett í sölu fasteigna. Heildarfjöldi samninga sem gerð- ir hafa verið á árinu er aftur á móti tæplega 3.400 og nemur heildarvelt- an af þessum viðskiptum um 50 milljörðum króna. Mikill uppgangur „Það sem hefur einkennt markað- inn það sem af er ári er mikill upp- gangur og í kjölfar þess hefur maður orðið var við aukna bjartsýni meðal seljenda," sagði einn fasteignasali af höfuðborgarsvæðinu við DV f lið- inni viku. Aukin bjartsýni hefur meðal annars sýnt sig í að meira er um stærri eignir á markaðnum en oft áður. Þessi aukna bjartsýni hefur meðal annars sýnt sig í að meira er um stærri eignir á markaðnum en oft áður og eigendur slíkra eigna binda í auknum mæli vonir við að selja eignirnar í heilu lagi. í síðustu viku sagði DV frá rúmlega 400 fm íbúðar- húsi við Flókagötu í Reykjavík sem er til sölu fýrir 75 milljónir. Mikil fjölgun hefur orðið á eignum af þessari stærð á markaðnum á síð- ustu vikum og sem dæmi hefúr fast- eignasalan Fold nú á sinni söluskrá hús við Urriðakvísl í Árbænum þar sem ásett verð er 89 milljónir króna. Um er að ræða tæplega 470 fm einbýlishús sem teiknað var af Helga Hjálmarssyni en húsið er nú í FÆST FYRIR 89 MILLJÓNIR: Þetta glaesilega hús við Urriðakvísl í Árbaenum er nú til sölu fyrir 89 milljónir króna. Að sögn fasteignasala hefur staerri eignum fjölgað talsvert á markaðnum og þykir það sýna aukna bjartsýni sem ríkir á fasteignamarkaðnum. eigu Ástu og Sverris Bemhöfts. Þá hefur fasteignasalan Miðborg á sinni skrá einbýlishús við Stigahlíð sem metið er á 72 milljónir króna. Húsið er rúmlega 430 fermetrar að stærð en það var reist árið 1985. Einnig hefirr Fasteignamarkaðurinn til sölu 330 fermetra hús við Fjölnis- veg í eigu Árna Ingólfssonar og Mar- grétar Þóru Jónsdóttur á 70 milljón- ir. Fleiri hús sem metin eru á um og yfir 70 milljónir eru svo á skrá hjá fasteignasölum landsins og mikill fjöldi eigna sem metinn er á 50 milljónir eða meira. Þessi aukni fjöldi stærri og dýrari eigna þykir greinilega sýna hina áðumefndu bjartsýni sem ríkir á markaðnum. Fyrir ekki svo löngu síðan hefði nán- ast þótt óhugsandi að selja einbýlis- hús af þessari stærð en eins og stað- an er á markaðnum er það vel mögulegt, að sögn fasteignasala sem bæti því við að eftirspumin eft- ir sltku húsnæði væri jafnframt smám saman að aukast. agust@dv.is STEFNIRÍMET: Húsið á myndinni er einmitt eitt þeirra fjölmörgu sem er á sölu um þessar mundir en það stendur við Fjölnisveg í Reykjavík og fæst fyrir 70 millj- ónir. MIKILL UPPGANGUR: Mikill uppgangur hefur verið í sölu fasteigna það sem af er ári. Heildarvelta af viðskiptum með fast- eignir á árinu nemur um 50 milljörðum króna. Minningardagur um Bassa bátasiglara Sérstakur minningardagur verður föstudaginn 4. júlí um þann sem heita má upphafs- maður að litríkum bátasigling- um niður Jökulsár vestari og austari - Björn Gíslason lög- reglumann sem oftast var kall- aður Bassi. Hann lést ásamt tveimur öðrum í banaslysi á Kjalarnesi þann 25. febrúar 2000. Hann var þá bílstjóri lítillar rútu en ferðinni - óvissuför- inni - var þá heitið með farþega að Bakkaflöt í Skagafirði - einmitt á þann stað þar sem hans verður minnst á næstu dögum. Óvissuferðin fékk skjótan endi en lífið hélt áfram. Þúsundir fslend- inga og erlendra ferðamanna hafa nú ferðast um árnar tvær nyrðra þar sem Bassi og Vilborg Hannes- dóttir, eiginkona hans, höfðu rutt veginn með siglingum sem hófust með því að þau komu með vinum og kunningjum á Bakkaflöt árið 1993. Þau tóku síðan til við að prófa mismunandi aðstæður, þjálfuðu starfsfólk og siglingunum óx fiskur um hrygg. Á Bassadaginn á Bakkaflöt verð- ur fólki - vinum og velunnurum Bassa, sem öðrum, boðið upp á ferðir niður jökulárnar tvær en all- ur ágóði rennur í ferðasjóð fjöl- skyldu hans. Að sögn fjölskyldunn- ar á Bakkaflöt hentar vestari áin öll- um en Jökulsá austari er meira fyrir spennufíkla. Upplýsingar og bók- anir er hægt að gera með því að hringja í síma 453 8245. -ött SVAÐILFÖR: Sigling um Jökulsá austari tekur santals 6 til 7 klukkustundir ef undir- búningur er meðtalinn. BJÖRN GfSLASON BÁTAMAÐUR: Hann var ötull bátasiglari og ruddi veginn fyrir þúsundir sem á eftir komu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.