Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 14
14 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson og Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is / erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Tólf fórust í Chicago BANDARÍKIN:Tólf manns týndu lífi og tugir slösuðust þegar trésvalir á íbúðarhúsi í Chicago létu undan þunga fjölda fólks sem var að skemmtar sér í húsinu snemma á sunnudagsmorgun. „Þarna ríkti algjör ringulreið. Fólk öskraði og grét í húsa- sundinu," sagði James Joyce, slökkviliðsstjóri í Chicago. Sumir sjónarvottar sögðust hafa heyrt brak og bresti áður en svalirnar gáfu sig og féllu niður á fólk sem var að gera sér glaðan dag á hæðunum fyrir neðan og kramdi það. Slökkvilið þurfti að nota keðju- sagir til að ná til þeirra sem urðu undir brakinu. Talið er að um 70 manns hafi verið á svöl- unum og í stigunum. Bové keikur FRAKKLAND: Franski baráttu- bóndinn José Bové, sem var handtekinn fyrir rúmri viku og stungið í steininn fyrir að eyði- leggja akur með erfðabreytt- um plöntum, sagðist um helg- ina ekki ætla að knékrjúpa fyrir Jacques Chirac forseta og biðja hann um náðun. Þjóðhátíðar- dagur Frakka er fram undan og þá eru margir fangar náðaðir. Vopnahléssam- komulag í höfn ísraelar hefja brottflutning herja Palestínskur fáni dreginn aö húni: Palestínska lögreglan tók í morgun við öryggisgæslu á Gaza-svæðinu eftir að Israelsmenn höfðu hafið brottflutning herja frá norðurhluta svæðisins í gær. ísraelar hófu í gær brottflutn- ing herja sinna frá Norður- Gaza-svæðinu eftir að herskáar fylkingar Palestínumanna höfðu samþykkt þriggja mán- aða vopnahlé og lofað að stöðva allar árásir á ísraelska borgara. Brottflutningurinn hófst frá bænum Beit Hanoun eftir að Fatah-hreyfing Yassers Arafats hafði loks samþykkt að taka þátt í vopnahlénu sem Hamas-samtökin og íslamska Jihad-hreyfingin höfðu þegar samþykkt og hefur öryggis- gæsla á svæðinu verið falin palest- ínsku lögreglunni samkvæmt al- þjóðlegu friðaráætluninni „vegvísir til friðar". Palestfnsk stjórnvöld lögðu alla áherslu á að vopnhléð yrði í höfn fyrir helgina en þá var Condoleezza Rice, öryggismálaráðgjafí Bush Bandaríkjaforseta, væntanleg á óróasvæðið fyrir botni Miðjarðar- hafs þar sem hún ræddi við ísra- elska og palestínska ráðamenn og hvatti þá til að hefjast þegar handa við framkvæmd friðarferlisins á grunni vegvísisins. Áður höfðu þeir Bush Banda- ríkjaforseti og Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsótt svæðið fyrir botni Mið- jarðarhafs og hvatt til viðræðna um vopnahlé sem staðið hafa í nokkrar vikur að frumkvæði Mahmouds Abbas, forsætisráðherra Palestínu. Skriður komst á málið eftir að Fatah-foringinn Marwan Barg- houthi, sem er í haldi ísraels- manna, sakaður um að hafa skipu- lagt árásir og morð á ísraelskum borgurum, hafði skrifað undir sam- „ v Hraðskiptipatróna iffc-Lrrf. ..sparartímaogeyliiraftDst! komulagsdrög um miðja síðustu viku en þá funduðu fulltrúar her- skárra hreyfinga Palestínumanna og palestínskra stjórnvalda í Damaskus í Sýrlandi. í kjölfarið skrifuðu fulltrúar Hamas-samtakanna og Jihad- hreyfingarinnar einnig undir vopnahlésdrögin áður en þau voru formlega samþykkt um helgina. ísraelsk stjórnvöld hafa ítrekað hafnað vopna- hléssamkomulagi Palestínumanna og segja það tilgangslaust þar sem herskáum samtökum þeirra sé ekki treystandi. Eina lausnin á vandanum sé að afvopna og uppræta samtök þeirra. Barghouthi, sem er helsti leiðtogi hinnar herskáu al-Aqsa herdeildar sem tengist Fatah-hreyfingu Yass- ers Arafats, var handtekinn f apríl á síðasta ári og hófust réttarhöld yfir honum í ágúst sl. Þáttur Barghouthis í vopna- hléssamkomulaginiu var með fullri vitund ísraelskra stjómvalda og telja sumir að ísraelar vilji styrkja pólitíska stöðu hans sem líldegs eft- irmanns Yassers Arafats. ísraelsk stjórnvöld hafa þó ekkert viljað segja um þátt hans í vopna- hlésferlinu og kalla hann eftir sem Bandarískar hersveitir beittu flugvélum og brynvörðum far- artækjum þegar þær hófu stór- sókn gegn vopnuðum and- spyrnumönnum norður af Bagdad, höfuðborg fraks, í gær þar sem Saddam Hussein, fyrr- um forseti, naut eitt sinn víð- tæks stuðnings. Paul Bremer, landstjóri banda- rískra stjórnvalda í írak, sagði að búast mætti við frekara mannfalli í röðum setuliðsins í írak þar til dyggir stuðningsmenn Saddams hefðu annað hvort verið drepnir eða handsamaðir. Tommy Franks hershöfðingi, sem fór fyrir bandaríska innrásar- liðinu og bandamönnum þess, áður glæpamann sem hafi að minnsta kosti 26 ísraelsk mannslíf á samviskunni. Barghouthi, sem er fæddur á Vesturbakkanum árið 1959, gekk til liðs við Fatah-hreyfinguna þegar hann var fimmtán ára en hann er menntaður í aðþjóðasamskiptum frá Bir Zeit-háskólanum á Vestur- bakkanum. Hann hefur verið náinn samstarfsmaður Arafats og einlæg- ur stuðningsmaður friðarviðræðna við fsraelsmenn allt frá því í friðar- viðræðunum í Ósló árið 1993 eða þar til yfirstandandi ófriður bloss- aði upp haustið 2000 en síðan hef- ur hann hvatt til andstöðu gegn hersetu ísraelsmanna á heima- stjómarsvæðunum. Skiptar skoðanir vom innan Fatah-hreyfingarinnar um vopna- hlésdrögin og náðist samkomulag loksins innan hreyfingarinnar í gær eftir að Egyptar höfðu miðlað mál- um en þá komust fulltrúar helstu arma hreyfingarinnar og þar á meðal hinnar herskáu al-Aqsa-her- deildar, að samkomulagi um sex mánaða vopnahlé. fsraelsk stjórnvöld hafa ítrekað hafnað vopnahléssamkomulagi Palestínumanna og segja það til- gangslaust þar sem ekki sé hægt að treysta herskáum hryðjuverkasam- tökum þeirra. Eina Iausnin á vand- anum sé að afvopna og uppræta samtök þeirra. Bandarísk stjórnvöld hafa aftur á móti fagnað samkomulaginu og segja það mikilvægt skref f átt til friðar. „Allt sem kemur í veg fyrir áífamhaldandi ofbeldi er skref í rétta átt,“ sagði Ashley Snee, tals- maður Hvíta hússins, í gær og bætti við að enn væri verk að vinna þar sem vegvísir að friði gerði ráð fyrir sagði að árásir andspyrnumanna á bandaríska hermenn að undan- förnu hefðu ekki megnað að spilla Stjórnvöld vestra kenna leifum sérsveita Saddams og mönnum úr Baath-flokki hans um árásirnar. sigurgleðinni. Bremer lét að þvi' liggja f gær að bandarískir ráðamenn teldu að Saddam væri hugsanlega enn á lífi. „Ég geng út frá því að hann sé enn á lífi og við munum koma að uppræta hryðjuverkasamtökin. Rice öryggismálafulltrúi hitti Ariel Sharon, forsætisráðherra ísra- els, á fundi á laugardaginn og sagði í frétt ísrelska útvarpsins að þau hefðu meðal annars rætt brott- flutning herja frá Gaza-svæðinu VIÐ ÖLLU BÚINN: Bandaríski majorinn Patton er við öllu búinn á meðan menn hans leita að vopnum í úthverfi Bagdad. Bandaríski herinn hóf í gær stórsókn gegn andspyrnuöflum í Irak sem hafa látið mik- ið að sér kveða upp á síðkastið. auk þess sem Rice hafi lagt áherslu á að ísraelar hættu strax öllum að- gerðum á heimastjórnarsvæðun- um og létu fanga lausa. Þá mun opnun og enduruppbygging Gaza- flugvallar hafa verið til umræðu. höndum yfir hann, dauðan eða lif- andi,“ sagði Bremer í viðtali við sjónvarpsstöðina CNN í gær. Hernaðaraðgerðimar í gær hófust með tuttugu árásum sam- tímis, meðfram ánni Tígris. Tals- menn bandaríska hersins segja að sextíu manns að minnsta kosti hafi verið handteknir og lagt hafi verið hald á bæði ólögleg vopn og hern- aðarskjöl. Stjórnvöld vestra kenna leifum sérsveita Saddams og mönnum úr Baath-flokki hans um árásirnar að undanförnu þar sem allmargir bandarískir hermenn hafa fallið. Nokkrir bandarískir þingmenn segja að þörf sé á allt að sextíu þús- und manna alþjóðlegu herliði til að stöðva ofbeldisverkin í frak. Sókn gegn andspyrnumönnum MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 FRÉTTIR 15 Ákærður fyrir þjóðarmorð ÓHÆFUVERK: Ricardo Carvallo, fyrr- um liðsforingi í argentínska sjó- hernum, var færður fyrir spænskan dómara í gær og ákærður fyrir hryðjuverk og þjóðarmorð í tengsl- um við svokallað „skítastríð" herfor- ingjastjórnarinnar á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Þúsundir stjórnarand- stæðinga voru þá ýmist drepnar eða hurfu sporlaust. Carvallo, sem neitar öllum ásökun- um, var framseldur til Spánar frá Mexíkó á laugardag að beiðni rann- sóknardómarans Baltasars Garzons. Litð er á framsalið sem tímamóta- sigur fyrir mannréttindafrömuði. Carvallo á yfir höfði sér allt að þrjá- tíu ára fangelsisvist verði hann fundinn sekur. Dómarinn mælti svo fyrir að hinum 51 árs Carvallo skyldi haldið í gæsu- varðhaldi undirstrangri gæslu. Katharine Hepburn lést í hárri elli í gær Bandaríska kvikmyndaleik- konan Katharine Hepburn, sem vann til fernra ósk- arsverðlauna á ferli sínum, lést í hárri elli á heimili sínu í Connecticut í gær. Hún var 96 ára. „Hún var mesta leikkona síns tíma og með henni fór síðasta stórstjarnan,“ sagði Ellsworth Grant, mágur hennar, í viðtali við fréttastofu Reuters. Heilsa Hepburn hafði farið hrakandi um nokkurt skeið og síðustu dagana áður en hún lést hafði hún ekki mælt orð af vör- um. Hepburn hafði flutt aftur inn í ættaróðal sitt í Fenwick þar sem hún lifð út af fyrir sig og hafði ekki mikil samskipti við aðra. Hún sást afar sjaldan á al- mannafæri. Hepburn lék á móti mörgum af helstu karlstjörnum síns tíma en helst verður hennar þó minnst fyrir myndirnar þar sem þau Spencer Tracy fóru á kost- LÁTIN í HÁRRI ELLI: Kvikmyndastjaman og fjórfaldur óskarsverðlaunahafi Katharine Hepburn lést á heimili sínu vestur i Bandaríkjunum á sunnudag, 96 ára að aldri. Hepburn hafði átt við heilsubrest að strlða um nokkurt skeið. um. Þau léku ekki einasta saman í fjölda mynda heldur var Hep- burn einnig ástkona Tracys í 27 ár. Hann var kaþólskur og vildi ekki skilja við eiginkonu sína. SPURNINGAR FRÁ LESENDUM Ég lít á reykingarnar sem mitteinkamál! Úreinhverju verð ég að deyja og ég gæti alveg eins lent í bílslysi á morgun, nýhættur að reykja. Þetta er alveg rétt hjá þér, en 20 sinnum fleiri en þeir sem deyja í umferðinni! Það gerist ekki á sekúndubroti eins og umferðar- slysin, heldur ágerist sjúkdómurinn hægt og rólega. Ég fullyrði að þú hafir til mikils að vinna hvernig sem þú lítur á málið. Farðu að undirbúa þig undir að hætta að reykja, skoðaðu reykinga- Guðbjörg pétursdóttir, venjur þínar. Þá kemstu eflaust að því hve hjúkrunarfræðingur. Þetta er alveg rétt hjá þér, en sígarettan er mikill þrælahaldari, sem heldur þér fJU 0*tir lika Að meðaltali einn íslendingur 1 rsykingaánauð! orðið einn af þeim óheppnu sem íeyr á da8 úr sjúkd6mum deyja vegna afleiðinga reykinga. tengdum reykingum og ætli Farðu inn á dvjs og lestLJ eldri Að meðaltali einn íslendingur deyr það séu ekkj 2Q sjnnum f|ejrj pistlana vandlega. Ef til vill leynist á dag úr sjúkdómum tengdum enþeirsemdeyjaíumferðinni! eitthvaö þar'sem gæti hjálpað- reykingum og ætli það séu ekki--------------------------------------- www.dv.is SKRAÐU ÞIG I LEIKINN 0G ÞU GÆTIR VERIÐ A LEID TIL L0ND0N EÐA KAUPMANNAHAFNAR. W TERRA noÍv NOVaJ/sö - 25 ÁRA OG TRAUS TSINS VERD IMicotinelf Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega til aö vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en 1 ár. Nikótín getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði viö lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema ( samráði viö lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til nó sjá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.