Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 28
44 TILVERA MÁNUDAGUR 30.JÚNI2003 > Tilvera * Fólk ■ Heimiliö ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5824-550 5810 Vjelaöldin TÆKNIN 1907: „Vjelasmiðja Jóhanns Hanssonar" nefnist sýning sem hefur verið opnuð ÍTækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði.Vagga tækninnar á íslandi var á Seyðisfirði og verkstæði Jóhanns Hanssonar þótti hið fullkomnasta á land- inu er það var opnað 1907. Vélsmiðjan hefur markað stór spor í sögu Seyðisfjarðar. Gaf 2 milljónir GJAFIR: Félagsfundur Neist- ans, styrktarfélags hjartveikra barna, var haldinn í gær í Barnaspítala Hringsins.Við það tilefni gaf félagið spítalan- um tvær milljónir að gjöf til tækjakaupa svo og Playstation II leikjatölvur. Þá opnaði Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra formlega nýjan vef Neistans. VEFUR:Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra opnaði í gær formlega nýjan vef Neistans. DV-mynd SigurðurJökull grænum sjo Matreiðslubók eftir Úifar Eysteinsson gefin út í þremur löndum „Bókin fjallar eingöngu um það sem hægt er að matreiða úr sjó: fisk, hvalkjöt og skei," segir Úlfar Eysteinsson, matreiðslumaður á veitingahúsinu Þremur Frökkum. í september kemur út matreiðslu- bók eftir hann í þremur löndum, fs- landi, Danmörku og Noregi, á veg- um PP-forlags. Úlfar segir að Erla Sigurðardóttir blaðamaður, sem búsett er í Dan- mörku, hafí undanfarið setið með honum og skráð niður uppskriftir og sögur um mat. „Réttirnir í bók- Hársnyrtivörur í úrvali Stofnuð 1918 Rakarastofan Klapparstíg Sími 551 3010 Iimltiiuil!iusi«2tts (tnmiK Slíl 21SHS3, HfiV 211,213 flfi 2H vinomsitAtur lausaráasmn 28. júní inni eru valdir með hliðsjón af því sem hefur verið vinsælt hjá okkur á Þrem Frökkum auk þess sem ég kappkosta að gera fólki matreiðsl- una eins einfalda og hægt er. Þetta verður heimilisleg matreiðslubók sem allir eiga að geta farið eftir án þess að þurfa að hlaupa margar ferðir út í búð til að kaupa græna, gula og rauða papriku." Að sögn Úlfars er einnig að fínna skemmti- og fróðleikskafla um sjávarfang í bókinni þannig að fólk á líka að geta haft hana á náttborð- inu. „Á undan uppskriftunum um ákveðnar tegundir segi ég hvernig hún var elduð hér áður eða segi reynslu- eða skemmtisögu. í bók- inni er til dæmis saga um unga konu í Grindavík sem fólk lagði fæð á vegna þess að hún tíndi sér krækling til átu í fjörunni. Bömin hennar þóttu óvanalega þrifleg og það þótti eitthvað skrýtið við það.‘‘ Úlfar segir að því miður sé ungt fólk á Islandi hætt að vinna í fiski og að- gengi þess að fiski sé ekki nógu gott og með bókinni sé hann að reyna að bæta úr því með því að hafa rétt- ina einfalda. í bókinni verða uppskriftir að fímmtíu réttum auk tuttugu ljós- mynda. „Það stendur jafnvel til að það séu teiknaðar myndir og mál- verk í bókinni en það er ekki enn búið að taka ákvörðun það. Ef úr verður mun myndlistarkonan Sig- urdís Harpa gera fyrir okkur sex myndir sem tengjast sögunum í bókinni. -Kip Þorskur í sinnepssósu Úlfar Eysteinsson, matreiðslumaður á Þrem Frökkum, segir að þorsk- ur sé herramannsmatur og tilvalið að matreiða hann í sinnepssósu. Aðalréttur fyrir fjóra 800 grömm þorskflök með roði 3 desílítrar rjómi 1 desílítri fisksoð dijonsinnep sætt sinnep sinnepsfræ smjör til steikingar Steikið þorskflökin með roðið niður þar til það er orðið stökkt. Snúið þá stykkjunum við. Hellið rjóma og fisksoði í pott og látið sjóða. Bætið sinnepsfræjum, dijonsinnepi og sætu sinnepi út í eftir smekk. Látið sjóða þar til sósan þykknar. Berið fram með fersku brauði. EINGÖNGU SJÁVARFANg: Úlfar Eysteinsson matreiSstumadur segir að réttirnir i bókinni séu valdir með hliðsjón af þvi sem hefur verið vinsælt á Þrem Frökkum auk þess sem hann kappkosti að gera fólki matreiðsluna eins einfalda og hægt er. DV-mynd GVA 2S> Hringferð um landið í einni bók með 42 þjóðskáldum: Jðkertttlur vlkunnar © sloúm-e | nBiiaEB ■ JfcWáfi ««*>! a ftnV | ■ W' laiSvikaáagam AOaltöiu! OOi C&C&' Bónustölut^^ OO lókertölur víkunnar □□□□□ lókartölur vikunnar Þjóðskáldin yrkja Ijóð sem verða hluti af landinu sjálfu og fólkinu sem það byggir. Ferðast um landið í fylgd með skáldunum. „Hvorki í ljóðum né öðru geta menn fullkomlega yfirgefið heima- slóðir sínar. Enginn sigrar sinn fæðingarhrepp eins og ]ón úr Vör kvað. Ræturnar eru alltaf til staðar og út frá þeim nálgast ég þau 42 skáld sem um er fjallað í þessari bók,“ segir Jón R. Hjálmarsson, rit- höfundur og fv. fræðslustjóri á Sel- fossi. Nýlega kom út hjá Almenna bókafélaginu bókin Með þjóð- skáldum við þjóðveginn. Þar er far- ið hringinn í kringum landið rétt- sælis og rifjuð upp ævi fjölda skálda og vitnað í ljóð þeirra, sem mörg hver eru orðin órjúfanlegur hluti af sjálfsvitund Islendinga. Borgarskáldið Laxness Hringferð Jóns R. Hjálmarssonar með þjóðskáldunum góðu í þessari bók hefst í Reykjavík. „í bakhúsi við Laugaveg fæddist Halldór Laxness og að því leyti er hann borgarskáld. I vitund okkar er hann þó auðvitað fyrst og fremst skáld Mosfellinga og heimsins alls. Flestir telja að Tómas Guðmunds- son sé hið eina og sanna borgar- skáld, sem að vissu leyti er rétt, en æskustöðvar hans eru austur í Grímsnesi við Sogið. Víða sér þeirra fögru sveitar stað í ljóðum Tómas- ar. Þannig nota ég fæðingarstað skáldanna sem útgangspunkt í þessari samantekt minni þó sú nálgun á viðfangsefninu sé á engan hátt algild,“ segir Jón. Sterk hughrif Þetta er fjórða bókin í flokki ferðahandbóka Jóns, en sú fýrsta var Þjóðsögur við þjóðveginn sem kom út fyrir þremur árum. í kjölfar hennar komu íslendingasögur við þjóðveginn og Átök og ófriður við þjóðveginn kom á síðasta ári. Allar þessar bækur hafa fengið góða dóma og náð vinsældum fólks á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.