Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Qupperneq 2
78 DVSPORT MÁNUDAGUH 30. JÚNÍ2003 Rúnar til Þýskalands „Kaupi það ekki að við séum heppnir með riðil" HANDBOLTI: Rúnar Sigtryggs- son, landsliðsmaður í hand- knattleik, hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Þýska úrvalsdeildarliðið Wallau Massenheim. Rúnar gerði það gott með spænska liðinu Ciu- dad Real á nýafstaðinni leiktíð - félagið vann EHF-keppnina sem og spænsku bikarkeppn- ina og þá varð liðið í öðru sæti spænsku úrvaisdeildarinnar. Tækifæri Rúnars, og þá sér- staklega í sóknarleiknum, voru hins vegar af skornum skammti og hefur það ábyggi- lega haft sitt að segja um ákvörðun Rúnars sem hittir fyr- ir hjá Wallau félaga sinn úr ís- lenska landsliðinu, horna- manninn Einar Örn Jónsson. HANDBOLTI: íslendingar verða í C-riðli ásamt Ungverjum.Tékk- um og heimamönnum í Slóven- íu í úrslitakeppni Evrópumóts karlalandsliða í handknattleik í janúar á næsta ári en dregið var á föstudag. Fyrirkomulag er með sama sniði og áður - þrjú efstu liðin fara áfram í milliriðil þar sem mótherjarnir verða þrjú efstu lið D-riðils. Sá riðill er gríð- arlega sterkur og verða það líklega Frakkar, Þjóðverjar og Júgóslavar sem fara áfram á kostnað Pól- verja. „Fólk hefur verið að segja að við séum heppnir með dráttinn en ég kaupi það ekki. Mér finnst okkar riðill mjög jafn - ekkert lið er lakara en annað og allir geta unnið alla. Vissulega eig- um við möguleika á að fara upp úr þessum riðli en þá förum við í milliriði! þar sem þjóðir eins og Frakkland og Þýskaland verða. Þar eru á ferð gríðarlega sterk lið svo að ég tek ekki und- ir neina heppni," sagði Guð- mundurGuðmundsson lands- liðsþjálfari í samtali við DV- Sport eftir að drátturinn lá fyrir. Undirbúningur fyrir lokakeppni HM stendur nú sem hæst og er Ijóst að íslenska liðið mun leika þrjá leiki við Pólverja. Þá er búið að bjóða liðinu að leika við Svía skömmu fyrir mót og einnig er hugsanlegt að Þjóðverjar komi í heimsókn til að spila æfinga- leiki í desember. Efni DV-Sports mánudaginn 30.júní2003 KA tapaði í vítakeppni Evrópukeppnin, bls. 19 Keflavík með forystu Allt um 1. deildina, bls. 20 Olga kláraði gömlu fé- lagana Allt um VISA-bikar kvenna um helgina, bls. 21 Goggi galvaski Frjálsar (þróttir, bls. 22-23 Shellmótið í Eyjum Njarðvík vann annað árið í röð, bls. 24-26 Stemning á Akranesi AM( í sundi, bls. 27-29 Nú væri gott að fá rign- ingardropa Veiði, bls. 30 STAÐIÐ SAMAN: Leikmenn beggja liða héldu hver í annan á meðan mínútuþögn var fýrir leikinn og þegar þjóðsöngvar voru leiknir. Reuters Henry með gullmark Hvað er hægt að gera við fótasveppum? Viðtal við Pétur Guðmunds- son körfuboltaþjálfara, bls. 31 Góður dagur Williams Ralph Scumacher vann formúluna í Þýskalandi, bls. 32 / úrslitaleik sem spilaður var til að heiðra minningu Mark- Vivien Foe Gullmark Thierry Henry í upp- hafi framlengingar var það sem skildi að Frakka og Kamerún í úrslitaleik álfukeppninnar sem fram fór í gærkvöld. Leikurinn, sem spilaður var að beiðni leikmanna Kamerún var til- einkaður Mark-Vivien Foe, sem lést með sviplegum hætti á fimmtudag, í miðjum undanúrslitaleiknum gegn Kolombíu. Það var tilfinningaþrungin stund þegar leikmenn liðanna gengu inn á leikvöllinn og sáust tár á mörgum andlitum áhorfendaskarans. Marcel Desailly, fyrirliði Frakka, og Rigobert „Þetta er mikil viður- kenning en þegar litið er á aðstæður þá er ekki hægt að gleðjast mikið." Song, fyrirliði Kamerún, báru á milli sín stóra mynd af Foe og þegar þjóð- söngvar voru leiknir tóku leikmenn sér stöðu við miðju vallarins og héldust í hendur. Leikurinn sjálfir minnti helst á vináttuleik og það sást á spila- mennsku beggja liða framan af leik hversu erfitt það raunverulega hefur verið að spila leikinn. Síðari hálfleik- ur var mun skemmtilegri á að horfa en sá fyrri en það var ekki fyrr en í framlengingu sem úrsliún réðust. Desailly kallaði á Song til að taka á móti bikamum með sér í leikslok og var lítið um fögnuð af hálfu Frakka. Jacques Santini, þjálfari franska liðsins, hrósaði leikmönn- um sínum í hástert eftir leikinn sem minnst verður fyrir allt annað en sig- ur Frakka. „Þetta er mikil viðurkenning fyrir alla þá sem að liðinu koma en þegar litið er á aðstæður er ekki hægt að gleðjast mikið,“ sagði Santini sem þjálfaði Foe á ámm áður þegar hann var hjá franska liðinu Lyon. „Við vit- um að fjölskylda er skilin eftir í sár- um og maður mjög nákominn mér er farinn að eilífu," bætti Santini við með kökkinn í hálsinum. vignir@dv.is Utan vallar MÍNSKOÐUN Óskar Ó.Jónsson íþróttafréttamabur Það er ekki venjan að úrslitastund íslenska körfuboltans sé um mitt sumar en næsta vika er hins vegar af- drifarík fyrir framtfð fntertsportdeild- arinnar í körfubolta. Þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd á reglu- gerð um launaþak Intersportdeildar- innar. Samþykkt var á síðasta árs- þingi KKÍ að stjóm sambandsins ætti að skila til félaganna tillögum að reglugerð um launaþak og það sem félögin þurfa að uppfylla tU að fá að spila í úrvalsdeild næsta vetur. Hér er verið að gera félögunum kleift að fá til sín leikmenn algjörlega óháð þjóðemi þeirra en aðeins launa- kostnaður liðsins komi til með að tak- marka fjölda erlendra sem íslenskra leikmanna sem hvert félag getur samið við á hverju tímabili. Að sama skapi á allt að vera uppi á borði, hver króna eymamerkt og hver leikmaður með sinn fasta launaseðil eins og Úrslit körfuboltans gætu farið að ráðast í réttar- sölum alveg eins og í körfuboltasölunum. gengur og gerist úti á atvinnumark- aðnum. Hvort við fjölmiðlamenn fá- um aðgengi að þessum tölum og get- um loks farið að meta hvort menn séu auranna virði er annað mál en við leikmönnunum ætti hins vegar að blasa allt annar heimur. Á heimasíðu KKÍ kom frétt í síðustu viku um að reglugerð þessi yrði send til félaganna í Intersportdeildinni þann 1. júlí. Það er á morgun og að KKÍ myndi síðan standa fyrir fundi fé- laganna um reglugerðina þar sem hún verður kynnt í smáatriðum fyrir forsvarsmönnum félaganna. Að mfnu mati er það Ijóst að körfu- boltinn tekur hér mikla áhættu. Hún er ekki síst fólgin í því að siðfræði og heiðarleiki stjómarmanna og félaga hefur aldrei verið stærri þáttur í rekstri deildanna en nú. Falli þeir í þá gryfju að ætla sér að svindla á reglugerðinni og reyna að fela kostnað og/eða laun til sinna leikmanna er bæði ljóst að þeir gætu það eflaust sem og að KKÍ hefur ekki burði til að ráða menn í vinnu tii að elta uppi hverja nótu eða hvem þús- undkall. Fjölmörg dæmi úr banda- riska háskólakörfuboltanum ættu að verða þeim góð vegalýsing á því að lauma hlunnindum og öðmm greiðslum ffam hjá kerfinu. Kærumálin gætu því á endanum orðið mörg, þau gætu orðið flókin og þau gætu orðið afar erfið að leysa. Úr- slit körfuboltans gætu farið að ráðast ( réttarsölum alveg eins og í körfu- boltasölunum. En gangi allt upp, verði heiðarleik- inn og siðareglur sem og aðrar reglur hafðar að leiðarljósi og takist að auka gæði erlendra leikmanna jafriffamt því að halda kostnaðinum niðri er ljóst að þetta gæti gjörbreytt umgjörð og aflsmunum körfunnar til að vaxa og dafria hér á landi. í þessum pistli er engin tilraun gerð til að gagnrýna hugsjónina á bak við umrætt launaþak því hún er hrein og tær körfuboltanum í hag, það er bara ffamkvæmdin sem er hins vegar tví- sýn. Það verður gaman að sjá þessa reglugerð ganga upp en jafnleiðinlegt að sjá lögfræðingana skora sigurkörf- umar næstu árin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.