Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Page 9
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 DVSPORT „Mín besta leiktíð á ferlinum" Kaupverðið aðeins eftir KNATTSPYRNA:Thierry Henry, sem í gær tryggði sér marka- kóngstitilinn í álfukeppninni í knattspyrnu, segir að síðasti vetur hafi verið sá besti það sem af sé sínum ferli. Gull- markið í úrslitaleiknum var ekki bara það 42. í röðinni á tímabilinu heldur einnig það 22. fyrir franska landsliðið, það mesta sem núverandi leikmað- ur liðsins hefur skorað. „Ég hef vissulega skorað mikið af mörkum en það sem ég er stoltastur af er að eiga 23 sendingar sem gáfu mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur," segir Henry sem kom því að 65 mörkum í öllum keppnum á nýafstaðinni leiktíð. Alls ekki slæmur árangur það. Pires til Inter? KNATTSPYRNA: Forráðamenn Inter Milan á Ítalíu vilja ólmir tryggja sér þjónustu miðju- mannsins Roberts Pires eða fé- laga hans hjá Arsenal, Freddie Ljungberg,fyrir næstu leiktíð. Sagt er að ítalska stórveldið ætli sér að bjóða leikmann að nánast eigin vali í skiptum fyrir annan hvorn sókndjarfa miðju- manninn. KNATTSPYRNA: Fátt virðist geta komið í veg fyrir að brasilíski töframaðurinn Ronaldinho gangi til liðs við Manchester United á allra næstu dögum. Franska liðið PSG,sem Ronaldinho er hjá eins og er, segist reiðubúið að selja leikmanninn til að grynnka á uppsöfnuðum skuldum félagsins. „Fjárhagsleg staða okkar er alls ekki góð og Ronaldinho vill sjálfur fara. Ef við fáum gott tilboð þá munum við íhuga það vel en ef fjárhagurinn væri í lagi myndi hann aldrei fá að fara," sagði Valid Halihodzic, þjálfari PSG. Eins og að koma tl útlanda segirJúlíusJónasson handboltaþjálfarí um veruna á mótinu í Eyjum jðu sigri í ár, þrátt fyrir að ieiknum lyki með DV-mynd Ómar ararþetta árið saman. I lokahófinu um kvöldið voru svo afhent hin ýmsu verðlaun, auk þess sem sigurliðin fengu sín verðlaun, en verðlaunahafa má sjá annars staðar á síðunni. Það er mál manna að Shellmótið í ár hafi tekist fullkomlega og þó að rigning hafi verið að stríða móts- höldurum á laugardeginum þá endaði mótið í góðu veðri og allir héldu sáttir heim. -jgi í brekkunni við Týsvöllinn rák- umst við á Júlíus Jónasson, hand- knattleiksþjálfara IR, en hann var þarna staddur á sínu fyrsta Shell- móti. En hvað rekur handknatt- leiksþjálfara á knattspyrnumót í sjötta flokki? „Ég er að fylgjast með Val en þar á ég strák á fyrsta ári þannig að við erum að koma á okkar fyrsta Shellmót." Hvemig finnst þér mótiö hafa veríö? „Mér finnst þetta bara vera frá- bært framtak hjá Eyjamönnum. Auðvitað hafði maður heyrt af þessu móti í mörg ár og kannski sérstaklega undanfarin misseri þar sem strákurinn hefur varla talað um annað en að koma á Shellmótið. Ég verð að segja það að ég hef ekki orðið fyrir von- brigðum með dvölina hérna held- ur er þetta þvert á móti glæsilegra en ég átti von á,“ sagði Júlíus. „Það sem skiptir svo miklu í þessu móti eru auðvitað allir þessir leikir en það er ekki síður mikilvægt fyrir strákana að koma allir á einn stað og dvelja hérna í þessu frábæra umhverfi. Þetta er kannski svolítið eins og að koma Það þarfekki að gerast mikið til þess að tapleikirnir gleymist. til útlanda fyrir strákana, mikið ferðalag og Eyjarnar eru sérstak- ar.“ En hvemighefur Valsmönnum annars gengið í mótinu? „Bara svona upp og ofan. B-lið- ið er núna að spila um 5.-8. sæti en þó að allir stefni auðvitað á úr- slitaleikinn þá þarf ekki mikið til þess að tapleikirnir gleymist. Það gekk t.d. illa hjá einu liðinu fram- an af en svo vann það tvo leiki og þar með er allt annað gleymt. Úr- slitin skipta kannski ekki svo miklu máli heldur samveran og þátttakan. Þeir hafa líka gott af því að tapa og læra að taka því.“ Nú hafa sum félög veríö með þá stefnu aö hafa engan sigurvegara og þetta er m.a. stefna ÍSÍí mál- efnum yngrí úokkanna. Finnst þér þetta rétt stefna? „Það er vissulega erfitt fyrir þessa gutta að tapa kannski mörgum leikjum stórt en svo kemur kannski einn sigur og þar með eru töpin gleymd. Það er hins vegar lærdómur í þvf að tapa eins og að vinna en það eru ef- laust skiptar skoðanir um þetta.” -jgi ÖNNUR VERÐLAUN MÓTSINS Ljósmyndasamkeppni HK, Haukar, Leiknir Prúðustu liðin ÍA og HK Háttvísisverðlaun Fram og Selfoss Boðhlaup Vikingur Kappát Davíð Stjörnunni Sterkasta liðið Þór Pílukast Björn Orri Sæmundsson Gróttu Þrautabraut Kristinn P. Sigurbjörnsson HK Limbó Fannar Freyr Jónsson HK Hringjakast Ólafur Frímann Kristjánsson Þrótti R. Húlahopp Ármann Óli Ólafsson Selfossi Skothittni Snorri Jökull Egilsson Breiðabllki Ólafur Örn Eyjólfsson HK Vitakeppni Bjarki Garðarsson Víkingi Stefnir Stefánsson HK Knattrak Ingólfur Sigurðsson Val Snorri Davíðsson Aftureldingu Körfuhittni Arnar Freyr Ólafsson Fram Skalla á milli Arnór IngviTraustason og Eyþór Ingi Einarsson, Njarðvík, og Vilhjálmur Geir Hauksson og Gunnar Birgisson, Gróttu Halda bolta á lofti Kristján Gauti Emilsson FH Óli Pétur Friðþjófsson Víking Skotfastasti leikmaðurinn Hörður B. Magnússon Fram, Orri SigurðurÓmarsson HK, Jóhann Þorkelsson ÍA, Aron Elvar Ágústson Keflavfk Sindri Ingólfsson Völsungi HÁTTVÍSIN AÐ LEIÐARUÓSI: Leikmenn Njarðvíkur og FH, sem léku úrslitaleikinn hjá A-liðum, höfðu háttvísina að leiðarljósi innan sem utan vallar. Liðin þökkuðu stuðninginn í leikslok eins og sjá má hér á myndinni fyrir neðan. Leiknum lauk 1-1 en Njarðvík varði titil sinn frá því í fyrra þar sem liðið var fyrra til að skora í úrslitaleiknum. DV-mynd Ómar JTlorn KYUnOSí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.