Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Qupperneq 10
26 DV SPORT MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 Islendingarnir höfðu hljótt um sig í Noregi um helgina KNATTSPYRNA: Islendingarnir í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu létu lítið að sér kveða um helgina og tókst eng- um þeirra að þenja netmöskva andstæðinga sinna. Tryggvi Guðmundsson lék allan leikinn með Stabæk gegn Álesund en lokatölur leiksins urðu 1-1.Tryggvi nældi sér í gult spjald íleiknum. Gylfi Einarsson og Indriði Sig- urðsson léku í bakvarðastöðun- um hjá Lilleström sem beið af- hroð á útivelli gegn Odd Gren- land. Þegar flautað var til leiksloka var staðan 5-0, heimaliðinu í vil. Ríkharður Daðason og Davíð Þór Viðars- son sátu á varamannabekk Lille- ström og fékk sá síðarnefndi að spreyta sig síðasta stundarfjórð- unginn. Árni Gautur Arason sat að venju á varamannabekk Rosenborgar sem gjörsigraði Bryne, 4-1. Ros- enborg er nú með 11 stiga for- ystu á toppi deildarinnar og það má telja nokkuð víst að mikið þurfi að gerast til að önnur lið komist í nánd við Rosenborg áð- ur en tímabilið er á enda. Leik Viking og Molde var frestað vegna mikillar bleytu á vellin- um. Hann fer fram á morgun ásamt viðureign Lyn og Váler- enga. Þess má að lokum geta að Har- aldur Ingólfsson skoraði átt- unda mark sitt á leiktíðinni fyrir Raufoss þegar liðið bar sigurorð á Sandefjord á útivelli, 0-4, og er í hópi markahæstu manna 1. deildarinnar. Árni Gautur Arason. Besti leikmaður og besti markmaður Sheilmótsins 2003 í spjalli: Var mjög hissa sagði Kristján Gauti Emilsson úrFHsem var valinn besti leikmaðurinn í gærkvöld fór fram lokahóf Shellmótsins. Þar komu sam- an allir þátttakendur mótsins, leikmenn, þjálfarar, fararstjór- ar, starfsmenn mótsins og aðr- ir mótsgestir. Alls voru tæp- lega 1400 manns í íþróttahöll- inni þetta kvöld og ef hávað- inn á kvöidvökunni var mikill þegar olei, olei var tekið var hann enn meiri þetta kvöld. Fjöldamörg verðlaun voru af- hent en hápunkturinn var án efa þegar tilkynnt var um lið mótsins og þegar besti mark- vörðurinn og besti leik- maðurinn voru kynntir. Besti leikmaðurinn að þessu sinni var Kristján Gauti Emilsson en hann er úr FH. Kristján þótti leika vel með liði sínu sem gerði jafntefli f úrslitaleiknum en laut í lægra haldi vegna þess að FH skor- aði sitt mark síðar í leiknum. Kristján Gauti skoraði mark FH í leiknum en vakti auk þess athygli í landsleik mótsins. Þegar nafn Kristjáns var kallað upp var eins og hann hefði ekki áttað sig á því og þegar blaðamaður DV náði í hann var hann enn svolítið utangátta. „Ég fattaði þetta bara ekki og var mjög hissa þegar ég heyrði nafnið mitt kailað upp. Það var samt góð tilfinning að heyra nafhið en ég er enn þá svolítið hissa," sagði Kristján. En ertu ekki bara ánægður með Shellmótið? „Jú, við í FH urðum í öðru sæti og svo spilaði ég með landsliðinu og ég stefni að því að spila fleiri lands- leiki." En stefnirðu á atvinnumennsku í framtíðinni? „Já ég ætla að spila með Liver- pool.“ „Ég ætla að spila með Liverpool." Er það uppáhaldsliðið þitt? „Já, það er langbest." Hver er svo uppáhaldsleikmað- urinn þinn? „Michael Owen.“ Að vinna þessa bikara Besti markmaður mótsins kemur einnig úr röðum landsliðs Shell- mótsins. Sá heitir Kristján Orri Jó- hannsson og er úr Þrótti í Reykja- vfk. Kristján og félagar léku um þriðja sætið í mótinu en töpuðu þar naumlega fyrir Stjörnunni. „Þetta mót heppnaðist bara mjög vel og er glæsilegasta mót sem ég hef tekið þátt í,“sagði Kristján þeg- ar blaðamaður DV spurði hann hvernig honum hefði fundist á Shellmótinu. En hvað stendur upp úr eftir mótið? „Að vinna þessa bikara," sagði markmaðurinn ungi og stórt bros færðist yfir andlit hans. „Það var reyndar líka gaman að spila alla þessa leiki og sérstaklega landsleik- inn.“ Er stefnan að bæta við landsleikj- um í framtíðinni? „Já, ekki spurning." Ertu ánægður með gengi Þrótt- ara í mótinu? „Já, við lentum í fjórða sæti og það var mikil barátta í liðinu hjá okkur. Við gerðum okkar besta og það var það eina sem við gátum gert.“ „Það var reyndar líka gaman að spila alla þessa leiki og sérstak- lega landsleikinn." En hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og hver er uppá- haldsleikmaðurinn? „Manchester United og ef Ron- aldinho kemur þá er hann uppá- haldsleikmaðurinn, annar Barth- ez.“ -jgi TVEIR GÓÐIR: Fjöldamörg verðlaun voru afhent á lokahófinu en hápunkturinn var án efa þegar tilkynnt var um lið mótsins og svo þegar besti markvörðurinn og besti leikmaðurinn voru kynntir. Þeir félagar sjást hér að ofan og til vinstri. Til vinstri er besti leikmaðurinn sem að þessu sinni var Kristján Gauti Emilsson en hann er úr FH. Hér fyrir ofan er besti markmaður mótsins sem kemur einnig úr röðum landsliðs Shellmótsins. Sá heitir Kristján Orri Jóhannsson og er úr Þrótti í Reykjavík. DV-myndir Ómar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.