Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003 DVSPORT 27
!
Linda Líf Bald-
vinsdóttir úr SH
stóð sig mjög
vel á AM( um
helgina og
vann alls fjögur
gull í einstak-
lingssundum
auk þess sem
hún vann gull í
boðsundum,
bæði í sínum
flokki sem og
flokknum fyrir
ofan.
hætt og ætlum að halda SH
áfram á toppnum," sagði Linda
sem hefur verið í sigursveit SH
fjögur síðustu árin.
Spennan í kringum mótið var
ekki alveg búin því enn átti eftir
að tilkynna hvort Linda kæmist
með á Ólympíudaga æskunnar
en þangað langar hana mikið.
Það skýrðist síðan á lokahófinu
seint í gær. ooj.sport@dv.is
„Við eigum eftir að sakna hans mikið"
„Ég er mjög ánægð með þetta
mót, bæði með verðlaunin sem
ég vann og líka með það að ég
var að bæta mig," sagði Linda
Líf Baldvinsdóttir úr SH sem var
sigursæl í telpnaflokki á AMf
sem lauká Akranesi um helg-
ina. DV-Sport hitti hana að máli
þegar löng og erfið keppnis-
helgi var að baki.
„Ég legg mesta áhersluna á
baksundið og finn mig best
þar," sagði Linda sem vann
bæði baksundin sem hún
keppti í á mótinu.
Linda vann alls fjögur gull í ein-
staklingssundum auk þess sem
hún vann gull í boðsundum ,
bæði í sínum flokki sem og
flokknum fyrir ofan.
„Það hefur reyndar gengið vel á
AMf í gegnum tíðina en ég tel
mig vera á uppleið og er að
vinna til fleiri verðlauna en ég
hef verið að gera undanfarin ár.
Ég er að æfa meira og Brian er
frábær þjálfari sem hefur hjálp-
að mér mjög mikið," segir Linda
Líf sem á eftir eins og fleiri í SH
að sakna Brians Marshalls sem
er að klára sjö ára starf.
„Við eigum eftir að sakna hans
mikið en við erum hvergi nærri
Brian kvaddi
SH vann sitt fjórða AMI í röð undir hans stjórn á Akranesi um helgina
Sundfélag Hafnarfjarðar varð í
fyrsta sæti með 1.627 stig á Ald-
ursflokkameistaramóti íslands í
sundi, AMÍ, sem haldið var á
Akranesi um helgina. (öðru sæti
varð ÍRB með 1.331 stig, í þriðja
sæti sundfélagið Ægir með 973
stig, í fjórða sæti Sundfélag
Akraness með 818 stig og í
fimmta sæti Sundfélagið Óðinn
með 547 stig. Mótið markaði
ákveðin tímamót því hinn frá-
bæri þjálfari Brian Marshall var
að kveðja SH eftir sjö ára gjöfult
starf í Hafnarfirði.
Alls tóku 20 lið þátt í AMI þetta ár-
ið og sundmennirnir voru samtals
294 talsins, þar af komu flestir úr
Hafnarfirði eða 57. SH hefur aldrei
sent jafnmarga sundmenn á AMI og
nú og sýnir það glögglega áhugann á
sundíþróttinni í bænum. Brian D.
Marshall, yfirþjálfari SH, var mjög
ánægður með árangurinn en þetta
var eins og áður sagði í síðasta sinn
sem hann kemur með lið á AMI.
„Ég er mjög ánægður með mitt lið
og mína krakka. Það eru allir búnir
að vera að bæta sig og standa sig
mjög vel og það er ekkert tilefni til
að kvarta yfir mínu liði,“ sagði Brian
í viðtali við DV-Sport skömmu eftir
að hann kom rennblautur upp úr
lauginni, þökk sé sigurflugferð sem
var í boði lærisveina og meyja hans.
„Okkar markmið var ekki bara að
skila sundfólki i verðlaunasæti held-
ur að allir í liðinu sýndu mikinn bar-
áttuanda yfir alla helgina. Það er
það sem hefur staðið upp úr hjá
okkur á mótinu frekar en að við sé-
um að ná í mikinn fjölda verðlauna.
Með því að sýna góðan liðsanda á
bakkanum og hvetja félaga sína í lið-
inu áfram gefa krakkarnir félögum
sínum aukakraft til þess að ná betri
árangri," segir Brian sem leggur sína
hugmyndafræði upp með það að
leiðarljósi að allir 57 keppendur SH
á mótinu séu hluti af hverju einasta
sundi liðsins.
„Þetta ersíðasta AMÍ
hjá mér. Ég kom til ís-
lands árið 1996 og kom
á mitt fyrsta AMÍ á Sel-
fossi 1997. Fyrstuþrjú
árin var SH í öðru sæti
en síðustu 4 árin hefur
það verið sigurliðið."
„Þetta er síðasta AMÍ hjá mér. Ég
kom til íslands árið 1996 og kom á
mitt íyrsta AMI á Selfossi 1997.
Fyrstu þrjú árinu var SH í öðru sæti
en síðustu íjögur árin hefur það ver-
ið sigurliðið," segir Brian þegar
blaðamaður DV-Sport biður hann
að rifja upp AMI sem hann hefur
tekið þátt í. Leið Brians liggur nú til
Danmerkur þar sem hann ætlar að
gerast yfirþjálfari hjá félagi í Kaup-
mannahöftt.
„Það er að sjálfsögðu sárt að
kveðja SH en ég er mjög sáttur með
það starf sem er búið að vinna hjá
félaginu og ég er mjög bjartsýnn fyr-
ir hönd SH. Sú uppbygging sem hef-
ur verið unnið að í SH síðustu ár ætti
að skila félaginu mjög góðum ár-
angri í framtíðinni. Nú er bara kom-
inn tími fyrir mig að breyta um um-
hverfi og prófa eitthvað nýtt,“ segir
Brian sem spáir vaxandi samkeppni
í íslensku sundlífi.
„í dag er ÍRB rétt á eftir SH og ég
lít á það þannig að liðið sé að hjálpa
okkur í SH við að ná betri árangri. Ég
tel að Akranes, Óðinn ogÆgir komi
sterk upp í framtíðinni. Eftir tvö ár
gætu það verið fjögur lið sem verða í
hörkubaráttu um fyrsta sætið á AMÍ
sem ætti að þýða spennandi tíma og
ætti að skila sér í að hækka „stand-
ardinn" í íslensku sundi," sagði Bri-
an sem telur að sundíþróttin kenni
krökkunum margt.
„Það sem krakkarnir læra í sund-
inu geta þau svo sannarlega notað
annars staðar í lífinu, svo sem í skól-
anum. Þau læra að setja sér mark-
mið, læra að virkja liðsandann og
berjast fyrir þessum markmiðum
sem og að yfirvinna þær stundir
þegar ekki gengur vel,“ sagði Brian
sem vildi ekki gera upp á milli sund-
fólks síns á mótinu en nefridi þá sér-
staklega fyrirliðann, Önju Ríkeyju
Jakobsdóttur, sem setti meðal ann-
ars Hafnarfjarðarmet í 200 m
baksundi og bætti þar með tíma
sinn um nokkrar sekúndur þó að
hún hefði meiðst strax á fyrsta degi.
Anja Ríkey var síðasti sundmaður-
inn í boðsundsveit SH á föstudegin-
um og tryggði liðinu sigur þegar hún
renndi sér í bakkann af svo miklu
afli að hún puttabrotnaði.
„Það er vissulega erfitt að gera
upp á milli þessara 57 sundmanna
sem skipuðu SH á þessu AMÍ en
mér fannst okkar liðstjóri, Anja Rík-
ey, standa sig mjög vel. Hún hefur
bætt sig mjög mikið en sýndi einnig
mikinn baráttuanda sem hjálpaði
hinum í liðinu til að sjá hvað það
þýddi að berjast," sagði Brian að
lokum. Hann hefur byggt upp gott
þjálfaralið í SH sem á örugglega eftir
að halda upp einhverju af hans
gildum og aðferðum í framtíðinni.
ooj.sport@dv.is
BLAUT KVEÐJA: Brian Marshall stjórnaði
SH á síðasta AMl um helgina og í lok
mótsins fékk hann blautar kveðjur þegar
lærisveinar hans hentu honum út í
laugina. Brian tók lífinu með ró í lauginni
eins og sjá mér hér að ofan. Hann beið
yfirvegaður meðan sigurgleðin fékk útrás
hjá hans fólki en SH vann AMl fjórða árið I
röð undir hans stjórn. DV-mynd JAK
LOKASTAÐAN Á AMÍ 2003
l.SH 1627
2.ÍRB 1331
3.Ægir 973
4.Sundfélag Akraness 818
5.Óðinn 547
6.KR 379
7.Vestri 300
8. Fjölnir 231
9.Ármann 190
10.UMFB 128
11. Selfoss 103
12. Breiðablik 95
13.Tindastóll 69
14.Laugdælir 40
15.Rán 31
16.Húsavík 28
17.IBV 23
18.UMSB 15
19. Þróttur, Neskaupstað 8
20. Stjarnan 2
Smíaugl} ET 5 tsmgar í
550 5 000 f