Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Síða 14
30 DVSPORT MÁNUDAOUR 30. JÚNÍ2003 Stuttar fréttir af veiðinni Veiðiskapurinn hefur gengið misjafnlega það sem af er sumrinu og einn og einn veiðimaður hefur varla fengið bein. Af einum fréttum við # sem er víst búinn að opna fjölda veiðiáa en hefur ekki fengið nema einn lax og það þykir ekki mikið þegar verið er að opna ár eins og Laxá á Ásum og Laxá í Kjós. En svona gengur veiðiskapurinn bara núna. Sportveiöiblaðiö er að koma út þessa dagana og verður þar meðal annars viðtal við Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóra á Akureyri, Svend Richter tannlækni, Jóhann Vilhjálmsson byssusmið og Jóhönnu Benediktsdóttur, formann Ármanna. Grein er um Breiðdalsá í Breiðdal og önnur um veiðiskap í Argentínu, svo eitthvað sé tínt til. Veiðimaður, sem Heimur gefur út fyrir Stangaveiðifélag Reykjavíkur, er líka að koma út í þessari viku en ekki hefur fengist gefið upp hvaða efni er í blaðinu. Reykjanesbær hefur heldur betur gert vel við veiðimenn suður með sjó en þeir hafa keypt aðstöðuna við Seltjörn og þar er hægt að veiða fyrir sanngjarnt verð fallegan fisk. Þetta ætti að ýta undir veiðimenn á öllum aldri að renna fyrir fisk og hafa gaman af því. Aðstaðan er allavega fyrir hendi. ÞRÍR GÓÐIR: Steinþór Jónsson og Gunnar Þorkelsson sjást hér við Elliðaárnar með þrjá fallega urriða sem þeir veiddu á föstudaginn. DV-mynd G. Bender Hvar er Laxveiðirt á íslandi heldur áfram en veiðimenn veiða ekki mikið þessa dagana. Auðvitað vona þeir að fiskurinn komi á næsta flóði eða allavega þar næsta því veiðimenn eru þol- inmóðir og hafa kynnst ýmsu í gegnum árin. Biðin verður kannski lengri en venjulega núna, regnið sem var búið að tala um í síðustu viku og vik- unni þar áður kemur bara alls ekki. „Það var ekki mikið af laxi í Víði- dalsánni, einn og einn fiskur, fisk- urinn sem ég missti áður var stærri en þessi 22 punda, það er erfitt að segja til hvað hann var stór, eitt- hvað stærri," sagði Þórarinn Sig- þórsson tanniæknir sem á heiður- inn af stærsta laxi sumarins enn þá, úr Víðidalsá í Húnavatnssýslu, á maðkinn. Erfitt er að segja til um það hvað margir laxar hafa veiðst en nærri 300 er lfklega talan og liklega hafa sloppið um 100 fiskar, jafnvel 120. Það var fjör í Straumunum í Borg- arfirði fyrir fáum dögum þegar hver fiskurinn af öðrum slapp hjá veiði- mönnunum. Fiskurinn tók svo grannt og líklega hafa um 20 laxar sloppið hjá veiðimönnunum sem þama börðu svæðið, en þeir fengu þó nokkra laxa. Það var fjör í Straumunum í Borgar- firði fyrir fáum dögum þegar hver fiskurinn af öðrum slapp hjá veiði- mönnunum. Byrjunin í Haffjarðará í Hnappa- dal er fín, laxveiðiá sem ekkert er „fiktað“ í heldur er hún bara látin eiga sig og það skilar sér með betri veiði á hverju ári. Það er alltof mikið átt við ámar, dregið í klak og rótað fram og til baka um þær á hverju ári. Vatnsstaðan er skelfileg þessa dagana í sumum veiðiánum, það er spáð rigningu en ekkert gerist. Svik og aftur svik hjá veðurfræðingum sem kannski vita alls ekki betur en þetta um regnið sem átti að koma. Skaflar sem ekki hafa farið í fjölda ára, jafnvel hálfa öld, em famir og það fyrir löngu, snjór er orðin jafn sjaldséður og hvítir hrafnar og ekk- ert rignir. Þetta er nú alls ekki beisið nú um stundir, en vonandi lagast þetta bráðlega. Veiðimenn vom að opna lax- veiðiá í Dölunum fyrir fáum dögum en veiðivonin var aíls ekki mikil, eig- inlega engin. Veiðimenn létu það ekki skemma veiðitúrinn og yngsti veiðimaðurinn, setti hvað eftir ann- að í fisk sem alltaf slapp. Þegar kom að því að landa fiskinum var hann farinn af og svona gekk þetta um Yngsti veiðimaðurinn setti hvað eftir annað í fisk sem alltafslapp. stund, fiskurinn slapp alltaf. Enda skipti það engu máli, við höfum sett í fisk og svo sleppa menn öllum afla nú til dags í veiðinni. Það vita allir „venjulegir" veiðimenn, það þarf varla að setja í þá lengur, bara ímynda sér það. -G.Bender Ætti að taka vatnsbíl með í túrinn Vatnsleysið er farið að plaga veiðimenn hér á landi og einn af veiðimönnunum sem ætluðu í veiðitúr fyrir skömmu fékk heldur betur að heyra það hjá vinnufé- lögunum sem voru ekki bjartsýnir fyrir hans hönd. Félagar hans í vinnunni stríddu honum á því að hann gæti nú ekki farið f veiðitúr nema taka vatnsbfl með sér eða allavega nokkrar föt- ur af vatni. Karlinn lét þetta ekkert á sig fá og fór í veiðitúrinn og veiddi einn fallegan lax sem hann henti á borðið fyrir framan vinnufélag- ana þegar hann mætti í vinnuna og sagði: hvað er þetta? Það varð lítið um svör hjá áður kotröskum vinnufélögum, nema hjá einum sem lét sér ekki bregða og sagði að þetta væri skrælnað- ur lax úr veiðiánni. Nokkuð til í því hjá honum blessuðum. -G.Bender Við höfum veiðileyfin handa þér Bjarnafjarðará, Blanda, Brynjudalsá, Eldvatn, Eystri Rangá, Ferjukotseyrar, Galtalækur, Grenlækur sv. 3, Hafralónsá, Kráká, Langadalsá, Laugardalsá, Laxá í Aðaldal - Árbót, Múiatorfa og Staðartorfa, Laxá á Ásum, Litlá, Miðfjarðará, Sog - Tannastaðatangi og Þrastarlundur, Svartá, Straumarnir, Tungufljót, Vatnasvæði Lýsu, Vesturbakki Hólsár, Ytri Rangá o.fl. A STANGVEIÐIFELAGIÐ Vatnsendabletti 181 203 Kópavogi Sími 557 6100 lax-a@lax-a.is www.lax-a.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.