Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2003, Qupperneq 16
2
32 DVSPORT MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ2003
DVSport
' Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Stoke mætir Manchester United í ágúst
KNATTSPYRNA: (slendingaliðið
Stoke City mun mæta Eng-
landsmeisturunum í Manchest-
er United í eina æfingaleik stór-
veldisins á Bretlandseyjum fýrir
næsta tímabil. Þetta er mikill
happdrættisvinningur fyrir
Stoke og ef allt er með felldu
ætti að verða uppselt á Britt-
ania-leikvanginn í Stoke 13.
ágúst þegar leikurinn fer fram,
en þarsem undirbúningur
Mancesterfyrirleikinn um góð-
gerðarskjöldinn stendur sem
hæst er búist við að allar helstu
stjörnur liðsins mæti til leiks.
Flestir skrifuðu undir
Annars er það að frétta af Stoke
að allir leikmenn liðsins sem
voru með lausa samninga hafa
skrifað undir nýja, ef unda-
nskildireru þeirJames
O'Connor og Brynjar Björn
Gunnarsson. Fastlega er búist
við að Brynjar Björn skrifi undir
á næstu dögum en O'Connor,
einn af lykilmönnum Stoke
undanfarin ár, kveðst ætla fara
frá félaginu. Leikmennirnir sem
skrifað hafa undir eru þeir
Marcus Hall, Clive Clarke, Peter
Hoekstra og Brian Wilson.
(slendingaliðið Stoke City hefur
heldur betur dottið í lukkupottinn.
Ánægjan ekki eins mikil hjá McLaren
Það var tvöfaldur sigur hjá
Williams-ökumönnunum í For-
múlu 1 keppninni sem haldin
var í gær á Núrburgring í Þýska-
landi og er það aðeins í annað
sinn sem liðið á bíla í fyrsta og
öðru sæti. Það var Ralph
Schumacher sem fór með sigur
af hólmi í gær og félagi hans,
* Juan Pablo Montoya, varð í
öðru sæti. Með þessu komst
Williams upp fyrir McLaren í
keppni bílasmiða. Heimsmeist-
arinn Michael Schumacher varð
í fimmta sæti en báðir bílar
McLaren féllu úr keppni.
Það var Finninn Kimi Raikkonen
sem var á ráspól í gær og gekk ræs-
ingin slysalaust fyrir sig. Raikkonen
náði strax öruggri forystu og á eftir
honumkomubílarWilliamsogFerr-
ari og höfðu Williams-menn betur í
þeirri baráttu. Raikkonen hélt foryst-
unni í gegnum fyrstu umferð þjón-
ustuhléanna en varð síðan fyrstu
ökumanna til að falla úr keppni en
það var það ekki fyrr en á 27. hring
sem það gerðist. Vélin sprakk hjá
kappanum og voru vonbrigðin mikil
hjá Raikkonen enda var hann í mjög
vænlegri stöðu.
Ralph Schumacher tók við for-
ystuhlutverkinu með bróður sinn
rétt fyrir aftan sig og virtist aflt stefna
í svipaða keppni og í Kanada á dög-
unum. Juan Pablo Montoya var hins
vegar ekki á sama máli og fór fram úr
Michael Schumacher á 43. hring
með þeim afleiðingum að bfll
heimsmeistarans snerist og festist f
sandinum eftir að bílar þeirra höfðu
snerst lítillega í beygjunni. Starfs-
menn brautarinnar ýttu bíl
Schumachers úr sandinum og lauk
hann keppninni i fimmta sæti og
krækti þar með í stig. Þessi gjöming-
ur þótti mjög umdeildur en svo virð-
ist sem Schumacher sleppi án refs-
ingar frá þessu.
Dagurinn varð, þegar upp var
staðið, hinn ágætasti fyrir Williams
og Ferrari þar sem bæði liðin komu
báðum bílum sínum í mark en það
sama verður ekki sagt um McLaren-
liðið. Eins og áður sagði sprakk vélin
í bil Raikkonens um miðbik keppn-
*. innar og þegar aðeins nokkrir hring-
ir voru eftir gerði David Coulthard
sig sekan um slæm mistök eftir að
hann hafði háð milda baráttu við
Femando Alonso um fjórða sætið og
reyndi þannig að bjarga heiðri
McLaren-liðsins. Það tókst hins veg-
ar ekki og hann hentist út af braut-
inni með miklum tifþrifum.
Spánverjinn ungi, Fernando
Alonso, á Renault-bílnum heldur
áfram að gera góða hluti og er nú
kominn upp að hlið Juans Pablos
Montoya í keppni ökumanna. Flann
ók vel í gær og stóðst vel þá miklu
pressu sem David Coulthard lagði á
þennan unga ökumann sem á mikla
ífamtíð fyrir sér.
Það virðist sem Jacques Villen-
euve sé að keyra síðasta tímabil sitt
fyrir BAR-liðið enda hefur árangur
hans á yfirstandandi tímabili verið
hreint lilægilegur. Hann hefur að-
Nú þegar sjö keppnir
eru eftir er staða Ferrari
góð. Schumacher jók
forskot sitt um fjögur
stig og þá hefur liðið 13
stiga forskot á toppnum
i keppni bílasmiða.
eins krækt í þijú stig og hefur aðeins
klárað þrjár keppnir það sem af er. I
gær gerði hann það sama og hann
hefur gert í fimm öðmm keppnum,
þ.e.a.s. að klára ekki. Með þessari
frammistöðu er ekki líklegt að nokk-
urt annað lið taki við honum.
Nú þegar sjö keppnir em eftir er
staða Ferrari nokkuð góð.
Schumacher jók forskot sitt í keppni
ökumanna um fjögur stig og liðið
hefur 13 stiga forskot á toppnum f
keppni bílasmiða. Michael Schu-
macher rauf þúsund stiga múrinn í
gær en hann hafði fyrir gærdaginn
náð í 999 stig í Formúlu 1 ff á upphafi
ferils síns. Hann krækti í fjögur í gær
og er nú kominn í 1003 stig.
Það er ljóst að McLaren-menn
verða að spýta í lófanna ef þeir ætla
ekki að missa Ferrari-menn of langt
ffá sér. Biðin eftir nýja bílnum virðist
ekki vera á enda en hann stóðst ekki
árekstarpróf á dögunum og seinkar
það komu hans enn um sinn og er
nú ömggt að hann verður ekki á
brautinni í Frakklandi í næstu viku.
pjetur@dv.is
WILLIAMS-MENN FAGNA: Williams-menn fagna hér að ofan Ralph Schumcaher en
með tvöföldum sigri hans og Montoya komust Williams upp fyrir McLaren í keppni
f bítasmiða því báðir bílar McLaren féllu úr keppni. Reuters
ALLIANZ
'AND PR
5 UROpé
LITLI BRÓÐIR Á PÁLLI: Það var Ralph Schumacher sem fór með sigur af hólmi í gær
og félagi hans, Juan Pablo Montoya, varð í öðru sæti. Með þessu komst Williams
upp fyrir McLaren f keppni bílasmiða. Reuters
Ralph Schumacher hjá Williams:
Verið erfitt
Sigur Ralphs Schumachers var sá fimmti í röðinni fyrir Williams-liðið og
var hann að vonum alsæll. „Þetta er búið að vera erfitt. Við höfum í ein-
hverjum tilvikum verið á ráspól en í framhaldi af því ekki tekist að fylgja því
eftir. Ég náði góðu starti í dag en af einhverjum ástæðum tókst bróður
mínum það ekki og því tók ég áhættuna og komst fram úr honum. Kimi
Raikkonen náði góðu forskoti í upphafi en ég var búinn að vinna helming-
inn til baka eftir fyrsta viðgerðarhlé þegar bíllinn bilaði hjá honum. Það
hefði örugglega verið mjög erfitt að ná Raikkonen í dag.Bíllinn var hins veg-
ar ffábær í dag og liðið vann gríðarlega gott starf," sagði Ralph.
Veit ekki hvað var að hjá Michael
Juan Pablo Montoya varð, eins og áður sagði, í öðru sæti eftir að hann
komst með dramatískum hætti fram úr Michael Schumacher. Um atvikið
sagði Montoya; „Eg veit ekki hvað var að hjá Michael. I beygjunni varð
hann allt í einu mjög hægfara. Ég fór utan á hann og við snertumst með
þessum afleiðingum. Mér fannst ég gefa honum nægilega mikið pláss til að
komast áfallalaust í gegnum beygjuna en honum tókst það af einhverjum
orsökum ekki.
Hefði gert það sama
Michael Scumacher vildi ekki kenna Juan Pablo Montoya um að bíll sinn
hefði farið út fyrir brautina eftir að sá síðarnefndi freistaði þess að taka
fram úr þýska heimsmeistaranum. „Enginn er sekur - svona er kappakst-
ur,“ sagði Schumacher eftir keppnina. „Hann gerði mér lífið leitt og ég fékk
aldrei tíma til að slaka á. Ég hefði gert nákvæmlega það sarna," bætti
Schumacher við um atvikið umdeilda. pjetur@dv.is
ÚRSLIT OG STAÐA
Lokastaðan í Þýskalandi:
1. Ralph Schumacher Williams
2. Juan Pablo Montoya Willams
3. Rubens Barrichello Ferrari
4. Fernando Alonso Renault
5. Michael Schumacher Ferrari
6. Jenson Button BAR
7. Nick Heidfeld Sauber
8. Heinz Harold Frentzen Sauber
9. Antonio Pizzonia Jaguar
10. Mark Webber Jaguar
11. Giancarlo Fischicella Jordan
12. Justin Wilson Minardi
13. Ralph Firman Jordan
14. Jos Verstappen Minardi
Staða ökumanna:
Nafn/lið Stig
1. Michael Schumacher, Ferrari 58
2. Kimi Raikkonen, McLaren 51
3. Ralph Schumacher, Williams 43
4. Fernando Alonso, Renault 39
5. Juan Pablo Montoya, Williams 39
6. Ruben Barrichello, Ferrari 37
7. David Coulthard, McLaren 25
Staða liða:
1. Ferrari 95
2. Williams 82
3. McLaren 76
4. Renault 52
5. BAR 13
ö.Jordan 11
Að auki: Sauber 9, Jaguar 8, Toyota 1.
Næsta keppni fer fram í
Frakklandi um næstu helgi.