Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Blaðsíða 36
40 DV HELGARBLAD LAUGARDACUR 5.JÚLÍ2003
DV Sport
Keppni í hverju orði
Netfang: dvsport@dv.is
Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Hvaða stöðu spilar þú?
„Vinstri bakvörður."
Hvernig hefur ykkur gengið?
„Vel."
Hver er uppáhalds
knattspyrnumaðurinn þinn?
„Thierry Henry."
Hvernig finnst þér rigningin?
„Mérfinnst skemmtilegt að
spila í rigningu."
Aron Freyr Lárusson,
11 ára, úr Gróttu.
Hvaða stöðu spilar þú?
„Vörn."
Hvernig hefurykkur gengið?
„Nokkuð vel."
Hver er uppáhalds
knattspyrnumaðurinn þinn?
„Raúl."
Hvernig finnst þér rigningin?
„Ekki skemmtileg."
Aml Indriöason,
12ára, úrÍR.
Skagamenn, Skaga-
menn skoruðu mörkin
Endalaus uppspretta markaskoma afSkaganum
Það lið sem hingað til hefur skorað
mest í Esso-mótinu er A-lið Skaga-
manna. Þegar DV-Sport kíkti á leik
þeirra gegn Víkingi, sem endaði 2-2,
höfðu þeir skorað alls 37 mörk og
einungis fengið á sig þessi 2 mörk.
Tveir leikmenn liðsins, þeir Björn Berg-
mann Sigurðarson og Ragnar Leósson, hafa
til þessa séð að mestu um að koma boltan-
um í netmöskvana, alls skorað 26 mörk.
Drengirnir eru báðir 12 ára og eru á sínu
þriðja Esso-móti, þannig að þetta er þeirra
síðasta stórmót á íslandi þar sem spilað
með 7 manna liðum í túrneringu.
Blaðamanni DV-Sports lék forvitni á að
vita hvort það skipti þá félaga einhverju
máli hvor myndi skora fleiri mörk í mótinu.
Björn var fljótur að svara: „Jú, það skiptir
máli,“ en Ragnar svaraði: „Mér er alveg
sama.“
Til að komast að sannleikanum lagði
blaðamaður fyrir þá eftirfarandi spurningu:
Hvað ef þið væruð að spila sfðasta leik,
búnir að skora jafn mörg mörk, aðeins 10
sekúndur eftir og þið ættuð vítaspyrnu,
hvor ykkar myndi taka vítaspyrnuna. Og að
sjálfsögðu sögðust þeir báðir taka spyrnuna
(keppni í gangi).
Spurðir hvað sé skemmtilegast við Esso-
mótið segjast þeir félagar að sjálfsögðu
skemmtilegast að leika knattspyrnu, en að
auki væru þeir á leið í bíó sem og fóru þeir í
sund í gær.
Uppáhaldsleikmaður Björns er Denilson
hjá Real Betis en Ragnar gat ekki gert upp á
milli Zidane og Andrea Pirlo. Strákarnir
ætla að sjálfsögðu að leika til úrslita í Esso-
mótinu og þegar þeir eru inntir eftir því
hverjir séu líklegustu mótherjar þeirra telja
þeir Þórsara koma sterklega til greina. MARKASKORARAR: Skagamennirnir Ragnar Leósson og Björn Bergmann Sigurðarson (til hægri),
akureyri@dv.is markaskorarar með meiru. DV-mynd Ægir
552 Ieikirá4dögum
Mikið um að vera í að koma úrslitum á framfæri
Þriðji leikdagur Esso-mótsins endaði í
gær með glæsibrag. Örlítið rigndi um
hádegisbilið, en fótboltakapparnir
létu það ekki aftra sér og oft sáust
glæsileg tilþrif á völlunum átta við
KA-heimilið.
VEFSTJÓRINN: Guðbjartur Guðjónsson, netstjóri Esso-mótsins.
Guðbjartur Guðjónsson er maðurinn bak
við netið á Esso-mótinu. Á stórmóti eins og
Esso-mótinu er nauðsynlegt að upplýsingar
um úrslit leikja berist hratt og örugglega bæði
inn á keppnissvæðið og eins til ættingja og
vina sem heima sitja og bíða spenntir eftir úr-
slitum leikja. „Já, hingað berast nýjar tölur á
hálftíma fresti og við setjum úrslit leikjanna
strax inn á netið. Þar er einnig hægt að sjá
stöðuna í riðlunum," segir Guðbjartur, en alls
eru leiknir 552 leikir á 8 völlum yfir 4 leikdaga.
Guðbjartur er búinn að sjá um heimasíðu KA
síðan snemma árs 2000 og því er þetta þriðja
Esso-mótið sem hann starfar við. Þrátt fyrir
að vera búsettur á Dalvík lætur hann sig aldrei
vanta þegar eitthvað er um að vera kringum
KA-liðið, enda KA-maður inn í merg og bein.
Aðspurður hvort eitthvað óvænt komi aldrei
upp á í tölvuverinu viðurkennir Guðbjartur
að stundum komi upp smávandamál en þá
séu þau oftast leyst einn, tveir og þrír. Sérleg-
ur aðstoðarmaður Guðbjarts í upplýsingaher-
berginu er Árni Jóhannsson en tölvuverið er í
fundarherbergi KA-heimilisins og er það hýs-
ingarfyrirtækið
Þekking á Akur-
eyri sem lánar
þeim félögum
tölvukost yfir
mótsdagana,
auk þess að að-
stoða þá við
tæknileg vanda-
mál. En ná þeir
félagar að horfa
á einhvern fót-
boltaleik á Esso-
mótinu? „Nei,
við höfum ekki
tök á því, en við
fylgjumst með
okkar mönnum í
KA þegar úrslitin
koma íhús,“ seg-
ir Guðbjartur, en að hans mati er það að vera
innan um skemmtilegt og jákvætt fólk það
sem gefur manni mest að starfa í kringum
Esso-mótið. Heimasíðu KA er að finna á slóð-
inni www.ka-sport.is og þar smellir maður á
hnappinn, merktan Esso-mót (myndin af
Kroka). akureyri@dv.is
Upp úr miðjum degi hætti að rigna en
vellirnir voru enn blautir, ekki kvörtuðu
kapparnir, því þegar vellir eru hæfilega
blautir er oftast skemmtilegast að spila. í dag,
laugardag, ráðast úrslit mótsins og eru mörg
lið sem hafa sett stefnuna á fyrsta sætið f
sínum flokki; A, B, C, D, eða E.
Um keppni barna
Þegar börn fara að leika knattspyrnu hafa
þau lært undirstöðuatriði íþróttarinnar og
keppa til að fá örvun á íþróttaáhuga sinn, fá
útrás og ánægju, þau sjá hvar þau standa og
umfram allt læra þau að höndla sigur eins
og að taka tapi og mótlæti.
Foreldramir fá yfirleitt ekki neinar leið-
beiningar um sitt hlutverk og ræðst það oft
af karakter hvers og eins ásamt eigin mati á
þekkingu sinni hvemig þeir haga sér þegar
leikur stendur yfir.
Við þurfum að hugsa um námsferlið í