Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.2003, Blaðsíða 57
f
LAUCARDACUR S.JÚLl2003 TiLi'ERA 61
I
I
|
I
POWJSKSÝNING KL. 11.30.
Sýnd kl.3.50,4.30,6.10,6.50,8.30,9.10,10.50
og 11.30. POWERSÝMNG.Sýnd
AGENT CODY BANKS:
tfurg&raia
Sýnd kl.4,6,8 og 10.
DUMB AND DUMBERER:
Sýnd kl.8 og 10.
CONFIDENCE:
Sýnd kl. 6.
TÖFRABÚÐINGURINN:
Sýnd kl. 4.
FJÖLMIÐLAVAKTIN
Kristinn J. Arnarson
k]a&dv.is
Draumarnir
uppfylltir
Fastur liður í íslenskum sjónvarps-
þætti á Skjá einum felst í því að
stjórnendur bjóða einhverri þekktri
persónu að gleðja vin sinn með ein-
hverjum hætti. Oftar en ekki felst það
í að gefa vininum eitthvað og fær
verslunin sem selur viðkomandi
varning viðeigandi kynningu í þætt-
inum.
Allt er þetta voðalega sætt þótt svo
skemmtanagildið sé nú ekkert af-
skaplega mikið. Þetta minnti mig
hins vegar á annan þátt sem ég sá í
Bandaríkjunum um daginn þar sem
gengið er lengra en að bara gleðja
fólk - draumar þeirra eru uppfylltir,
hvorki meira né minna. Draumar um
nýtt útlit og fegurri líkama rætast á
nokkrum vikum og allt í boði fegurð-
ariðnaðarins í Hollywood. „Extreme
Makeover" heitir þátturinn og þar fá
nokkrir heppnir þátttakendur, valdir
úr hópi þúsunda umsækjenda,
„öfgakennda yfirhalningu", svo að
við þýðum titÚ þáttarins lauslega. Á
einu bretti er nefið tálgað til, kinn-
beinin skorin, rétt úr sjónskekkjunni,
varirnar fylltar, sogið úr mjöðmun-
um og hvaðeina, allt eftir óskum og
þörfum hvers og eins.
Á meðan á þessu stendur er fjöl-
skyldunni haldið í burtu og hún fær
ekkert að sjá fyrr en sárin eru gróin.
Þá er haldin móttaka þar sem tárvot-
ir eiginmenn, þakklátar mæður og
undrandi böm berja augum glænýj-
an fjölskyldumeðlim sem kemur í
stað þess sem var hent á haugana
nokkrum vikum áður. Svo endar
þátturinn á viðtölum þar sem þátt-
takendur segja frá því hve miidum
stakkaskiptum líf þeirra hefur tekið
með nýju útíiti. Og þúsundir panta
væntanlega fund hjá næsta lýta-
lækni.
STiÖRNUGJÖF DV
Nói albínói
Dark Blue ★ ★★
Respiro ★★★
Identity ★ ★★
Agent Cody Banks ★ ★★
Johnny English ★ ★Á
Tricky Life ★ ★Á
Anger Management ★ ★
2 Fast 2 Furious ★ ★
Kangaroo Jack ★ ★
Matrix Reloaded ★ ★
Bringing Down the House ★ ★
How to Lose a Guy in 10 Days ★"A
Old School ★
Dumb and Dumberer *
Cameron Diaz:
Stúlka sem öll-
um geðjast að
Cameron Diaz leikur eitt aðal-
hlutverkið f Charlie’s Angels: Full
Throttíe, sem frumsýnd var í gær.
Hún fæddist 30. ágúst 1972 í San
Diego í Kaliforníu. Faðir hennar
er verkstjóri á olíuvinnslustöð
og móðir hennar er sölumaður
á ferðaskrifstofu. Diaz lauk
aðeins gmnnskólaprófi. Þeg-
ar hún var sextán ára tók
tískuljósmyndari eftir henni
og tók af henni myndir.
Nokkmm vikum síðar var
hún komin með samning við
Elite Modeling Agency. Diaz
segir sjálf að það hafi verið
frekar erfitt fyrir hana að
sannfæra foreldra sína um
að hún væri í ömggum
höndum þegar fyrsta starf
hennar var að fara til Japans
ásamt einu öðm módeli, en
eins og flestir ákveðnir ung-
lingar nútímans hafði hún
sitt fram. Næstu fimm ámm
eyddi hún í tískubransanum og
vann sig upp í að verða vinsæl tán-
inga-ljósmyndafyrirsæta og var á
forsíðum blaða á borð við
Mademoiselle og Seventeen og í
auglýsingum hjá Calvin Klein,
Levi’s og Coca Cola, svo eitthvað sé
nefrit.
Það var umboðsmaður hennar
sem stakk upp á því að hún færi að
líta í kringum sig eftir kvikmynda-
hlutverkum. í kjölfarið fór Diaz í
pmfur. Eftir tólf pmfur var loks
hringt í hana og henni boðið að
vera staðgengill f The Mask, þar
sem þyrfti að æfa dans, en ekki var
búið að ráða leikkonu í hlutverkið.
Diaz tók boðinu en fór jafnframt að
vinna að því að fá hlutverkið. Hún
sagði meðal annars við leikstjór-
ann, Charles Russell, að það væri
ekkert vit í því að hún væri að æfa
dansspor sem önnur leikkona
myndi síðan apa eftir. Russell, sem
leist vel á þéssa ungu stúlku, fór til
framleiðanda myndarinnar og
sagði að það væri ekki svo vitíaust
að taka áhættu með þessa stúlku
þótt reynsiulaus væri og Diaz var
ráðin. Ferill hennar hefur sfðan
verið með eindæmum farsæll og
með There’s Something about
Mary festi hún sig á stjörnuhimnin-
um.
Cameron er lífsglöð og skemmtir
sér mikið. í fimm ár bjó hún með
videoframleiðandanum Carlos de
La Torre. Þegar slitnaði upp úr því
sambandi tókust ástir með henni
og Matt Dillon. Því sambandi lauk
eftir þrjú ár og er Diaz búin að bæta
nokkrum kærustum við síðan,
meðal annars leikaranum Jared
Leto og nú síðast Vince Vaughan.
Ferill Cameron Diaz
í kvikmyndum
TbeMask, 1994
The Last Supper, 1995
She'sTheOne, 1996
Feeling Minnesota, 1996
Head Above Water, 1996
Keys toTjlsa, 1997
My Best Friend's Wedding, 1997
A Life Less Ordinary, 1997
Fear and Loathing in Las Vegas, 1998
There's Something About Mary, 1998
Very Bad Things, 1998
Being John Malkovich, 1999
Any Given Sunday, 1999
Charlie's Angels, 2000
The Invisible Cirkus, 2001
Shrek, (rödd) 2001
Vanilla Sky, 2001
The SweetestThing, 2002
Gangsof NewYork, 2002
Charlie's Angels: Full Throttle, 2003