Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2003, Síða 4
4 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ2003
Átta sóttu um embætti hæstaréttardómara
HÆSTIRÉTTUR: Umsóknarfrest-
ur um laust embætti hæstarétt-
ardómara rann út 25. júlí sl. Um
embættið sóttu: Allan Vagn
Magnússon héraðsdómari,
Eggert Óskarsson héraðsdóm-
ari, EiríkurTómasson prófessor,
Hjördís Hákonardóttir héraðs-
dómari, Jakob R. Möller hæsta-
réttarlögmaður, Ólafur Börkur
Þorvaldsson dómstjóri, Ragnar
Halldór Hall hæstaréttarlög-
maður og Sigrún Guðmunds-
dóttir hæstaréttarlögmaður.
Dómsmálaráðuneytið hefur
óskað eftir umsögn Hæstarétt-
ar um hæfi umsækjenda til að
gegna dómaraembætti við rétt-
inn. Forseti (slands skipar í
embættið samkvæmt tillögu
dómsmálaráðherra að fenginni
umsögn Hæstaréttar.
Ráðherra skoðar Vestfirði
HEIMSÓKN: Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra fór í gær í
þriggja daga ferðalag um Vest-
firði. Hún mun skoða þau
svæði sem eru í drögum að
náttúruverndaráætlun en áætl-
unin verður lögð fyrir Alþingi. f
drögunum eru alls 77 svæði
og hefur ráðherra skoðað
drjúgan hluta þeirra en þrjú
svæðanna eru á Vestfjörðum.
Fólk skoði húsin sín
með augum þjófa
í nýútkominni ársskýrslu lög-
reglustjórans í Reykjavík fyrir
árið 2002 kemur fram að inn-
brotum hefur fjölgað stöðugt
frá fyrri árum og í fyrra voru að
meðaltali sex innbrot á dag í
Reykjavík. Nú fer senn í hönd
ein mesta gósentíð innbrots-
þjófa, verslunarmannahelgin,
og því er mikilvægt að þeir sem
stefna á ferðalög hugi að ör-
yggisatriðum heima hjá sér.
Guðmundur Gígja aðstoðaryfir-
lögregluþjónn sagði að aðalatriðið
væri að fólk skoðaði húsin sín með
augum þjófa og athugaði hvort al-
mennilega væri gengið frá öllum
iæsingum. Hann sagði að algeng-
ustu gluggalæsingarnar sem væri
smellt niður og til hliðar væru mjög
lélegar og að hver sem væri gæti
TIL UMHUGSUNAR
ÁÐUR EN FARIÐ ER í FRÍ
• gæta þess að ganga tryggilega frá
hurðum og gluggum og skilja ekki
varalykil eftir á vafasömum stað.
• láta líta út fyrir að einhver sé
heima, t.a.m. með því að hafa þvott á
snúru og fá nágranna til að nota bíla-
stæðið.
• skilja eftir útvarp I gangi, hæfilega
hátt stillt og hafa Ijós kveikt á sýni-
legum stað í húsinu.
• ekki láta símsvarann tilkynna um
fjarveru íbúa og hversu lengi þeir
verða í burtu.
• ekki láta póstinn hlaöast upp og
auglýsa þannig fjarveru (búa.
• koma dýrmætum hlutum, eins og
frímerkja- eða myntsafni, dýrum
skartgripum o.þ.h. fyrir á öruggum
stað, t.d. I bankahólfi.
• gera skrá yfir aðra verðmæta hluti
og jafnvel taka myndir af þeim til að
eiga.
• loðinn grasblettur getur gefið vís-
bendingar um mannlaust hús.
INNBROT: Innbrotum hefur fjölgað mjög á síðustu árum og innbrotsþjófar hugsa sér
væntanlega gott til glóðarinnar um verslunarmannahelgina. DV-mynd Hilmar Þór
VAKANDI FYRIR GRUNSAM-
LEGUM MANNAFERÐUM
Það hefur oft gerst að menn hafi
hringt dyrabjöllu og spurt eftir ein-
hverjum með nafni og sagt að þeir
hafi átt að taka hann með í vinnu eða
eitthvað álíka. Þegar sagt er að eng-
inn slíkur búi þar hafa mennirnir af-
sakað sig með að hafa farið götuvillt.
Stundum hafa þessir menn notað
aðrar afsakanir og ástæður. Þarna eru
menn oft að kanna hvort einhver sé
heima í húsinu með það í huga að
brjótast inn. Ástæða er til að benda
fólki á að vera á verði gagnvart svona
mönnum, fylgjast með ferðum þeirra
og tilkynna tii lögreglu.
farið inn um slíka glugga. „Nauð-
synlegt er að fólk hafi krækjur á
gluggunum til að reyna að koma í
veg fyrir innbrot," sagði Guðmund-
ur. Hann benti einnig á að kjallara-
tröppur sem væru á bak við hús og
í skugga hjálpuðu innbrotsþjófum
og auðvelduðu þeim iðju sína.
„Það er margt sem fólk
getur gert tilþess að
minnka líkurnar á inn-
broti áður en ráðist er í
að kaupa dýrar inn-
brotsvarnir."
Aukið eftirlit lögreglu
Að sögn Guðmundar mun lög-
reglan auka eftirlit sitt um verslun-
armannahelgina og verða fleiri
ómerktir lögreglubílar á götunum,
en hann benti á að aldrei væri hægt
að fylgjast með hverju einasta húsi.
„Það er margt sem fólk getur gert til
þess að minnka líkurnar á innbroti
áður en ráðist er í að kaupa dýrar
innbrotsvarnir. Fyrst og fremst er
mikilvægt að fólk átti sig á því að
hægt sé að brjótast inn til þess.“
Guðmundur sagði að góðir ná-
grannar með opin augu væru
ómetanlegir og að alltaf væri nokk-
uð um það að nágrannar tilkynntu
VIÐBRÖGÐ VIÐ INNBROTI
ER BROTAMAÐUR ENN
ÁVETTVANGI?
Það fyrsta er að gæta þess að inn-
brotsþjófurinn sé ekki á vettvangi. Þá
verður að loka fyrir óþarfan umgang
á innbrotsstaðnum svo ekki sé hætta
á að hugsanlegum sakargögnum
verði spillt.
HVERT Á AÐ HAFA SAMBAND?
Næst er að hafa samband við lög-
reglu i síma 112 og tilkynna um inn-
brotið.
MÁ FARA UM BROTAVETTVANG?
Áfram verður að vernda innbrotsvett-
vanginn og nánasta umhverfi hans
með því að gæta skófara, hjólfara,
muna og annars sem hugsanlega
tengist innbrotinu eða innbrotsþjófi.
Best er að hafa vettvanginn lokaðan
þangað til lögreglan kemur svo að
fólk sé ekki að ganga þar fram og aft-
ur og þukla á hlutum sem ekki má
snerta.
MÁ YFIRGEFA VETTVANG?
Þegar lögregla kemur á vettvang þarf
tilkynnandinn, eða annar sem er
kunnugur húsnæði og aðstæðum, að
vera á staðnum og gefa eins góðar
upplýsingar og honum er unnt.
grunsamlegar mannaferðir til lög-
reglunnar. „Sumir eru þó eitthvað
feimnir við að tilkynna mannaferð-
ir til lögreglu en það betra að þeir
tilkynni slflct til okkar of oft heldur
en of sjaldan."
„Fyrst og fremst
er mikilvægt að menn
átti sig á því að hægt sé
að brjótast inn til
þeirra."
Lögreglan hefur tekið saman
nokkra punkta sem ágætt er að
hafa í huga áður en lagt er af stað í
ferðalagið og hægt er að nálgast all-
ar uppiýsingar á heimasfðu lögregl-
unnar. erlakristin@dv.is
INNBROT í BÍLA
• ólæst bifreið er auðvelt skotmark.
Skijið bíl aldrei eftir ólæstan, með
rúður niðri eða sóllúgu opna.
• sýnilegur varningur er freistandi
fyrir þjófa. Varist að skilja varning eft-
ir í bílnum því hann getur virst verö-
mætur og þar af leiðandi góð ástæða
til að brjótast inn í bílinn.
• falinn varningur gefur vísbending-
ar um verðmæti. Það er ekki nóg að
breiða yfir varninginn í bílnum ef
þjófarnir sjá aö eltthvað er falið undir
ábreiðu.
• verkfærl eru góð söluvara. Mikil-
vægt er að taka a.m.k. verðmætustu
verkfærin úr bílnum þegar hann er
yfirgefinn.
• hanskahólfið er yfirleitt fyrsti stað-
urinn sem innbrotsþjófar leita á. Því
er lltil vörn í að geyma peningaveski
eða önnur verðmæti þar.
• llmmiðar og annað sem gefurtil
kynna dýr hljómflutningstæki eykur
hættuna á innbrotum.
• þjófar eiga erfiðara með að at-
hafna sig I næöi ef bílnum er lagt á
vel upplýstum stað.
• innbrot I bíla I bílageymslum eru
ekki síður algeng en innbrot I bíla
sem geymdir eru utandyra. Því er
mikilvægt að tryggja öryggi blla-
geymslunnar.
1-- i ■ iTfin.i
f SiniU^'X “ wy::
FORVARNIR: Góðir nágrannar geta verið ómetanlegir og lögregla segir alltað nokkuð um að þeir tilkynni innbrot.